Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017 ✝ Andrea Eir Sig-urfinnsdóttir fæddist á Selfossi 25. júlí 2012. Hún lést á Karolinska sjúkrahúsinu í Sví- þjóð 15. október 2017 eftir stutt veikindi. Foreldrar henn- ar eru Guðrún Jóna Borgarsdóttir, f. 4.11. 1977, og Sigurfinnur Bjarkarsson, f. 11.3. 1975. Systkini Andreu eru Bjarkar Þór, f. 14.11. 2001, og Júlía Sól, f. 19.11. 2007. Andrea Eir var nýflutt á Sel- foss þegar hún lést, en fram að því bjó hún á Tóftum í Stokks- eyrarhreppi ásamt fjölskyldu sinni. Þó að hún væri ung að árum fór það ekki framhjá neinum hvað hún var dugleg í sveit- inni, bæði í störf- um úti sem inni. Hún var hjartahlý og átti marga vini í leik- skólanum Æsku- koti á Stokkseyri og í ágúst síðast- liðnum byrjaði hún í leikskól- anum Jötunheimum og var fljót að eignast vini þar sem henni þótti strax mjög vænt um. Útför Andreu Eirar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 27. október 2017, og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Elsku litla gullið okkar. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Elsku hjartans Andrea Eir, við munum alltaf elska þig og aldrei gleyma þér. Megi allir heimsins englar vaka yfir þér. Mamma og pabbi. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson) Eftir erfiða baráttu á sjúkra- húsi hér heima og í Svíþjóð mátti Andrea Eir, elsku litla ljósið okkar, lúta í lægra haldi fyrir erfiðum veikindum. Við sitjum eftir með allar góðu minningarn- ar sem hjálpa okkur og ylja á þessum erfiðu tímum. Þegar hún kom í heimsókn fór hún oft að sófaborðinu og kveikti öll kertaljósin hennar ömmu (sem hún amma á nóg af) og vildi hafa kósí, litlir fætur trítluðu með afa inn í búr að sækja suðu- súkkulaði sem var í sérstöku uppáhaldi, amma greip svo gjarnan í tómt þegar til átti að taka í baksturinn. Henni þótti nú ekkert leiðinlegt að fá að hjálpa henni ömmu að baka og fékk þá að smakka aðeins á deiginu. Um- hyggjan fyrir afa lýsti sér helst í því að hjálpa honum í sokkana og sjá til þess að buxnaskálmarnar færu vel yfir skóna. Þá sótti hún í að fá að gista hjá ömmu og afa og kúrði þá oftast „á milli“, þegar hún svo þurfti að fara heim þurfti að knúsa okkur aftur og aftur. Guð geymi þig, elsku litla ljós- ið okkar. Elsku Gunna, Siffi, Bjarkar Þór og Júlía Sól, Guð veri með ykkur elskurnar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Amma Andrea (Addý) og afi Borgar (Boggi). Elsku litla systir: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Við söknum þín svo mikið, elsku Andrea Eir. Guð geymi þig. Þín systkini, Bjarkar Þór og Júlía Sól. Mikið er sárt að kveðja elsku fallegu frænku mína sem ég kall- aði „litla barnið“. Andrea var mjög dugleg og ákveðin ung stúlka sem elskaði alla í kringum sig og talaði svo fullorðinslega við okkur. Í heimsóknum þínum til okkar vildir þú fá blað til að skrifa stafi á og sagðir að ég ætti sama staf og Hjalti vinur þinn. Mikið þótti mér vænt um þig. Við Frikki fórum með þér og fjöl- skyldu þinni til Flórída í nóvem- ber 2016 og er margs að minnast úr þeirri ferð sem ég geymi í hjarta mínu. Andrea var mikil bóndakona og fannst gaman að fara í fjár- húsið að hjálpa til og einnig hafði hún ánægju af að eyða heilu dög- unum í rófugarðinum ásamt fjöl- skyldu sinni. Ákveðnar skoðanir hafði hún á fatavali og var alltaf svo flott og setti jafnvel á sig varagloss. Á einni viku breyt tist allt. „Litla fallega barnið“ veiktist og var lagt inn á barnaspítala Hringsins og í framhaldinu flutt með sjúkraflugi til Svíþjóðar. Næstu dagar voru mjög erfiðir og kvaddi Andrea okkur sunnu- daginn 15. október. Á kveðjustundu er sársaukinn mikill og bið ég góðan Guð að vaka yfir Gunnu, Siffa, Bjarkari, Júlíu og fjölskyldu þeirra á þess- um erfiða tíma. