Morgunblaðið - 27.10.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Þ
ótt Kristína R. Berman
listhönnuður sé önnum
kafin í síldarvinnslunni í
Íshúsi Hafnarfjarðar
þessa dagana gaf hún
sér tíma til að líta upp og spjalla
stundarkorn um nýjasta viðfangs-
efnið. „Síldarævintýrið hófst á Siglu-
firði fyrir tæpum tveimur árum og
hefur síðan vaxið umtalsvert fiskur
um hrygg,“ segir hún sposk á svip.
Og á við sitt eigið síldarævintýri vel
að merkja.
Kristína hefur samt aldrei á æv-
inni saltað síld í tunnu. Hún útskrif-
aðist sem textílhönnuður frá
Listaháskóla Íslands árið 2001 og
hafði þá verið í árs starfsnámi hjá
tískudrottningunni Vivienne
Westwood í London. Síðan hefur hún
fengist við eitt og annað, mest leik-
mynda- og búningahönnun fyrir leik-
hús og kvikmyndir, hönnun og
vöruþróun í nafni KRBerman, maga-
danskennslu og námskeiðahald. Og
fleira.
„Ég finn mér alltaf eitthvað
skemmtilegt að gera, læt hlutina svo-
lítið ráðast og hoppa oft á milli verk-
efna. Síldin hefur þó haldið mér við
efnið undanfarið, enda er ég mjög
áhugasöm um framtíð
hennar og sleppi ekki af
henni hendinni í bráð,“
segir Kristína brosandi.
Síld úr textíl, tré,
silfri og silki
Hún hefur ýmislegt á prjón-
unum varðandi síldina og jafnvel
aðrar fisktegundir. Síldirnar
hennar, sem eru úr textíl, tré, silfri
og silki, hannar hún og framleiðir í
vinnustofu sinni í fyrrnefndu húsi í
Hafnarfirði þar sem áður var starf-
rækt hraðfrystihús og fiskverkun en
hýsir nú hönnuði og listamenn.
Síldaráhugi Kristínu vaknaði á
Siglufirði, síldarhöfuðstað heimsins
eins og bærinn var stundum kallaður
á fjórða og fimmta áratug liðinnar
aldar. Þar hefur hún verið með ann-
an fótinn um alllangt skeið ásamt
manni sínum, Má Örlygssyni forrit-
ara, og þremur börnum.
„Við búum í Reykjavík, en eig-
um hús á Siglufirði, flökkum á milli
og dveljum yfirleitt um það bil þriðj-
ung ársins fyrir norðan,“ segir
Kristína, sem auk þess að búa til
síld í mörgum myndum, hefur í tæpt
ár starfað við ljósmyndavörslu á
Síldarminjasafninu á Siglufirði.
Hugmyndinni að hönnunar-
vörum með síldarþema skaut hins
vegar áður upp kollinum eða þegar
hún vann í upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn þar nyrðra.
Hvers á síldin að gjalda?
„Túristar voru stöðugt að
spyrja hvar þeir gætu séð lunda. Ég
benti þeim á staði sem ég vissi um,
en velti um leið fyrir mér markaðs-
setningunni. Af hverju lundinn
hefði verið gerður svona tákn-
rænn fyrir Ís-
land í
augum túr-
ista? Hvers
vegna ekki síldin?
Ég sá fyrir mér að vel
mætti bjóða upp á síld í alls
konar útfærslum rétt eins og lund-
ann í túristabúðunum. Síðan grín-
aðist ég eitthvað með að hanna
kannski sjálf og handsauma mjúkan
og glamúrlegan „síldarbangsa“ eins
og ég kalla puntpúða með pallíett-
um, sem ég á endanum lét verða af
að gera.“
Fyndið fyrirbæri
Þess má geta að „síldarbangs-
inn“ eða mjúksíldin, sem kannski er
réttari nafngift, er 45 cm á lengd og
að sögn Kristínu jafn bústin og vel-
sældarleg og hún var á síldarárunum
á Siglufirði í gamla daga. „Ein hug-
mynd leiddi af annarri. Ég fór að
hugsa um að vel mætti búa til marg-
ar, smærri síldir, raða þeim í síldar-
tunnur og selja sem minjagripi. Þótt
fólki þætti mjúksíldin fyndið fyrir-
bæri, áttaði ég mig á að hún yrði ekki
mikil söluvara – fólk er ekkert endi-
lega að kaupa sér mjúka síld. Hins
vegar gæti hún vakið athygli og virk-
að sem aðdráttarafl fyrir síld í öðrum
útgáfum.“
Næstu síldarafurðir Kristínar
voru því í allt öðrum stíl, úr öðruvísi efnum og mun smágerðari og nota-
drýgri en mjúksíldin. Alvöru list- og
söluvarningur; trésíld, silfursíld-
arhálsmen, og síldarsilkislæða.
