Morgunblaðið - 27.10.2017, Side 37

Morgunblaðið - 27.10.2017, Side 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017 ÞÓR FH Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 9:00 - 18:00 Lokað um helgar Tölvuverslun - Reykjavík: Ármúla 11 108 Reykjavík Sími 568-1581 Vefsíða og netverslun: www.thor.is HÁGÆÐA PRENTARI fyrir litlar ogmeðalstórar skrifstofur WorkForce ProWF-6590DWF EPSON WorkForce Pro WF-6590 er öflugt, hagkvæmt og skrifstofur. Nettengdur/þráðlaus prentari með þægilegan snertiskjá. Prentar allt að 24 síður á mínútu og getur prentað báðum megin á blaðið. Skannar einnig blöð báðummegin í einni umferð. Auðvelt að skipta um blek. Hægt að prenta á umslög og þykkari pappír. EPSONWorkForce Pro er ný kynslóð umhverfisvænna bleksprautuprentara sem leysir af hólmi gömlu laserprentarana. Helstu kostir: • Hraðvirk hágæða prentun Allt að 20 síður á mínútu í svörtu eða lit. • Prentar, skannar, ljósritar og faxar. 4 tæki í 1 með og prentar beggja megin. • Miklir tengimöguleikar Þráðlaust net, WiFi Direct og venjul. nettenging. • Tvíhliða skönnun Skannar báðar hliðar blaðs í einni umferð. • Prentun beint úr síma Ókeypis app til að prenta beint úr síma. 24 ppm ISO 24 ppm Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Reyndu nú að vinna draumum þín- um brautargengi því þú hefur byrinn með þér. Haltu fast við þitt en láttu aðra um að leysa sínar deilur upp á eigin spýtur. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú skalt ekki vera vonsvikin/n þótt eitthvað renni þér úr greipum. Hann getur nánast mælt þyngd sálar sinnar og augun eru alveg nógu áköf til að stara fólk í burtu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert með hugmynd sem þú vilt koma á framfæri. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það. Ef þú missir sjónar á takmarkinu verður sælan endaslepp. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér þótt þeir vilji tjá þér vangaveltur sínar um daginn og veginn. Reyndu að koma í veg fyrir rugling varðandi sameiginlegar eignir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samstarfsfélagar þínir eru óvenju- stuðningsríkir í dag og vinsamlegir í dag. Ef ástvinir eru hjá þér, er allt í þessu fína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er ágætt að setja traust sitt á aðra, en umfram allt átt þú að treysta á sjálfa/n þig. Málefni sem tengjast lögfræði og ferðalögum ættu einnig að ganga vel í dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Bilun í tölvunni eða annars konar tæknivandamál geta sett strik í reikninginn hjá þér í dag. Kafaðu djúpt og leitaðu að innblæstri, hvernig sem er, til þess að geta gert það sem þú þarft. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Allt ber að sama brunni og þegar málalyktir blasa við getur þú óhrædd/ur tekið til þinna ráða. Dagurinn hentar vel til þess að eiga ljúfa stund með vinum þínum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert í stuði til að vera smá klikkuð/aður og fara yfir strikið. Allir hafa gott af því að víkka út sjóndeildarhring sinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu ekki óttann við hið ókunna binda þig í báða skó. Ef þú snertir ekki sparifé þitt er ekki hundrað í hættunni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Í dag er kjörið að gefa út yfirlýs- ingar til þess að leggja áherslu á eigin skoð- anir. Gefðu annaðhvort mikið eða heilan helling. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú uppgötvar eins mikinn sannleika um tilteknar aðstæður og þú kærir þig um. Slappaðu bara af og haltu þínu striki. Helgi R. Einarsson sendi mértvær limrur. Sú fyrri er um „Frjósemi (orsök/afleiðing)“: Aðalsteinn bóndi á Bakka á bráðum sinn 18. krakka. Sigga Dís, Eyja, og Ella þær segja að Alli víst láti margt flakka. Og hin síðari um „misjafna veru- staði“: Kýrnar þær finnast í fjósum og fiskibollur í dósum. Þjóðin þau velur er vitrænust telur á þingið, þegar við kjósum. Hér birtust í gær heilræðavísur eftir Pétur Stefánsson. Á Leirnum bætti Helgi Zimsen um betur og sagði að sér leiddist kassinn og þá væri gott að