Fréttablaðið - 19.05.2018, Page 26

Fréttablaðið - 19.05.2018, Page 26
Framhaldsskólakennar­inn Hrafnkell Tumi Kolbeinsson var með skrautdúfur í kofa þegar hann var unglingsstrák­ur í Keflavík. Áhuginn kviknaði aftur fyrir nokkrum árum og nú ræktar hann skrautdúfur í kofa við heimili sitt í Bústaðahverfinu. Hann býr í fallegu blámáluðu húsi í Bústaðahverfi. Við húsið stendur haganlega gerður dúfnakofi í sama lit. Í dúfnakofanum eru tæp­ lega þrjátíu skrautdúfur af þremur tegundum; Horseman pústarar, enskir trommarar og nebbdúsk trommarar. Hrafnkell Tumi er að dytta að ýmsu í garðinum þegar blaðamann ber að garði. Vinur hans, Þorvaldur Þorvaldsson, oddviti Alþýðufylk­ ingarinnar, hefur tekið sér hlé frá kosningabaráttunni og er að smíða grindverk fyrir hann. „Ég er með sérvalda komma í vinnu fyrir mig,“ segir Hrafnkell Tumi glaðhlakka­ lega. „Ætli ég hafi ekki verið tólf, þrettán ára,“ segir Hrafnkell Tumi spurður um það hvenær hann hafi eignast fyrstu dúfuna sína. Það liðu mörg ár þar til áhuginn vaknaði skyndilega aftur. „Ég hef alltaf haft gaman af þessu. Og ég fór að kíkja á netið. Fann síðu á Face­ book, Dúfuspjallið. Þar fór ég að senda fyrirspurnir og kíkja í kofa. Endaði á því að einn bauð mér að eiga kofann sinn. Svo var ég kominn á fleygiferð aftur,“ segir Hrafnkell Tumi. Hvað er það við dúfur? Eru þetta ekki svolítið leyndardómsfullir fuglar? „Þeir eru það, þeir hafa verið kall­ aðir rottur himinsins, en styttur af dúfum eru samt á öðrum hverjum legsteini. Menn setja ekki styttur af rottum á legsteina. Fuglarnir eru táknmynd ástar, friðartákn og notaðar sem sendiboðar. Dúf­ urnar voru forðum kjötforðabúr og áburðurinn var seldur dýrum dómum. Besti áburður sem þú finnur. Það er auðvelt að rækta þær. Þær eru eins og leir. Maður er fljótur að sjá árangur af ræktunarstarfinu,“ segir Hrafnkell Tumi. „Þetta eru kannski ekki gáfuðustu dýr í heimi en þau koma manni endalaust á óvart. Menn halda að þetta sé bara að vera með ein­ hverjar dúfur í kofa og þá bara gangi þetta eins og þetta á að ganga. En það er ekki þannig. Maður þarf að passa upp á að allt sé með friði og spekt. Maður vill ekki hafa slags­ mál. Maður vill ekki hafa einelti. Maður vill að pörin haldi hólfunum sínum. Þetta þarf að vera hreint,“ segir hann. Það er rúmt um dúfurnar í kofan­ um. Hrafnkell Tumi segir að mörgu að huga í dúfnarækt. „Þetta er svona samfélag, maður er stundum að stilla til friðar, það er tekist á um málefnin af hörku,“ segir hann og brosir út í annað og segir slagsmálin geta orðið hörð. Hann parar fuglana saman og segir enga mýtu að dúfur séu kenndar við ástina. „Þær eru alltaf í pörum. Fuglarnir para sig til lífs­ tíðar.“ Það eru mikil vísindi á bak við það hvernig skrautdúfur eru par­ aðar saman. „Þetta eru miklar pælingar um hvernig litir og eiginleikar erfast. Það má ekki para saman þá fugla sem eru með sömu gallana, þú ert alltaf að vinna með eitthvert gena­ mengi. Það er auðvelt að þjálfa dúfur til margra hluta með skilyrðingu. Það er hægt að kenna þeim. Skinner sál­ fræðingur kenndi þeim ping pong með matargjöfum. Hann hafði það mikla trú á þeim að hann taldi að þær gætu stýrt eldflaugum. Fékk mikla styrki til að skoða það.“ Hefur þú prófað það? „Í einhverjum sirkuslistum? Nei, aldrei nokkurn tímann. En það er auðvelt að stýra þeim með mat.“ Hrafnkell Tumi segir nágrann­ ana una vel við ræktunina. Honum finnst áhugavert að hugleiða um borgarlífið og náttúrulífið. „Ef við förum hundrað ár aftur í tímann þá voru hesta­ og hundakofar alls staðar. Nú er rýmið hreint, eiginlega engin dýr. En svo er þetta að koma til baka að einhverju leyti,“ segir hann og segir að víða erlendis komi borg­ ar­ og bæjaryfirvöld upp sameigin­ legri aðstöðu fyrir fólk til að rækta og sinna ýmsum dýrum. „Og þar eru haldnar uppskeruhátíðir, þar eru kynslóðir að tengjast í gegnum ræktunarstarf og náttúru, þetta er eitthvað sem við þurfum að gera.“ Borða sumir ræktendur dúfurnar sem þeir rækta? „Já, það er þannig sem við upp­ haflega nýttum þær,“ segir Hrafn­ kell Tumi og tekur dæmi frá átjándu öld í Bretlandi. „Þar voru um 26 þúsund dúfnakofar. Þeir kofar voru risastórir, þ.e. fyrir 500­5.000 pör. Þetta voru því alvöru matarkistur og áburðarverksmiðjur. Rómverjar byrjuðu með þetta og voru sjúkir í dúfur,“ segir Hrafnkell Tumi. Hverjar eru bestar á bragðið? „Það fer eftir matreiðslunni, þá eru þær bestar til matreiðslu áður en þær fara að fljúga, svona 6­8 vikna gamlar,“ segir Hrafnkell Tumi og sýnir blaðamanni matreiðslubók eftir Úlfar Finnbjörnsson þar sem er að finna dúfnauppskriftir. Hrafnkell Tumi segir ekki flókið að vera með dúfnarækt þótt það þurfi að huga að ýmsum mikil­ vægum þáttum. „Ég er ekki nema eina, tvær mín­ útur að sinna grunnþörfunum. Svo get ég verið að dunda og leika mér. Þetta er svona núvitundaræfing.“ En hvað finnst fjölskyldunni? „Henni finnst þetta bara fínt, skemmtilegt. En það fer stundum í taugarnar á konunni minni þegar við erum að fara eitthvað og hún bíður úti í bíl því að ég þarf aðeins að kíkja á þær!“ Skrautdúfubóndi í Bústaðahverfi Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, skrautdúfubóndi og framhaldsskólakennari með lítinn dúfnaunga. FréTTablaðið/SigTryggur Í kofanum eru um þrjátíu skrautdúfur. Horseman pústari, skemmtileg skrautdúfa sem þenur bringuna. Hrafnkell Tumi Kolbeins- son býr í Bústaðahverfi þar sem hann ræktar skrautdúfur af ástríðu. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson var viðmælandi í vefþáttaröðinni Venjulegt fólk sem sýndur er á www. frettabladid.is Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 1 9 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R26 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 1 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 7 K _ N Y .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D A -1 4 2 8 1 F D A -1 2 E C 1 F D A -1 1 B 0 1 F D A -1 0 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.