Fréttablaðið - 05.05.2018, Qupperneq 94
Eitthvað sEm
snErtir við fólki í
raunvErulEikanum En Er um
lEið afþrEying og fólk
hEfur gaman af því að
horfa á.
Þó að sumarið virðist ætla að láta bíða dálítið eftir sér á Íslandi þessi dægrin er ekkert lát á íslenska kvikmynda-vorinu. Í íslenskri kvik-
myndagerð er reyndar löngu komið
hásumar enda mikið framleitt og
frumsýnt af nýju og vönduðu efni
af ýmsum toga. Nýjasta viðbótin
er kvikmyndin Vargur í leikstjórn
Barkar Sigþórssonar og framleiðslu
RKV Studios. Þó að Börkur hafi lengi
fengist við kvikmyndagerð er þetta
hans fyrsta leikna kvikmynd í fullri
lengd en hann var byrjaður að fást
við leikstjórn strax fyrir tvítugt. „Ég
byrjaði á því að leikstýra tónlistar-
myndböndum og fór snemma til
Bretlands þar sem ég var að vinna
við að gera bæði tónlistarmynd-
bönd og auglýsingar, auk þess að
fást við stuttmyndagerð þess á milli.
Í kjölfarið á því var mér boðið að
taka að mér leikstjórn í Ófærð þar
sem ég leikstýrði tveimur þáttum
sem var hentugt vegna þess að þá
var handritið að kvikmyndinni
fullmótað og ég búinn að semja
við framleiðendur. Að auki fór ég
út og gerði þátt í seríu sem kallast
Endeavour hjá ITV og það er að
landa mér verkefni hjá BBC. Þannig
að þetta hefur verið að koma svona
eitt af öðru, boltinn er að rúlla,“
segir Börkur léttur.
Starf leikstjórans
Aðspurður um þennan bakgrunn í
kvikmyndagerðinni segir Börkur að
tónlistarmyndbönd og auglýsingar
séu góður skóli. „Þetta eru miðlar
sem reiða sig á myndmálið rétt eins
og kvikmyndirnar. Þarna verður
þú að geta sagt sögu á mjög stuttum
tíma og í mynd og þá nýttist mér
líka vel bakgrunnur í ljósmyndun
því maður er alltaf að leita að þessu
hlaðna augnabliki. Finna myndmál-
ið sem segir mest og það skilar sér
einkar vel í spennumyndaforminu
þegar það er rík þörf á því að fanga
stemningu fremur en orð.
Það er í raun synd hvað allt er
breytt í kringum tónlistarmynd-
böndin í dag frá því að ég var að fást
við þau. Það var verið að skjóta á
filmu með alvöru kostnaðaráætlun
og maður var að vinna með alvöru
fagfólki. Skipulagið þá var mun
líkara því sem er í kvikmyndum og
auglýsingum sem gerði það miklu
léttara að fara þarna á milli eða koll
af kolli. Þetta er því miður aðeins að
glatast núna því ég get vel ímyndað
mér að ef ég væri að byrja í tónlistar-
myndböndum í dag væri ég meira
bara með mína stafrænu myndavél
og félaga mína mér til aðstoðar en
engan aðgang að einhverjum inn-
viðum. Maður gat komist í tæki og
tól og framleiðslufyrirtækin hjálp-
uðu manni ef maður var bara nægi-
lega graður og maður var að stela
filmum úr kælum svona hér og þar.
En maður var að vinna í umhverfi
sem er miklu nær eiginlegri kvik-
myndagerð.“
Börkur segir að þetta hafi skipt
miklu máli vegna þess að leikstjórn
sé að svo miklu leyti fólgin í að
kunna að raða fólki í kringum sig.
„Að kunna að nýta krafta fólks til
fullnustu. Fólk sem er með getu sem
er langt umfram það sem maður
hefur sjálfur. Þess vegna er stund-
um talað um það að þegar maður
er kominn með handrit, leikara og
mannskap þá sé maður sem leik-
stjóri eiginlega búinn með 80% af
vinnunni. Þá er bara að setjast niður
og gæta þess að allt fari rétt fram.“
Börkur segir að það hafi líka gert
hans vinnu ánægjulega hversu gott
fólk hann hafi fengið til starfa við
Varg. Í aðalhlutverkum eru Gísli Örn
Garðarsson, Baltasar Breki Samper,
Marijana Jankovic, Anna Próchniak
og auk þess hafi verið valinn maður
í hverju rúmi hvorum megin sem
var myndavélarinnar.
