Morgunblaðið - 22.09.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 22.09.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við höfum rosalega gaman afþessu sjálf, það skilar séralltaf til tónleikagesta.Auk þess erum við ekki bara að syngja heldur göntumst við heilmikið á milli laga, bullum og ger- um grín að okkur sjálfum og stríðum hvert öðru. Það er hlegið svo mikið að fólk fer nánast með hláturkrampa í maganum af tónleikunum. Ég held að þetta samspil tóna og tals sé það sem höfðar til fólks,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir söngkona þegar hún er spurð að því hvað geri það að verkum að tónleikar þar sem þau þrjú, hún, Guðrún Gunnarsdóttir og Jogvan Hansen, koma fram saman ganga svo vel sem raun ber vitni, en þrítugustu tónleikar þeirra verða í kvöld í Salnum í Kópavogi. „Okkur finnst auðvitað frábært hvað þetta hefur gengið vel, fólk kemur aftur og aftur til að hlusta á okkur syngja, en það kemur líka til að heyra okkur segja sögur af okkur sjálfum. Jogvan gerir heilmikið grín að okkur gömlu kellunum, því hann er náttúrlega miklu yngri en við Guðrún. Þetta fer út í allskonar vit- leysu og stundum verður þetta hálf- gerð revía.“ Lög sem þær Guðrún héldu upp á þegar þær voru stelpur Sigga segir að engir tónleikar séu eins hjá þeim. „Það eina sem við göngum út frá er að við ætlum að hafa gaman og að við ætlum að hlæja. Við höfum að- eins breytt dagskránni núna, skipt- um nokkrum lögum út fyrir ný. Okk- ur fannst nauðsynlegt að breyta lagavalinu aðeins af því við erum bú- in að gera þetta svo oft, það gefur okkur nýtt líf að fá fersk lög inn. Einnig er það nauðsynlegt í ljósi þess að margir gestir eru að koma í þriðja eða fjórða sinn. Fólki finnst svo gott að fá að hlæja.“ Sigga segir að lögin á dag- skránni séu lög sem hún og Guðrún héldu upp á þegar þær voru ungar stúlkur. „Þetta eru allskonar íslensk gömul og góð lög, til dæmis lög með Elly Vilhjálms, og svo syngur Jog- van gömul lög sem fólk þekkir í flutningi Ragga Bjarna. Við erum líka með gömul lög eins og Kveiktu ljós, með blönduðum kvartett frá Siglufirði, en við Guðrún elskuðum báðar það lag í bernsku,“ segir Sigga og bætir við að þau syngi öll sóló á tónleikunum en líka saman, ýmist tvö, tvær eða þrjú. Þetta sé bland í poka hjá þeim. Þau eru bara svo yndisleg Sigga segir að gestir þeirra á tónleikunum, sem kannski mætti frekar kalla söngskemmtun, séu á öllum aldri, vissulega komi fólk sem þekkir þessi lög frá fyrri tíð, en líka yngra fólk, því þau þrjú séu að bulla um daginn og veginn og fólki á öllum aldri finnist það skemmtilegt. Auk þess hafi yngra fólk líka gaman af gömlum lögum. Vinskapurinn milli þeirra þriggja, Siggu, Jogvans og Guð- rúnar, hefur sannarlega vaxið með þessu samstarfi en þau hafa þekkst lengi í gegnum söng og tónlist. „Við hittumst oft í hádeginu bara til að hlæja og hafa gaman. Við höfum líka farið nokkrum sinnum út Bullum, gerum grín og stríðum hvert öðru Vinskapurinn milli þeirra Siggu, Jogvans og Guðrúnar hefur vaxið með samstarfi þeirra í söng og þau hittast oft í hádeginu til að hlæja. Þau ætla að skemmta gest- um sínum í kvöld í þrítugasta sinn, og hlæja mikið. Þau skemmta sér sjálf manna best á tónleikunum þar sem þau segja sögur og gera grín hvert að öðru. Söngkonur Guðrún Gunnarsdóttir og Sigga Beinteins hafa oft sungið saman, hér í söngskemmtun um Elly Vilhjálms frá því í fyrra. Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Tangó er unaðslegur dans sem allir ættu að prófa og nú er tækifæri, því Tangóhátíðin „Tango on Ice“ fór af stað í gær en verður alla helgina. Há- tíðin fer fram í Iðnó og í Norræna húsinu og gestir hennar verða tvö af- burða tangópör Maja Petrovic og Marko Miljevic annars vegar, og Bryn- dís Halldórsdóttir og Hany Hadaya hins vegar. Þau sýna tangó á hátíð- inni og kenna 6 námskeið hvort par. Aðal-DJ hátíðarinnar verður Michael Lavocah og auk hans verða innlendir DJ-ar: Bryndís Halldórsdóttir, Stefán Snorri Stefánsson, Heiðar Rafn Harð- arson, Svana Valdsóttir, Laura Valen- tino og Hlynur Helgason. Nánar og skráning á vefsíðunni tango.is Tangóhátíðin Tango on Ice verður alla helgina Morgunblaðið/Golli Sjóðheitur tangó Hany Hadaya og Bryndís ætla að kenna tangó um helgina. Afburða tangópör sýna og kenna Í tæknivæddum nútíma þegar fólk er með augun límd við símtækin sín dagana langa er full ástæða til að spyrja hvort við séum á góðri leið með að tapa sambandinu við hvert annað. Heimsins stærsta upplifun á augnsambandi (World’s Biggest Eye Contact Experiment) er viðburður sem blásið verður til í Ráðhúsi Reykjavíkur og Glerártorgi á Ak- ureyri á morgun, laugardaginn 23. september, kl. 14. Ekki er það til- viljun að viðburðurinn er haldinn í Alþjóðlegri friðarviku Sameinuðu þjóðanna, en tilgangurinn með við- burði þessum er að fá fólk til að koma saman og horfast í augu í eina mínútu, ná sambandi við sam- ferðafólk og hætta að óttast náung- an. Í tilkynningi segir: „Við viljum búa í heimi þar sem við erum ekki hrædd hvert við annað og við þorum að horfast í augu við annað fólk, jafnvel brosa.“ Viðburður þessi er hluti af alþjóðlegu verkefni ástr- ölsku friðarsamtanna The Liberators International og verða samskonar viðburðir í 73 löndum og 400 borg- um og bæjum. Þetta er í fyrsta sinn sem horfumst í augu-viðburður er haldinn á Íslandi. Full ástæða er til að hvetja fólk til að mæta. eyecontactexperiment.com facebook: The Liberators International. Hættum að óttast náungann Augnsamband Þessi tvö horfðust í augu í fyrra í Brasilíu á samskonar viðburði. Horfst í augu um allan heim

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.