Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 24

Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 ✝ HallgrímurGunnarsson fæddist 16. febrúar árið 1962 í Reykja- vík. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 8. september 2017, eftir sjö ára bar- áttu við krabba- mein. Foreldrar hans eru hjónin Gunnar Kristján Hallgrímsson frá Dynjanda í Jökulfjörðum, nú búsettur í Kópavogi, f. 21. maí 1929, og Jóna Árný Jóhanns- dóttir frá Sölkutóft á Eyr- arbakka, f. 8. apríl 1938, d. 16. janúar 1983. Systur Hallgríms eru: 1) Anna Jóna Gunn- arsdóttir búsett á Selfossi, f. 9. mars 1964, maki: Ágúst Berg Ólafsson, f. 8. apríl 1959, og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. 2) Kristín Gunn- arsdóttir búsett í Noregi, f. 25. september 1969, maki Kjell Rune Pedersen, f. 22. júní 1959, og eiga þau tvö börn. Hinn 31. október 2015 kvæntist Hallgrímur Helgu Ingibjörgu Þráinsdóttur, f. 18. janúar 1968. Foreldrar hennar eru hjónin Þráinn Elíasson frá þar það sem eftir lifði ævi hans. Hann lauk grunnskóla- prófi frá Gagnfræðaskóla Sel- foss. Hann fór ungur að vinna við sveitastörf á sumrin, m.a. á bænum Stóra-Ármóti í Flóa. Hallgrímur fór 16 ára gamall til sjós og vann á ýmsum bát- um, lengst af á togaranum Jóni Vídalín ÁR 1. Seinna fór hann að vinna í byggingarvinnu og útskrifaðist sem húsasmiður frá Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 1994. Hann vann lengi hjá Jóni Árna Vignissyni húsa- smíðameistara, J.Á. verktökum, Lárusi Gestssyni húsasmíða- meistara, Smíðanda ehf. og seinna sem sjálfstætt starfandi smiður. Árið 2009 útskrifaðist Hallgrímur sem ökukennari frá Háskóla Íslands og kenndi hann fyrst um sinn á bíl með- fram smíðavinnunni en seinna meir varð ökukennslan hans aðalstarf og kenndi hann bæði almenn ökuréttindi og aukin ökuréttindi hjá Ökuskóla Suðurlands og Ökukennslu Halla G. Helstu áhugamál Hallgríms fyrir utan vinnuna og fjölskyld- una voru frístundabúskapur með sauðfé, veiði, flugmódel, ferðalög jafnt innanlands sem utan og svo sameinaðist öll fjöl- skyldan í áhuga sínum á fót- bolta. Útför Hallgríms fer fram frá Selfosskirkju í dag, 22. septem- ber 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. Drangsnesi á Ströndum, f. 16. júní 1947, og Guð- björg Þórunn Gestsdóttir frá Forsæti í Flóa, f. 27. ágúst 1947. Þau eru búsett á Selfossi. Bræður Helgu eru: 1) Elías, f. 17. janúar 1973, kvæntur Ernu Jó- hannesdóttur, f. 8. desember 1983. Þau eru búsett í Heiðargarði í Flóa og eiga fjögur börn. 2) Gestur Már, f. 3. apríl 1975, kvæntur Maríu Katrínu Fernandez, f. 18. febr- úar 1982. Þau eru búsett á Sel- fossi og eiga fjóra syni. Hallgrímur og Helga hófu búskap árið 1987 á Suðurengi 12 á Selfossi og árið 2003 byggðu þau sér heimili í Naut- hólum 10 á Selfossi. Börn þeirra eru: 1) Guðbjörg Una, f. 22. júlí 1991, sambýlismaður Stefán Claessen, f. 30. júlí 1988. 2) Gunnar Már, f. 16. júní 1994, sambýliskona Eydís Bergmann Gunnarsdóttir, f. 26. október 1997. 3) Elvar Elí, f. 19. sept- ember 2003. Hallgrímur ólst upp á Sel- fossi frá sex ára aldri og bjó Elsku pabbi. Mig langar bara til þess að þakka þér fyrir. Takk, pabbi, fyrir að mæta alltaf og styðja mig í öllu sem ég gerði hvort sem það tengdist íþróttum, námi eða öðru. Takk fyrir alla þolinmæðina sem þú hefur sýnt mér í gegnum árin og að kenna mér að oft er leiðin að lausninni ekki eins flókin og maður heldur í fyrstu. Takk fyrir að kenna mér allt sem þú hefur kennt mér. Ég gæti haldið endalaust svona áfram en fyrst og fremst takk, pabbi, fyrir