Morgunblaðið - 27.10.2017, Page 14
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formanns-
ígildi Pírata, vonast til að Píratar komist
upp í kjörfylgi sitt að nýju. „Þetta er í ætt
við hvernig þetta hefur verið og við von-
umst náttúrlega til þess að komast upp í að
minnsta kosti kjörfylgið okkar og stefnum
á það. Við leggjum sérstaka áherslu á að ná
til ungs fólks þessa lokametra og minnum á
átök eins og Vökuna og mikilvægi þess. Ég
held að það eigi ekki að vanmeta unga kjós-
endur í þetta skiptið.“
Vonast til að ná upp í kjörfylgið
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að ef
niðurstaða kosninganna verður í samræmi
við könnun félagsvísindastofnunnar séu það
mikil tíðindi.
„Þetta er mjög á svipuðum slóðum og við
höfum verið að mælast að undanförnu. Ef
þetta verður niðurstaðan eru það auðvitað
mikil tíðindi í sjálfu sér, en við vonum auðvit-
að að þetta verði ennþá hærra og veiti okkur
þann stuðning sem nægir til að hafa áhrif
eftir kosningar,“ segir Sigmundur Davíð.
Mikil tíðindi yrði þetta niðurstaðan
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Samfylkingin, Vinstri-græn og Mið-
flokkurinn bæta mestu við sig í al-
þingiskosningunum á morgun sam-
kvæmt lokakönnun Félagsvísinda-
stofnunar á fylgi flokkanna.
Könnunin fór fram dagana 22. til 25.
október og var úrtakið 3.900 kjósend-
ur en þátttökuhlutfall 59%.
Könnunin sýnir að Samfylkingin
bætir við sig sjö þingmönnum frá
kosningunum í fyrra, Miðflokkurinn
fær sex þingmenn og VG fjóra nýja
þingmenn. VG hefur þó lækkað flugið
frá síðustu könnun og bætir við sig
4,3% frá síðustu kosningum. Viðreisn
hefur fengið aukinn byr í seglin milli
kannana. Stjórnarmyndun kann að
verða erfið gangi könnunin eftir því
enginn möguleiki verður á tveggja
flokka stjórn og ekki verður hægt að
mynda þriggja flokka stjórn án þátt-
töku Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn er áfram
stærsti flokkurinn með 24,5% fylgi og
fengi 17 þingmenn. Hann lækkar að-
eins frá síðustu könnun, en miðað við
þingkosningarnar í fyrra er tapið um-
talsvert. Þá var fylgi flokksins 29% og
þingmennirnir 21.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
er næststærsti flokkurinn. Þótt fylgið
minnki frá síðustu könnun úr 23,2% í
20,2% bætir flokkurinn verulega við
sig frá kosningunum 2016 þegar hann
fékk 15,9% fylgi og 10 þingmenn. Nú
fengi hann 14.
Samfylkingin mælist þriðji stærsti
flokkurinn og er með nánast sama
fylgi og fyrir viku. Flokkurinn fengi
nú 15,3% atkvæða og 10 þingmenn.
Það er stórsigur frá síðustu þingkosn-
ingum þegar flokkurinn var aðeins
með 5,7% fylgi og þrjá þingmenn.
Miðflokkurinn nýi er fjórði stærsti
flokkurinn samkvæmt könnuninni.
Hann er með svipað fylgi og í síðustu
könnun, 9,3%, og fengi sex þingmenn.
Píratar mælast með 8,8% fylgi, sem
er talsvert tap frá kosningunum 2016
þegar þeir fengu 14,5% atkvæða og 10
þingmenn. Nú fengju þeir sex, tapa
fjórum. Framsóknarflokkurinn nýtur
fylgis 7,9% kjósenda og fengi fimm
þingmenn. Gangi það eftir tapar hann
þremur þingmönnum. Samanlagt
fylgi Miðflokksins og Framsóknar
yrði hins vegar mun meira en Fram-
sóknarflokksins eins og í fyrra. Við-
reisn mælist með 8,3% fylgi og fengi
fimm þingmenn, tveimur færra en í
fyrra. Björt framtíð hverfur af þingi,
mælist ekki með nema 1,3% fylgi. Í
þingkosningunum 2016 fékk flokkur-
inn 7,2% atkvæða og fjóra þingmenn.
Aðrir flokkar í framboði fá ekki
kjörna þingmenn. Flokkur fólksins
mælist með 4,2% fylgi og Dögun og
Alþýðufylkingin með 0,0% og 0,1%.