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni (Sig. Jónsson) Þín frænka, Hulda Ósk Whalen. Ekki eru nema fimm ár síðan við systkinin eignuðumst yndis- lega fallega frænku. Hárið á henni var í fyrstu dökkt og mik- ið. Síðar breyttist það í fallega ljósa lokka. Hún var kærkomin viðbót í barnahópinn í fjölskyld- unni þar sem ég (Andrea stóra frænka) hafði eignast dreng fjór- um dögum fyrir fæðingu litlu Andreu Eirar. Þau Patrekur Þór urðu síðar góðir leikfélagar. Eft- ir að Andrea Eir fluttist á Sel- foss urðu þau einnig leikskóla- systkini. Ekkert okkar er enn búið að átta sig á að þessi fallega frænka sé ekki lengur hjá okkur, sorgin er þungbær og eftirsjáin mikil. Andrea Eir var yndisleg stúlka, lífsglöð og elskuleg við alla. Hún tók vel eftir því hvort við frænkur hennar værum vel snyrtar og í fallegum fötum. Hún var þá óspör á hrósið, sagði okk- ur oft hve henni þætti við fal- legar og fínar. Hún var líka af- skaplega blíð, góð og hjálpsöm. Hún var alltaf til í að hjálpa til við ýmislegt, svo sem að brjóta upp þvott og taka saman dótið þegar hún og frændur hennar höfðu lokið við að leika sér. Oft þurfti hún að hlaupa út í bíl þegar þeir fóru frá henni af því að hún gleymdi að knúsa þá, því hún vildi alltaf kveðja alla með hlýju faðmlagi. Ég (Karen) og kærast- inn minn vorum svo heppin að fá að passa hana í 10 daga núna í haust. Fyrir það erum við af- skaplega þakklát og er það ómet- anlegt að eiga góðar minningar um hana. Á afmæli Ingvars (kær- asta Andreu) langaði hana mjög að baka vöfflur handa honum, þar sem henni var mjög í mun að gleðja aðra. Það er ótrúlega sárt að horfa á eftir þessari yndislegu stelpu en við erum þakklát fyrir allar ljúfu minningarnar um hana. Patrekur Þór og Hinrik Darri sakna góðu frænku sinnar ósköp sárt. Elsku Andrea Eir, við munum alltaf elska þig og aldrei gleyma þér. Megi allir góðir englar vaka yfir þér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Andrea Rún, Ingvar, Patrekur og Hinrik, Karen Thelma og Brynjar, Axel Ingi og Einar. Elsku Andrea Eir okkar. Það er ekki hægt að lýsa því með orð- um hvað við Nína frænka og Við- ar söknum þín. Það er svo stutt síðan frænka fékk að taka á móti þér og setja þig á brjóst hjá mömmu þinni þar sem þú fékkst fyrsta sopann þinn. Ömmu Nínu, eins og þú sagðir oft, fannst hún hafa eign- ast tvö barnabörn þarna með fjögurra daga millibili þar sem Andrea stóra frænka þín eignað- ist Patrek 21. júlí og svo fæddist þú 25. júlí. Ég fékk að vera við- stödd fæðingu ykkar beggja. Það komu mörg gleðitár þarna á eftir þegar þið voruð komin í heiminn. Ég var svo stolt eins og allir hinir í fjölskyldunni. Þú horfðir svo fallega á mig, augun þín fallegu ljómuðu. Þér þótti svo gaman að koma inn í herbergið mitt að skoða allt glingrið. Helst vildirðu nú fá að máta allt. Varalitir og naglalökk voru í miklu uppáhaldi hjá þér, ástin mín. Þú horfðir svo oft lengi á mig áður en þú baðst mig um að lakka þig og auðvitað varstu naglalökkuð. Þú varst líka svo dugleg að bíða á meðan lakkið var að þorna. Svo þurftirðu að fá varalit og þá settir þú svo fal- legan stút á litlu varirnar þínar. Þú varst alltaf svo blíð og góð. Það er svo stutt síðan þú komst til mín á fjólubláa hlaupahjólinu þínu. Þú varst alveg farin