að vera alltaf til stað- ar fyrir mig og bræður mína sama hvað. Ég vildi óska að ég hefði haft meiri tíma með þér en ég hef svo sannarlega fengið að kynnast því nú að lífið er óútreiknanlegt og maður skilur bara ekki hvað það getur verið ósanngjarnt. En það eina sem ég get gert núna er að rifja upp allar góðu minningarn- ar sem við áttum saman og minn- ast þeirra með miklu þakklæti í huga. Það eru forréttindi að eiga pabba eins og þig og þú hefur alltaf verið og munt alltaf verða ein af mínum helstu fyrirmynd- um í lífinu. Það er svo margt sem þú hefur kennt mér sem ég mun taka með mér inn í ókomna fram- tíð. Það er ólýsanlega erfitt að geta ekki lengur hringt í þig hvort sem mig vantar aðstoð við eitthvað eða bara til að athuga hvernig þú hefur það. En nú er komið að okkur að vera sterk al- veg eins og þú varst svo sterkur í gegnum þessi veikindi þín. Aldrei nokkurn tímann heyrði ég þig kvarta og allt sem þú ætlaðir þér að gera það gerðir þú alveg fram á síðasta dag. Minning mín um þig mun allt- af vera þessi duglegi, sterki og yfirvegaði maður sem setti alltaf fjölskyldu sína í forgang. Elsku pabbi, ég hef alltaf verið og mun alltaf vera svo stolt af þér, þú ert besti pabbi í heimi og ég elska þig. Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir. Í dag skrifa ég til minningar um Halla bróður minn og til að þakka liðnar samverustundir. Þakka honum fyrir að gefa af tíma sínum þegar ég fékk að sitja hjá honum undir það síðasta. Það er dýrmætt fyrir mig. Við þurft- um ekki að segja mikið. Við vor- um saman þar til Halli var sjö ára, við bjuggum í Stóragerði með mömmu og pabba. Halli var ærslafullur drengur, en á sama tíma ljúfur og við- kvæmur. Hef heyrt af ýmsum prakkarastrikum og uppá- tækjum í gegnum tíðina. Halli var mömmustrákur. Við fórum oft í bíltúr á Taun- usnum til afa á Eyrarbakka. Halli undi sér vel hjá afa við leik í hlöðunni eða að hjálpa til með kindurnar. Árið 1969 fluttum við á Selfoss og eignuðumst litla systur, hana Stínu. Halli átti ýmis áhugamál. Hann hélt upp á Tinnabækurnar, fór í bílaleiki þar sem hann bjó til heilu bæina á gólfinu í holinu og seinna stríðsleiki svipaða og eru í tölvum nú. Kúrekar og indjánar sunnan við Fossheiði 17, með hesta sem mamma bjó til. Og svo voru það kaggarnir og vinirnir. Þetta voru miklir töffarar. Á Selfossi var mikill samgang- ur við Dóru, Lárus og fjölskyldur þeirra. Einnig var vinsælt að fara til Unnu í Hafnarfirði og í Tún. Ferðir á Dynjanda voru reglu- legar. Halli hafði mikinn áhuga þegar ákveðið var að byggja sumarhús á Dynjanda. Lagði hann mikla vinnu og hug í það verkefni. Við systkinin vorum ung þeg- ar mamma okkar veiktist. Þetta voru erfiðir tímar fyrir okkur öll og hafði þetta mikil áhrif á fjöl- skyldulífið og æsku okkar. Hún lést 16. janúar 1983. Það var mikil gæfa fyrir Halla þegar hann kynntist Helgu og fjölskyldu hennar. Börnin þeirra, Guðbjörg, Gunnar og Elvar, bera þess öll merki hversu vel foreldr- ar þeirra hafa hlúð að þeim og fylgt eftir. Fótbolti hefur verið sameigin- legt áhugamál fjölskyldunnar og hafa þau ferðast mikið í tengslum við hann enda höfðu þau gaman af ferðalögum. Halli var á sjó, lærði húsa- smíði og var síðast ökukennari. Hann vann við ökukennsluna síð- ustu ár ásamt Þráni tengdaföður sinum. Léttar smíðar og að sinna Tunnu sinni á Kjarri veitti Halla mikla gleði. Hann lét ekki mikið fyrir sér fara, en fór öll vinna vel úr hendi og þótti vandvirkur. Halli greindist með blöðru- hálskirtilskrabbameinið 2010. Barðist hann af miklu æðruleysi