Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 16

Fréttablaðið - 05.05.2018, Side 16
Umhverfisstyrkir Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Umsóknarfrestur vegna umhverfisstyrkja er til og með föstu- deginum 25. maí 2018. Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar á landsbankinn.is. Samfélagssjóður Landsbankans veitir árlega fimm milljónir króna í umhverfisstyrki. Markmið umhverfis- styrkja er að styðja við einstaklinga og félagasamtök sem starfa á sviði umhverfismála og náttúruverndar.  Verkefni á sviði náttúruverndar, t.a.m. skógrækt, landgræðsla og hreinsun landsvæða.  Verkefni er nýtast til verndar landsvæðum, t.d. vegna ágangs búfénaðar eða ferðamanna.  Verkefni er styðja betra aðgengi fólks að náttúru landsins.  Verkefni er auka þekkingu almennings á umhverfismálum.  Verkefni er hvetja til umhverfis- væns hátternis. Verkefni sem einkum koma til greina: Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Gæða plast þakrennur Allir fylgihlutir fáanlegir Frábært verð! Sjá verðlista á: www.murbudin.is Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ Ertu í lEit að draumastarfinu? Finndu þitt starf á atvinna.frettabladid.is Utanríkismál „Ísland er okkur enn mjög mikilvægt og jafnvel mikilvægara nú á síðustu árum,“ segir Richard Clark, hershöfð- ingi bandaríska flughersins í Evr- ópu, sem staddur er hér á landi til að minnast fjórtán hermanna sem fórust í flugslysi fyrir 75 árum með sprengjuvélinni Hot Stuff á Fagra- dalsfjalli 3 maí 1943. Minnismerki var afhjúpað á slys- staðnum í gær og minningarathöfn haldin í Andrews kvikmyndahús- inu á Keflavíkurvelli. „Þótt slysið sé ekki mjög þekktur atburður í sögunni er þetta söguleg stund, ekki einungis vegna slyss- ins,“ segir Clark og vísar til þess að Bandaríkjaher kom til að vera með fasta viðveru á Íslandi sama ár og slysið varð. „Með þessari athöfn minnumst við einnig þessa sterka sambands sem ríkin tvö hafa átt undanfarin 75 ár.“ Rúmur áratugur er frá því að Bandaríkjaher ver 1,5 milljörðum í Keflavík Hershöfðingi bandaríska flughersins segir Ísland gríðarlega mikilvægt fyrir Bandaríkin og NATO. Ekki er rætt um varanlega viðveru að nýju en viðveru þó. Herinn ver miklu fé í viðhald flugbrauta og aðra innviði á Keflavíkurflugvelli. Richard Clark, hershöfðingi bandaríska flughersins í Evrópu, var hér við minn- ingarathöfn um hermenn sem fórust hér 1943. FRéttablaðið/SigtRygguR aRi bandaríski herinn fór héðan. Aðspurður segir Clark ekki hafa komið til umræðu milli ríkjanna að herinn snúi aftur til að vera með fasta viðveru hér, en hins vegar sé rætt um takmarkaðri viðveru. „Við í bandaríska hernum höfum þó nokkra viðveru hér vegna loft- varnareftirlitsins og það krefst töluverðra fjárfestinga í innviðum,“ segir Clark og bætir við: „Til marks um mikilvægi Íslands fyrir okkur, þá erum við að verja 14,5 milljónum dollara í innviði á Keflavíkurvelli bara á þessu ári.“ Clark segir fjárfestingar í innvið- um þó ekki eingöngu vegna banda- rískrar viðveru heldur hafi önnur NATO-ríki einnig gagn af því enda fari um þúsund flugvélar NATO- ríkja í gegnum Keflavík árlega. „Þannig að við þurfum og viljum hafa flugbrautir og önnur mann- virki í fullkomnu ástandi ef og þegar við þurfum á þeim að halda.“ Clark segir varnarsamvinnu Evrópuríkja mjög mikilvæga; ekki einungis meðal NATO-ríkja heldur einnig meðal ríkja sem standa utan NATO, eins og Finnland og Svíþjóð. „Við erum að byggja upp sam- eiginleg varnarlið og slíkt krefst flókins undirbúnings og æfinga við mismunandi aðstæður,“ segir Clark, aðspurður um stórar fyrir- hugaðar heræfingar í Noregi í haust. Þótt Clark fallist á að spennu- stigið í NATO sé töluvert hærra en það hefur verið undanfarin ár vill hann lítið tjá sig um mögulegar hættur sem ógnað geta Evrópu og aðspurður um ótta Norður- landanna og ríkja austar í Evrópu við Rússa segist Clark ekki geta talað fyrir þeirra hönd. „Ég veit hins vegar að þessi ríki eru mjög öflugir þátttakendur í varnarsamstarfinu, en hvort það er drifið af einhverjum ótta eða óróleika þori ég ekki að segja til um,“ segir Clark. Frá Bandaríkja- mönnum séð snúist uppbygging varnarsamstarfsins í Evrópu ekki síst um mikilvægi NATO og góða samvinnu. „Það krefst bæði liðsafla og fjár- festinga og tekur tíma. Við hugsum ávallt þannig að við þurfum að vera undirbúin undir það versta en vona það besta.“ adalheidur@frettabladid.is Við þurfum og viljum hafa flug- brautir og önnur mannvirki í fullkomnu ástandi ef og þegar við þurfum á þeim að halda. Richard Clark, hershöfðingi banda- ríska flughersins í Evrópu 5 . m a í 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 2 -3 1 6 8 1 F B 2 -3 0 2 C 1 F B 2 -2 E F 0 1 F B 2 -2 D B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.