Fréttablaðið - 05.05.2018, Qupperneq 78
Mikil eftirvænt-ing ríkir vegna v æ n t a n l e g s b r ú ð k a u p s Harry Breta-prins og hinnar
bandarísku Meghan Markle, sem
haldið verður hinn 19. maí. Fyrir
einhverjum áratugum hefði verið
óhugsandi að bandarísk fráskilin
kona, dóttir blökkukonu, giftist inn
í bresku konungsfjölskylduna.
Athygli hefur vakið að engum
þjóðarleiðtogum, hvorki núverandi
né fyrrverandi, er boðið í brúðkaup-
ið. Sagt er að Harry hafi viljað bjóða
Barack Obama en vel hefur farið
á með þeim. Breska ríkisstjórnin
er sögð hafa lagst gegn því þar sem
túlka hefði mátt það boð sem verið
væri að gefa Donald Trump langt
nef. Um 600 manns er boðið til brúð-
kaupsins og 2.600 óbreyttum borg-
urum er boðið í móttöku á þessum
hátíðisdegi.
Hin 36 ára gamla verðandi brúður
er stöðugt umfjöllunarefni fjölmiðla
og prýðir forsíður blaða og tímarita.
Einnig hafa komið út bækur um
hana, sú sem mesta athygli vekur er
Meghan: A Hollywood Princess, en
höfundurinn er Andrew Morton,
höfundur metsölubókarinnar
Diana: Her True Story. Meghan mun
reyndar hafa lesið þá bók, enda lítur
hún að sögn á Díönu prinsessu sem
fyrirmynd sína og dáist að mann-
úðarstörfum hennar. Á sínum tíma
horfði hún á jarðarför Díönu með
vinkonum sínum og tárin streymdu
niður kinnar þeirra. Æskuvinkona
hennar segir að Meghan hafi ætíð
viljað verða Díana númer tvö.
Sundruð fjölskylda
Foreldrar hennar, blökkukonan
Doria Ragland förðunarmeistari og
faðirinn, Tom Markle ljósamaður,
kynntust við gerð sjónvarpsþáttanna
General Hospital. Tom á tvö börn
af fyrra hjónabandi, Samönthu og
Thomas. Meghan er einkabarn for-
eldra sinna og varð strax augasteinn
föður síns. Foreldrarnir skildu þegar
Meghan var tveggja ára gömul og
enn mun kalt á milli þeirra. Sú úlfúð
er sögð hafa sett mark sitt á Meg-
han. Undanfarin ár hefur Meghan
lítið sem ekkert talað við hálfsystur
sína og hálfbróður sinn sá hún síðast
árið 2011.
Samantha hefur lýst Meghan sem
ofur metnaðargjarni og sjálfhverfri
konu. Thomas sagði nýlega að Meg-
han væri engin Díana, hún væri ekki
ekta. Hann sagði hana vera
að sundra fjölskyldunni með
því að bjóða ekki nánum
ættingjum til brúðkaupsins.
Hvorki Samantha né Thomas
hafa fengið boðskort, en talið
er víst að faðir og móðir Meg-
han muni verða í hópi boðs-
gesta. Samantha og Thomas
vinna, hvort í sínu lagi, að bók
um hálfsystur sína.
Skrifaði Hillary Clinton
Móðir Meghan er sögð afar
sjálfstæð kona sem láti engan
vaða yfir sig. Meghan er sögð
líkjast henni að því leyti. Meg-
han var einungis ellefu ára þegar
hún sá ástæðu til að bregðast
við fullyrðingu í auglýsingu um
uppþvottalög en varan var aug-
lýst með orðunum: Konur um
alla Ameríku eiga í baráttu við
fituga potta og pönnur. Hún lét
sér ekki einungis nægja að skrifa
stjórnarformanni fyrirtækisins bréf
heldur skrifaði einnig til forsetafrú-
arinnar Hillary Clinton og fór fram
á að setningunni yrði breytt í: Fólk
um alla Ameríku á í baráttu við fit-
uga potta og pönnur. Auglýsingunni
var breytt eins og Meghan hafði
lagt til. Þetta framtak Meghan varð
til þess að sjónvarpsstöðvar gerðu
sér ferð í skóla hennar
til að taka viðtöl við hana. Mörgum
árum síðar þegar Meghan var orðin
þekkt fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt-
unum Suits kvartaði hún undan
því við framleiðendur þáttanna að
of mörg óþörf atriði snerust um að
sýna hana hálfnakta. Þessu var sam-
stundis breytt.
