Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 27

Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 ✝ Björn Stef-ánsson fæddist á Akureyri 16. mars 1964. Hann lést 5. september 2017. Foreldrar hans eru Sigríður Hösk- uldsdóttir, f. 10.1. 1936, og Stefán Björnsson, f. 24.2. 1924, d. 9.3. 1991. Systkini Björns eru Höskuldur Stefánsson, f. 21.9. 1960, Anna Lilja Stefáns- dóttir, f. 1.10. 1968, og Rósa María Stefánsdóttir, f. 23.3. 1976. Björn kvæntist Maríu Ragn- heiði Hauksdóttur Waage, f. 21.8. 1963. Barn þeirra er Stef- án Haukur, f. 17.2. 1999. Áður átti Björn Auði, f. 10.5. 1993, með þáverandi eiginkonu sinni Ásgerði Jón- asdóttur, f. 5.6. 1966. Stjúpdóttir Björns, dóttir Mar- íu, er Arna Berg- lind Halldórsdóttir Waage, f. 15.6. 1979, maki hennar er Natascha Fischer. Björn var hús- gagnasmíðameist- ari frá Iðnskól- anum á Akureyri og í Reykjavík. Hann var bóndi á Hesju- völlum, refaskytta og veiðimað- ur. Hann vann lengst af sem sjálfstætt starfandi hús- gagnasmiður og síðustu árin sem sölumaður hjá Þór hf. Útförin fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 22. september 2017, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Í dag kveðjum við hinstu kveðju, kæran bróður, mág, frænda og vin, Björn Stefáns- son. Margs er að sakna. Björn var einstakur félagi og fjölskyldu- maður. Hann var ætíð hrókur alls fagnaðar og mikill gleðigjafi hvar sem hann kom, mikill sögumaður og hafði ætíð skemmtileg tilsvör á hraðbergi. Björn hafði þann einstaka hæfi- leika að sjá hið góða og skemmtilega í öllum hlutum og var einstakur vinur. Glaðlyndið og kímnin var honum svo eig- inleg að hann náði að sjá hið já- kvæða í öllum málum. Sama hvað gerðist var bara ekki hægt að reiðast Birni eða láta sér leiðast í félagsskap hans. Gleði hans og jákvæðni tóku alltaf völdin og hann gerði gott úr öllu. Björn var einstakur hagleiks- og verkmaður, hann var lærður húsgagnasmiður og naut sín við smíðar og sköpun fagurra hluta og eftir hann liggja margir fagr- ir gripir sem bera verklagni hans og hugmyndaauðgi fagurt vitni. Engu skipti hvernig verk Björn tók að sér; allt var gert af miklum metnaði og vandvirkni. Hann var mikill útivistar- og veiðimaður og í íslenskri nátt- úru var Björn á heimavelli. Hann naut lífsins til hins ýtrasta er hann var með fjölskyldu eða vinum í vélsleðaferðum, við veið- ar eða bara á fjölskyldu- eða mannamótum í íslenskri sveit. Það er við hæfi að kveðja Björn með eftirfarandi ljóði. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. (Sigurður Jónsson) Björns verður sárt saknað af öllum sem hann þekktu. Elsku Mæja, Stefán Haukur, Auður, Arna og Natascha, mamma og Gunni. Okkar dýpstu samúðarkveðj- ur á þessum tímum. Anna Lilja Stefánsdóttir, Sigmundur Einar Ófeigsson og fjölskylda. Höskuldur Stefánsson, Kristrún Pétursdóttir og fjölskylda. Björn Stefánsson frá Hesju- völlum er í dag kvaddur hinstu kveðju eftir mjög erfið veikindi. Það er mikil eftirsjá og þung spor fyrir ástvini sem nú kveðja eiginmann, föður og vin sem fellur frá í blóma lífsins. Björn var sterkur maður í orðsins fyllstu merkingu, já- kvæður og glaðsinna frá fyrstu kynnum, vinsamlegur