Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Transporter hefur fylgt kynslóðum af
fólki sem hefur þurft á traustum og
áreiðanlegum vinnuþjarki að halda sem
leysir krefjandi og fjölbreytt verkefni. Hann
er með fullkominni stöðugleikastýringu og
spólvörn og sjö þrepa sjálfskiptingu.
Volkswagen Transporter kostar frá
4.040.000 kr.
(3.232.000 kr. án vsk)
BYGGIR Á TRAUSTUM GRUNNI
Volkswagen Transporter
4Motion
FJÓRHJÓLADRIFI
FÁANLEGURMEÐ
Við látum framtíðina rætast.
Til afhendingar strax!
Smart jólaföt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
mýrarbrautar var 87,1% á 3. fjórð-
ungi í ár, borið saman við 89,3% á 2.
fjórðungi. Hlutfallið hefur sveiflast
milli fjórðunga. Fara þarf aftur til 3.
fjórðungs 2014 til að finna hærra
hlutfall en á 3. fjórðungi í ár. Það var
88,3% á 3. fjórðungi 2014.
Frá öðrum fjórðungi 2006 hefur
hlutfall einstaklinga í kaupunum
orðið hæst á 2. fjórðungi 2011, eða
96,5% en lægst á 4. fjórðungi 2012,
eða 76,4%. Hlutfall fyrirtækja í
kaupum á íbúðum vestan Kringlu-
mýrarbrautar hefur þannig verið frá
3,5% til 23,6% á tímabilinu.
Þá er það sala fyrirtækja til ein-
staklinga annars vegar og sala ein-
staklinga til fyrirtækja hins vegar
vestan Kringlumýrarbrautar. Sé sú
sala skoðuð kemur í ljós að frá upp-
hafi 2. fj. 2006 er nokkuð jafnvægi
þar á milli. Frá lokum árs 2010 til lok
árs 2012 eru einstaklingar að kaupa
meira af fyrirtækjum en öfugt. Frá
árslokum 2012 og fram á mitt ár
2015 er þetta í jafnvægi en frá miðju
ári 2015 til ársbyrjunar 2017 eru
fyrirtæki að kaupa meira af einstak-
lingum en öfugt.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hlutfall einstaklinga í kaupum á
íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu hefur farið hækkandi á síðustu
misserum. Það var 93,6% á 3. árs-
fjórðungi í ár sem er hæsta hlutfallið
síðan á 2. fjórðungi 2012.
Þetta má lesa úr gögnum Þjóð-
skrár Íslands.
Íbúðakaupin eru sett í fjóra flokka
eftir seljanda og kaupanda; einstak-
lingur selur einstaklingi, fyrirtæki
selur einstaklingi, einstaklingur sel-
ur fyrirtæki og fyrirtæki selur fyrir-
tæki. Sem áður segir var hlutfall ein-
staklinga af kaupendum á 3.
fjórðungi í ár alls 93,6%.
Til samanburðar fór þetta hlutfall
niður í 86,6% á 4. fjórðungi 2014.
Hlutfallið hefur þrisvar verið lægra
síðan á 2. fjórðungi 2006. Það var
86% á 4. fjórðungi 2009, 83,2% á 1.
fjórðungi 2009 og 80,7% á 4. fjórð-
ungi 2008. Af þessu leiðir að á 4.
fjórðungi 2008 var hlutfall fyrir-
tækja í kaupum á íbúðum á höfuð-
borgarsvæðinu 19,3%. Má leiða líkur
að því að efnahagshrunið haustið
2008 hafi haft þar áhrif.
Hlutfallið frá 4,3% til 19,3%
Hefur hlutfall fyrirtækja í kaup-
um á íbúðum á svæðinu verið frá
4,3% til 19,3% frá 2. fjórðungi 2006.
Þjóðskrá Íslands sundurgreinir
kaup og sölu á íbúðum á höfuð-
borgarsvæðinu eftir svæðum.
Sé skoðað hverjir eiga viðskipti
vestan Kringlumýrarbrautar er út-
koman dálítið frábrugðin því sem
hún er á höfuðborgarsvæðinu öllu.