„Trésíldin er 12 cm á lengd, úr
léttum balsa og máluð silfurgrá. Hún
er bæði ætluð sem hálsskraut og
híbýlaprýði, og hægt er að nota
eina síld eða fleiri saman í
kippu. Trésíldin, eða
jólasíldin, eins og ég
segi stundum, sló í
gegn á jólamark-
aði Íshússins í
fyrra. Fólk
keypti heilu torf-
urnar til að hengja á
jólapakka, jólaatré eða út í
glugga heima hjá sér,“ segir Krist-
ína, sem því næst hannaði síldarsilf-
urhálsmen eða silfur hafsins eins og
hún kallar þau líka.
Menið er eins og síld í sneiðum
með lituðum tréperlum á milli. Það
síðasta sem kom fram á sjónarsviðið í
síldarþemanu voru síldarsilkislæður
í litum síldarinnar. Handlitaðar eftir
kúnstarinnar reglum, silfurgráar
með tónum yfir í svart.
Draumur sem dó
Allar síldarafurðirnar fást í
Hjarta bæjarins, minjagripaverslun
á Siglufirði, og í Síldarminjasafninu
og hafa þær að sögn Kristínu fallið
vel í kramið hjá erlendum ferða-
mönnum sem og landanum. Dagana
23.-27. nóvember verða þær einnig til
sýnis og sölu á sýningunni Handverk
og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Frá Vivienne West-
wood í síldina á Sigló
Hafa lesendur heyrt talað um síldarbangsa? Kristína R. Berman listhönnuður
hefur hannað nokkra slíka, sem í rauninni eru puntpúðar með pallíettum í líki
bústinna og mjúkra sílda. Einnig trésíldir fyrir jafnt háls sem híbýli, silfursíldar-
hálsmen og síldarsilkislæður.
Silfur hafsins Hálsfesti úr silfri með mislitum tréperlum.
Heima Fjölskyldan leggur stundum lið við síldarvinnsluna á Siglufirði.
Listhönnuðurinn
Kristína á vinnu-
stofu sinni í Íshúsi
Hafnarfjarðar.
Upphafssíldin Glam-
úrlegur síldarpúði (síldar-
bangsi)með pallíettum.
Þær vinkonur Skoppa og Skrítla
bjóða börnum í danspartý í Dans &
jóga hjartastöðinni kl. 12.30 á
morgun, laugardaginn 28. október,
og á sama tíma næstu þrjá laug-
ardaga. Á námskeiðinu gefst börn-
unum tækifæri til að læra söngv-
ana og dansana sem Skoppa og
Skrítla hafa skreytt sig með síð-
astliðin ár.
Trúlega þekkja mörg börn bæði
lögin og dansana en á námskeiðinu
leggja þær stöllur sérstaka áherslu
á að þau æfi sig og læri að efla
hugrekkið, einbeitinguna, fé-
lagsfærninga og ekki síst kærleik-
ann.
Yngstu börnin, 9 mán til 2 ára
taka virkan þátt með foreldrum
sínum á meðan 3 og 4 ára halda
sjálfstæð á vit ævintýranna og for-
eldrarnir bíða frammi. Hvert nám-
skeið er 4 tímar. Nánari upplýs-
ingar á vefsíðu Dans & jóga
hjartastöðvarinnar.
Vefsíðan www.dansogjoga.is
Danspartý með Skoppu og Skrítlu
Morgunblaðið/Eggert
Gleðigjafar Skoppa og Skrítla hafa
víða farið þau fjórtán ár sem þær hafa
skemmt börnunum.
Á Ísafirði þar
sem lognið á lög-
heimili, eins og
þeir segja margir
fyrir vestan,
verður vetri fagn-
að með stæl í
Edinborg, menn-
ingarmiðstöðinni,
um helgina. Blús-
hljómsveitin Akur spilar í Edinborg-
arsal í kvöld, föstudag 27. október,
og hefjast tónleikarnir kl. 22.
Kl. 16-16.30 á morgun, laugardag
28. október, bjóða dansnemendur
Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar
upp á danssýninguna Dansað í
rigningunni og á miðnætti um
kvöldið hefst hið árlega Halloween,
eða hrekkjavökuball. DJ Pixxa spil-
ar. Veitt verða verðlaun fyrir þrjá
bestu búningana. 18 ára aldurs-
takmark.
Blús, dans og
hrekkjaball
Tilbúinn á ballið.
Veturnætur í Edinborg
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.