Fréttablaðið - 05.05.2018, Page 76

Fréttablaðið - 05.05.2018, Page 76
Me ð t i l k o m u netsins rofnaði hins vegar rit-s t j ó r n a r l e g a taumhaldið á þeim og þeir hafa verið óstöðvandi og stjórn- lausir upp frá því. Lausleg yfirferð yfir lesendasíður Morgunblaðsins og DV á síðasta áratug liðinnar aldar sýnir svo ekki verður um villst að skapgerðar- brestir þeirra sem þurfa endalaust að deila gremju sinni með alþjóð hafa lítið breyst. Næsta víst er einnig að þeir orð- ljótustu engdust í bældum pirringi fyrir tíma netsins en illu heilli lenda skeytasendingar þeirra ekki lengur í ruslafötunni. thorarinn@frettabladid.is Taumhald á virkum í athugasemdum Svokallaðir „virkir í athugasemdum“ eru áhugaverð og undar- lega samansett hjörð fólks sem telur sig vita allt best og hefur nánast þráhyggju- kennda þörf fyrir að auglýsa visku sína og djúpan lífsskilning í athugasemda- kerfum netmiðlanna. „Virkir“ hafa að vísu alltaf verið til en á pappírsöld létu þeir helst að sér kveða í lesendabréfum dag- blaðanna. Ljótur leikur Nafnleynd, dulnefni og fölsk nöfn hafa verið öflugt vopn virkra í athugasemd-um frá því löngu áður en þeir ómerkilegustu í þeirra röðum fóru að sniglast um internetið. Þessu brenndi Mogginn sig á þegar Rósa-lín, sem skoraði á Ómar Ragnarsson að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands, reyndist alls ekki vera Rósalín. Brögð voru í tafli og Mogginn brást skjótt við og baðst afsök-unar á því að hafa dregið Ómar inn í ljótan leik. Varúð: Pamela! Heldur þótti honum Þor- birni RÚV ógna almennu siðgæði landsmanna með sýningum á sjón- varpsþáttunum Strand- verðir, eða Baywatch, hvar Pamela Anderson fór mikinn í flegnum, rauðum sundbol. Allt var þarna vaðandi í lauslæti og persónum og leik- endum ómögulegt að hylja nekt sína almenni- lega. Alltaf eitthvað til að tuða yfir Skoðanafíklar láta sig allt varða og einblína ekki aðeins á stjórnmál og siðapredikanir úr sínum háu söðlum. Ef maður finnur ekkert til þess að nöldra yfir, þá er alltaf verið að breyta einhverju, til dæmis Prins Póló, bara til þess að skemma fyrir manni. Ríkisklámið RÚV hefur löngum verið vinsælt skot- mark kverúlanta sem hafa aldrei átt í vandræðum með að finna eitthvað í dag- skránni til að æðrast yfir. Oftast er þetta allt bölvað klám og sori hvort sem efnið er innflutt eða heima- framleiðsla. Ruglaður Radíusklerkur Davíð Þór Jónssyni, þá skemmti- krafti en nú sóknarpresti, hefur reynst einkar lagið að æra óstöðuga í áratugi. Hann og Radíusbróðir hans, Steinn Ármann Magnússon, gengu fram af henni Soffíu og fleirum skömmu fyrir aldamót. Þóttu illa til fara og subbulegir. Þessi reiðilestur er síðan engla- söngur miðað við það sem Soffíur vorra tíma hafa gólað á séra Davíð eftir að hann gerðist pönksöngvari. Er þetta frétt? Ekkert veitir virkum í athugasemdum meiri sálarfró en að skera úr um hvað er fréttnæmt og hvað ekki og krossfesta fjölmiðla og blaðafólk mörgum sinnum á dag fyrir að vera alltaf að segja fréttir sem þeim finnst ekki vera fréttir. Og þar sem hver og einn virkur er mælikvarði allra hluta hafa þeir alltaf rétt fyrir sér. Félagslegt ofbeldi Andfélagslegur mótþrói er oft ríkjandi þáttur í fari virkra í at- hugasemdum á öllum tímum. Af hverju má maður ekki reykja í friði? Þetta er sígilt þrætuepli þótt nú sé oftar spurt af hverju maður megi ekki veipa í friði. 5 . M A Í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -5 3 F 8 1 F B 2 -5 2 B C 1 F B 2 -5 1 8 0 1 F B 2 -5 0 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.