Morgunblaðið - 22.09.2017, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.09.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is .„Stjórn fyrirtækisins hafði samband við mig og bauð mér ritstjórastólinn. Ég var búin að koma hugmyndum mínum á framfæri við hana og þeim var vel tekið,“ segir Sara Sjöfn Grett- isdóttir, nýr ritstjóri Eyjafrétta frá 1. september sl. Hún tekur við keflinu af Ómari Garðarssyni sem vill bráðlega fara að sinna hugðarefnum sínum eftir löng og vel unnin störf hjá fjölmiðlinum, en hann verður áfram í hlutastarfi á blaðinu fram að áramótum. Eyja- fréttir eru vestmannaeyskur áskrift- arfjölmiðill sem kemur vikulega út á prenti og á netinu. Sara Sjöfn er fædd 1990 og er Vestmannaeyingur. Hún hefur verið blaðamaður á Eyjafréttum í um þrjú ár og stundar fjarnám í félags- vísindum sem gagnast vel í starfinu að hennar sögn. Eyjafréttir víðlesið blað Hún kveður Eyjafréttir eiga far- sælan fjörutíu ára feril að baki og vill halda því góða starfi áfram sem þar hefur verið unnið í allan þann tíma, með smávægilegum breytingum í þá átt að nútímavæða miðilinn enn frek- ar. „Við munum vera með efni sem tengist Vestmannaeyjum beint og óbeint fyrst og fremst, vera með góða fasta liði gamla og nýja, vera með þemablöð einu sinni í mánuði,“ segir Sara Sjöfn. Hún segir blaðið vera sent í áskrift á höfuðborgarsvæðið, út um land allt og jafnvel víðar. „Vestmannaeyingar um heim allan eru áskrifendur að Eyjafréttum, bæði prentuðu blaði og í netáskrift,“ bætir Sara Sjöfn við. Hún segir ýms- ar nýjungar vera í mótun og að þau ætli að vera með nýjan vef t.d. Fyrstu breytingarnar komu í blaðinu sem kom út núna í vikunni en þær hafi helstar verið á uppsetningu á blaðinu og föstum liðum. Þeim hafi verið vel tekið. „Hérna er svo mikið um að vera og mikið að segja frá, það er svo mikill kraftur í Vestmannaeyjum, atvinnu- lífið, menningin og jafnvel matsölu- staðirnir eru með þeim bestu,“ segir Sara Sjöfn sem hlakkar til að takast á við verkefnið. „Það er svo mikill kraft- ur í Vestmannaeyjum“  Sara Sjöfn Grettisdóttir nú í ritstjórastóli á Eyjafréttum Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Nýlunda Sara Sjöfn Grettisdóttir er ritstjóri Eyjafrétta í Vestmannaeyjum. Fjöldi skráðra alvarlegra atvika á Landspítalanum er orðinn fjórtán það sem af er þessu ári, samkvæmt nýútkomnum Starfsemisupplýs- ingum spítalans sem ná frá byrjun janúar til loka ágúst. Yfir sama tíma- bil í fyrra voru alvarleg atvik í starf- semi spítalans tólf talsins. Atvikin eru frá engu upp í þrjú á mánuði í ár, eru þau flest í febrúar, júní og ágúst. Að sögn Elísabetar Benedikz, yf- irlæknis gæða- og sýkingavarna- deildar Landspítalans, þýðir alvar- legt atvik að sjúklingur hafi orðið fyrir varanlegum miska eða látist af völdum þjónustunnar. Hún vildi ekki gefa upp nákvæmari greiningu á at- vikunum sem hafa komið upp í ár. „Við rannsökum öll atvik af þessu tagi; oft með rótargreiningu en stundum eftir öðrum aðferðum og tilkynnum til okkar eftirlitsaðila. Stundum leiða atvik af þessu tagi til kvartana og kæra,“ segir Elísabet. Mannlegir þættir Helstu ástæðurnar fyrir þessum alvarlegu atvikum eru mannlegir þættir að sögn Elísabetar. „Heil- brigðisþjónusta hvílir mjög mikið á mannlegum þáttum, sem eru ófull- komnir. Hin meginástæðan er kerf- isþættir, gallar í skipulagi starfsem- innar og fyrirkomulagi þjónustunnar.“ Ísland sker sig ekki úr hvað þetta varðar. „Löndin sem við berum okk- ur saman eru á svipuðum stað hvað þetta varðar. Við erum með sama hlutfall alvarlegra atvika og erum að kljást við alveg sömu vandamál og þau. Þannig að við skerum okkur ekki úr að þessu leyti,“ segir El- ísabet. ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Fjórtán alvarleg atvik hafa komið upp á árinu. Fjórtán alvarleg atvik á spítalanum  Mannleg mistök og kerfisþættir orsök Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Umboðsmaður fór yfir það hvernig málið liti út gagnvart honum. Um at- burðarás og ástæður þess að dóms- málaráðherra upplýsti forsætisráð- herra um viðkomandi umsögn. Hann telur málefnalegar ástæður fyrir því og að trúnaður hafi ekki verið brot- inn,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokks, um fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gær. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmað- ur Alþingis, kom á fund nefndarinnar til að ræða um uppreist æru. Á fund- inum lýsti Tryggvi því að hann teldi ekki tilefni til að hefja frumkvæðisat- hugun á embættisfærslum í tengslum við það þegar Sigríður Andersen dómsmálaráðherra upplýsti Bjarna Benediktsson forsætisráðherra um að faðir hans, Benedikt Sveinsson, hefði skrifað undir umsögn fyrir dæmdan barnaníðing þegar hann sótti um uppreist æru. Þingmenn annarra flokka en Sjálfstæðisflokks hafa talað um trúnaðarbrest ráðherra og Björt framtíð sagði þann trúnað- arbrest ástæðu þess að flokkurinn sleit ríkisstjórnarsamstarfinu. Tvær ríkar ástæður Sigríðar „Bendir umboðsmaður m.a. á að hafa verði í huga að ráðherrar eru annars vegar embættismenn og hins vegar stjórnmálamenn. Það kunni því að gilda mismunandi sjónarmið og reglur um störf og athafnir eftir því um hvort hlutverkið er að ræða. Þannig bendir hann á varðandi sam- tal dómsmálaráðherra við forsætis- ráðherra 21. júlí sl. að hann telji að það hafi verið málefnaleg ástæða fyr- ir því að upplýsa forsætisráðherra um trúnaðargögn úr stjórnsýslumáli sem tengdust aðila nákomnum hon- um þar sem tilefnið hafi verið að þá hafi verið uppi vangaveltur um að for- sætisráðherra hefði komið að af- greiðslu þessa tiltekna máls. Um- boðsmaður bendir á að það geti einmitt skipt máli og verið eðlilegt til þess að taka afstöðu til hæfis í við- komandi máli,“ segir í bókun nefnd- arinnar af fundinum. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins kom það fram í máli umboðs- manns á fundinum að hann telur raunar að Sigríður Andersen hafi haft tvær ríkar ástæður til að ræða málið við Bjarna Benediktsson. Í fyrsta lagi hafi það gefið henni tilefni að kanna hvort um vanhæfi hans væri að ræða, eins og rakið er í bókuninni. Í öðru lagi gat hún rætt málin við forsætisráðherra vegna þess að hann er samræmingarráðherra ríkis- stjórnarinnar. Var þar vísað til þess að eftir fjármálahrunið hafi forsætis- ráðherra, að stjórnarráðslögum, fengið aukið hlutverk sem samræm- ingarráðherra ríkisstjórnar. Á fundinum var umboðsmaður spurður hvort dómsmálaráðherra hefði borið að ræða umrætt með- mælabréf við aðra sem sátu í ríkis- stjórninni. Í svari hans kom fram að þær tvær ástæður, sem hér voru tí- undaðar og áttu við Bjarna Bene- diktsson, hefðu ekki átt við aðra ráð- herra. Því megi álykta að ekki hafi verið um brot á trúnaði að ræða af hálfu þeirra Sigríðar og Bjarna. Allt gagnsæi sé viðhaft „Við eigum eftir að hittast einu sinni í nefndinni til að ljúka málinu með formlegum hætti. Sá fundur verður í næstu viku. Miðað við um- ræðurnar eins og þær voru í lok fund- ar á ég ekki von á frekari vendingum öðrum en að við skilum af okkur áliti eða niðurstöðu, segir Jón Steindór Valdimarsson, formaður nefndarinn- ar. „Þetta var mjög mikilvægur fund- ur með umboðsmanni. Athugasemdir hans voru mjög gagnlegar til að skýra málið enn frekar. Brýnast er að allt gagnsæi sé viðhaft við meðferð málsins,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, fulltrúi í nefndinni og varaformaður Framsóknarflokksins. Í bókun nefndarinnar kemur enn- fremur fram að einhugur ríki um að taka reglur um uppreist æru til gagn- gerrar endurskoðunar og þegar sé hafin vinna við endurskoðun þeirra laga. Þá þurfi að endurskoða vinnu- brögð við afgreiðslu beiðna um upp- lýsingar í anda upplýsingalaga. Ekki um trúnaðarbrot að ræða  Umboðsmaður Alþingis telur ekki tilefni til frumkvæðisathugunar á embættisfærslum ráðherra  Sigríður Andersen hafði ríkar ástæður til að ræða málið við Bjarna Benediktsson  Brutu ekki trúnað Morgunblaðið/Eggert Fundur Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kom á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gærmorgun. „Það má velta fyrir sér stöðu Bjartrar framtíðar. Í staðinn fyr- ir að hinkra eftir svörum um málið slítur flokkurinn ríkisstjórnarsamstarfi og hefur uppi stór orð um það sem sýnir sig að stenst ekki skoðun. Fulltrúi Bjartrar framtíðar kaus svo að koma ekki á fund um- boðsmanns til að heyra hvað hann hafði að segja,“ segir Hild- ur Sverrisdóttir. Athygli vakti að enginn áheyrnarfulltrúi Bjartrar fram- tíðar lét sjá sig á fundi stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar með umboðsmanni Alþingis. Þingmaður flokksins hafði deg- inum áður sagt að það væri stærsta verkefni nýrrar ríkis- stjórnar að fara í meiriháttar út- tekt á íslenskri stjórnsýslu. Björt framtíð mætti ekki FUNDUR UMBOÐSMANNS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.