Morgunblaðið - 27.10.2017, Side 13
„Ég hef einu sinni sýnt þar áður,
barnasmekki árið 2011. Núorðið
framleiði ég þá bara eftir pöntun.
Einnig dömuullarkápur og ull-
arskikkjur og kórónur á börn og ann-
að sem ég sýni á heimasíðunni minni,
krberman.is. Síldin hefur tekið yfir,“
segir Kristína, sem ung átti sér
draum um að verða fatahönnuður.
„Starfsnámið hjá Vivienne
Westwood tók alveg ljómann af þeim
draumórum. Mér fannst markaðs-
setningin og fjöldaframleiðslan, sem
svona stórir hönnuðir eins og hún
þéna mest á, afar óspennandi. Ég
komst síðar að því að mér hentaði
betur að vinna fyrir leikhús og gera
bara eitt eintak af hverjum búningi.“
Lotta og ljósmyndavarslan
Kristína hefur mörg undanfarin
ár verið nánast fastráðin sem bún-
ingahönnuður hjá Leikfélaginu
Lottu, sem á hverju vori setur upp
vinsæl barnaleikrit, mikil bún-
ingadrömu með mörgum leikurum.
Starf hennar hluta úr ári hjá
Síldarminjasafninu felst í að flokka
ógrynni gamalla ljósmynda, líklega
meira en eitt hundrað þúsund, sem
safninu hafa borist að gjöf, bera
kennsl á fólkið á myndunum og koma
þeim í aðgengilegar form fyrir safn-
gesti. Til að læra til verka fór Krist-
ína á námskeið hjá Þjóðminjasafni
Íslands. Spurð hvort listamannseðlið
fái þrifist í starfi sem snýst um
vörslu gamalla gripa svarar hún ját-
andi, enda sé mikilvægt að tengja
ólíkar greinar, slíkt dýpki skilning
manns á umhverfinu og sögunni,
ekki síst síldarsögunni hvað hana
áhrærir.
„Starfið hefur undið upp á sig
því undanfarið hef ég einnig verið
leiðsögumaður gesta um safnið og
komið að daglegum rekstri. Ég er
óðum að verða síldarkona,“ segir
Kristína, sem með tíð og tíma ætlar
að finna eigin síldum stað í fleiri
söfnum og minjagripaverslunum. Trésíldir Trésíldirnar er bæði hægt að nota sem skrautmun og skartgrip.
Síldarsilkislæða Kristína með
silkislæðu sem hún handlitar í
silfurgráum tónum og yfir í svart.
„Hvers vegna ekki síld-
in? Ég sá fyrir mér að
vel mætti bjóða upp á
síld í alls konar út-
færslum rétt eins og
lundann í túristabúð-
unum.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Á fjórhjóladrifnum KODIAQ
með val um sjö sæti og glerþak, getur þú sameinað þetta tvennt og notið þess að ferðast með ánægju.
Endurnýjaðu tengslin við það mikilvægasta í lífinu á nýjum ŠKODA KODIAQ.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
VIÐ ÞAÐ MIKILVÆGA Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KODIAQ MEÐ MÖGULEIKA Á 7 SÆTUM.
ŠKODA KODIAQ frá:
5.590.000 kr.
Ég hef dáðst að hugrekki kyn-
systra minna síðustu daga og vikur
sem hafa stigið fram og tjáð sig um
reynslu sína af kynferðislegri
áreitni og/eða kynferðisofbeldi.
Hvort sem það er undir merkjum
#konurtala, #metoo, #höfumhátt
eða af sjálfsdáðum, þá þarf kjark
og þor til að stíga fram og segja
sína sögu.
Það er einmitt það sem þarf til
að breyta kerfinu og viðhorfum
samfélagsins til kynferðisofbeldis.
Það hefur verið magnað að fylgjast
með hverri samfélagsmiðlabylting-
unni á fætur annarri, fyrst hér á
landi og svo úti í heimi, og nú má
greina þess merki að málefnið sé
verulega að ná athygli. Það sést
ekki síst á því að á morgun göngum
við til kosninga.
Undir merkjum nýjasta myllu-
merkisins, #metoo, má greina þá
umræðu að það teljist frekar
merkilegra ef kona stígi fram og
greini frá því að hún hafi ekki
orðið fyrir kynferðislegri
áreitni. Og því miður er
það þannig.
En hvað telst til
kynferðislegrar
áreitni? Þegar ég sá
samfélagsmiðalana
fyllast af stöðuupp-
færslum þar sem
konur staðfestu að
þær hefðu orðið
fyrir kynferð-
islegri áreitni voru
mín fyrstu við-
brögð að hugsa að
ég gæti nú eig-
inlega ekki tekið
þátt þar sem ég
hef aldrei „lent í
neinu“.
Ég þurfti hins vegar
ekki að hugsa mig lengi um
áður en það rifjuðust upp fyrir mér
ótal dæmi, sem tengdust flest starfi
mínu sem barþjónn um árið. Þar
var ég oftar en ekki krafin um að
brosa og vera hress (sem er ekki
gefið þegar verið er að dæla bjór
ofan í djammþyrsta einstaklinga
klukkan 4 um nótt) og nokkrum
sinnum var vaðið yfir barborðið og
gripið í mig. Að ógleymdu atviki
þar sem karlmaður kramdi plast-
glas í andlitinu á mér og tróð því að
því loknu á milli brjóstanna á mér
og lét afar óviðeigandi skilaboð
fylgja með.
Það er auðvitað fáránlegt að ég
hafi í fyrstu hugsað að
þetta væri ekki nægjanleg
áreitni til að flokkast
sem kynferðisleg
áreitni. En hún var
það. Öll kynferðisleg
áreitni er nógu alvar-
leg til þess að segja
frá henni, kjósi þol-
andinn að gera það.
Og það er aldrei of
seint.
Með því að segja frá
reynslu okkar og standa
saman munum við ná ár-
angri í baráttunni gegn
kynferðisofbeldi. Ég get
því með stolti sagt #ég-
líka og ég ætla svo sann-
arlega að hafa hátt.
»Öll kynferðisleg áreitnier nógu alvarleg til
þess að segja frá henni,
kjósi þolandinn að
gera það.
Heimur Erlu Maríu
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is