Fréttablaðið - 19.05.2018, Page 34
Ævintýralegur starfsvettvangur
Starfstengt ferðafræðinám
Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein
– eða ertu starfandi í ferðaþjónustu?
Ferðamálaskólinn býður upp á fjölbreytt og spennandi nám fyrir fólk á öllum aldri
sem er með brennandi áhuga á ferðamálum og Íslandi sem ferðamannalandi.
INNRITUN STENDUR YFIR TIL 11. JÚNÍ. Sjá mk.is
Ferðamálaskólinn í Kópavogi
Sími: 594 4020
Ævintýralegur starfsvettvangur
Starfstengt ferðafræðinám
Langar þig að starfa í ö t vaxandi atvinnugrein
– eða ertu starfandi í ferðaþjónustu?
Ferðamálaskólinn býður upp á fjölbreytt og spennandi nám fyrir fólk á öllum aldri
sem er með brennandi áhuga á ferðamálum og Íslandi sem ferðamannalandi.
INNRITUN STENDUR YFIR TIL 11. JÚNÍ. Sjá mk.is
Ferðamálaskólinn í Kópavogi
Sími: 594 4020
vintýralegur starfsve tvangur
Starfstengt ferðafræðinám
Langar þig að starfa í ört vaxandi atvi nugrein
– eða ertu starf ndi í ferð þjónustu?
Ferðamálaskólinn býður upp á fjölbreytt og spennandi nám fyrir fólk á öllum aldri
sem er með brennandi áhuga á ferðamálum og Íslandi sem ferðamann landi.
I NRITUN STENDUR YFIR TIL 11. JÚNÍ. Sjá mk.is
Ferðamálaskóli n í Kópavogi
Sími: 59 4020
Ævintý legur starfsvettvangur
Starfstengt ferðafræði ám
Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein
– eða ertu starfandi í ferðaþjónustu?
Ferðamálaskólinn býður upp á fjölbreytt og spennandi nám fyrir fólk á öllum aldri
sem er með brennandi áhuga á ferðamálum og Íslandi sem ferðamannalandi.
INNRITUN STENDUR YFIR TIL 11. JÚNÍ. Sjá mk.is
Ferðamálaskólinn í Kópavogi
Sími: 594 4020
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Guðlaug Ragnarsdóttir, fagstjóri matsveina og matartæknanámsins við Mennta
skólann í Kópavogi, segir að námið
sé vinsælt, stutt, hagnýtt og hentugt
fyrir einstaklinga sem hafa reynslu
af vinnu í veitingageiranum en vilja
bæta við sig menntun og verða
öruggari í starfi. Kennsla fer fram
á kvöldin fjóra daga vikunnar, frá
klukkan 17.00 til 21.30.
Skipulag námsins
„Það er gerð ákveðin krafa til
nemenda um að þeir hafi unnið
í viðurkenndu eldhúsi eða við
sambærileg störf áður en þeir hefja
námið,“ segir Guðlaug. „Gert er ráð
fyrir að einstaklingar séu að bæta
við þá kunnáttu sem þeir búa þegar
yfir og þeir sem eru orðnir 23 ára og
hafa þriggja ára starfsreynslu geta
sótt um að fara í raunfærnimat hjá
Iðunni fræðslusetri.
Matsveinanámið er tvær annir og
matartæknanámið er þrjár annir,“
segir Guðlaug. „Fyrstu tvær ann
irnar eru kenndar saman og þriðja
önnin er sérhæfing matartækna.
Báðar greinar gefa fagbréf.“
Fyrir hverja er námið?
„Námið býður upp á mikla mögu
leika í nútímasamfélagi. Það er fyrir
alla sem hafa eða vilja starfa við
matreiðslu og stjórnun í mötuneyt
um vinnustaða og skóla, í eldhúsum
heilbrigðisstofnana og á fiski og
flutningaskipum,“ segir Guðlaug.
„Með aukinni ferðaþjónustu hefur
einnig skapast fjölbreyttari starfs
vettvangur fyrir fólk með þessa
menntun.
Námið gerir fólki kleift á að
takast á við fjölbreytt verkefni á
vinnustað. Á báðum námsbrautum
er námið byggt upp af faggreinum
eins og matreiðslu, aðferðafræði,
matseðlagerð, hráefnisfræði, hrein
lætis og örverufræði og næringar
fræði, svo eitthvað sé nefnt, en þetta
er allt mjög hagnýtt,“ segir Guðlaug.
„Námið er mjög fjölbreytt og nem
endur læra að elda alls konar rétti
sem henta breiðum og fjölmenn
ingarlegum hópum. Þar erum við
að tala um holla rétti, fína veislu
rétti og rétti frá ólíkum menningar
heimum. Í matartæknanáminu
læra nemendur einnig að elda
fyrir einstaklinga með ofnæmi og
óþol og ýmiss konar sérfæði fyrir
sjúklinga.“
Mikil vinna en gefandi
Ernesta Cibulskiené er frá Litháen
og útskrifast sem matsveinn 24. maí
næstkomandi. Hún hefur starfað
sem matráður síðastliðin fimm ár í
mötuneyti Menntaskólans í Kópa
vogi. Ernesta hefur mikinn áhuga
á matseld og dreif sig í námið eftir
hvatningu frá félögum í skólanum.
„Ég sé ekki eftir því, vegna þess að
námið er skemmtilegt og allt sem
ég hef lært nýtist mér í starfi. Ég er
öruggari og skil allt miklu betur,“
segir Ernesta. „Allar námsgrein
arnar eru mikilvægar og við lærum
mörg gagnleg grundvallaratriði,
eins og aðferðafræði matreiðslu, að
matreiða frá grunni, hráefnisfræði
og að gefa réttar skammtastærðir.
Í næringarfræðinni lærum við líka
um næringargildi réttanna sem við
eldum, sem skiptir máli þegar við
setjum saman matseðil. Svo fannst
mér einstaklega skemmtilegt að
læra um matargerð frá mismunandi
menningarheimum og eftir að ég
lærði um íslenska matarhefð skil ég
hana betur.
Mér fannst áfanginn sem tengist
framreiðslu einstaklega nytsamur
og skemmtilegur, en þar lærum við
til dæmis að leggja á borð, brjóta
alls konar servíettubrot og að búa
til blómaskreytingar,“ segir Ernesta.
„Svo eru kennararnir líka skemmti
legir og alltaf til í að hjálpa okkur
nemendum, svo við lærum mikið á
stuttum tíma.
Námið fer alfarið fram á íslensku,
svo fyrsti mánuðurinn var erfiður
fyrir mig. En það var mikil sam
kennd í hópnum, allir voru til í að
hjálpa öllum og kennararnir voru
alltaf tilbúnir til að útskýra náms
efnið betur. Maður á ekki að vera
hræddur við að spyrja og ég lærði
mikið í íslensku samhliða náminu.
Þannig að þetta er mikil vinna, en
gefandi,“ sagði Ernesta, sem stefnir
á að fara næst í matartæknanám.
Úthugsaðri matseðlar og
meiri fagmennska
Einar Hreinn Ólafsson útskrifaðist
sem matartæknir í desember.
Hann hafði unnið sem matráður á
leikskóla í nokkur ár áður en hann
skellti sér í námið og hefur óbilandi
áhuga á matreiðslu.
„Ég hef lagt mikinn metnað í
hollan og góðan mat fyrir leikskóla
börn sem er unninn frá grunni og
ég tel næringu barna sérlega mikil
væga,“ segir Einar. „Námið var frá
bær viðbót og hefur nýst mér mjög
vel í starfi. Mér fannst sérstaklega
gagnlegt að læra um matseðlafræði,
vinnuskipulag, næringarfræði og
sérfæði.
Matseðlagerð er heildarskipu
lag næringar og það þarf að vera
úthugsað, svo orku og næringar
þörf sé sinnt fyllilega. Ég nýti mér
næringarútreikning sem ég lærði
í næringarfræðinni til að fullvissa
mig um að matseðillinn uppfylli
þörf barnanna til að vaxa og dafna,“
segir Einar. „Það kom dálítið á óvart
hversu orkuskertar sumar máltíðir
eru og ég þarf stundum að bæta
við auka meðlæti til að orkuþörf
barnanna sé uppfyllt. Til dæmis
fann ég út að það var ekki nóg að
gefa börnunum eingöngu kjötsúpu
í hádegismat, heldur var full þörf á
að bæta grófu brauði við.
Matreiðsla sérfæðis er líka
mjög gagnleg í mínu starfi, því
fæðuóþol og ofnæmi er nokkuð
algengt. Starfsnám tengt því var
mjög fróðlegt og sá hluti námsins
hefur algjörlega breytt aðferðum og
þekkingu minni á matreiðslu fyrir
fólk með mismunandi fæðuþörf,“
segir Einar. „Það er ómetanlegt að
geta eldað bæði bragðgott og hollt
maukfæði fyrir þá sem þurfa það
og að þekkja til hráefna sem geta
komið í stað annarra þegar það
þarf að sleppa einhverju vegna
óþols eða ofnæmis. Ég lærði líka
um muninn á óþoli og ofnæmi
og hversu mikilvægt er að sinna
þessum þörfum vel.
Mér fannst matreiðsluaðferðir og
vinnuskipulag líka afskaplega hag
nýtir hlutar af náminu,“ segir Einar.
„Á annasömum degi geta einfaldar
aðferðir við skipulag auðveldað
daginn til muna og haft úrslitaáhrif
á hversu vandaður maturinn er.
Gott skipulag gefur aukinn tíma til
hráefnisvinnslu, sem sparar mikið
til lengri tíma litið og auðveldar
manni vinnuna alla daga.
Matartækninámið gerði mig
að betri fagmanni,“ segir Einar.
„Ég lærði faglegri vinnubrögð,
fékk aukinn áhuga á fjölbreyttri
matreiðslu og það auðveldaði mér
starfið almennt.“
Guðlaug Ragnarsdóttir, fagstjóri mat-
sveina- og matartæknanámsins við
Menntaskólann í Kópavogi.
Ernesta Cibulskiené segir að námið sé skemmtilegt, nýtist vel og hafi gert hana öruggari með sig. MYND/ANTON BRINK
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . M A Í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
A
-2
2
F
8
1
F
D
A
-2
1
B
C
1
F
D
A
-2
0
8
0
1
F
D
A
-1
F
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K