Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 94
Eitthvað sEm snErtir við fólki í raunvErulEikanum En Er um lEið afþrEying og fólk hEfur gaman af því að horfa á. Þó að sumarið virðist ætla að láta bíða dálítið eftir sér á Íslandi þessi dægrin er ekkert lát á íslenska kvikmynda-vorinu. Í íslenskri kvik- myndagerð er reyndar löngu komið hásumar enda mikið framleitt og frumsýnt af nýju og vönduðu efni af ýmsum toga. Nýjasta viðbótin er kvikmyndin Vargur í leikstjórn Barkar Sigþórssonar og framleiðslu RKV Studios. Þó að Börkur hafi lengi fengist við kvikmyndagerð er þetta hans fyrsta leikna kvikmynd í fullri lengd en hann var byrjaður að fást við leikstjórn strax fyrir tvítugt. „Ég byrjaði á því að leikstýra tónlistar- myndböndum og fór snemma til Bretlands þar sem ég var að vinna við að gera bæði tónlistarmynd- bönd og auglýsingar, auk þess að fást við stuttmyndagerð þess á milli. Í kjölfarið á því var mér boðið að taka að mér leikstjórn í Ófærð þar sem ég leikstýrði tveimur þáttum sem var hentugt vegna þess að þá var handritið að kvikmyndinni fullmótað og ég búinn að semja við framleiðendur. Að auki fór ég út og gerði þátt í seríu sem kallast Endeavour hjá ITV og það er að landa mér verkefni hjá BBC. Þannig að þetta hefur verið að koma svona eitt af öðru, boltinn er að rúlla,“ segir Börkur léttur. Starf leikstjórans Aðspurður um þennan bakgrunn í kvikmyndagerðinni segir Börkur að tónlistarmyndbönd og auglýsingar séu góður skóli. „Þetta eru miðlar sem reiða sig á myndmálið rétt eins og kvikmyndirnar. Þarna verður þú að geta sagt sögu á mjög stuttum tíma og í mynd og þá nýttist mér líka vel bakgrunnur í ljósmyndun því maður er alltaf að leita að þessu hlaðna augnabliki. Finna myndmál- ið sem segir mest og það skilar sér einkar vel í spennumyndaforminu þegar það er rík þörf á því að fanga stemningu fremur en orð. Það er í raun synd hvað allt er breytt í kringum tónlistarmynd- böndin í dag frá því að ég var að fást við þau. Það var verið að skjóta á filmu með alvöru kostnaðaráætlun og maður var að vinna með alvöru fagfólki. Skipulagið þá var mun líkara því sem er í kvikmyndum og auglýsingum sem gerði það miklu léttara að fara þarna á milli eða koll af kolli. Þetta er því miður aðeins að glatast núna því ég get vel ímyndað mér að ef ég væri að byrja í tónlistar- myndböndum í dag væri ég meira bara með mína stafrænu myndavél og félaga mína mér til aðstoðar en engan aðgang að einhverjum inn- viðum. Maður gat komist í tæki og tól og framleiðslufyrirtækin hjálp- uðu manni ef maður var bara nægi- lega graður og maður var að stela filmum úr kælum svona hér og þar. En maður var að vinna í umhverfi sem er miklu nær eiginlegri kvik- myndagerð.“ Börkur segir að þetta hafi skipt miklu máli vegna þess að leikstjórn sé að svo miklu leyti fólgin í að kunna að raða fólki í kringum sig. „Að kunna að nýta krafta fólks til fullnustu. Fólk sem er með getu sem er langt umfram það sem maður hefur sjálfur. Þess vegna er stund- um talað um það að þegar maður er kominn með handrit, leikara og mannskap þá sé maður sem leik- stjóri eiginlega búinn með 80% af vinnunni. Þá er bara að setjast niður og gæta þess að allt fari rétt fram.“ Börkur segir að það hafi líka gert hans vinnu ánægjulega hversu gott fólk hann hafi fengið til starfa við Varg. Í aðalhlutverkum eru Gísli Örn Garðarsson, Baltasar Breki Samper, Marijana Jankovic, Anna Próchniak og auk þess hafi verið valinn maður í hverju rúmi hvorum megin sem var myndavélarinnar. Glæpasagan og samfélagið Auk þess að vera leikstjóri Vargs þá er Börkur einnig höfundur hand- ritsins sem hann byrjaði að vinna að árið 2009. „Ég var að dúlla mér við þetta handrit í nokkur ár en það er í raun búið að vera tilbúið síðan 2013 en það er þolinmæðisverk að búa til kvikmynd.