Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 35

Morgunblaðið - 22.09.2017, Side 35
Þess vegna þykir mér vænt um að hafa fengið orðu frá Margréti Þór- hildi, Kunsthåndværkerprisen af 1879.“ Inga Elín var auk þess valin bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 1997 á fertugsafmælisári sínu. „Það er mikil gæfa að fá að eldast og ég er þakklát fyrir hvert gott ár og allt þetta góða fólk í kringum mig. Ég held að ég eldist eins og gott rauðvín. En þetta er ekki sjálfgefið þegar maður horfir upp á vini og kunningja sem eiga um sárt að binda. Móðir mín lést allt of snemma, að- eins 66 ára. Ég á henni mikið að þakka, sakna hennar alltaf og finnst skrítið að geta ekki tekið upp símann og heyrt rödd hennar.“ En hvernig skyldi Inga Elín ætla að eyða þessum afmælisdegi? „Á afmælisdaginn verð ég í Vanco- ver í Kanada hjá Fjólu dóttur minni og hennar fjölskyldu. Ætli við höld- um svo ekki upp á sextugsafmælin saman, kannski þegar við erum flutt í litla húsið okkar á Hverfisgötunni, sem við erum að gera upp þessa dag- ana.“ Fjölskylda Eiginmaður Ingu Elínar er Þór- arinn Sigurbergsson, f. 13.4. 1958, gítarleikari á klassískan gítar og leið- sögumaður. Hann er sonur Sig- urbergs Þórarinssonar, f. 24.11. 1932, d. 20.1. 1997, bifreiðaeftirlitsmanns, og k.h., Hrafnhildar Þorleifsdóttur, f. 11.7. 1935, d. 2.2. 2016, húsfreyju: „Ég kynntist manninum mínum fyrir 15 árum og það er mikil gæfa að eign- ast traustan maka á seinna skeiði lífsins. Við erum bæði listamenn og skiljum duttlunga hvort annars ótrú- lega vel.“ Börn Ingu Elínar eru 1) Eygerður Helgadóttir, f. 29.5. 1978, náms- ráðgjafi í Mosfellsbæ, en maður hennar er Ingi Páll Sigurðsson og eru dætur þeirra Inga Lilja, Sunna Karen og Eygló; 2) Fjóla Dögg Helgadóttir, f. 1980, sálfræðingur í Vancouver í Kanada en maður henn- ar er Neil Yager og eru synir þeirra William Helgi og Daníel Ingi, og 3) Kristinn Valgeir Ísaksson, f. 27.1. 1990, hefur starfað hjá Zusuki- umboðinu í Reykjavík. Börn Þórarins eru Helga Guðrún, f. 16.8. 1983, nemi í Belgíu og eru börn hennar Andrea Auróra og Sam- úel Þór, og Alexander, f. 10.9. 1986, tölvumaður í Finnlandi. Systur Ingu Elínar eru Jóna Mar- grét, f. 19.12. 1958. bóndi í Gunn- arshólma í Kópavogi; Bóel, f. 3.5. 1968, viðskiptafræðingur í Mos- fellsbæ; Ólöf, f. 27.4. 1971, d. 31.5. 1989, og Steinunn, f. 17.2. 1975, líf- eindafræðingur í Mosfellsbæ. Foreldrar Ingu Elínar: Eygerður Ingimundardóttir, f. 13.3. 1938, d. 11.1. 2005, verslunar- og mat- reiðslumaður í Mosfellsdal, og Krist- inn Valgeir Magnússon, f. 20.3. 1940, framkvæmdastjóri á Húsavík. Blóðfaðir Ingu Elínar er Örn Árnason, f. 26.9. 1938, uppfinningam. í Kanada. Inga Elín Kristinsdóttir Andrés Þorláksson b. og hreppsnm. á Hrísbrú, fósturbróðir Stefáns Þorlákssonar, hreppstj. Mos- fellssveitar, sem lét byggja nýja kirkju á Mosfelli, og sonur Ólafs Magnússonar á Hrísbrú, sem barðist fyrir friðun Mosfellskirkju gömlu (sjá Innansveitarkróniku) Ólöf Jónsdóttir húsfr. á Hrísbrú Elínborg Andrésdóttir húsfr. á Hrísbrú Ingimundur Ámundason b. á Hrísbrú í Mosfellsdal Eygerður Ingimundardóttir verslunar- og matreiðslum. í Mosfellsbæ Steinunn Einarsdóttir húsfr. í Öndverðarnesi Ámundi Sveinbjörnsson b. í Hólakoti í Mosfellssveit og í Öndverðarnesi Sveinn Guð- munds- son járn- smiður í Rvík Margrét Árnadóttir handavinnu- kona og verslunarm. í Rvík Kristinn Valgeir Magnússon (faðir Ingu) framkv. stj. á Húsavík Eggert Pálsson pákuleikari í Sinfóníu- hljómsveit Íslands Guðný Kristín Haf- liðadóttir húsfr. í Rvík Ólöf Jóna Ingimundardóttir starfsm. hjá Póstinum Auður Jónsdóttir rithöfundur Auður Sveins- dóttir Laxness húsfr. á Glúfra- steini Ásdís Sveins- dóttir Thorodd- sen silfur- smiður í Rvík Eggert Jóhannesson járn- smiður og trompetleikari Jóhannes Eggertsson sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarm. Svava Steinunn Ingimundardóttir heildsali í Rvík Sigríður Halldórsdóttir kennari í Rvík Halldór Halldórsson (Dóri DNA) uppistandari Hafliði Jónsson b. á Álfsstöðum í Flóa Margrét Eggertsdóttir söngkona Halldóra Kristín Thoroddsen myndlistarm. Ólafur K. Magnússon frétta- ljósmyndari við Morgunblaðið Ólafur Ingimundarson b. á Hrísbrú Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðar- maður í Mosfellsdal Guðbjörg Thoroddsen (Bauja) leikari, kennari og ráðgjafi Margrét Jónsdóttir bústýra í Ásum, systurdóttir Guðmundar, b. í Miðdal, langafa Vigdísar Finn- bogadóttur, Errós og Bjarna Guðnasonar prófessors Jóhannes Eggertsson vefari í Ásum í Gnúpverjahreppi Soffía Magnea Jóhannesdóttir húsfr. í Rvík Árni Jónsson málmsteypum. í Rvík Sólveig Magnúsdóttir húsfr. á Kaldbak Jón Árnason rokkasmiður og b. á Kaldbak á Eyrarbakka Úr frændgarði Ingu Elínar Kristinsdóttur Örn Árnason (blóðfaðir Ingu) upp- finningam. í Kanada ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2017 Sverrir Einarsson fæddist í Reykja- vík 22.9. 1936 og ólst þar upp. Hann var einkabarn hjónanna Einars Bjarnasonar, rafvirkjameistara í Reykjavík, og Vilborgar Sverr- isdóttur húsfreyju. Foreldrar Einars voru Bjarni Guðbrandur Jónsson, járnsmiður á Þingeyri við Dýrafjörð, og k.h., Þóra Bergsdóttir húsfreyja, en foreldrar Vilborgar voru Sverrir Ormsson, bóndi í Kaldrananesi í Mýrdal, og k.h., Halldóra Einarsdóttir hús- freyja. Sverrir var þríkvæntur, fyrsta eiginkona hans var Guðlaug Ólöf Gunnlaugsdóttir sem lést 1980, dótt- ir hjónanna Gunnlaugs Kristins Jónssonar kennara, og Elínar Jón- ínu Einarsdóttur hjúkrunarkonu. Með henni eignaðist hann tvo syni, Gunnlaug, forstöðumann stjórnsýslu Fjarðabyggðar, og Einar Þór hæsta- réttarlögmann. Önnur eiginkona Sverris var Guð- ríður Guðmundsdóttir sem lést 1994, dóttir hjónanna Guðmundar Helga- sonar húsgagnasmíðameistara og Hansínu Ingibjargar Kristjáns- dóttur, en eftirlifandi eiginkona Sverris er Ragnheiður G. Haralds- dóttir meinatæknir, dóttir hjónanna Haraldar Halldórssonar stórkaup- manns og Fríðu Gísladóttur. Sverrir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1956 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1963. Hann hlaut hdl-réttindi árið 1967. Sverrir var innheimtustjóri hjá Sakadómi Reykjavíkur árin 1963 og 1964, fulltrúi yfirsakadómara í Reykjavík á árunum 1964-72 og var skipaður sakadómari við Sakadóm Reykjavíkur 1972. Hann var m.a. skipaður dómsformaður í svo kölluð Hafskips- og Útvegsbankamáli árið 1989, í stað Péturs Guðgeirssonar sem Hæstiréttur heimilaði að véki sæti í málinu. Sverrir var skipaður héraðsdóm- ari við Héraðsdóm Reykjavíkur árið 1992 og gegndi því starfi síðan. Sverrir lést 16.9. 