Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.2017, Blaðsíða 10

Ægir - 01.12.2017, Blaðsíða 10
10 Ójöfn samkeppni og skortur á hráefni Albert segir að vegna sterks gengis og hás launakostnaðar verði sífellt erfiðara að fá hrá- efni til vinnslunnar á innlend- um markaði. Hann segir að við þetta bætist að samkeppni við fiskvinnslur sem reka líka út- gerðir feli í sér mikla mismun- un. Í gangi sé tvenns konar verðmyndun á afla. Annars vegar er það verðið sem greitt er á fiskmörkuðum og hins vegar svokallað viðmiðunar- verð Verðlagsstofu skiptaverðs. Fiskvinnslur sem reki útgerð greiði viðmiðunarverð Verð- lagsstofu fyrir aflann sem sé mun lægra en markaðsverðið. Þetta feli í sér samkeppnismis- munun sem fiskvinnslur án út- gerðar hafa reynt að fá leiðrétta meðal annars með málaferlum, en það hafi engu skilað. Albert undirstrikar að hann sé ekki að sakast við þau fyrirtæki sem njóta samkeppnismismunar- innar. „Það eru ekki þau fyrirtæki sem eru að svindla á okkur heldur er það kerfið sem er ósanngjarnt og hefur ekki feng- ist leiðrétt þrátt fyrir að til dæmis hafi verið tekið á svona löggjöf í Bandaríkjunum fyrir 100 árum. Stjórnendur fyrir- tækjanna eru einfaldlega að nýta þá aðstöðu sem þeir hafa til að reka sín fyrirtæki eins vel og þeir geta. Ef stjórnvöld veittu mér svigrúm til að borga bara dagvinnulaun fyrir nætur- vinnu myndi ég sjálfsagt nýta mér það. En það breytir ekki því að það eiga allir að sitja við sama borð. Ástand krónunnar hefur leitt til stóraukins útflutnings á óunnum fiski til dæmis til Pól- lands þar sem það kostar 40-50 krónum minna að vinna fisk- kílóið. Fyrir vikið hefur verið viðvarandi skortur á hráefni til vinnslu hér heima. Það sem er fyrst og fremst að drepa okkur er hversu mikill afli er fluttur óunninn úr landi.“ Flokkur einkaframtaksins hefur villst af leið Ekki er hjá því komist að spyrja Albert álits á nýrri ríkisstjórn sem var að taka við völdum daginn sem viðtalið var tekið. „Þessi ríkisstjórn mun ekki gera neitt í þessum málum. Við höf- um glímt við stjórnvöld í rúm 20 ár og við vitum að þessir þrír flokkar hafa ekki og munu ekki opna rifu á gluggann í þessum málum. Það eru frekar aðrir flokkar sem eru til viðræðu um það,“ segir Albert. Hann segir dapurlegt að Sjálfstæðisflokkur- inn, flokkur einstaklingsfram- taksins, beiti sér fyrst og fremst fyrir hina útvöldu en ekki hina. „Þetta væri frábær flokkur ef hann hefði sömu gildi fyrir alla og starfaði með þau gildi að leiðarljósi sem hann var stofn- aður til. En hann hefur villst af leið og ég myndi gjarnan taka þátt í að koma honum aftur á rétta braut, ef það er þá hægt,“ segir Albert Svavarsson fram- kvæmdastjóri Ísfisks. Fiskvinnsluhús HB Granda á Akranesi sem Ísfiskur hefur fest kaup á. Úr vinnslusal Ísfisks í Kópavogi. Bróðurpartur starfsliðsins hyggst fylgja fyrirtækinu þegar það flytur á Akranes. ans, og voru þá búnir að draga 16 bjóð af 28. Bátarnir höfðu samband um talstöðv- arnar og ákváðu að reyna að halda hópinn heim til hafnar á Akranesi. Um klukkan hálfþrjú kom óstöðvandi leki að Birni II. Dælan hafði ekki undan, og þótt tveir hásetar færu í lífaustur hafðist ekkert við lekanum. Þegar hér var kom- ið sáu þeir á Birninum engan bát nema Fylki, sem var skammt undan. Kristinn skipstjóri náði sambandi um talstöðina við Njál Þórðarson skipstjóra á Fylki og sagði honum hvernig komið væri. Sjórinn væri kominn á móts við efri kojurnar í lúkarnum. Báturinn væri að sökkva. Bað hann Njál að koma strax til hjálpar. Skipverjarnir settu allir á sig björgunarbelti og báturinn var látinn andæfa. Fylkir var kominn á vett- vang innan fárra mínútna. Helltu þeir olíu í sjóinn, til að lægja öldurnar, og lögðu upp að Birninum að aftan á hléborða. Bilið á milli bát- anna var þá 10-15 faðmar. Kastlínu var hent yfir í Fylki, og strax dregin til baka lína frá þeim. Síðan var útbúin lykkja og línan bundin undir hendurnar á einum skipverj- anna, sem var dreginn yfir í Fylki með björgunarbelti um sig miðjan. Þannig var öllum fimm skipverjunum bjargað af Birni II. Tók björgunin að- eins hálftíma. Það stóð á endum, þegar síðasti skip- verjinn var dreginn frá borði var Björninn II tekinn að mara hálfur í kafi og braut þá á honum. Bátarnir héldu áfram ferð sinni heim og Fylkir kom að landi klukkan sjö um kvöld- ið. Vart mátti tæpara standa að björgunin lánaðist. Njáll Þórðarson og skipshöfn hans sýndu þarna einstakt snar- ræði.