Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  253. tölublað  105. árgangur  OFBELDI, ÞÖGGUN OG KÆRLEIKUR MUNA ÖLL EFTIR RAUÐA KJÓLNUM SÍLD ÚR TEXTÍL, TRÉ, SILFRI OG SILKI TÍSKA 24 SÍÐUR SÍLDARÆVINTÝRI 12BÓKMENNTIR 38-39 Reykjavíkurborg áformar að lækka álagningarprósentu fast- eignaskatta af íbúðarhúsnæði á næsta ári. Skatturinn hefur hækkað mikið á síðustu árum vegna hækkunar á fasteignamati húsa. Aðgerð borgarinnar er til að milda þær hækkanir en svar- ar aðeins til lítils hluta tekjuauk- ans. Vegna hækkunar Þjóðskrár á fasteignamati íbúðarhúsnæðis á næsta ári fær borgin 656 millj- ónir kr. í aukatekjur, að óbreytt- um álagningarreglum. Nái til- laga borgarstjóra um lækkun álagningarprósentu fram að ganga minnkar þessi hækkun um rúmar 300 milljónir kr. Er þá óbætt um 377 milljóna króna hækkun sem kom til fram- kvæmda um síðustu áramót og samtals liðlega tveggja milljarða króna aukatekjur borgarinnar vegna hækkunar fasteignaskatts af atvinnuhúsnæði í tvö ár sem öll kemur til framkvæmda. » 4 Borgin hagnast um milljarða  Stórauknar tekjur af fasteignagjöldum  Ferðaþjónustufólk á Íslandi segir gengissveiflur og óvissu um gjald- tökur gera ferðaiðnaðinum erfitt fyrir. Jón Heiðar Þorsteinsson hjá Iceland Travel segist þó finna heil- mikinn áhuga ferðamanna á Íslandi. Sindri Ragnarsson hjá Glacier Trips telur enga lægð fram undan í aðsókn til landsins. Sævar Skaptason hjá Hey Iceland segir að árið í heild sé viðunandi hjá fyrirtækinu og Rann- veig Snorradóttir hjá Obeo Travel segir norðurljósin heilla. »4 Segja bókanastöð- una í góðu horfi ið 3.900 kjósendur. Samkvæmt henni mælist VG með 20,2% og 14 þingmenn en í könnun stofnunar- innar í síðustu viku mældist flokk- urinn með 23,2% og 16 menn inni. Gangi könnunin eftir er ekki mögulegt að mynda tveggja flokka ríkisstjórn. Þriggja flokka stjórn er ekki hægt að mynda án Sjálfstæð- isflokksins. Nokkrir möguleikar eru á fjögurra flokka stjórn. Líkur á vinstristjórn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir könn- unina undirstrika að líkur séu á því að vinstristjórn verði mynduð að Guðmundur Magnússon Magnús Heimir Jónasson „Verði niðurstaða kosninganna þessi er það ákall um að stjórn- arandstaðan myndi ríkisstjórn. Það eru í raun og veru mestu tíðindin að ríkisstjórnin er fallin og stjórnar- andstaðan er komin með meiri- hluta,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, um niðurstöður nýrrar og umfangsmikillar könnun- ar sem Félagsvísindastofnun Há- skóla Íslands hefur unnið fyrir Morgunblaðið. Var hún gerð dag- ana 22. til 25. október og var úrtak- flokkurinn samkvæmt könnuninni og fengi 10 þingmenn. Það yrðu mikil umskipti frá kosningunum í fyrra þegar flokkurinn fékk þrjá þingmenn. Miðflokkurinn nýtur fylgis 9,8% kjósenda og fengi sex þingmenn. Píratar fengju sex þingmenn, tapa fjórum. Framsóknarflokkurinn fengi fimm þingmenn, tapar þrem- ur. Viðreisn fengi einnig fimm þing- menn, tapar tveimur. Björt framtíð fengi engan þingmann kjörinn og ekki heldur Flokkur fólksins, Al- þýðufylkingin og Dögun. kosningum loknum. „Þessar tölur horfa þannig við mér að við þurfum að bæta okkur enn frekar. Við erum tryggingin gegn vinstristjórn eins og mætti orða það. Það er enn raunveruleg hætta á því að hér myndist vinstristjórn ef við náum ekki að bæta við okkur á enda- sprettinum.“ Samkvæmt könnuninni er Sjálf- stæðisflokkurinn með 24,5% fylgi á landsvísu, sem tryggir honum 17 þingmenn. Gangi könnunin eftir tapar flokkurinn fjórum þingmönn- um frá síðustu kosningum þegar hann hlaut 29% atkvæða. Samfylkingin er þriðji stærsti Stefnir í viðræður til vinstri  VG með 14 þingmenn inni samkvæmt nýrri könnun  Sjálfstæðisflokkurinn 17  Formaður Vinstri-grænna telur rétt að hefja viðræður milli flokkanna til vinstri MStjórnarmyndun … »6 og 14 A 1,3% B 7,9% C 8,3% D 24,5% F 4,2% M 9,3% P 8,8% S 15,3% V 20,2% Fylgi flokkanna 0 5 5 17 06 6 10 14 Fjöldi þingmanna samkvæmt könnun Aðrir flokkar eða framboð 0,2%  Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við Morgunblaðið að lækkun tekjuskatts gæti orðið að mikilvægu innleggi í þá kjaralotu sem standi yfir og sé fram undan, þar sem lægri skattar gætu aukið kaupmátt ef rétt er haldið á spilunum. Bjarni nefnir þetta sem dæmi um þann skýra áherslu- mun sem sé á milli Sjálfstæðisflokksins og annarra flokka. „Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir það að umhverfið verði áfram hvetjandi og því finnst mér skipta svo miklu máli að við íþyngjum hvorki fólki né fyrirtækjum með sköttum og gjöldum um of,“ segir Bjarni, sem segir flokk sinn vilja lækka bæði tryggingagjald á fyrirtæki og tekjuskatt einstaklinga á næsta kjörtímabili. »16 Segir skattalækkanir geta aukið kaupmátt og liðkað til í komandi kjaraviðræðum Bjarni Benediktsson Það mátti vart á milli sjá hvort hvutti eða drengur undi sér betur í fallegum ljósaskiptunum þar sem þeir brugðu á leik í fólkvanginum í Einkunnum. Það er skógræktarsvæði Borgarbyggðar og er skemmtilegt útivistarsvæði sem Borgfirðingar og gestir þeirra geta notið árið um kring. Morgunblaðið/Eggert Brugðið á leik í ljósaskiptum og fögru vetrarveðri  Á fyrstu níu mánuðum ársins var tekið við fleiri ökutækjum til förg- unar en allt árið í fyrra. Nærri sjö þúsund bílum var fargað frá ára- mótum til loka septembermánaðar, samkvæmt tölum sem Morgun- blaðið fékk hjá úrvinnslusjóði. Sum- ir bílanna voru í það góðu ásig- komulagi að þeim var ekið á förgunarstað. Mikið dró úr förgun bíla fyrst eftir hrunið 2008 en öku- tækjum sem er fargað hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2014. »10 Fleiri ökutækjum fargað á fyrstu níu mánuðum ársins en allt síðasta ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Förgun Stöðugt fleiri bílum er fargað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.