og lausna- tengdur og smiður góður. Hann hafði næmt auga fyrir umhverfi sínu, var mikill nátt- úruunnandi og naut sín einnig vel í mannlegum samskiptum. Það var alltaf gaman að hitta Björn sem var glettinn og gat verið skemmtilega tvíræðinn, bjartsýni og jákvæð lífsskoðun hans hafði góð áhrif á viðmæl- endur en hann bjó einnig yfir mikilli þekkingu og áhuga á verkefnum, veiðum og umhverfi þeirra sem hann unni. Í Birni sameinuðust bestu kostir þess sem prýða má „góð- an dreng“. Maríu eiginkonu hans og fjöl- skyldunni allri færum við inni- legustu samúðarkveðju. Guð blessi minningi Björns Stefánssonar. Þórdís og Haukur. Nágranni okkar og vinur, Bjössi frá Hesjuvöllum, er lát- inn. Margar ánægjulegar stundir og augnablik höfum við átt með honum sem koma til með að lifa í minningunni. Bjössi kunni margar sögur og sagði skemmti- lega frá, hann hafði einstakan húmor, stutt var í hlátrasköllin og uppátækin mörg, svolítill prakkari. Það var engin logn- molla í kringum Bjössa og báru meðal annars flugeldasýningar í Áshlíðinni þess vott um hver áramót eða bara jafnvel hvenær sem var, það var alltaf von á einni og einni rakettu til að gleðjast. Bjössi var mikill veiðimaður. Alltaf var gaman að kíkja til hans í bílskúrinn, þiggja bita af gröfnu hreindýrslæri eða öðru góðgæti og slá á létta strengi. Hann var líka refaskytta og eitt sumarið kom Bjössi heim með tvo yrðlinga sem hann náði í Eyjafjarðarsveit. Yrðlingarnir voru nokkuð gæfir en þegar á leið voru þeir farnir að færa sig upp á skaftið og kíkja á rab- arbara og kartöflur í görðum nágrannanna. Þegar minnst var á það við Bjössa hló hann við og sagði: „Nú fara þeir alveg að fara – þeir eru bara svo krútt- legir.“ Og hvað annað var hægt en að samsinna honum með það. Stundum er fólk mikilvægara en við gerum okkur grein fyrir í daglegu lífi og þykir okkur brotthvarf Bjössa hálfóraun- verulegt og svo mikið er víst að við eigum eftir að sakna þess þegar við keyrum inn Áshlíðina að fá ekki bros og „vink“ frá Bjössa. Við sendum Maríu, Stefáni, Auði, Örnu, Sigríði móður Bjössa og öðrum ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðj- ur. Hólmfríður Sara Friðjónsdóttir og Páll Stefánsson. Í dag kveðjum við góðan dreng og vinnufélaga, Björn Stefánsson, hinn eina sanna Hesjuvelling. Það var gott að vinna með Birni og verður skrít- ið að hann sé nú búinn að kveðja okkur að sinni. Björn starfaði hjá okkur í fimm ár og var góður vinnu- félagi. Þessi mikli náttúruunn- andi og grallari sem hafði in- dæla nærveru og mikinn húmor. Uppátæki Björns verða lengi í minnum okkar höfð og þar er af nógu að taka. Fjölskyldu Björns sendum við innilegar samúðarkveðjur. Elsku vinur, hvíldu í friði. Fyrir hönd starfsfólks Þórs hf., Einar Oddsson. Í dag kveðjum við merkan fé- laga okkar úr LÍV, hann Björn Stefánsson Hesjuvelling. Hann var virkur í félagsstarfi og lét vel á sig minna á mannamótum sleðamanna hvort sem það var á fjöllum eða í byggð. Hann var traustur ferðafélagi og kunni vel til verka þegar ferðast var um hálendið á vélsleða. Björn var ávallt hrókur alls fagnaðar og oftar en ekki var talið í Rósina, sem hann leiddi við myndarleg- an hópsöng. Við