Hlutfall einstaklinga í kaupum á
íbúðarhúsnæði vestan Kringlu-
Hlutfall einstaklinga
í íbúðarkaupum eykst
Hefur farið hækkandi á höfuðborgarsvæðinu undanfarið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Horft yfir Múlahverfið.
Viðskipti vestan Kringlumýrarbrautar
Heimild: Þjóðskrá Íslands
20
15
10
5
0
%
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 20162006 2017
2. ársfj. 2006 til 3. ársfj. 2017 Fyrirtæki selur einstaklingi
Einstaklingur selur fyrirtæki
Hlutfall einstaklinga í íbúðarkaupum
2. ársfj. 2006 til 3. ársfj. 2017
Heimild: Þjóðskrá Íslands
100
95
90
85
80
75
%
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 20162006 2017
Höfuðborgarsvæðið
Vestan Kringlumýrarbrautar
Verjandinn í máli ákæruvaldsins
gegn Sveini Gesti Tryggvasyni sagði
við aðalmeðferð í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gærmorgun að málið
væri að mörgu leyti margslungið.
Hann sagði að frá upphafi hefði lög-
reglan haft þá óra að um handrukkun
hefði verið að ræða en í raun hefði
skjólstæðingur hans verið að sækja
verkfæri til Arnars Jónssonar Aspar.
Sveinn Gestur er ákærður fyrir stór-
fellda líkamsárás í tengslum við and-
lát hans.
Verjandinn sagði að verið væri að
ákæra mann fyrir líkamsárás sem
leiddi til dauða og að til að hægt væri
að dæma hann sekan yrði að vera fyr-
ir hendi ásetningur um að ráðast á
Arnar og gáleysi þannig að árásin
hefði leitt til dauða. Hann sagði ljóst
að Sveinn Gestur hefði ekki ráðist á
Arnar heldur hefði árásin þegar verið
hafin og nefndi að hann hefði hringt í
Neyðarlínuna eftir aðstoð.
Einnig hefði hann stöðugt verið á
flótta af vettvangi frá Arnari og síðar
reynt að endurlífga hann.
Verjandinn sagði mikinn vafa leika
á því hvort Sveinn Gestur hefði lamið
Arnar og haldið honum með hálstaki.
Jafnvel þótt það teldist sannað léki
vafi á hvort hann hefði valdið honum
alvarlegum skaða, til dæmis með
brotnu skjaldkirtilsbrjóski og nef-
broti sem Arnar hlaut. Fjölmörg önn-
ur atvik hefðu getað leitt til skaðans.
Verjandinn vísaði í vitnisburð rétt-
armeinafræðings sem hefði staðfest
að það eina sem gat dregið Arnar til
dauða eitt og sér hefði verið æsings-
óráðsheilkenni og lyfjaeitrun.
Hann sagði æsingsóráðsheilkenni
ekki koma upp af sjálfu sér. Undir-
liggjandi geðsjúkdómar, lyfjanotkun
og fleiri mögulegar aðstæður gætu
vakið það en Arnar var með grein-
ingu um ofsóknargeðklofa og stóran
skammt af amfetamíni í blóðinu.
Verjandinn gerði þá kröfu að Sveinn
Gestur yrði sýknaður.
Fer fram á 4 til 5 ára fangelsi
Saksóknari fer fram á fjögurra til
fimm ára fangelsi yfir Sveini Gesti.
Einnig er farið fram á að hann greiði
samtals um 54 milljónir króna í bæt-
ur. Fram kom í máli saksóknara í
gær að líkamsárásin í Mosfellsdal
hefði verið gróf og Arnar hefði verið í
þannig stöðu að hann hefði enga
björg getað sér veitt. Afleiðingarnar
væru óafturkræfar og einnig miklar
fyrir aðstandendur Arnars. Sveinn
hefði í aðalmeðferðinni í gær reynt að
koma sök yfir á annan mann og fegra
sinn hlut. freyr@mbl.is
Mál Sveins Gests margslungið
Verjandi Sveins fer fram á sýknu í Mosfellsdalsmálinu