Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
GEFÐU GÓÐAR
GAR Í JÓLAGJÖF!
Gjafabréf Heimsferða er tilvalin jólagjöf fyrir alla þá sem langar að ferðast.
Kauptu 10.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði 15.000 kr. og þú færð andvir
MINNIN
Kauptu 20.000 kr. gjafabréf
ði 30.000 kr.
Kauptu 35.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði 50.000 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Íhuga mál gegn borginni
Deiliskipulagstillaga um Landsímareitinn samþykkt Varðmennirnir ósáttir
Ólöf Ragnarsdóttir
olofr@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær deili-
skipulagstillögu um Landsímareit við Austurvöll
sem heimilar hótelbyggingu á reitnum. Málið fer
til fullnaðarafgreiðslu á borgarstjórnarfundi 5.
desember. Tillagan var samþykkt með fimm at-
kvæðum meirihluta gegn atkvæði Kjartans
Magnússonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokks. Halldór
Halldórsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sat hjá
við afgreiðslu málsins. Kjartan og Halldór lögðu
fram á fundinum tillögu þess efnis að deiliskipu-
lagstillögunni yrði frestað þar til niðurstöður
fornleifarannsóknar á reitnum lægju fyrir og
svör hefðu fengist við fyrirspurn frá síðasta
borgarráðsfundi. Þar var óskað eftir áliti borg-
arlögmanns á því hvaða lagaheimildir lægju til
grundvallar deiliskipulagi. Sú tillaga var felld
með fimm atkvæðum meirihlutans gegn tveimur
atkvæðum Sjálfstæðisflokks. Í fundargerð á vef
Reykjavíkurborgar kemur fram að í aðdraganda
fornleifaruppgraftar á svæðinu hafi í samstarfi
við Minjastofnun verið lagt upp með þá sýn að ef
órofinn kirkjugarður kæmi í ljós yrði fram-
kvæmdum hætt. Þá segir að svo hafi ekki reynst
vera heldur hafi komið í ljós að margra áratuga
jarðrask hafi þegar valdið miklu tjóni á þeim
minjum sem á svæðinu voru.
Varðmenn Víkurgarðs kynntu sjónarmið sín
um varðveislu Víkurkirkjugarðs á fundinum og
var Helgi Þorláksson einn fulltrúa þeirra. Helgi
segir við Morgunblaðið að hann hafi talað um að
mörkin á hinum gamla kirkjugarði Víkurkirkju
séu mun austar en miðað hafi verið við í umsögn
frá skipulagsfulltrúa og um þann hluta gildi lög
um kirkjugarða frá 1993 og eldri. Að sögn Helga
íhuga Varðmenn Víkurgarðs mál gagnvart borg-
inni og hefur það verið í athugun nokkuð lengi.
„Við ætlum að sjá hver niðurstaðan er fyrst af
þessu máli í kerfinu,“ segir Helgi.
Tölvuteikning/THG Arkitektar
Landsímareitur Fyrirhugað deiliskipulag.
Baldur Guðmundsson
baldurg@mbl.is
Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru
handteknir í miðborg Reykjavíkur í
fyrradag vegna gruns um að hafa
veist að fjögurra
ára dreng. Barnið
sat í aftursæti bíls
sem móðir þess ók
er árásin átti sér
stað.
Grímur Gríms-
son, yfirlögreglu-
þjónn á höfuð-
borgarsvæðinu,
segir í samtali við
mbl.is að þarna hafi verið á ferðinni
menn sem sökum vímu hafi ekkert
vitað hvað þeir voru að gera. Hann
segir að við yfirheyrslur í gær hafi lít-
ið komið fram um ástæður þessa
verknaðar. „Það er ekkert sem bendir
til þess að þeir hafi ætlað að veitast að
þessu barni. En það er afar dapurlegt
að fólk sem er á ferðinni eigi þetta á
hættu,“ segir hann.
Málavextir voru þeir að konan beið
í bíl sínum á rauðu ljósi á gatnamótum
Laugavegar og Snorrabrautar laust
fyrir klukkan 18 í fyrradag. Tveir
menn gengu að bílnum og annar
þeirra reif upp aðra afturhurðina.
Konan sagði honum að loka og koma
sér í burtu. Hann gerði það en
skömmu síðar áttaði konan sig á því
að hinar dyr bílsins höfðu einnig verið
opnaðar og að sonur hennar sat blóð-
ugur í aftursætinu. Svo virtist sem
hann hefði verið sleginn í andlitið.