að rata til ömmu Nínu eftir að þú fluttir á Selfoss. Þú komst nú líka stund- um á hjólinu þínu með mömmu þinni og systkinum þínum. Við ætluðum líka að kíkja í dýrabúð- ina hans Axels frænda labbandi, þú með Grímu þína og ég með Aríu mína. Frænka á svo margar yndislegar minningar um þig sem hún geymir í hjarta sínu. Þegar ég kom til þín á spít- alann var frænkuhjartað mikið aumt að sjá þig, fallega gullið mitt, svona veika. Ég sagði þér að Patrekur Þór, Hinrik Darri, Karen, Brynjar, Andrea, Ingvar, Axel, Einar og Viðar bæðu að heilsa þér og þú kinkaðir kolli, ástin mín. Frænka sagði þér líka hvað hún elskaði þig mikið og spurði þig: elskar þú frænku? Þá kink- aðir þú kolli. Ég veit að við mun- um hittast einn daginn þar sem þú kemur hlaupandi í fangið á ömmu Nínu og Viðari og við fáum að knúsast fast aftur á ný. Ég veit líka að amma Gunna og litli vinur þinn hann Hjalti Jakob taka vel á móti þér. Amma Nína og Viðar eiga svo fallegar minningar um þig sem við geymum í hjörtum okkar. Við erum svo þakklát fyrir þessar yndislegu stundir sem við áttum með þér. Mundu að við elskum þig svo mikið og við munum passa mömmu, pabba, Bjarkar Þór og Júlíu Sól vel fyrir þig. Guð geymi þig, fallegi engillinn okkar. Nína Björg Borgarsdóttir og Viðar Ingólfsson. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Í starfi okkar í leikskólanum fáum að vera samferða börnum og fjölskyldum þeirra í ákveðinn tíma. Við vorum samferða And- reu Eiri í Æskukoti frá því að hún var rétt rúmlega eins árs. Þær eru margar minningarnar sem fara um huga okkar þegar við hugsum til hennar. Við óskum þess að fá að kveðja á gleðistundu þegar ný tímamót lífsins taka við. Andrea Eir kvaddi okkur í Æskukoti fyrir sumarfrí, við vissum að hún kæmi ekki til okkar eftir fríið, þar sem hún var flutt á Selfoss með fjölskyldu sinni og færi í leikskólann Jötunheima. Við vor- um sannfærð um að við myndum hittast oft aftur hvort sem það yrði á Selfossi eða Stokkseyri og þá yrði gaman. Við fundum samt fyrir ákveðnum söknuði en glöddumst með fjölskyldunni á þessum tímamótum í lífi þeirra og Andrea Eir kvaddi okkur með rauðum rósum og sínu dýrmæta og hlýja knúsi. Þegar Andrea Eir veiktist héldum við í þá von að allt færi vel en á örskammri stundu er allt breytt og við minnt svo harka- lega á að daglegt amstur og áhyggjur eru hjóm eitt þegar hverfulleiki lífsins á í hlut. Eftir situr minning um góða, duglega, fallega, ljóshærða stúlku með brosið sitt bjarta svo lífsglöð og traustur vinur. Fyrir rúmu ári kvöddum við góðan vin og jafnaldra Andreu Eirar. Við vissum að sá missir tók mikið á hana og litla hjartað fann fyrir söknuði og sorg. Andr- ea Eir var sannur vinur vina sinna og við trúum því að vinirnir tveir hafi hist að nýju. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær ég man þig þegar augu mín eru opin hverja stund en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund (Megas) Hér ríkir sorg sem engin orð ná að lýsa. Kahlil Gibran segir í bók sinni Spámanninum: Ég græt vegna þess, sem var gleði mín. Þar segir líka að ástin þekki ekki dýpi sitt fyrr en á skilnaðar- stundu. Í sorginni skynjum við þakk- læti fyrir þann tíma sem við feng- um að eiga með Andreu Eiri. