Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.05.2018, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 05.05.2018, Qupperneq 74
Ungt fólk í stjórnmálum Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Úr lífi Kristbjargar Evu Kristbjörg Eva Ander­sen Ramos er í fram­boði fyrir Sósíal­istaflokk Íslands í Reykjavík og er yngst á lista, aðeins 21 árs gömul. Móðir hennar, Ines Maria, flutti til Íslands frá Ekvador fyrir 27 árum. „Mamma var gift manni sem tók þátt í róttækustu byltingu sem hefur átt sér stað í Ekvador. Hann var sendur í útlegð og mamma stóð ein eftir með son þeirra,“ segir Kristbjörg Eva frá um rætur sínar. Móðir hennar náði að klára háskólanám sitt í Ekvador en ákvað að leita tækifæra á Íslandi. „Til að fá betri atvinnu, tækifæri og betra líf. Það er ekkert líf að lifa í endalausri fátækt,“ segir hún og segir fátækt í Ekvador sárafátækt. Sem ekki hafi verið mögulegt að vinna sig upp úr. „Hún flutti hingað ein og fann sér vinnu. Henni fannst ganga vel, en var í raun beitt miklu óréttlæti. Hún vissi ekki um réttindi sín. Það tók töluverðan tíma fyrir hana að finna út úr því hvaða réttindi hún átti á íslenskum vinnumarkaði. Hún var bara svo ánægð að geta unnið fyrir sér. Hún þurfti líka að læra íslensku upp á eigin spýtur, eins og flestir aðrir á þessum tíma. Þetta hlýtur að hafa verið erfitt fyrir hana. Hún gerði þetta fyrir son sinn sem hún skildi eftir í heimalandinu,“ segir Kristbjörg Eva. Bróðir hennar, Alex Santiago, kom til Íslands fjórum árum seinna. „Hann fer beint í skóla og fær íslenskukennslu og ágæta aðstoð. Mamma og pabbi kynntust hjá Hjálpræðishernum þar sem þau unnu. Mömmu tókst svo að kaupa íbúð í Breiðholtinu og fjölskyldan flutti þangað. Svo fæddist ég,“ segir Kristbjörg Eva. Hvernig er það að vera Íslendingur af erlendum uppruna? „Eftir því sem ég varð eldri þá upp­ götvaði ég betur og betur hvernig kerfið lítur á innflytjendur. Sem afgangsstærð. Kerfið hefur verið óréttlátt og lífsskilyrði margra sem hafa flust hingað og unnið hörðum höndum hafa verið erfið. Margt hefur batnað, en margt hefur versnað. Það er meiri hjálp í boði, en hún er fyrir útvalinn hóp. Útlendingastofnun bregst til dæmis stórum hópi sem hingað leitar eftir hjálp. Hælisleitendur búa við ömur­ legar aðstæður. Geta ekki fengið heimsóknir og fá ekki þá faglegu aðstoð sem þeir þurfa á að halda. Sem samfélagi ber skylda til að veita. Það er skammarlegt,“ segir Krist­ björg Eva. „Ég er viss um að ef mamma mín og fleiri hefðu fengið betri aðstoð, hjálp og ráð, þá væru þau á betri stað andlega. Þess í stað voru þau einangruð. Í felum. Þannig er það oft í dag líka, sérstaklega á það við um innflytjendur sem eru að koma úr erfiðum aðstæðum.“ Kristbjörg Eva segist hafa upplifað fordóma . „Fordómarnir voru bæði gagnvart mér og mínum kynþætti. Ég man eftir því að hafa gengið úti á götu og þá fóru krakkar að herma eftir öpum. Eða kalla mann illum nöfnum. Sem lítið barn á ekki að þurfa að heyra. Mamma lenti oft í þessu. Í strætó, úti á götu,“ segir Krist­ björg Eva sem segir áhrif slíkra for­ dóma leggjast þungt á sálina. „Í dag er fólk auðmýkra. Með­ vitaðra. En samt vantar mikið upp á, fordómar eru víða í samfélaginu,“ segir Kristbjörg Eva og segir birt­ ingar myndirnar margvíslegar. Hún upplifði líka mikið efnahags­ legt óöryggi. „Við unnum öll mikið til að hafa í okkur og á. Ég þurfti að fara að vinna um leið og ég gat. Og fannst það sjálfsagt. Ég var fjór­ tán ára gömul í garðyrkjuvinnu á vegum Reykjavíkurborgar, það var lítill peningur en hann hjálpaði samt foreldrum mínum sem þurftu hverja krónu. Það var farið mjög sparlega í það hvað var keypt í matinn og við eyddum ekki í okkur sjálf,“ segir Kristbjörg Eva. „Mamma vann mest, eins og brjálæðingur. Bróðir minn vann sem pitsusendill. Mömmu fannst mikilvægt að við ynnum með skóla. Hún þurfti sjálf að gera það sem ung stúlka. Hún ólst auðvitað upp í sárafátækt. Sem við þekkjum ekki hér á Íslandi. Hér er fátækt. En það er öðruvísi fátækt. Að fá að vinna er fyrir mömmu ákveðin lífsgæði,“ segir Kristbjörg Eva. „Mamma var einbeitt í því að gefa okkur betri framtíð og betra líf en hún átti sjálf. Hún varði okkur því oft fyrir því óréttlæti sem hún varð fyrir hér á landi.