Morgunblaðið - 24.11.2017, Page 12
Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
Gjafir sem gle
ðja
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ljós og lampar
Flos 2097
Gino Sarfatti, 1958
Verð frá 199.000,-
Spunlight T2
Sebastian Wrong, 2003
Verð frá 139.000,-
Ray F2
Rodolfo Dordoni,
2006
Verð 199.000,-
ARCO Led
Achille & Pier Giacomo Castiglioni
1962
Verð 299.000,-
Taccia small
Achille & Pier Giacomo
Castiglioni 1962
Verð 129.000,-
Smithfield S
Jasper Morrison, 2009
Verð frá 119.000,-
FLOS 265
Paolo Rizzatto 1973
Verð 110.000,-
Romeo Louis II S2
Philippe Starck 2003
Verð 233.000,-
Rosy angelis,
Philippe Starck 1994
Verð 69.900,-
Bonjour
Philippe Starck
Verð frá 44.800,-
MISS K.
Philippe Starck 2003
Verð 38.900,-
Morgunblaðið/Hari
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Gefðu þér tíma til að upplifaog taka eftir er þema ljós-myndaviðburðar Ragnheið-ar Arngrímsdóttur list-
ljósmyndara sem opnuð verður kl. 15
sunnudaginn 26. nóvember í Klíník-
inni, Ármúla 9. Hún kýs fremur að tala
um viðburð eða upplifun en sýningu,
enda verði stemningin með allt öðrum
brag en á þeim fjórum einkasýningum
sem hún hefur haldið í áranna rás.
„Hægt er að taka ljósmyndir á
marga vegu og í mismunandi tilgangi.
Erlendis tíðkast meira en hér á landi
að fólk kaupi ljósmyndir sem listaverk
á vegg. Viðhorfin hafa þó breyst og Ís-
lendingar eru í vaxandi mæli að opna
augun fyrir að ljósmyndin getur verið
listaverk. Í gegnum tíðina hef ég yfir-
leitt selt mörg eintök af myndunum
mínum en núna ætla ég að taka fyrsta
skrefið í þá átt að bjóða þær eins og
listaverk og geri því aðeins örfá eintök
af hverri,“ segir Ragnheiður.
Kjarninn sem skiptir máli
Ljósmyndirnar eru nánast
splunkunýjar, átta talsins, flestar um
1.20 x 80 cm, unnar með margs konar
tækni og teknar gagngert fyrir við-
burðinn. Ragnheiður segir hugmynd-
ina að ljósmyndasyrpunni eiga rætur
að rekja til hraðans í þjóðfélaginu, en
innblásturinn sé aftur á móti andstæða
hans; friðsældin.
„Í erli dagsins þeytist lífið áfram
á ógnarhraða og mitt í allri ringulreið-
inni þurfum við að finna þann kjarna
sem skiptir okkur mestu máli og gleð-
ur okkur,“ segir Ragnheiður um pæl-
ingarnar að baki ljósmyndunum.
Sjálf kveðst hún undir sömu sök
seld og flestir að gleyma að staldra við,
skoða í kringum sig og njóta augna-
bliksins. „Sumar myndirnar eru bjart-
ar og draumkenndar, aðrar tók ég á
dimmum stað, en þá beitti ég til dæmis
þeirri tækni að smella mörgum sinn-
um af ljósum og fá þannig hreyfingu í
myndina. Stundum hafði ég ljósopið
opið í smátíma til að myndefnið væri
ekki í fókus, svolítið órætt og kallaði
fram mismunandi tilfinningar hjá
áhorfandanum.“
Ragnheiður segir að í sínum huga
marki ljósmyndirnar á sýningunni
ákveðið upphaf. Þær séu partur af
uppgjöri hennar við hið liðna, nokkurs
konar sjálfskoðun því ýmsir erfiðleikar
hafi steðjað að sem hafi kennt henni að
meta það sem skiptir máli betur en
ella. „Eins og bara gerist og gengur í
lífinu. Það skiptast á skin og skúrir,“
segir hún og fer ekki nánar út í þá
sálma.
Hliðarsýning á chromolux-
ljósmyndum
Ragnheiður starfaði í þrettán ár
sem flugmaður og flugkennari, síðustu
árin hjá Atlanta-flugfélaginu. Eftir að
hún eignaðist yngsta son sinn af þrem-
ur sneri hún við blaðinu, keypti sér al-
vöruljósmyndavél og lærði list-
ljósmyndun, fyrst í NYIP, New York
Institude of Photography, og síðar
Ljósmyndaskóla Íslands. Hún hefur
verið sjálfstætt starfandi ljósmyndari
frá árinu 2012, en þá gaf hún út ljós-
myndabókina Fólkið í landinu og hef-
ur haldið fjölda námskeiða í ljós-
myndun.
Á annarri hæð Klíníkurinnar sýn-
ir Ragnheiður samhliða á annan tug
ljósmynda, sem unnar eru með
chromolux-tækni, sem felst í að
brenna myndirnar í álplötur. Þær ljós-
myndir eru til sýnis á vegum sprota-
fyrirtækisins Fantoma images, sem
hún stofnaði fyrir ári ásamt Evu
Magnúsdóttur.
Að staldra við og
njóta augnabliksins
„… og mitt í allri ringulreiðinni þurfum við að finna þann kjarna sem skiptir
okkur mestu máli og gleður okkur,“ segir Ragnheiður Arngrímsdóttir listljósmynd-
ari m.a. um pælingarnar að baki ljósmyndasyrpu sem hún sýnir í Klíníkinni.
Hrútur Ein ljósmyndanna á hliðarsýningunni sem
Ragnheiður vann með svokallaðri chromolux-tækni.
Hug-
myndin á
rætur að
rekja til
hraða nú-
tímans, inn-
blásturinn
er and-
stæðan;
friðsældin.
Fuglinn fljúgandi Ljósmyndirnar eru unnar með blandaðri tækni.
Listljósmyndarinn Ragn-
heiður sýnir átta splunku-
nýjar ljósmyndir og á annan
tug verka sem hún hefur
tekið á liðnum árum af ís-
lenskri náttúru og eru unn-
ar með chromolux-tækni.
Ljósmyndaviðburður Ragnheið-
ar í Klíníkinni stendur yfir í viku.
Opið alla daga frá 11-19 og allir vel-
komnir.