minnumst hans sem sterks sleðakappa og afar glaðværs sleðamanns. Við vilj- um þakka honum góð kynni í gegnum árin og Maríu eigin- konu Björns, börnum og fjöl- skyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Landssamband íslenskra vél- sleðamanna, Björn Traustason, forseti LÍV, Freyr Aðalgeirsson, fv. forseti LÍV. Það sem okkur bekkjarfélög- um Bjössa kom fyrst í hug þeg- ar ákveðið var að skrifa nokkur minningarorð um hann var gleðin, brosið og hláturinn sem einkenndi hann, fáir sem við þekkjum hafa hlegið eins inni- lega og mikið og hann. Hann hafði líka mjög gaman af því að segja skemmtisögur og brand- ara þótt sumar þessar sögur og brandarar væru á tæpasta vaði en það fannst honum bara ennþá skemmtilegra. Hann var talsvert stríðinn en það var allt- af á góðlegum nótum. Bjössi var hógvær drengur og sá lífið í jákvæðu ljósi og það var alltaf stutt í gamansemina og sprellið. Þau tíu ár sem við áttum samleið með Bjössa í Glerár- skóla fór oft ekki mikið fyrir honum, hann var líklega feiminn að eðlisfari en það rjátlaðist talsvert af honum þegar hann eltist. Bjössi hafði snemma gaman af alls konar tækjum og tólum og kom stundum í skólann á vél- sleða eða mótorhjóli sem okkur hinum þótti auðvitað mjög spennandi. Hann passaði sig að leggja passlega langt frá skól- anum svo það sæist ekki til hans því hann hafði ekki aldur til að keyra þessi tæki. Vinmargur var Bjössi og hafði mjög gaman af spjalli við fólk, stundum svo mikið gaman að hann gleymdi að koma sér að vinnu, en það var ekkert mál, hann dreif sig bara af stað og það hefur víst oft sést undir ilj- arnar á honum þegar hann var orðinn of seinn í eitthvert verk- efni sem hann var búinn að taka að sér. Bjössi var afburðagóður smiður og það var alltaf gott að leita til hans með smíðaverkefni og vandvirkur var hann. Margar sögur eru til af Bjössa og uppátækjum hans, eitt sumarið ákvað hann eftir veiðar að geyma ylfinga úti á lóð hjá sér í Áshlíðinni í girðingu, þetta ævintýri hans endaði sem viðtal í sjónvarpinu. Þegar við hittumst á 50 ára aldurshittingnum fyrir þremur árum á Akureyri voru myndir af Bjössa ungum dreng í smíða- stofunni í Glerárskóla og mynd- irnar töluðu sínu máli, því gleðin, áhuginn og einbeitingin skein úr andliti hans. Þarna var hann búinn að finna sína hillu í lífinu. Bjössi mætti í Glerár- skóla með skjalatösku sem hann geymdi í sérstakan mjöð sem vakti kátínu, svokallaðan Hesju- velling að hans sögn. Hann léði þá eins og áður hópnum glað- værð og hlátur með sínu já- kvæða hugarfari. Hann lék við hvern sinn fingur og eigum við eftir að muna hann þannig, því þessi helgi var yndisleg samvera og gaman að rifja upp fyrri tíð. Margt fleira væri hægt að segja um þennan góða dreng og mikill er missir fjölskyldu hans. Við sendum þeim innilegar samúðarkveðjur, megi minning- in um góðan dreng lifa. