Morgunblaðið - 22.09.2017, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017
Við hjónin erum að hjóla núna í Central Park,“ sagði Arna BjörkBirgisdóttir sálfræðingur við blaðamann þegar hann sló á þráð-inn til hennar í gær í tilefni 50 ára afmælis hennar í dag. „Við
verðum hérna í fimm daga í New York og ætlum að skoða Empire State
og þar sem Tvíburaturnarnir stóðu og svo bara að njóta borgarinnar.
Við erum á hóteli á Manhattan og erum í hringiðunni í borginni sem
aldrei sefur. Það er hiti hérna og við erum í stuttbuxum og sumarkjól.“
Arna Björk og eiginmaður hennar, Eyþór Leifsson slökkviliðsmaður
og varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, eru dugleg að
fara í borgarferðir en þetta er fyrsta ferð þeirra til New York. „Berlín
er líklega uppáhaldsborgin,“ segir Arna Björk aðspurð. „Það er svo
gaman að hjóla þar. Þar er mikið pláss og vel skipulagt og verðlagið er
líka fínt.“
Arna Björk og Eyþór eru í hjólreiðahópnum Team Rynkeby sem hjól-
aði frá Kaupmannahöfn til Parísar í sumar og stefnan er að hjóla sömu
leið á næsta ári, en þetta er fjáröflun fyrir SKB, krabbameinssjúk börn.
„Þetta er svona það sem við erum að sýsla við, við búum bæði í nágrenni
við þar sem við vinnum svo við hjólum mikið til vinnu,“ en Arna Björk
er deildarstjóri Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða,
en hún hefur unnið hjá Reykjavíkurborg síðan árið 2000. Verkefni
Örnu Bjarkar eru margvísleg en aðaláherslan er á vinnu með börnum
og foreldrum.
Börn Örnu Bjarkar og Eyþórs eru Ingibjörg 25 ára nemi í félags-
ráðgjöf við HÍ, Þórhildur Helga 20 ára nemi í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla, Kolfinna 18 ára nemi í Menntaskólanum við Sund, Dýrleif
Edda sem á 12 ára afmæli í dag, og Egill 9 ára, en þau eru nemendur í
Háteigsskóla.
Afmælismæðgur Arna Björk og Dýrleif Edda eiga báðar afmæli í dag.
Stödd í borginni
sem aldrei sefur
Arna Björk Birgisdóttir er fimmtug í dag
I
nga Elín fæddist í Reykjavík
22.9. 1957 og ólst þar upp, í
Hafnarfirði og í Mosfellsdal.
Hún var í Öldutúnsskóla,
Laugarnesskóla,Varmárs-
kóla og í Austurbæjarskólanum, hóf
myndlistarnám í Myndlistaskóla
Reykjavíkur, aðeins 13 ára, undir
handleiðslu Katrínar Briem, en skól-
inn var þá til húsa í Ásmundarsal á
Skólavörðuholti. Þaðan fór hún í
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
og útskrifaðist sem myndmennta-
kennari 1978.
Inga Elín kenndi myndlist í þrjú ár
en sköpunarþörfin kallaði svo hún fór
í fimm ára framhaldsnám til Kaup-
mannahafnar í Skolen for brugsk-
unst (Damark Design) og útskrif-
aðist 1988 sem keramik og
glerhönnuður.
Inga Elín kom síðan heim og hefur
helgað sig listinni allar götur síðan.
Hún hefur haldið fjölmargar sýn-
ingar, hér á landi og erlendis, og auk
þess rekið gallerí, ein og með öðrum.
Inga Elín hefur unnið skemmtileg
verkefni fyrir veitingastaði. Auk þess
hefur hún starfað fyrir íslenska
kokkalandsliðið: „Eitt sinn var hringt
í mig á laugardagsmorgni og ég
spurð hvort ég væri til í að sýna verk
eftir mig svo þekktri persónu að gall-
eríum í London væri lokað þegar við-
komandi kæmi að skoða hjá þeim. Ég
hélt að verið væri að gera at í mér,
sagði eins og var að ég væri að fara í
matarboð til dóttur minnar og hefði
eiginlega ekki tíma. Sá sem hringdi
gaf sig ekki en mátti ekki af öryggis-
ástæðum segja mér hver hér væri á
ferð fyrr en ég væri að verða komin á
áfangastað. Þá kom í ljós að þetta var
Elton John sem skoðaði verk mín í
hálftíma og keypti af mér tvö verk.“
Inga Elín lék Margréti Þórhildi
Danadrottningu í kvikmynd Guð-
nýjar Halldórsdóttur, frænku sinnar,
Stella í framboði: „Mér skilst að
Duna hafi oft verið spurð að því
hvernig í ósköpunum hún hafi fengið
drottninguna til að leika í íslenskri
gamanmynd. Bláókunnugt fólk kem-
ur oft til mín í Danmörku og hefur
orð á því hve sláandi líkar við séum.
Inga Elín, myndlistarmaður og hönnuður – 60 ára
Brúðkaupsmynd Inga Elín og Þórarinn, nýgift fyrir tíu árum, heima á Hrísbrú með Mosfell og Kistufellið í baksýn.
Margrét Danadrottn-
ing er ekki Inga Elín
Nöfnur og langmæðgur Inga Elín og
Inga Lilja upp í Skammadal í Mosó.
Stykkishólmur Yrsa Lind
fæddist 30. ágúst 2016 kl.
11.25 á Landspítalanum í
Reykjavík. Hún vó 3.875 g
og var 49,5 cm að lengd.
Foreldrar hennar eru Dóra
Lind Pálmarsdóttir og
Maríus Þór Haraldsson.
Nýr borgari
Alba Mist Gunnarsdóttir
og Agnar Darri Gunn-
arsson héldu tombólu við
Spöngina og söfnuðu
8.282 kr. sem þau færðu
Rauða krossinum á Íslandi
að gjöf.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Byggjumvon
umbetra líf
Fylgstu með söfnunarþætti í beinni útsendingu á RÚV og
í Sjónvarpi Símans laugardaginn 23. september kl. 19:45
2.000 kr.
903 1502
8.000 kr.
903 1508
5.000 kr.
903 1505