við sjúkdóminn með Helgu sér við hlið. Hann bar sig alltaf vel og sýndi mikið æðruleysi þó að hann hefði átt sínar erfiðu stundir. Mér þótti vænt um hvað hann var duglegur að heimsækja okk- ur í Noregi með fjölskyldu sína þegar ég og fjölskylda mín bjuggum þar. Minnisstætt var þegar Halli og Þráinn náðu í bú- slóðina okkar þegar við fluttum heim. Fleiri minningar geymast í hug og hjarta sem ekki er minnst á hér. Helga og börnin þurfa að sjá á eftir elskulegum eiginmanni og föður. Halli var mikið stoltur af börnunum sínum. Við gleymum ekki Halla, hann verður í huga okkar um eilífð. Elsku Helga, Guðbjörg, Gunn- ar, Elvar, Stefán, Eydís, pabbi, Guðbjörg, Þráinn, Stína, Elli, Gestur og fjölskyldur okkar. Nú er tími til að halda utan um hvert annað. Við minnumst æðruleysis hans, yfirvegunar, glettni, vin- áttu og ástar. Ég kveð þig að sinni, kæri bróðir, Anna. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgímur Pétursson) Kæri bróðir. Orð verða fátæk- leg. Tíminn er liðinn sem við höfðum þig hjá okkur hér. Kæri stóri bróðir minn. Ég vona að ég hafi náð að sýna þér og segja hversu vænt mér þótti um þig. Að þú hafir vitað það. Ég lifi í þeirri trú að núna sért þú hjá mömmu og hún hafi tekið þig í sitt hlýja, góða fang. Fang sem ég veit að þú hefur oft saknað á þeim 34 árum sem eru liðin síðan hún fór frá okkur. Þú sem varst svo mikill mömmu- strákur. Ég hef oft hugsað hvað þú hafðir mikið af mömmu í þér. Sterkan lífsvilja, jákvæðni og mildi og að gefast aldrei upp. Góða blikkið þitt sem sagði svo margt. Eftir standa Helga og börnin ykkar, Guðbjörg Una, Gunnar Már og Elvar Elí. Börnin sem þú varst svo stoltur af og vildir að þau héldu sínu striki þrátt fyrir sjúkdóminn. Minn hugur er hjá ykkur. Við sem eftir stöndum og þekktum þig tökum með okkur allt sem þú kenndir okkur: Að lífa lífinu, grípa augnablikið og vera óhrædd við að sýna hvert öðru kærleika. Ástarkveðja, þín litla systir, Kristín. Það er ekki auðvelt að skrifa nokkrar línur til að þakka tengdasyni sínum samfylgdina í lífinu, sem var allt of stutt. Hallgrímur, sem oftast var kallaður Halli í okkar fjölskyldu, var sterkur persónuleiki sem skilur eftir sig stórt skarð í fjöl- skyldunni. Hann átti rækjur að rekja til Dynjanda í Jökul- fjörðum í föðurætt og Sölkutóft- ar á Eyrarbakka í móðurætt. Hann lærði húsasmíði sem hann vann við ásamt ökukennslu, en hann útskrifaðist ökukennari 2009 og vann við það til síðasta dags. Hann greindist með krabba- mein fyrir sjö árum sem setti mark á líf hans upp frá því. Hann barðist hetjulega við það með vonina og bjartsýni að leiðarljósi fram til síðasta dags. Æðruleysi hans og þrautseigja var ótrúleg og lærdómsrík fyrir alla sem þekktu hann vel. Halli var mikill fjölskyldu- maður og hændi öll börn að sér og bera börnin hans og heimili allt þess merki. Hann fylgdi þeim eftir í öllu sem þau gerðu, hvatti þau til náms og studdi og var með þeim í fótboltanum, sem þau hafa öll staðið sig vel í. Hann var mikill Arsenal-maður og var oft fjör á heimilinu þegar horft var á fótbolta þar, því sumir héldu með Liverpool. Hann fylgdi líka Elvari Elí í handboltanum og er það dýrmæt minning ferðin þeirra feðga til Svíþjóðar um síð- astliðin jól á handboltamót. Þá var heilsu hans að hraka og í janúar 2017 lagðist hann fyrst inn á krabbameinsdeild, í öllu sínu ferli var hann á göngudeild þangað til. Það má segja að hann hafi unnið marga sigra á þeim tíma sem hann átti eftir þá. Má þar nefna fermingu Elvars Elí, að komast í flug með Gunnar Má við stjórnvölinn, fylgjast