1998. Merkir Íslendingar Sverrir Einarsson 95 ára Albert Guðmundsson Ana F.T. Jesus Rosário Sigrún Þorsteinsdóttir Þorbjörg Ólafsdóttir 90 ára Bjarni Ólafsson 85 ára Jón Hannes Sigurðsson Steinn Valur Magnússon Unnur Inga Pálsdóttir 80 ára Björn Þorsteinsson Friðrik Svanur Oddsson Gísli Hjálmar Ólafsson Guðni Þórarinsson Páll Bjarnason Steinunn Bergsdóttir 75 ára Erla Guðmundsdóttir María K. Jacobsen Óskar Ágústsson Pauline K.D. Kjartans 70 ára Anna Valgerður Oddsdóttir Guðmundur H. Gunnarsson Katrín G. Þórlindsdóttir Ragnar Hinrik Ragnarsson Svanhvít Hallgrímsdóttir 60 ára Áskell Harðarson Bára Pétursdóttir Friðjón H. Þórarinsson Halldór S. Höskuldsson Halldór Þórólfsson Haukur Kristinsson Heiðar Jónsson Inga Elín Kristinsdóttir Jóhann Þórir Alfreðsson Jón Finnbjörnsson Leifur Kristján Þorsteinsson Magnús Kristjánsson Steinar Helgason Svava Árdís Jóhannsdóttir Þórunn Árnadóttir 50 ára Arna Björk Birgisdóttir Ása Sjöfn Lórensdóttir Ásthildur Gestsdóttir Ásthildur K. Garðarsdóttir Björk Baldursdóttir Hafsteinn Már Þórðarson Hafsteinn Pálsson Iwona Ewa Palak Joanna Bzymek Kristján Kristinsson Lilja Bergmann 40 ára Ásgeir Valur Sigurðsson Baldur Andri Regal Donata Dobies Donata R. Klementowska Gylfi Gylfason Halla Árnadóttir Linda Rós Pálsdóttir Ottó Rafn Halldórsson Rögnvaldur Þór Heimisson Sigurður Benediktsson Víðir Jónasson 30 ára Hildur Sigurðardóttir Hrafn Ingason Hrafnkell Jónsson Kristján Óðinn Unnarsson Lilja Guðmundsdóttir Michal Rafal Bajek Óskar Smári Hallgrímsson Seyedeh Masoumeh Safavi Stefán Brynjar Stefánsson Stefán Þór Hjartarson Sveinn Skorri Höskuldsson Thelma Sif Sævarsdóttir Tómas Rúnar Sölvason Til hamingju með daginn 30 ára Sveinn Skorri ólst upp í Reykjavík, er búsett- ur þar, lauk BSc-prófi í ferðamálafræði og stund- ar nú framhaldsnám í ferðamálafræði í Slóven- íu. Systir: Sólveig Lóa Hösk- uldsdóttir, f. 1995. Foreldrar: Höskuldur Sveinsson, f. 1954, arki- tekt, og Helena Þórð- ardóttir, f. 1961, banka- starfsmaður. Þau eru búsett í Reykjavík. Sveinn Skorri Höskuldsson 30 ára Óskar ólst upp á Eskifirði, býr á Egils- stöðum og starfar hjá Samskip. Systkini: Ingimar Þór Richter, f. 1979; Kristinn, f. 1986, og Brynja, f. 1990. Foreldrar: Hallgrímur Kristinsson, f. 1958, vél- stjóri á verksmiðjuskipi í Afríku, og Ingibjörg Krist- rún Ingimarsdóttir, f. 1956, lengst af fisk- verkakona. Óskar Smári Hallgrímsson 30 ára Lilja ólst upp í Njarðvík, býr þar, lauk sveinsprófi í hárgreiðslu og rekur eigin stofu, Hár- faktorí í Reykjanesbæ. Maki: Lúther Söring, f. 1984, skrifstofumaður hjá Isavia. Börn: Karen Ósk, f. 2010, Klara Rún, f. 2014, og Hafþór Söring, f. 2016. Foreldrar: Svanhildur Benediktsdóttir, f. 1958, og Guðmundur Ásbjörn Ásbjörnsson, f. 1958. Lilja Guðmundsdóttir Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ánægjuleg viðskipti er mitt loforð til þín. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.