Um er að ræða tvo Íslendinga um
þrítugt. Mennirnir veittu mikla mót-
spyrnu við handtöku en segir að þeir
hafi verið samvinnuþýðari þegar þeir
þóttu „skýrslutækir“. Spurður hvort
þeir hafi verið undir áhrifum áfengis
eða annarra efna svarar Grímur því
til að þótt niðurstöður blóðrannsókn-
ar liggi ekki fyrir sé ljóst að þeir hafi
verið undir áhrifum einhvers annars
en áfengis: „Þetta voru ákaflega vím-
aðir menn.“
Mennirnir voru yfirheyrðir en ekki
þótti ástæða til að krefjast þess að
þeir yrðu hnepptir í gæsluvarðhald.
Grímur segir að það hafi verið mat
lögreglu að það hafi hvorki þjónað
hagsmunum almennings né rann-
sóknarinnar að krefjast gæsluvarð-
halds yfir mönnunum.
Í vímu og veittust að barni
Tveir karlmenn á þrítugsaldri veittust að fjögurra ára barni
í bíl „Ákaflega vímaðir menn,“ segir Grímur Grímsson
Grímur Grímsson
„Við teljum að við
séum að nálgast
það að við getum
lent þessu máli,“
segir Katrín Jak-
obsdóttir, for-
maður Vinstri-
hreyfingarinnar –
græns framboðs,
í samtali við
mbl.is í gær.
„Vinnan mun þó
taka einhverja daga í viðbót og það
er ekki síst vegna þess að við þurfum
líka að vinna að fjárlagagerð sam-
hliða því að skrifa málefnasamning,“
segir Katrín en formenn flokkanna
þriggja sem nú eiga í viðræðum
funduðu í ráðherrabústaðnum í gær.
„Við eigum eftir einhverja daga í
þessa vinnu og við erum ekki búin að
leysa öll mál,“ segir Katrín en hún
telur að ef flokkarnir nái á annað
borð að leysa öll mál ættu þau að
skýrast eftir helgi. Eftir helgi væri
hægt að boða flokksstofnanir til
fundar þar sem ákveðið yrði hvort
fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf
yrði samþykkt. Katrín vill ekki til-
taka hvaða mál séu erfiðari í viðræð-
unum en önnur. „Ég sé enga ástæðu
til að tíunda það eitthvað. Það liggur
fyrir að þetta eru ólíkir flokkar og
allir vita hvernig þeir eru ólíkir,“
segir Katrín en hún segir þetta allt
haldast í hendur.
Styttist í
nýja ríkis-
stjórn
Katrín
Jakobsdóttir
Fjárlög í bígerð
Bankaráð Seðlabanka Íslands kom
saman til fundar í gær til að ræða
birtingu Morgunblaðsins á símtali
Davíðs Oddssonar, þáverandi banka-
stjóra Seðlabankans, og Geirs
Haarde, þáverandi forsætisráð-
herra, frá 6. október 2008.
Þórunn Guðmundsdóttir, formað-
ur bankaráðs, segir að fundarmenn
hafi fengið upplýsingar um símtalið
en bankinn skoðar nú hvernig það
lak til fjölmiðla. „Við fengum fullt af
upplýsingum en eins og komið hefur
fram í fréttum er bankinn enn að
skoða málið.“ Hún segir að fundar-
menn hafi ekki fengið endurrit af
símtalinu en bankinn sé að rekja sig í
gegnum feril þess og hvernig það lak
frá bankanum eða öðrum. „Hvenær
þeirri skoðun lýkur veit ég ekki,
örugglega á næstu dögum,“ segir
Þórunn.
mhj@mbl.is
Símtal Davíðs
og Geirs rætt
Jólagleði Disney var haldin í húsi Árvakurs í Há-
degismóum gær. Þar var áskrifendum og vel-
unnurum Disney boðið í kakó og piparkökur,
meðal annars til að fagna útkomu Jólasyrpunnar
2017. Tveir rauðklæddir jólasveinar höfðu villst
niður af fjöllum, aðeins fyrr en ráðgert er, og
litu inn í jólagleðina viðstöddum til mikillar gleði
en þeir tóku nokkur lög með börnunum.
Þá skemmti Björgvin Franz Gíslason, leikari,
skemmtikrafur og verkefnastjóri hjá Eddu út-
gáfu, sem gefur út Disney-bækur og -blöð hér á
landi, gestum við góðar undirtektir.
Komu jólanna fagnað hjá Disney með gleði
Morgunblaðið/Árni Sæberg