með Guðbjörgu Unu klára ferðamála- nám sitt með heimsreisu og kynnast kærasta hennar, Stef- áni. Öllu þessu tók hann með æðruleysi án þess að kvarta og gladdist yfir á hverjum degi, auðsjáanlega mjög þrotinn af kröftum, það mesta sem hann sagði var „það er orðið á bratt- ann að sækja“. Halli var góður smiður, vand- virkur og þolinmóður við allt sem hann gerði og komst vel að við fólk bæði í smíðinni og öku- kennslunni. Þau sjást víða verkin hans í kringum okkur Þráin, hann hefur unnið mikið á okkar heimili og var helsti hvatamaður að byggingu húss sem við eigum á Drangsnesi og svo við öku- skólann þar sem hann var einn af aðalkennurunum og í góðu sam- starfi við Þráin bæði í bóklegri og verklegri kennslu. Alls staðar eru minningar um góðan mann sem var heill og traustur. Það er stundum sagt að þeir deyi ungir sem guðirnir elska, sem mér finnst nú ekki réttlæti. Það fylgir því mikil sorg þegar traustur heimilisfaðir er hrifinn burt frá fjölskyldu sinni í blóma lífsins. En lífið heldur áfram og við biðjum Guð að styrkja elsku Helgu Ingibjörg okkar og börnin öll Guðbjörg Unu og Stefán, Gunnar Má og Eydísi, Elvar Elí og afa Gunnar í þeirra mikla missi. Þau eru búin að sýna að þau eru hetjur. Minn- ingin um góðan mann lifir í hjört- um okkar allra. Guðbjörg og Þráinn. Í dag kveðjum við góðan og traustan vin og fjölskyldu- meðlim. Mann sem var ósérhlíf- inn og hörkuduglegur, mann sem reyndist okkur alltaf vel og var alltaf til staðar, mann sem okkur þótti mjög vænt um. Í dag kveðjum við elsku Halla. Lífið er óútreiknanlegt og þau verkefni sem við þurfum að tak- ast á við eru mörg og misjöfn. Árið 2011 fengu Halli og fjöl- skylda hans mjög erfitt verkefni í hendurnar. Verkefni sem þau tókust á við með mikilli reisn, styrk og æðruleysi, yfirvegun og hugrekki. Í næstum því sjö ár glímdi Halli við þetta verkefni og aldrei heyrði maður hann kvarta eða kveina yfir þessu hlutskipti sínu. En þannig var Halli, hann var sterkur, gekk hreint til verks og lét sjúkdóminn ekki stoppa sig í því sem hann ætlaði sér að gera. Hann var rólegur, yfirvegaður og skemmtilegur. Hann var ekki maður margra orða en það sem hann sagði var þess virði að hlusta á því hann var mjög vel gefinn og með mikinn húmor. Góðmennska Halla var ein- stök, hann var einstaklega hjálp- samur, handlaginn og alltaf boð- inn og búinn að aðstoða ef þess þurfti. Þau voru ófá skiptin sem hann hjálpaði okkur og það var í raun alveg sama hvert verkið var, hann var alltaf fyrstur á staðinn og tilbúinn með lausnir og góð ráð. Það sem hann tók sér fyrir hendur vildi hann gera vel og hann skilaði öllu vel frá sér. Hann var réttsýnn og afskaplega þægilegur. Það var aldrei neitt stress eða vesen í kringum hann, hann hafði góða nærveru og það var gott að spjalla við hann um allt og ekkert. Hann var ótrúlega raungóður og trúr sjálfum sér og sínu fólki. Hann var mikill fjölskyldumaður, og hann og Helga voru ótrúlega samstíga í öllu sem þau gerðu. Það var alltaf gaman að heyra hann tala um afrek Guðbjargar Unu, Gunnars Más og Elvars Elís því að maður fann hversu stoltur hann var af þeim, hann fylgdi þeim og studdi þau í öllu sem þau gerðu. Maður veit að hann á eftir að fylgjast með þeim áfram og þau munu búa að öllu því góða sem Halli kenndi þeim. Elsku Halli, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og með okkur. Þú munt lifa áfram í hugum okkar og hjörtum um ókomna tíð. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elías, Erna, Þráinn, Sigurbjörg Eva, Eyrún Sif og Óðinn Darri. Elskulegur frændi, að setjast niður og skrifa minningarorð um þig er hrikalega erfitt og ósann- gjarnt. Ótal minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Á mínum yngri árum þegar þú varst togarasjómaður fannst mér þú alltaf rosalegur harðjaxl og sennilega er það ástæðan fyrir að ég fór líka að vinna til sjós því þú varst í raun mikil fyrirmynd mín á mörgum sviðum. Í gegnum tíð- ina höfum við verið duglegir að rækta frændskap okkar ýmist á ættarmótum eða yfir kaffibolla spjalli í Suðurengi og síðar Naut- hólum og þegar við tvíburabörn- in stóðum að ættarmóti á Skeið- um og sást best hvað þú vildir vanda þar til verks eins og þér einum var lagið í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. En þú, elsku Halli, varst svo mörgum kostum gæddur og þar kemur t.d. í hugann dugnaður, tryggð samviskusemi og heiðar- leiki. Svo varstu líka mikill fjöl- skyldumaður og eiginkona þín og börn voru alltaf í fyrsta sæti hjá þér enda voruð þið hjón dugleg að fylgja börnum á íþróttamót í gegnum árin. Svo á árunum sem þú vannst við trésmíðar skipti engu máli hvernig viðraði og eitt sinn hitti ég þig þegar þú varst að slá upp sökkli að húsi og það var skítaveður, rok og slydda, og ég spurði þig hvort ekki væri nú hægt að finna betra veður í þetta og þú tókst niður lopavettlinginn og straukst um kinn þína og skelltir svo blautum vettlingnum á höndina og tókst hamar og kú- bein og sagðir það þýðir ekkert að spá í veðrið, það verður bara að vinna áfram og brostir. Já, elsku Halli, þú varst mikill harð- jaxl og hörkuduglegur til vinnu. Fyrir um 10 árum fórstu í skóla til að læra til ökukennara og ætlaðir að feta í fótspor tengdaföður þíns en þá kom reið- arslagið – þú greindist með krabbamein. En þú hélst þínu striki og kenndir öll þessi ár þrátt fyrir veikindin og í raun al- veg fram á síðasta dag og senni- lega hefur það gert þér gott því þar gastu dreift huganum, stjórnað vinnunni eftir því hvern- ig þér leið. Svo eftir að ég fór á Reykja- lund síðastliðinn vetur var gott að eiga þig að því þú varst svo duglegur að hvetja mig áfram að hreyfa mig ýmist að hjóla eða ganga og gekk ég mjög oft á Ingólfsfjall og þú talaðir um það í maí síðastliðnum að þig langaði að fara upp með mér en mér var það ljóst í huganum að veikindin hjá þér voru farin að taka sinn toll og ekki víst að ég myndi njóta nærveru þinnar uppi á fjall- inu og sem var svo raunin, því miður. En, elsku frændi, ég á þér svo mikið að þakka, þú kenndir mér svo margt með þínum dugn- aði og þrautseigju og síðustu vik- urnar sem þú lifðir voru magn- aðar fyrir þær sakir hvað þú varðst æðrulaus og yfirvegaður. Síðasta stundin sem við spjölluð- um var niðri við Vola að veiða og þá sá ég alveg hvað þú varst orð- inn veikur og þrátt fyrir það var viðmót þitt nr. 1 yfirvegun og æðruleysi og meira að segja brostir þú þá. Elsku Halli frændi, restina af minningum mínum um þig geymi ég í hjarta mínu en sárastur er missirinn fyrir fjölskyldu þína, hana Helgu þína og börnin þrjú, Guðbjörgu Unu, Gunnar Má og Elvar Elí, og ekki má gleyma öldruðum föður þínum sem syrg- ir son sinn. Minning þín lifir, kæri frændi. Sigurbjörn Snævar Kjartansson. Við kveðjum nú góðan og traustan fjölskylduvin sem búið hefur í sömu götu og við. Mikill samgangur hefur verið og strák- arnir okkar hafa vanið komu sína yfir og ýmislegt brallað. Áhugi þeirra á daglegu lífi strákanna okkar leyndi sér ekki. Halla þótti alltaf gaman að ræða málin og Hallgrímur Gunnarsson Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.