Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Vetrarfrí á gönguskíðum í skemmtilegum félagsskap, í fallegu umhverfi er sannkallaður draumur og eitthvað sem allt skíðagöngufólk ætti að upplifa.Achensee er eitt af bestu skíðagöngusvæðum Austurríkis. Skíðabrautir svæðisins eru á öllum erfiðleikastigum og henta því bæði byrjendum sem og lengra komnum. Gist verður á 4* hóteli í bænum Pertisau. Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. 17. - 24. febrúar Fararstjórar: Anna Sigríður Vernharðsdóttir & Katrín Árnadóttir ÁgönguskíðumviðAchensee SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Málfríður Þorleifsdóttir, íslensk kona búsett í Danmörku, fékk í gær sex mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir aðild sína að „kannabissúkkulaði- málinu“, einu umtalaðasta fíkniefna- máli síðari tíma í Danmörku. Hún segir að dómurinn sé í takt við það sem hún átti von á, en saksóknari hafði farið fram á að Málfríður yrði dæmd í þriggja ára fangelsi. Auk Málfríðar voru fjórir sakborn- ingar í málinu, einn þeirra er Claus „Moffe“ Nielsen, sem fór fyrir hópn- um sem framleiddi og seldi kannabis- olíu í lækningaskyni, og settu þau m.a. olíuna í súkkulaðidropa sem Málfríður framleiddi. Þau fengu öll sama dóm, fyrir utan Nielsen sem fékk sex mánuði óskilorðsbundna og eitt ár skilorðsbundið. Í viðtali sem birtist í Morgun- blaðinu og á mbl.is 1. nóvember síð- astliðinn lýsti Málfríður þætti sínum í málinu og tilurð þess að hún fór að framleiða og selja kannabis í sam- vinnu við Nielsen. Faðir hennar, Þor- leifur Guðmundsson sjómaður, greindist með krabbamein í maga og vélinda árið 2014 og þau verkjalyf sem honum voru gefin slógu ekki á óþægindi hans. Hann hafði heyrt að krabbameinssjúklingar neyttu kannabisolíu sem verkjastillandi lyfs með góðum árangri og bað Málfríði að útvega sér efnið. „Mér fannst virkilega erfitt að vera beðin að gera eitthvað ólöglegt en á sama tíma hik- aði ég ekki eina sekúndu þegar hann bað mig um þetta; ég hefði gert hvað sem var til að láta honum líða betur,“ sagði Málfríður í viðtalinu. Hún fékk kannabisolíu hjá Nielsen, kom henni til föður síns, og neysla olíunnar gerði líðan hans bærilegri síðustu mánuðina sem hann lifði. Í kjölfarið fóru þau Málfríður og Niel- sen í samstarf ásamt þremur öðrum um að framleiða og selja kannabisolíu til krabbameinssjúklinga og fólks með MS-sjúkdóminn, gigt og aðra kvalafulla sjúkdóma. Sala og dreifing á kannabisefnum er ólögleg í Dan- mörku, upp komst um athæfið í sept- ember í fyrra og í kjölfarið voru fimmmenningarnir ákærðir fyrir brot á dönsku fíkniefnalöggjöfinni og á læknalögum landsins, en þau aug- lýstu og seldu kannabisolíuna sem lyf. Ber ábyrgð á eigin gjörðum Málfríður og hinir sakborningarnir voru dæmd fyrir brot á 191. grein dönsku hegningarlaganna sem kveð- ur á um sölu á fíkniefnum og getur brot á þessari grein varðað allt að tíu ára fangelsi. Með því að hafa verið dæmd fyrir brot á þessari grein er henni m.a. ekki heimilt að ferðast til Bandaríkjanna, en þar á hún marga vini. „Ég er ekkert ósátt við dóminn, að sjálfsögðu ber ég ábyrgð á mínum gjörðum eins og annað fullorðið fólk. En ég er vissulega leið yfir því að hann mun hafa ýmsar afleiðingar fyr- ir líf mitt,“ segir Málfríður. Hún segir að í dómsorði hafi dóm- ari komist svo að orði að augljóst væri að fimmmenningarnir hefðu aldrei ætlað að hagnast fjárhagslega á söl- unni á kannabisolíunni og ljóst væri að þau hefðu selt olíuna til að lina þjáningar sjúklinga. Það hefði verið metið þeim til refsilækkunar. „Svo hefur ekkert okkar fengið dóm áður og við höfum öll sýnt að við erum heiðvirðir borgarar og ekki líkleg til að brjóta aftur af okkur.