0,1% þeirra sem afstöðu tóku sagðist
vilja kjósa „annan flokk eða framboð“.
Framsókn í lykilhlutverki?
Verði úrslit kosninga í samræmi við
könnunina má búast við flókinni
stjórnarmyndun. Ekki er hægt að
mynda tveggja flokka stjórn og enga
þriggja flokka án aðkomu Sjálf-
stæðisflokksins. Möguleikar eru á
fjögurra flokka stjórnum þar sem
Framsóknarflokkurinn gæti gegnt
lykilhlutverki. Hægt væri til dæmis
að mynda stjórn Sjálfstæðisflokksins,
Miðflokksins, Framsóknarflokksins
og Viðreisnar og hefði hún 33 þing-
menn. Stjórn VG, Samfylkingar, Pír-
ata og Framsóknarflokks væri sterk-
ari, hefði 35 þingmenn. Þar gætu
Viðreisn eða Miðflokkurinn reyndar
komið í stað Framsóknar, en það er
ólíklegra.
Bakgrunnsgreining á svörum þátt-
takenda í könnuninni sýnir svipað
mynstur og í fyrri könnunun Félags-
vísindastofnunar fyrir Morgunblaðið.
Mikill munur er á kjósendum VG eftir
kynjum; 27% kvenna styðja flokkinn
en 14% karla. Karlar eru aftur á móti
mun fjölmennari í kjósendahópi Mið-
flokksins og Pírata.
Sem fyrr er stuðningur við Fram-
sóknarflokkinn mun meiri úti á landi
en á höfuðborgarsvæðinu. Fylgi
flokksins er 15% á landbyggðinni en
aðeins 4% í Reykjavík og nágrenni.
Sama er að segja um Miðflokkinn,
sem sækir mest fylgi á landsbyggð-
ina. Fylgi Pírata og Viðreisnar er aft-
ur á móti mun meira á höfuðborgar-
svæðinu en úti á landi. Fylgi flokk-
anna eftir aldurshópum er nokkuð
jafnt, en þó eru t.d. Píratar með áber-
andi meiri stuðning yngri kjósenda en
eldri. Þá er aldurshópurinn 60 ára og
eldri stærsti einstaki kjósendahópur
Samfylkingarinnar.
Þegar skoðað er hvað þátttakendur
kusu í fyrra kemur í ljós að 40% af
kjósendum Framsóknarflokksins
styðja nú Miðflokkinn. 24% þeirra
sem kusu Bjarta framtíð ætla nú að
kjósa VG. Þeir sem kusu Viðreisn síð-
ast dreifast nú helst á Sjálfstæðis-
flokkinn og Samfylkinguna. Mið-
flokkurinn nýtur stuðnings 8% þeirra
sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast.
6% af fylgi Sjálfstæðisflokksins fara
síðan til Framsóknar. Flestir sem
kusu Pírata síðast og ætla ekki að
kjósa flokkinn núna segjast ætla að
kjósa VG. Þá ætla 13% þeirra sem
kusu VG síðast að kjósa Samfylk-
inguna í kosningunum á morgun.
Fjöldi þeirra sem afstöðu tóku í
könnuninni var 1.956, en 73 sögðust
ætla að skila auðu, 25 ætluðu ekki að
kjósa, 182 svöruðu „veit ekki“ og 48
vildu ekki svara.
Stjórnarmyndun verður snúin
Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna
Könnunin var gerð dagana 22. til 25. október 2017.
Eftirfarandi flokkar eða listar voru að auki nefndir á nafn í svörum
þátttakenda: Alþýðufylkingin, Dögun, og „annar flokkur eða listi“,
en allir með hverfandi fylgi.
Úrtakið var 3.900 manns. Um var að ræða bæði síma- og
netkönnun. Fjöldi svarenda var 2.283, sem er 59% þátttökuhlutfall.