“ Kristbjörg Eva segir Breiðholtið einna vanræktasta hverfi borgar­ innar. „Það eru svæði í Breiðholti sem þurfa á lagfæringu að halda. Það þarf að spýta í lófana og bæta þjón­ ustu við þá hópa sem búa við bág kjör. Ég væri til í að sjá menninguna blómstra, því í Breiðholti búa svo margir kraftmiklir einstaklingar sem eiga að fá aukinn aðgang að ákvarð­ anatöku í málefnum borgarinnar. Hingað til hefur áherslan verið á það að láta Breiðholtið líta vel út á yfirborðinu. Með því að mála veggi á blokkum hér og þar á listrænan hátt. Þegar fólkið í mörgum þessara blokka á ekki fyrir brýnustu nauð­ synjum fyrir sig og sína þá væri fjár­ magni borgarinnar betur varið í að aðstoða það fólk. Ef valið stendur á milli þess að gera málverk á blokkir eða hjálpa íbúunum er í mínum huga augljóst hvorn kostinn á að velja. Og ég er viss um hvað íbúarnir myndu velja, ef þeir hefðu val.“ Kristbjörg Eva kláraði stúdents­ próf frá Kvennaskólanum í Reykjavík og stundar nú nám í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. „Ég vissi alltaf að ég vildi gera eitthvað tengt stjórn­ málum. Sjálfsagt tengist það upprun­ anum og sögu Ekvador. Byltingar, mótmæli, kröfugöngur. Mig langar til þess að taka þátt í samfélaginu og hjálpa þeim sem minna mega sín,“ segir Kristbjörg Eva. Eru þá stjórnmálin draumastarfið? „Draumastarfið mitt er það starf sem mér líður vel í, starf sem ég veit að ég get látið gott af mér leiða í. Og ef að stjórnmálin falla undir þá skilgrein­ ingu þá get ég sagt að það sé drauma­ starfið. Kristbjörg segir skorta fyrirmyndir í stjórnmálum. „Ég á enga fyrirmynd í íslenskum stjórnmálum. Ég tengi ekki við neinn íslenskan stjórnmála­ mann. Því þeir tengja ekki við mig og mína fjölskyldu eða mitt hverfi. Sýna því enga athygli.“ Kristbjörg Eva hefur komið þrisvar til Ekvador. „Að vera í Ekvador er eins og að vera í öðrum heimi. Þar eru eyðimerkur og regnskógar. Menningin og mannlífið iðar hrein­ lega. Þar er mikil fátækt. Bilið á milli þeirra ríku og fátæku er rosalegt,“ segir Kristbjörg Eva. Öðruvísi fátækt í Reykjavík en Ekvador Kristbjörg Eva Andersen Ramos er aðeins 21 ára gömul og komin í framboð fyrir Sósíal- istaflokk Íslands. Hún er alin upp í Breiðholti. Ólst upp við efnahagslegt óöryggi og upplifði fordóma. Hún var fjórtán ára þegar hún byrjaði að vinna til að aðstoða fjölskyldu sína. „Ég man eftir því að hafa gengið úti á götu og þá fóru krakkar að herma eftir öpum.,“ segir Kristbjörg Eva Andersen Ramos. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fullt nafn: Kristbjörg Eva Ander­ sen Ramos Fædd: 12. júlí 1997 Foreldrar: Ines Maria Jacomé Ramos og Sveinn Sigurvin Andersen Systkini: Alex Santiago Jativa Ramos Fallegasti staður borgarinnar: Geldinganesið þegar sólin er að setjast. Býrðu yfir hæfileikum sem fáir vita af? Það sem fáir vita er að ég er ekki svo slæmur myndlistar­ maður. Hver eru helstu áhugamál eða ástríða? Ég hef mikla ástríðu fyrir tónlist og eitt af mínum helstu áhugamálum er að safna vínyl­ plötum, gömlum sem nýjum. 5 . M A Í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 2 -4 0 3 8 1 F B 2 -3 E F C 1 F B 2 -3 D C 0 1 F B 2 -3 C 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.