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin; mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Við viljum þakka fyrir allar stundirnar sem við áttum með Andreu Eiri. Hugsanir okkar dvelja hjá foreldrum hennar, Guðrúnu Jónu og Sigurfinni, systkinum Bjarkari Þór og Júlíu Sól, ömmum, öfum og öðrum að- standendum og sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi hjörtu ykkar öðlast huggun og frið. Andrea Eir skilur eftir sig fal- legar minningar og ást sem ekk- ert fær burtu tekið. Þannig mun minning hennar lifa. Fh. allra í leikskólanum Brim- veri/Æskukoti, Sigríður Birna Birgisdóttir leikskólastjóri. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Engin orð fá því lýst hversu mikil sorg ríkti er við heyrðum af andláti Andreu Eirar. Þó svo að Andrea Eir hafi ekki verið lengi hjá okkur í leikskólanum Jötun- heimum snerti hún okkur djúpt og við sáum hversu blíð og ljúf hún var. Hún var lífsglaður og hlátur- mildur grallari sem smitaði hlýju og gleði til allra hvar sem hún var. Hún var uppátækjasöm og gat leitt börnin á vit ótrúlegra ævintýra í gegnum leiki og var sannur vinur. Við minnumst þessara ljúfu stunda og munum sakna hennar sárt. Ó, sofðu, blessað barnið frítt, þú blundar vært og rótt. Þig vængir engla vefja blítt og vindar anda hljótt. Af hjarta syngja hjarðmenn þér til heiðurs vögguljóð sem tér: Sofðu rótt, sofðu rótt, vært og rótt, sofðu rótt. (Þýð. Þorgils Hlynur Þorbergs) Kæru Sigurfinnur, Guðrún Jóna, Bjarkar Þór og Júlía Sól. Allir í Jötunheimum senda ykkur innilegar samúðarkveðjur. Júlíana Tyrfingsdóttir. Andrea Eir Sigurfinnsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI SIGURJÓNSSON vélstjóri, Boðagranda 2, lést miðvikudaginn 25. október á Landspítalanum Fossvogi. Steinunn Steinarsdóttir Steinar Guðnason Jóhanna Runólfsdóttir Guðni Steinarsson Hildur Margrét Nielsen Ægir Steinarsson Ása Þórdís Ásgeirsdóttir Ingibjörg Steinunn og Hugrún Anna Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR GÍGJA Lómasölum 10, Kópavogi, lést á Landspítalanum Hringbraut 25. október síðastliðinn. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjördís Jónasdóttir Jónas Guðmundsson María Guðmundsdóttir Gígja Gunnar Kristjánsson Geir Gígja Jónína Einarsdóttir Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir afabörn og langafabarn Afi minn. Ég er svo lán- söm að hafa alla tíð verið umkringd sterkum fyrirmyndum, þar varst þú engin undantekning. Þú varst vinnusamur, heiðar- legur og drenglyndur maður, tilfinningavera og ávallt þakk- látur fyrir það sem þú hafðir, fjölskyldan var þér allt og varst þú ófeiminn við að minna okkur á það. Elsku afi, ég á ótalmargar minningar með þér sem eru mér gulls ígildi. Þær spanna yf- ir margra ára skeið, en efst í huga mér eru minningar úr sveitinni og frá Sæbóli. Ó, hvað mér fannst gaman að koma og vera hjá þér og ömmu í Tungu. Þar gat sveitastelpan í mér Guðmundur Eggertsson ✝ GuðmundurEggertsson fæddist 29. janúar 1928. Hann lést 16. október 2017. Útför Guð- mundar fór fram 25. október 2017. fengið útrás og fékk ég að aðstoða þig við nánast öll þau störf sem sinna þurfti. Þar fékk ég að geysast um á þessum fá- ránlega flotta hesti sem þú bjóst til fyrir mig úr gamalli kerru og afgangs bagga- bandi. Þar fékk ég að aðstoða þig og ömmu við að hugsa um dýrin, labba út á tún með þér, klappa og tala við hestana, standa út í skúr með þér að skera rabarbara, og fara í skemmtilega göngutúra um fallegu sveitina í Tungu eða vestur í Haukadal og oftar en ekki fylgdi skemmtileg saga með. Elsku afi, þú munt alltaf eiga stað í hjarta og huga mínum. Þó svo að ég sakni þín þá finn ég huggun í því að þú ert kom- inn í faðm ömmu, Óskars og Viktoríu litlu. Hvíl í friði, elsku afi minn. Karen Ósk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.