30%
25%
20%
15%
10%
6
9,8%
6
9,3%
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
0
3,5%
0
3,3%
0
4,2%
8
11,5%
5
7,1%
5
7,9% 7
10,5%
3
5,7% 5
8,3%
Úrslit kosninga 29. október 2016
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
Fylgi í könnun frá 21. október 2017
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
Samkvæmt nýjustu könnun 27. október 2017
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
10
14,5%
5
8,2%
6
8,8%
3
5,7%
11
15,6%
10
15,3%
10
15,9%
16
23,2%
14
20,2%
21
29%
17
25,1%
17
24,5%
4
7,2%
1,5% 1,3%
A Björtframtíð B Framsóknar-flokkur C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkurfólksins P Píratar M Miðflokkurinn S Samfylkingin V Vinstri græn
KOSNINGAR 2017
Ný könnun bendir til að Samfylking, VG og Miðflokkur bæti mestu við sig í þingkosningunum á morgun
Engin tveggja flokka stjórn möguleg Þriggja flokka stjórn verði ekki mynduð án Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir flokkinn kjölfestuna gegn
vinstriöflunum í landinu. „Við höfum með-
byr núna á lokasprettinum og við vonumst
til þess að hann fleyti okkur lengra og það
má sjá af þessum tölum að það getur verið
mjög snúið spil að raða saman ríkisstjórn
eftir kosningar. Til að Sjálfstæðisflokkurinn
verði sterka kjölfestan og mótfestan við
vinstriöflin í landinu þurfum við að skila
meiri stuðningi á síðustu dögunum.“
Finnur meðbyr á lokasprettinum
Bjarni
Benediktsson
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, segir
að það teljist mjög góður árangur ef nið-
urstaðan á kjördag verður í samræmi við
könnunina.
„20,2% er bara mjög góður árangur ef
það er það sem kemur upp úr kössunum á
kjördag. Við teljum að þetta sé ákall um
breytingar, stefnubreytingu, breytta for-
ystu og breytt stjórnmál. Svo verðum við
bara að sjá hvað gerist á laugardaginn.“
Telur fylgið ákall um stefnubreytingu
Katrín
Jakobsdóttir
„Við höfum auðvitað fundið fyrir ágætum
stuðningi. En við áttum okkur hins vegar á
því að þetta er einungis skoðanakönnun.
Það er mikilvægt að kjósendur velji Sam-
fylkinguna og tryggi það að hér verði
mynduð stjórn um lífskjör almennings í
landinu,“ segir Logi Már Einarsson, for-
maður Samfylkingarinnar.
„Við erum áfram með uppbrettar ermar
og munum berjast fram á síðustu stundu,“
segir hann ennfremur.
Ríkisstjórn um lífskjör almennings
Logi Már
Einarsson
„Það að við séum að rísa kemur ekki á
óvart miðað við þá tilfinningu sem við höf-
um,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, um stöðu
flokksins.
„Við höfum verið að tala við kjósendur
um allt land og mér finnst margir horfa til
okkar. Þeir gera sér það ljóst að hér þarf
að mynda starfhæfa ríkisstjórn og vilja
gjarnan að Framsóknarflokkurinn sé í
henni.“
Fólk vill Framsókn í starfhæfa stjórn
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Við-
reisnar, segir tölurnar ánægjulegar.
„Mjög ánægjulegt að sjá þetta og stað-
festir um leið það sem við höfum verið að
finna í kosningabaráttunni þessa vikuna.
Stuðningur við okkur hefur aukist mjög og
við höfum fundið mjög sterkt fyrir því.
Þetta er í samræmi við niðurstöðu Frétta-
blaðsins og virðist vera áfram stígandi í töl-
unum, sem er jákvætt að sjá. Eykur þrótt í
baráttunni inn á kjördag.“
Ánægjulegar tölur fyrir Viðreisn
Þorsteinn
Víglundsson
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins,
segist ánægð með að fylgi flokksins skuli
fara hækkandi og hlakkar til að telja upp
úr kjörkössunum á laugardaginn. Kjós-
endur ráði núna ferðinni.
„Ég er bara ofsalega glöð yfir því að við
séum aftur að hækka. Við bara stígum upp
og hlökkum til að telja upp úr kjörköss-
unum. Við erum einfaldlega í fanginu á
kjósendum núna og þeir ráða bara alveg
hvað verður.“
„Erum bara í fanginu á kjósendum“
Inga
Sæland
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar fram-
tíðar, segir leiðinlegt að sjá þessar tölur en
hefur trú á að niðurstaðan á laugardaginn
verði betri.
„Það er svipuð saga, það er leiðinlegt að
sjá þessar tölur en maður hefur það á til-
finningunni að ennþá séu margir sem eigi
eftir að gera upp hug sinn. Við höldum alla-
vega ótrauð áfram að slást fyrir okkar mál-
efnum og höfum fulla trú á því að við eigum
eftir að gera betur en þetta.“
„Við höldum allavega ótrauð áfram“
Óttarr
Proppé