Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 8

Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 8
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is ENDURNÝJAÐU TENGSLIN MEÐ KODIAQ OG KAROQ. KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA. ŠKODA KAROQ frá: 3.890.000 kr. ŠKODA KODIAQ 4x4 frá: 5.590.000 kr.5 ára á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H E K LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d Kjaramál „Það sem við vorum að vonast til að myndi gerast í þessum samningum var að vinnumatinu yrði kastað út,“ segir Linda Rós Michaelsdóttir, kennari í Mennta- skólanum í Reykjavík, um kjara- samninga Félags framhaldsskóla- kennara við ríkið. Atkvæðagreiðsla um samningana hófst á miðviku- daginn og stendur fram til klukkan tvö á mánudag. Á hádegi í gær hafði um 41 prósent félagsmanna greitt atkvæði. Linda Rós segist telja að samn- ingurinn verði felldur og sjálf vonast hún til þess að hann verði kolfelldur. „Ég hugsa að það hefðu töluvert fleiri skoðað þetta jákvætt ef vinnumatinu hefði verið hent út. Vegna þess að vinnumatið er slíkur ruddaskapur við stéttina að það er ekkert hægt að una við það.“ Linda segir að það sem fari eink- um fyrir brjóstið á henni varðandi vinnumatið sé að ef kennarar kenna sama pensúmið oftar en einu sinni, þá skerðist launin. „Það er sem ég sæi Hilmi Snæ leikara fá skertar greiðslur vegna þess að hann er að fá sömu leikrulluna tvisvar í viku,“ segir Linda. Til útskýringar segir hún að jafnvel þótt kennarar kenni sama pensúmið oftar en einu sinni, þá séu þeir með ólíka hópa. „Þú getur verið með einn hóp þar sem þú þarft að beita þér lítið. Þú getur svo verið með annan hóp sem er með börnum með miklar sérþarfir og þú getur þá þurft að beita þér allt öðruvísi.“ Vinnuaðferðirnar séu því öðruvísi þótt pensúmið sé það sama. Kennarar hafa einnig gert athuga- semdir við það að 14. grein kjara- samninganna hafi verið tekin út. Þeirri grein var ætlað að tryggja að laun kennara myndu ekki dragast aftur úr launum félagsmanna í BHM. „Það er hin ástæðan fyrir því að ég mun aldrei koma til með að samþykkja þetta,“ segir Linda. Björn Ólafsson, trúnaðarmaður kennara í Menntaskólanum við Hamrahlíð, segist vonast til að samningurinn verði samþykktur. Í honum séu nokkur ákvæði sem geri hann aðlaðandi. Hann segir þó að atkvæðagreiðslan geti farið á hvorn veginn sem er. Björn telur að samningurinn núna hafi verið ágætur biðleikur í eitt ár. Kennarar séu að reyna að halda sig á pari við félagsmenn í BHM og það virðist takast í þessum samningum. „Ég skil alveg fólk sem er ósátt við samninginn, en það er ekki verið að greiða atkvæði um þá þætti sem fólk er alla jafna ósáttast við. Þetta er ekki kjarasamningur um vinnumat. Þetta er einföld launahækkun upp á 4,25 prósent og það virðist bara vera það sem flestir eru að fá þessa dagana,“ segir hann. Björn lítur svo á að 14. greinin hafa komið inn í kjarasamning kennara árið 2014 en hafi ekki verið inni í samningum sem voru gerðir 2016. Óánægjan núna sé því á mis- skilningi byggð. „En ef það væri hægt að koma svona ákvæði inn í næsta kjarasamning sem við gerum, þá væri ég manna ánægðastur með það.“ jonhakon@frettabladid.is Tvísýnt um kjarasamninga kennara Kennari í Menntaskólanum í Reykjavík segir vinnumat kennara vera ruddaskap. Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hófst i vik- unni og lýkur á mánudaginn. Trúnaðarmaður kennara í Menntaskólanum við Hamrahlíð segir samninginn vera ágætis biðleik í eitt ár. Framhaldsskólakennari segir að jafnvel þótt kennarar kenni sama námsefnið oftar en einu sinni, þá séu þeir með ólíka hópa. Beita þurfi ólíkum aðferðum eftir hópum, jafnvel þótt námsefnið sé það sama. FréttaBlaðið/Eyþór Grunnskólakennarar felldu sinn samning Grunnskólakennarar felldu í mars samning sem gerður var við Samband íslenskra sveitar- félaga. Rösklega tveir af hverjum þremur sem greiddu atkvæði tóku afstöðu gegn samningnum. Samninganefnd Félags grunn- skólakennara hefur átt einn fund með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og er áætlað að næsti fundur fari fram 11. apríl. 5 . m a í 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 2 -7 1 9 8 1 F B 2 -7 0 5 C 1 F B 2 -6 F 2 0 1 F B 2 -6 D E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.