“ Börkur segir að Vargur fjalli um tvo bræður sem hafi farið mjög ólík- ar leiðir í lífinu en eru báðir í vanda staddir fjárhagslega en af ólíkum ástæðum. „Þeir snúa bökum saman og skipuleggja innflutning á einu og hálfu kílói af kókaíni en það fer allt til fjandans. Án þess að ég vilji nú segja of mikið þá er sagan einkum um hvað gerist eftir að burðardýrið þeirra veikist og viðbrögð þeirra við þeirri stöðu sem er komin upp. Svona hvernig þeir tækla stöðuna ef svo má segja og hvernig það knýr fram og opinberar þeirra innra eðli.“ Þegar horft er til þess að Börkur byrjaði að vinna að þessari hug- mynd í kjölfar efnahagshrunsins vaknar óneitanlega sú spurning hvort verkið sé samfélagslegs eðlis auk þess að vera hefðbundin spennumynd? „Já, sannarlega. Þetta kemur vissulega mikið upp úr pæl- ingum um hrunið því það tímabil bæði var og er mér mjög hugleikið. Hvernig það blöstu við brestir í samfélaginu og íslenskri þjóðar- sál? Glæpasagan er einmitt frábært form til þess að skoða samfélagslega þætti og ekki síður eitthvað sem snýr að manni sjálfum persónu- lega. Á þessum tíma þurfti ég eins og svo margir að horfast í augu við mína forgangsröðun. Spyrja mig hver minn þáttur væri í þessu öllu saman og hvernig ég væri á einhvern hátt þátttakandi og túlkandi í öllum þessum umbrotum. Fyrir slíka rannsókn er glæpasag- an frábær leið vegna þess að innan hennar getur maður ýkt hluti sem maður finnur í eigin fari og skoðað þá í öðru samhengi. Þó maður sé ekki að velta fyrir sér innflutningi á fíkniefnum þá getur maður engu að síður skoðað hvar og hvernig maður hefur stytt sér leið í gegnum tíðina. Þarf ég að horfast í augu við það? Þetta finnst mér skemmti- legt að skoða en þannig er að fást við sköpun; maður tekur allt sem maður upplifir og hrærir í einn graut. Hvort sem það eru sigrar eða áföll þá verður það manni allt að innblæstri.“ Það er mikill uppgangur í leiknu efni víða í heiminum þessa dagana og Börkur segir að það sé gaman að sjá hversu óseðjandi eftirspurn virðist vera eftir vönduðu afþrey- ingarefni. „Efni sem spyr spurninga og veltir upp málum sem snerta samtímann og líf okkar. Ég held að fólk vilji ekkert endalaust vera að flýja veruleikann heldur er það þessi gullna blanda á milli afþreyingar og félagslegs gildis sem svo mikil eftir- spurn virðist vera eftir. Eitthvað sem snertir við fólki í raunveruleikanum en er um leið afþreying og fólk hefur gaman af því að horfa á. Þú getur farið og horft á bíómynd fyrir poppkornið en ef hún býr yfir raun- verulegri dýpt þá er hún einfaldlega miklu áhugaverðari fyrir fleiri. Þannig að ég held að kvikmyndir þurfi ekki að vera annaðhvort eða. Mér finnst líka mikilvægt að það blasi ekki við einhvers konar pre- dikun kvikmyndagerðarmannsins því starf listamannsins er að velta upp spurningum en ekki endilega að sjá þér fyrir svörum.“ Glæpasagan er frábær til þess að skoða samfélagið kvikmyndin vargur var frumsýnd í vikunni við góðar undirtektir. Börkur sigþórsson leikstjóri segir hlutverk listamannsins vera að velta upp spurningum fremur en að predika í verkum sínum. Börkur Sigþórsson segir að tónlistarmyndbönd og auglýsingagerð hafi reynst honum góður skóli í kvikmyndagerð. FréttaBlaðið/anton Brink leikkonan anna Próchniak fer með eitt af aðalhlutverkunum í Vargi. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R54 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð menning 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -5 D D 8 1 F B 2 -5 C 9 C 1 F B 2 -5 B 6 0 1 F B 2 -5 A 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.