Morgunblaðið - 22.09.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Niðurstaðan í þessu er þannig að
mér sýnist að þetta mál eigi fullt er-
indi til Mannréttindadómstólsins,“
segir Ragnar H. Hall hæstaréttar-
lögmaður.
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í
mars í fyrra yfir karlmanni sem taldi
ekki fram um 87 milljónir króna í
fjármagnstekjur. Um var að ræða
tekjur af sölu hlutabréfa og uppgjör á
framvirkum samningum. Brotin áttu
sér stað árin 2008 og 2009 og tóku til
tekjuáranna 2007 og 2008. Maðurinn
var sakfelldur og dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Honum var jafnframt gert að greiða
tæplega 14 milljónir króna í sekt.
Dómsins hefur verið beðið enda er
talið að hann geti verið fordæmisgef-
andi og haft áhrif á fjölmörg mál sem
héraðssaksóknari hefur til rannsókn-
ar. Í umfjöllun fjölmiðla hefur komið
fram að allt að 100 málum hafi verið
slegið á frest þar til niðurstaða í
þessu máli lægi fyrir.
Sjö hæstaréttardómarar dæmdu í
málinu og kveðst Ragnar telja það
vera fyrsta sakamálið sem sjö hæsta-
réttardómarar dæma í. Er það til
vitnis um mikilvægi þess.
Ragnar H. Hall var verjandi
mannsins. Var þess krafist að málinu
yrði vísað frá á grundvelli mannrétt-
indasáttmála Evrópu þar sem kveðið
er á um bann við endurtekinni máls-
meðferð í sakamálum. Skattayfirvöld
höfðu endurákvarðað skatta vegna
umræddra tekjuára og manninum
var gert að greiða skatt af álagi á
vantalinn skattstofn. Í vörn mannsins
kom fram að rekin hefðu verið tvö að-
skilin sakamál á hendur honum
vegna sama brots. Var vísað til ný-
fallins dóms Mannréttindadómstóls
Evrópu í máli Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar og Tryggva Jónssonar sem
héldu því fram að þeir hefðu verið
saksóttir tvisvar fyrir sama brot með
álagningu viðbótarálags á skatta og í
framhaldinu höfðun refsimáls. Dóm-
stóllinn féllst á þau sjónarmið kær-
enda.
Ragnar telur eins og áður segir að
mál umbjóðanda síns eigi fullt erindi
til Mannréttindadómstólsins í
Strassborg í ljósi niðurstöðunnar í
máli Jóns Ásgeirs og Tryggva.
„Ég eiginlega trúi því illa að þeir
félagar séu á einhverum sérkjörum
hjá Mannréttindadómstólnum sem
ekki eigi að gilda um aðra Íslend-
inga,“ segir Ragnar.
Hann segist nú munu fara yfir for-
sendur dómsins með skjólstæðingi
sínum. „Ég get alveg sagt það að mér
finnst líklegra en ekki að sú ákvörðun
verði tekin að kæra þetta til Mann-
réttindadómstólsins. En sú ákvörðun
hefur ekki verið tekin.“
Hæstiréttur féllst ekki á að rann-
sóknin hefði verið ónauðsynleg
endurtekning fyrri málsmeðferðar.
Sex dómarar voru sammála í niður-
stöðu sinni en Benedikt Bogason skil-
aði sératkvæði og vildi vísa málinu
frá dómi.
Á fullt erindi til Strassborgar
Hæstiréttur staðfesti dóm yfir manni sem taldi ekki fram 87 milljónir króna í fjármagnstekjur Talinn
fordæmisgefandi Aldrei fyrr hafa sjö dómarar dæmt í sakamáli í Hæstarétti Horft til Strassborgar
Morgunblaðið/Golli
Hæstiréttur Sex af sjö dómurum voru sammála í niðurstöðu sinni. Aldrei
fyrr hafa sjö dómarar dæmt í sakamáli við Hæstarétt.
Í dag, 22. september, eru haustjafndægur sem
merkir að dagur er því sem næst jafnlangur nótt
hvar sem er á jörðinni og sólin beint yfir mið-
baugi. Raunar er haustið farið að minna nokkuð
á sig nú, litbrigði jarðar og gróðurs breytast dag
frá degi – og áður en langt um líður fara haust-
lægðirnar að streyma að landinu með tilheyr-
andi hvassviðri og rigningu. Í dag, föstudag, má
búast við rigningu og nokkrum strekkingi víða á
landinu. Því nýttu bæði ferfætlingar og fólk gær-
daginn til útivistar uppi við Elliðavatn sem var
spegilslétt í kyrrðinni.
Nóttin er jafn löng deginum á haustjafndægrum sem eru í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferfætlingur á ferðinni á fallegum haustdegi
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
Fjórir einstaklingar sem dvöldu á Kópavogs-
hæli á árum áður fá ekki sanngirnisbætur
vegna þeirrar slæmu meðferðar sem þeir
sættu, þrátt fyrir að lögð hafi verið inn umsókn
þess efnis.