Glæpasagan og samfélagið
Auk þess að vera leikstjóri Vargs þá
er Börkur einnig höfundur hand-
ritsins sem hann byrjaði að vinna að
árið 2009. „Ég var að dúlla mér við
þetta handrit í nokkur ár en það er í
raun búið að vera tilbúið síðan 2013
en það er þolinmæðisverk að búa til
kvikmynd.“
Börkur segir að Vargur fjalli um
tvo bræður sem hafi farið mjög ólík-
ar leiðir í lífinu en eru báðir í vanda
staddir fjárhagslega en af ólíkum
ástæðum. „Þeir snúa bökum saman
og skipuleggja innflutning á einu og
hálfu kílói af kókaíni en það fer allt
til fjandans. Án þess að ég vilji nú
segja of mikið þá er sagan einkum
um hvað gerist eftir að burðardýrið
þeirra veikist og viðbrögð þeirra
við þeirri stöðu sem er komin upp.
Svona hvernig þeir tækla stöðuna
ef svo má segja og hvernig það knýr
fram og opinberar þeirra innra eðli.“
Þegar horft er til þess að Börkur
byrjaði að vinna að þessari hug-
mynd í kjölfar efnahagshrunsins
vaknar óneitanlega sú spurning
hvort verkið sé samfélagslegs
eðlis auk þess að vera hefðbundin
spennumynd? „Já, sannarlega. Þetta
kemur vissulega mikið upp úr pæl-
ingum um hrunið því það tímabil
bæði var og er mér mjög hugleikið.
Hvernig það blöstu við brestir í
samfélaginu og íslenskri þjóðar-
sál? Glæpasagan er einmitt frábært
form til þess að skoða samfélagslega
þætti og ekki síður eitthvað sem
snýr að manni sjálfum persónu-
lega. Á þessum tíma þurfti ég eins
og svo margir að horfast í augu við
mína forgangsröðun. Spyrja mig
hver minn þáttur væri í þessu öllu
saman og hvernig ég væri á einhvern
hátt þátttakandi og túlkandi í öllum
þessum umbrotum.
Fyrir slíka rannsókn er glæpasag-
an frábær leið vegna þess að innan
hennar getur maður ýkt hluti sem
maður finnur í eigin fari og skoðað
þá í öðru samhengi. Þó maður sé
ekki að velta fyrir sér innflutningi
á fíkniefnum þá getur maður engu
að síður skoðað hvar og hvernig
maður hefur stytt sér leið í gegnum
tíðina. Þarf ég að horfast í augu við
það? Þetta finnst mér skemmti-
legt að skoða en þannig er að fást
við sköpun; maður tekur allt sem
maður upplifir og hrærir í einn
graut. Hvort sem það eru sigrar eða
áföll þá verður það manni allt að
innblæstri.“
Það er mikill uppgangur í leiknu
efni víða í heiminum þessa dagana
og Börkur segir að það sé gaman
að sjá hversu óseðjandi eftirspurn
virðist vera eftir vönduðu afþrey-
ingarefni. „Efni sem spyr spurninga
og veltir upp málum sem snerta
samtímann og líf okkar. Ég held að
fólk vilji ekkert endalaust vera að
flýja veruleikann heldur er það þessi
gullna blanda á milli afþreyingar og
félagslegs gildis sem svo mikil eftir-
spurn virðist vera eftir. Eitthvað sem
snertir við fólki í raunveruleikanum
en er um leið afþreying og fólk
hefur gaman af því að horfa á. Þú
getur farið og horft á bíómynd fyrir
poppkornið en ef hún býr yfir raun-
verulegri dýpt þá er hún einfaldlega
miklu áhugaverðari fyrir fleiri.
Þannig að ég held að kvikmyndir
þurfi ekki að vera annaðhvort eða.
Mér finnst líka mikilvægt að það
blasi ekki við einhvers konar pre-
dikun kvikmyndagerðarmannsins
því starf listamannsins er að velta
upp spurningum en ekki endilega
að sjá þér fyrir svörum.“
Glæpasagan er frábær til þess að skoða samfélagið
kvikmyndin vargur var frumsýnd í vikunni við góðar undirtektir. Börkur sigþórsson leikstjóri segir
hlutverk listamannsins vera að velta upp spurningum fremur en að predika í verkum sínum.
Börkur Sigþórsson segir að tónlistarmyndbönd og auglýsingagerð hafi reynst honum góður skóli í kvikmyndagerð. FréttaBlaðið/anton Brink
leikkonan anna Próchniak fer með eitt af aðalhlutverkunum í Vargi.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R54 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð
menning
0
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
2
-5
D
D
8
1
F
B
2
-5
C
9
C
1
F
B
2
-5
B
6
0
1
F
B
2
-5
A
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K