“ Strand norska flutningsskips- ins Bro „Það var komið kvöld 9. október 1947. Ég var þá skipstjóri á Sigurfaranum og var á leið á reknetaveiðar í Miðnessjó. Við vorum komn- ir rétt suður fyrir Garðskaga, vindinn var tekið að herða og veðurspáin sagði að vind- áttin yrði suðvestan með stormi – sjö vindstig. Það var því ekki um annað að ræða en halda aftur að landi, og bíða betra veðurs. Það gerð- um við. Smám saman tíndust hinir bátarnir líka heim. Þegar við komum til Akra- ness voru allir bátarnir komnir að landi. Þegar ég steig upp á bryggjuna stóð þar formaður Slysavarna- deildarinnar á Akranesi, Axel Sveinbjörnsson. Hann kom til mín og spurði hvort við, ég og áhöfnin á Sigurfara, treystum okkur til að fara vestur á Mýrar. Þar væri norska flutningaskipið Bro strandað. Formaðurinn sagði mér að enginn af þeim bát- um, sem komnir væru að landi, hefði treyst sér til að fara í þessa ferð, enda aug- ljóst að fárviðri væri á þess- um slóðum. Hann vissi að ég var vel kunnugur skerjagarð- inum á Mýrunum, var aðeins ellefu ára gamall þegar ég byrjaði að róa þar með föður mínum. Ég kvaðst reiðubúinn að fara, ef hann fengi leyfi út- gerðarinnar til að leggja bát- inn í þessa tvísýnu. Sömu- leiðis skyldi ég tala við skipshöfn mína, en við vor- um sjö um borð. Kallaði ég þá alla saman og sagði þeim hvað framundan væri. Kváð- ust þeir allir tilbúnir að fara með mér. Skömmu síðar kom formaður slysavarna- deildarinnar og sagðist hafa fullt samþykki útgerðarinnar – við mættum fara. Þegar hér var komið sögu var sunnanstormur, sjö vind- stig, og spáin suðvestan stormur undir morgun. Þá vissum við að það mátti eng- an tíma missa, ef takast ætti að bjarga mönnunum. Við lögðum frá bryggju og héldum sem leið liggur vestur á Mýrar. Ég var í stöð- ugu loftskeytasambandi við Loftskeytastöðina í Reykja- vík, sem var í loftskeytasam- bandi við norska skipið. Þeg- ar við fórum að nálgast Þor- móðssker sáu við hvar skipið var strandað. Það var á svipuðum slóðum og Po- urquoi Pas? hafði strandað 15. septe ber 1936. Þórður Sigurðsson, skipshöfn hans á mótorbátnum Ægi og björg- unarsveitin á Akranesi höfðu einmitt lagt í lífshættulega björgunarferð til þess að reyna að bjarga áhöfninni á því fræga skipi. Ég bað loftskeytamanninn í Reykjavík að halda stöðugu sambandi milli okkar svo að enginn misskilningur yrði, þar sem ég gat ekki talað við skipið. Við vorum illa settir því að dýptarmælirinn var bilaður hjá okkur, engan rad- ar höfðum við og enga ljós- kastara til að lýsa upp svæð- ið. Þegar við komum að Þor- móðsskeri fórum við inn að sunnanverðu við skerið og ég bað stýrimanninn að vera frammi á með handlóð til að mæla dýpið. Á meðan á þessu stóð var skipstjórinn á norska skipinu alltaf að biðja Reykjavíkurradíó að spyrja hvort við kæmumst ekki nær skipinu. Ég fór eins langt og ég treysti mér og við létum akkerið fara þegar við vorum komnir í vindstöðu við skip- ið, þá yrði auðveldara fyrir skipverjana að róa til okkar undan vindinum. Ég bað Loftskeytastöðina að láta mig vita þegar þeir væru komnir í bátana, til þess að við gæt- um fylgst með þeim. Þeir létu okkur vita að nú væru þeir lagðir frá skipinu til okkar á tveimur bátum; skip- stjórabát með átta manns og stýrimannsbát með sjö manns. Við horfðum út í sortann og sáum brátt að annar bát- urinn, skipstjórabáturinn, var að leggjast að síðunni hjá okkur. Hinn bátinn sáum við ekki. Bað ég þá Loftskeyta- stöðina að spyrja hvort hann hefði ekki farið frá skipinu á sama tíma. Sagði ég norska skipstjóranum að fara í tal- stöðina hjá mér og fékk þá 15 F R Á S Ö G N Þórður Guðjónsson, skipstjóri á Akra- nesi. Hann lést 27. október 2005. aegirdes06_final.qxd 15.12.2006 21:27 Page 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.