Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 66
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Dagurinn byrjar vel með lokkandi ilmi af nýbökuðum skonsum. Það er ómótstæðileg byrjun á deginum að vakna við lokkandi ilm af nýbökuðum skonsum og fá að maula þær upp við mjúka kodda með nýþeyttu jarðarberjasmjöri, nýlöguðu kaffi, ávöxtum og nýkreistum appelsínu- safa, og vita að það er rétt smjör- þefurinn af dásamlegum frídegi þar sem hver er sinnar gæfu og gleði smiður. Margir eiga frosna rabarbarabita í frystinum og það er bæði einfalt og fljótlegt að baka skonsur. Ef það er afgangur af skonsunum má stinga þeim í frysti til að eiga á komandi sunnudagsmorgnum eða til að smyrja með góðu áleggi fyrir heilnæma og endurnærandi útivist nú þegar blessuð lóan ætlar að kveða burt snjóinn. Rabarbaraskonsur 6 dl hveiti 1 msk. lyftiduft 1 msk. vanillusykur ½ tsk. salt ½ dl sykur 125 g smjör 1¼ dl mjólk eða rjómi 3 stilkar rabarbari Hitið ofninn í 220°C. Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti, sykri og vanillusykri í skál. Myljið litla bita af smjöri út í. Hellið mjólk saman við og hnoðið í höndum eða hrærivél. Deigið á að vera aðeins blautt. Setjið rabarbarabit- ana út í deigið og hnoðið saman á hægum hraða til að þeir haldi sér sem bitar. Fletjið deigið út með kökukefli svo það verði 3 cm að þykkt og skerið út kringlóttar kökur með glasi. Þeytið egg með gaffli og blandið saman við mjólk til að pensla skonsurnar áður en þær fara í ofninn og stráið örlitlu af sykri yfir. Setjið á bökunarplötu og bakið í 12-15 mín. eða þar til skonsurnar eru orðnar gylltar. Berið fram með rjómaosti og sultu eða jarðarberjasmjöri. Jarðarberjasmjör 110 g mjúkt smjör 6 jarðarber 1 tsk. sykur ½ tsk. sítrónusafi Maukið jarðarberin, setjið í pott og hitið við lágan hita í um 2 mín. Bætið við sykri og sítrónusafa. Kælið maukið og þeytið því næst saman við smjörið. Dásamleg byrjun á góðum degi Helgarfrí eru kærkomin og tilvalið að auka enn á hamingj- una með því að bera fram morgunmat í rúmið og koma sínum nánustu á óvart með heimabökuðu hnossgæti. Það er rómantískt að færa ástinni sinni morgunverð í rúmið. Rósin talar sínu máli en matur er líka leið að hjarta mannsins, eins og þessar rabarbara­ skonsur og jarðarberjasmjör. BRÚÐKAUPSBLAÐ GLAMOUR Allt sem þú þarft að vita um brúðkaup! Hefðirnar afhverju erum við með brúðarvönd og hver er tilgangurinn með slörinu? 100 BLAÐSÍÐUR um stóra daginn, veisluna, fötin, förðunina, hárið, skipulagið, skreyting- arnar og brúðkaupsferðina. Lestu blaðið FRÍTT á GLAMOUR.IS 10 KYNNINGARBLAÐ 5 . m A í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RfóLK 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -A C D 8 1 F B 2 -A B 9 C 1 F B 2 -A A 6 0 1 F B 2 -A 9 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.