drepa hinn marg- umtalaða tíma um stund: Fyrr á tíð hér fólkið kaus foringja með vit í haus. Nú má heyra röfl og raus rænu- virðist margur -laus. Yfir smáu engist lið ekki margir finna grið, heimskuleg fer heift á skrið, horfið flestum stærra svið. Íslensk þjóð er þannig gjörð, þetta er undarlegust hjörð. Undir raunum hún má hörð hefja sig og standa vörð Þegar loks svo þrælast má þungu oki burtu frá krafsað er af klaufskri þrá kauðalegu marki hjá. Þær fréttir berast að norðan að á fésbókarþræði Eyþórs Árnasonar frá Uppsölum í Skagafirði spannst nýlega umræða um kosningapróf þau sem nú tíðkast. Af því tilefni birtist mynd af þeim Einari K. Guð- finnssyni, fyrrverandi þingforseta, Bjarna Haraldssyni kaupmanni á Sauðárkróki og Árna Bjarnasyni á Uppsölum, föður Eyþórs, en þeir þremenningar voru allir viðstaddir opnun kosningaskrifstofu Sjálf- stæðisflokksins á Sauðárkróki. Af þessu tilefni orti Gunnar Rögn- valdsson á Löngumýri: Boða flokkar bæði ný og brotnu gömlu heitin. En þessir kallar krossa í kunnuglega reitinn. Á sunnudaginn skrifaði Pétur Bjarnason að „sem nýgræðingur á Boðnarmiði verður innleggið stutt að sinni. Á dögunum var ég spurður um stefnu Miðflokksins sem ég þekkti ekki en fór að kanna málið. Mér sýnist niðurstaðan þessi: Sigmundar stefna er flott og fín, þó fæstir hana þekki: „Ég, um mig, frá mér til mín“ og meira þarf víst ekki“. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af frjósemi, fjósum og krossum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VAR AÐ KAUPA ÞENNAN PAKKA AF RAFHLÖÐUM OG ÞAÐ STENDUR Á HONUM: „RAFHLÖÐUR EKKI INNIFALDAR“.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að átta sig á því að hún sér þig og sig fyrir sér í rómantísku myndinni sem þið eruð að horfa á. ÞESSAR SÚRMJÓLKURPÖNNUKÖKUR ERU HÁLF BRAGÐDAUFAR, IRMA. NOTAÐIR ÞÚ SÚRMJÓLKINA? LOF MÉR AÐ GÁ KJÁNINN ÉG HEF SETT VATN Í ÞÆR SEM ÞÝÐIR AÐ SÚRMJÓLKIN FÓR Í KAFFIVÉLINA HÚN KOM ALDREI AFTUR! KONAN MÍNOG ÉG GERÐUM ÞAÐOG ÞAÐ LEYSTI ÖLL VANDRÆÐIOKKAR… KONAN MÍN VILL AÐ VIÐ FÖRUM Í SITT Í HVORU LAGI Í SUMARFRÍ BARA ÞEGAR ÉG HNERRA. ERTU MEÐ GÓÐAN NEFÚÐA? Víkverji var á yngri árum mikillaðdáandi vísindaskáldsagna og gleypti þær í sig þegar þær urðu á vegi hans. Hann velti fyrir sér hvort líf væri á öðrum hnöttum og hvenær að því kæmi að lífverur úr geimnum birtust á jörðinni. Um leið vildi hann ólmur komast út í geim og var viss um að hann myndi eiga þess kost síðar á ævinni. Eitthvað hefur fennt yfir þennan áhuga með árunum. Hann hefur hins vegar alltaf gaman af að mæna upp í himininn og skoða stjörnurnar þegar heiðskírt er. x x x Nokkuð góð skilyrði hafa verið tilstjörnugláps undanfarið og hef- ur Víkverji notið góðs af. Hann verð- ur alltaf jafn hissa á muninum á að horfa á stjörnurnar í borg og sveit. Þegar komið er út í sveitina sjást stjörnurnar miklu betur og virðast miklu fleiri, en þegar horft er í gegn- um ljósmengun borgarinnar. x x x Norðurljósin hafa einnig gert vartvið sig undanfarnar nætur. Stundum láta þau lítið yfir sér og stundum er sjónarspilið stórkost- legt. Aðdráttarafl norðurljósanna er mikið og kemur fólk langt að til þess að sjá þau. Á stjörnubjörtum kvöld- um er fjölda áætlunarbíla ekið með fullfermi út fyrir borgina í því skyni einu að skyggnast eftir norður- ljósum. x x x Kunningi Víkverja hefur séð umbeina á hóteli fyrir austan fjall. Hann sagði einhverju sinni frá því að hjá honum hefði verið hópur ferða- langa frá Austurlöndum sem ólmur vildi sjá norðurljósin. Um kvöldið birtust þau á himninum í öllu sínu veldi og hóaði hann í hópinn, sem flýtti sér út að skoða herlegheitin. Á meðan ferðamennirnir böðuðu sig í norðurljósunum hitaði hann kakó handa þeim til að fá hita í kroppinn þegar þeir kæmu inn úr kuldanum. Ferðamennirnir höfðu hins vegar engan áhuga á kakóinu. Þeir höfðu fyrir satt að væri barn getið undir norðurljósum myndi því fylgja ævi- löng gæfa og drifu sig inn á herbergi allir sem einn. vikverji@mbl.is Víkverji En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jóh. 17:3)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.