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Fyrir hönd bekkjarsystkina úr Glerárskóla, árgangur 1964, Ósk Geirsdóttir. Jæja, stóri bróðir, þegar þú sagðir mér að þetta „væri bara búið hjá gamla“ vissi ég ekki hvert ég ætlaði. Þetta gat bara ekki staðist. En eins og þú sagð- ir í glettni þegar við kvöddumst „þá eru það alltaf þeir bestu sem fara fyrstir“. Í þessu tilfelli var það þannig. Þú ert sá sem við öll vildum síst missa. Þú varst einstakur fyrir svo margra hluta sakir og ekki bara fyrir það að nota kokteilsósu með svo að segja öllum mat og það er ekki bara „Hesjuvellingurinn“ sem fólk mun sakna. Nei, það er fleira sem kemur til. Þú varst öðlingsdrengur, einstakt ljúf- menni, mikið náttúrubarn, gleði- gjafi og grallari og gerðir lífið svo miklu betra, fallegra og skemmtilegra með þinni ein- stöku nærveru, hlýju, húmor og uppátækjum. Efst í huga er óendanlegt þakklæti fyrir allar góðu stund- irnar og góðu minningarnar. Þú nenntir endalaust að þvælast með mig þegar ég var lítil og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að í uppvextinum. Þú varst óþreytandi við að koma mér til að hlæja, til dæmis með því að láta mig „labba í loftinu“ á hvolfi eða halda á mér á háhesti, sem við uxum nú reyndar aldrei upp úr, því það eru ekki mörg ár síðan við tókum sving á dans- gólfinu á þorrablótinu og þú með mig á háhesti. Maður var búinn að fá að vera aftan á öll- um tegundum vélknúinna öku- tækja; skellinöðrunni, mótor- hjólinu sem þú skutlaðir mér æði oft á í skólann og svo vél- sleðunum. Svo voru það sigling- arnar á bátnum sem þú smíð- aðir og flugferðirnar eftir að þú tókst flugprófið. Þú vissir alltaf hvað þú varst að gera, hafðir sérstakt lag á öllum farartækj- um og það var aldrei neitt að óttast. Þannig var það að fylgja þér. Þá var ekki neitt að óttast. Þá var bara gaman. Stóri, sterki, flinki, hressi og skemmti- legi bróðir minn. Þú hafðir einstakt auga fyrir náttúrunni og tengsl við hana. Þar er enn eitt sem ég er svo þakklát fyrir að þú skyldir kenna mér. Að taka eftir nátt- úrunni. Sjá ugluna fljúga þarna og smyrilinn. Tófuna hlaupa eft- ir fjallshlíðinni. Músasporin í snjónum. Þú varst náttúrubarn fram í fingurgóma, veiðimaður og ofurlítill villimaður, í jákvæð- um skilningi þess orðs. Þar fyrir utan varstu náttúrlega úrvals- smiður og þúsundþjalasmiður og allt lék í höndunum á þér. Þér var sama um hvað öðrum fannst og lést ekki aðra ræna þig gleðinni. Já það er langt mál að telja upp alla kostina, en við sem eftir sitjum erum þakklát fyrir að hafa þekkt þig og fengið að njóta þessara góðu kosta. Ósköp sem þín verður sárt saknað. Það verður tómlegt að fá ekki símhringingu frá þér á afmælisdaginn minn eins og allt- af. Eins mun ég sakna sögu- stundanna. Svo margar og fyndnar og skemmtilegar sögur. Þú sagðir svo skemmtilega og glettnislega frá. Öll þessi uppá- tæki, allir frasarnir og tilsvörin og þetta allt. Þú sást alltaf spaugilegu hliðarnar á málun- um. Varst ekki að velta þér upp úr hinu. Það fékk að liggja milli hluta. Það var ósköp dýrmætt að fá að kveðja þig rétt áður en þú fórst og ég veit að pabbi hefur tekið vel á móti þér hinum meg- in; glókollinum hennar mömmu sinnar, en mamma mun sakna þín svo mikið. Ljósið fylgi þér alltaf og blessuð sé minning þín. Hjartans kveðja, þín litla systir, Rósa María Stefánsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Björn Stefánsson Þráinn Sigurðs- son fæddist 9. ágúst 1946 á Þingeyri, Skólavegi 37 í