Vill verða Díana númer 2
Meghan og Harry ljóma venjulega af hamingju þegar þau sjást saman. Þau ganga í hjónaband 19. maí. NordiCPHotoS/getty
Meghan Markle verður senn hluti af bresku konungsfjölskyldunni.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Kastljósið er á
Meghan Markle sem
senn gengur að eiga
Harry Bretaprins.
Hún kemur úr sundr-
aðri fjölskyldu og
ólíklegt er að systk-
inum hennar verði
boðið í brúðkaupið.
Sendi giftingarhringinn í pósti
Meghan ákvað að leggja fyrir sig
leiklist. Þar þurfti hún að sýna
þrautseigju og vann fyrir sér í
Los Angeles sem þjónustustúlka
á veitingahúsi og hraðritari milli
þess sem hún lék smáhlutverk í
sjónvarpi og kvikmyndum. Hún
kynntist framleiðandanum Trevor
Engelson og var trúlofuð honum
þegar hún fékk hlutverk í sjón-
varpsþáttunum Suits sem teknir
voru upp í Kanada. Þetta kostaði
miklar fjarvistir við unnustann sem
þau settu ekki fyrir sig og gengu í
hjónaband eftir að hafa verið í
sambandi í sjö ár. Vinsældir þátt-
anna jukust jafn og þétt og Meghan
var orðin fræg og eftirsótt. Í ævi-
sögu Andrew Morton kemur fram
að Meghan sé afar metnaðargjörn
og að vinir hennar í áraraðir hafi
tekið eftir breytingu á henni þegar
hún var farin að njóta velgengni
því hún hafði ekki lengur tíma til
að hitta þá.
Meghan sagði eitt sinn að hún
gæti ekki ímyndað sér lífið án
Trevors. Það breyttist fljótlega eftir
að þau gengu í hjónaband. Hún er
að eigin sögn haldin fullkomn-
unaráráttu en hann er þekktur
fyrir kæruleysi, er til dæmis með
endemum óstundvís. Meghan
ákvað að skilja við mann sinn eftir
tveggja ára hjónaband og sagt er að
hún hafi undirstrikað þá ákvörð-
un sína með því að senda honum
giftingarhring sinn og trúlofunar-
hring í ábyrgðarpósti. Ákvörðun
Meghan kom Trevor mjög á óvart
og sagt er að hann líti svo á að hún
hafi komið afar illa fram við hann.
Þegar fjölmiðlar leita hann uppi til
að fá hann til að ræða um Meghan
er viðkvæði hans: „Ég hef ekkert
um hana að segja.“ Trevor virðist
samt eiga ýmislegt ósagt en hann
er um þessar mundir að framleiða
sjónvarpsþætti um mann sem á
fyrrverandi eiginkonu sem giftist
inn í bresku konungsfjölskylduna.
Kýs hamingjuna
Mottó Meghan er: „Ég kýs ham-
ingjuna.“ Hún virðist sannarlega
hafa fundið hamingjuna með Harry
Bretaprinsi en sameiginlegur vinur
kynnti þau í júlímánuði 2016. Það
var ást við fyrstu sýn. Eftir nokkurra
mánaða kynni bauð Harry Meghan
í safaríferð til Afríku. Hún var fjórða
vinkonan sem hann bauð til Afríku.
Þau bjuggu síðan saman á heimili
Harrys, Nottingham Cottage, sem
er í grennd við Kensington og mun
vera mun minna en hús hennar í
Toronto.
Á síðustu vikum hafa sérfræð-
ingar í líkamstjáningu annars vegar
rýnt í myndir sem sýna Meghan
með Trevor meðan þau voru gift
og hins vegar í myndir af Meghan
og Harry. Myndirnar segja gjör-
ólíka sögu. Ekki er hægt að ráða af
myndum af Meghan og Trevor að
hún sé ástfangin af honum, hún er
uppstillt með frosið bros, meðan
myndirnar af henni og Harry sýna
afslappaða konu sem ljómar af
hamingju.
Meghan
og Kate,
eiginkona
Vilhjálms
prins, eru
sagðar ná
vel saman.
Meghan virkaði yfirleitt mjög uppstillt á mynd-um með eiginmanninum trevor engelson.
5 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R38 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
0
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
2
-6
7
B
8
1
F
B
2
-6
6
7
C
1
F
B
2
-6
5
4
0
1
F
B
2
-6
4
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K