Að sögn Halldórs Þormars Halldórssonar,
umsjónarmanns sanngirnisbóta hjá sýslumann-
inum á Norðurlandi eystra, uppfylltu þeir ekki
skilyrðin sem eru þau að hafa verið vistaður
sem barn á Kópavogshæli eða að vera á lífi.
„Lögin eru þannig úr garði gerð að það er
bara hægt að greiða bætur til þeirra sem voru
vistaðir á meðan þeir voru á barnsaldri. Þetta
er ákveðinn galli á lögunum en þau voru samin á
sínum tíma til þess að uppfylla annað hlutverk.
Þau henta ekki að öllu leyti Kópavogshæli þar
sem voru vistuð börn og fullorðnir saman,“
greinir hann frá.
Halldór Þormar vildi ekki gefa upp hversu
margir af þessum fjórum sem fengu ekki sátta-
boð eru enn á lífi en skyldmenni þess eða þeirra
sem eru látnir sóttu um fyrir þeirra hönd.
Tveir drógu umsóknina til baka
Tveir hafa jafnframt dregið til baka umsókn
sína um bætur. Halldór Þormar kveðst ekki
hafa skýringu á því hvers vegna þeir tóku þá
ákvörðun.
Alls hafa 79 sótt um sanngirnisbætur en ekki
78 eins og stjórnvöld greindu upphaflega frá og
sendi sýslumaður út sáttaboð til 75 einstak-
linga.
Umsóknarfresturinn er opinn í tvö ár og því
geta fleiri sótt um bætur. Samkvæmt upplýs-
ingum Halldórs Þormars uppfylla 89 manns
skilyrðin fyrir sanngirnisbótum að einhverju
leyti. Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vist-
heimila, greindi frá því í samtali við mbl.is fyrr í
mánuðinum að þeir sem ekki hefðu enn sótt um
hefðu verið í skammtímavistun og því væri eðli-
legt að þeir legðu ekki inn umsókn um bætur.
Fyrstu svörin þegar komin
Halldór Þormar segist ekki vita annað en að
bréfin um sáttaboð séu flest ef ekki öll komin á
áfangastað. Fyrstu svörin eru jafnframt komin
til baka til sýslumanns en samþykkja þarf
sáttaboðið og senda bréf þess efnis til baka.
„Ef viðkomandi er ekki sáttur við fjárhæðina
sem er í boði getur hann vísað því til úrskurð-
arnefndar um sanngirnisbætur. Málsmeðferðin
á bak við vinnu úrskurðarnefndarinnar er
miklu flóknari,“ segir hann og bendir á að sú
vinna myndi taka nokkurn tíma.
Alls nema bæturnar um 460 milljónum króna
sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða út á
næstu þremur árum. Um helmingur fyrrver-
andi vistmanna Kópavogshælis sem sóttu um
sanngirnisbætur vegna meðferðar sinnar fær
greiddar fullar bætur, eða 7,8 milljónir króna,
vísitölutryggt.
Fjórir fá ekki sanngirnisbætur
79 einstaklingar sem dvöldu á Kópavogshæli hafa sótt um sanngirnisbætur vegna slæmrar meðferðar
Fjórir úr þeirra hópi fá ekki bætur þar sem þeir voru vistaðir á hælinu eftir að þeir urðu 18 ára gamlir
Ölduspá fyrir Landeyjahöfn gefur til-
efni til þess að norska ferjan Röst, af-
leysingaskip sem leigt var í stað Herj-
ólfs, sigli ekki frá Eyjum frá og með
morgundeginum. Leyfið sem skipið
hefur er bundið við siglingar í Land-
eyjahöfn og ef úfið er í sjó þar fer
Röst hvergi, enda hefur skipið ekki
heimild til að sigla í Þorlákshöfn. Ef
spáin gengur eftir er því veruleg
óvissa með næstu daga, sagði á Face-
book-síðu Sæferða-Eimskips í gær-
kvöldi.
Ljóst er að viðgerðirnar á Herjólfi
sem nú standa yfir tefjast eitthvað
fram í október, meðan beðið er vara-
hluta í gír skipsins. Á meðan verður
notast við Röst sem hefur undanþágu
til að sigla á C-hafsvæðinu milli lands
og Eyja út septembermánuð. Sú skil-
greining svæðisins dettur hins vegar
út 1. október. Að því er fram kemur á
vefnum Eyjar.net hyggst Vegagerðin
afla nauðsynlegra heimilda hjá Sam-
göngustofu og norsku siglingastofn-
uninni svo hægt verði að halda uppi
samgöngum á þessari leið eitthvað
lengur en þessi takmörk segja til um.
Siglingar
við Eyjar
eru í óvissu
Ölduspá næstu
daga er óhagstæð