Vest- mannaeyjum. Sonur hjónanna Sigurðar Óla Sigurjóns- sonar, skipstjóra, útgerðarmanns, fuglaveiðimanns, bjargsigsmanns og Ofanbyggjara frá Brekkhúsi í Vestmannaeyjum, og Jóhönnu Kristínar Helgadóttur húsmóður. Þráinn var fjórði í röðinni af fimm systkinum sem öll eru á lífi. Hann Þráinn Sigurðsson ✝ Þráinn Sig-urðsson fædd- ist 9. ágúst 1946. Hann lést 20. júlí 2017. Útför Þráins fór fram 26. júlí 2017. ólst upp í foreldra- húsum og fer að stunda sjósókn snemma á unglings- árum á Freyju VE 260 með föður okkar á hálfum hlut. Hann stundaði sjósókn í tugi ára og var einnig skipstjóri og útgerðarmaður á þessum árum. Árið 1990 lendir hann í skipskaða þegar Sjöstjarnan VE fórst skammt frá Vestmannaeyj- um, var hann þá stýrimaður. Komust skipverjar við illan leik um borð í björgunarbát að und- anskildum einum skipverja sem drukknaði. Nokkrum árum áður lenti Þráinn í slysi á sjónum þegar toghleri slóst í hann um borð í Andvara VE og gekk hann haltur upp frá því. Hann kynntist ungur Ingunni Elínu Hróbjartsdóttur. Þau gift- ust og eignuðust þrjá syni, Sigurð Frans, Hallgrím og Jóhann Helga. Fyrstu árin bjuggu þau hjá for- eldrum Þráins á efri hæð þar til þau fluttu í eigið húsnæði á Höfða- vegi 31 í Vestmannaeyjum og stofnuðu þar myndarheimili. Allt- af var vel tekið á móti gestum og þau höfðingjar heim að sækja. Þráinn var liðtækur í eldhúsinu og hjálpaði oft við að matbúa. Hann hafði þá áður starfað sem matsveinn á sjónum. Þráni þótti ekki vont að fá sér í glas, sem var honum fjötur um fót um árabil. Árið 1990 fór hann í áfengismeð- ferð og hélt sér frá áfengi í fjölda ára. Þráinn var alla tíð mikill Eyjamaður og þar vildi hann vera. Hann var traustur og góður bróðir og vinur. Oft var hringt á milli eftir að ég flutti frá Eyjum og málin rædd. Þráinn fylgdist vel með fréttum í útvarpi og sjónvarpi og vel var fylgst með veðurspánni á hverjum degi. Minning um góðan dreng lifir í huga okkar og þökkum við Þráni fyrir samfylgdina í þessu lífi. Við biðjum góðan Guð að rita nafnið hans í lífsins bók hjá sér. Einnig viljum við votta fjölskyldu hans samúð okkar. Ég vil enda þessa grein með orðunum sem ég gaf honum á sjúkrabeði í Vestmanna- eyjum, þau eru úr Davíðssálmi, 125. vers 1-2: Þeir sem treysta Drottni eru sem Síon- fjall, er eigi bifast, sem stendur að eilífu. Fjöll eru kringum Jerúsalem, og Drott- inn er kringum lýð sinn héðan í frá og að eilífu. Sigurjón bróðir og fjölskylda. Elskuleg frænka okkar, GUÐNÝ GÍSLADÓTTIR frá Vesturkoti, Hvaleyri við Hafnarfjörð, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 25. september klukkan 13. Bræðrabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, GUÐJÓN GUNNARS KRISTINSSON framkvæmdastjóri, Markholti 5, Mosfellsbæ, lést á heimili sínu þriðjudaginn 19. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju 4. október klukkan 14. Helga Björk Edvardsdóttir Gunnar Guðjónsson Brynja Jónsdóttir Kristinn Guðjónsson Katrín Inga Marteinsdóttir Helgi Þór Guðjónsson Björk Bragadóttir afabörnin Sigríður Fanney Guðmundsdóttir Unnur Kristinsdóttir Magnús Pétursson Margrét Kristinsdóttir Sigurður Kr. Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.