“ Spurð hvort hún eða hinir sakborningarnir ætli að áfrýja dómnum segist Málfríður ekki eiga von á því. „Líf æðra lögum“ Talsvert hefur verið fjallað um málið í dönskum fjölmiðlum, enda hefur verið mikið rætt í Danmörku um hvort leyfa eigi notkun kannabis- efna í lækningaskyni. Um áramótin munu ný lög taka gildi þar í landi sem kveða á um að næstu fjögur árin, fram til ársins 2022, verði tilteknum sjúklingahópum gefinn kostur á að fá kannabisolíu í lækningaskyni og verður grannt fylgst með fram- kvæmdinni og hvort tilefni sé til að fyrirkomulagið verði að varanlegum lögum. Að sögn Málfríðar var nokkur fjöldi fjölmiðlafólks samankominn við dómshúsið í gær. Þá voru þar einnig margir stuðningsmenn fimmmenn- inganna, sumir þeirra eru eða hafa verið krabbameinssjúkir og fengið kannabisolíu hjá þeim. Margir báru merki sem á stóð „Liv over lov“ eða „Líf æðra lögum“. „Kona sem var með brjóstakrabbamein og fékk kannabissúkkulaði hjá okkur bjó þessi merki til handa okkur í þakk- lætisskyni,“ segir Málfríður. Hún segir að í ljósi laganna, sem taka eigi gildi um áramótin, hyggist hópurinn nú skoða hvort þau muni leita leiða til að selja kannabisefni í lækningaskyni löglega. „Mér skilst að hægt sé að sækja um leyfi til að fram- leiða kannabis í lækningaskyni og það er nokkuð sem við viljum kanna. Við kunnum þetta a.m.k. nokkuð vel,“ segir Málfríður og hlær. Sérðu eftir því sem þú gerðir? „Ég sé ekki eftir því að hafa hjálpað pabba, að hafa keypt olíuna fyrir hann. En ég hefði staðið öðruvísi að málum varðandi söluna til sjúkling- anna, ég hefði líklega beðið eftir að þessi sala yrði lögleg.“ „Ég er ekkert ósátt við dóminn“  Málfríður fékk sex mánuði á skilorði vegna aðildar sinnar að kannabissúkkulaðimálinu í Danmörku  Dómari sagði ljóst að tilgangurinn hefði ekki verið að græða  „Sé ekki eftir að hafa hjálpað pabba“ Dómshús „Moffe“ ræddi við fjölmiðlafólk við héraðsdóminn í Holbæk í gær. Ljósmynd/Málfríður Þorleifsdóttir Skilorðsbundinn dómur Málfríður var í gær dæmd vegna aðildar sinnar að umtöluðu fíkniefnamáli í Danmörku. Þrír slösuðust í sjö bíla árekstri á Holtavörðuheiði um eittleytið í gærdag. Rauði krossinn opnaði fjölda- hjálparstöð í Menntaskólanum í Borgarnesi vegna slyssins þar sem farþegum þeirra bíla sem lentu í árekstrinum var veittur sálrænn stuðningur frá sjálf- boðaliðum Rauða krossins í Borgarfirði. Sjúkrabílar og Björgunarsveitin Brák fluttu erlenda ferðamenn og Íslendinga í fjöldahjálparmiðstöðina. Þeir þrír sem slösuðust í árekstrinum voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi eða heilsugæslustöðina í Borgarnesi en meiðsl þeirra eru minniháttar að sögn lögreglu. Flytja þurfti fimm bíla í burtu með krana vegna árekstrarins en heiðin var erfið yfirferðar að sögn lögreglu. Þá sátu fleiri bílar ýmist fastir á heiðinni eða fóru út af veginum. Holtavörðuheiði var lokað í kjölfar slyssins og var hún lokuð það sem eftir lifði dags en hjáleið var opin um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku eða Heydal. Vegum var víða lokað vegna veðurs en bæði Mosfells- heiði, Lyngdalsheiði og Fjarðarheiði voru lokaðar í gær. Þá voru Klettháls, Víkurskarð, Hófaskarð og Mývatns- og Möðrudalsöræfi einnig lokuð. Árekstur á Holtavörðuheiði Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson  Sjö bílar rákust saman  Vegir lokaðir víða um land
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.