Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
KRINGLU OG SMÁRALIND
BLACKFRIDAY
FRÁBÆRTILBOÐALLAHELGINA
30%
AFÖLLU
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú er unnið að nýrri grunnsýningu
Sjóminjasafnsins í Reykjavík, Borg-
arsögusafni, sem áformað er að verði
opnað vorið 2018. Unnið er með hol-
lenska fyrirtækinu KossmannDe-
Jong, sem er heimþekkt fyrirtæki á
sviði sýningahönnunar.
Sýningin sem nú er í Sjóminja-
safninu var opnuð árið 2006. Aðsókn
hefur verið ágæt og farið vaxandi í
samræmi við
uppgang svæð-
isins á Granda.
Áætlað er að að-
sókn aukist að
mun með nýrri
sýningu. Nýja
sýningin verður
mjög ólík þeirri
gömlu en þó er að
því stefnt að
nokkrir gripir,
sem þar eru,
verði á nýju sýningunni.
Vinna við nýju sýninguna hófst ár-
ið 2015 og er handriti og hönnun lok-
ið, samkvæmt upplýsingum Sigrún-
ar Kristjánsdóttur sýningarstjóra.
Leitast er við að lýsa uppgangi og
sögu helsta atvinnuvegar þjóðar-
innar sem jafnframt er saga tækni,
einstaklinga og menningar.
Vandað verður til verka og horft
til reynslunnar af Landnámssýning-
unni í Aðalstræti sem hefur staðist
vel tímans tönn, að sögn Sigrúnar.
Til að gera upplifun gesta sem
áhrifaríkasta verða notaðar sem
flestar miðlunarleiðir í sýningunni,
auk hefðbundins texta verða kvik-
myndir, viðtöl, frásagnir og marg-
miðlun af ýmsu tagi. Sigrún segir að
víðtækt samráð hafi verið haft við
fólk úr mörgum áttum: notendur og
sérfræðinga af ólíkum sviðum; sagn-
fræðinga, þjóðfræðinga, líffræðinga,
sjómenn, hönnuði, kvikmyndagerð-
arfólk og sérfræðinga á sviði marg-
miðlunar og fleiri.
Efnt hefur verið til samstarfs við
ólíka aðila sem leggja ýmislegt til
sýningarinnar svo sem: Hafrann-
sóknastofnun, Háskóla Íslands, Há-
skólann á Akureyri, og önnur söfn.
Jafnframt samtök eins og Sjó-
mannadagsráð, Sjávarklasann og
ýmis fyrirtæki sem starfa á sviði
sjávarútvegs, svo sem Faxaflóahafn-
ir, Eimskip, 66°Norður, HB Granda,
Hampiðjuna og fleiri.
Sigrún segir að verið sé að vinna
að 5 stuttum kvikmyndum fyrir sýn-
inguna og taka viðtöl um reynslu
fólks af ólíkum toga. Textahöfundur
eru að störfum og listar yfir gripi og
ljósmyndir tilbúnir. Í byrjun desem-
ber verður gamla sýningin tekin nið-
ur og hafist handa við lagfæringar á
húsnæði og svo uppsetningu sýning-
arinnar á vormánuðum.
Vegna hinnar nýju sýningar verð-
ur ráðist í breytingar á húsnæði
safnsins. Það er verið að stækka sýn-
ingarrými og minnka skrifstofurými
sem því nemur. „Það þarf að aðlaga
húsið sýningunni að einhverju leyti
en einnig var komið að viðhaldi á
ýmsum þáttum,“ segir Sigrún.
Reykjavíkurborg stendur þétt að
baki verkefninu að sögn Sigrúnar og
hefur m.a. sett fjármagn í fjárfest-
ingaáætlun borgarinnar, til endur-
nýjunar á húsnæði safnsins.
Ráðgert er að sýningin standi í allt
að 15 ár. Henni er ætlað að höfða til
ólíkra hópa gesta, svo sem yngri
kynslóða sem hafa minni tengsl við
sjávarútveg en áður, íslenskra og er-
lendra gesta borgarinnar og vera
heimavöllur atvinnugreinarinnar.
„Sjávarútvegur og siglingar eru
lykilatriði í sögu Íslands og hafa mót-
að Reykjavík. Brýnt er að halda
þeirri mikilvægu sögu til haga. Sjó-
minjasafnið verður hornsteinn í miðl-
un sögu borgarinnar á þessum geira
atvinnulífs og menningar,“ segir Sig-
rún.
Sjósókn sýnd með nýrri tækni
Unnið er að nýrri grunnsýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík Til að gera upplifun gesta sem
áhrifaríkasta verður notuð fullkomnasta margmiðlunartækni Stefnt er að opnun vorið 2018
Tölvuteikning/KossmannDeJong
Nýjasta tækni Með nýjustu margmiðlunartækni verður leitast við að lýsa uppgangi og sögu helsta atvinnuvegar þjóðarinnar í gegnum aldirnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Börn á Sjóminjasafninu Íslendingar hafa með heimsókn í safnið getað
skyggnst aftur í aldir og barið augum frumstæðan búnað forfeðra sinna.
Sigrún
Kristjánsdóttir
Húsvirki hf. átti hæsta tilboðið í bygg-
ingarétt og kaup á íbúðum á lóðinni
nr. 1 við Hallgerðargötu á Kirkju-
sandii. Fyrirtækið bauð 676 milljónir
króna.
Umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjavíkurborgar stóð að útboðinu
og voru tilboð opnuð í gærmorgun.
Alls bárust fimm tilboð. Módís ehf.
átti næsthæsta tilboðið, 565 milljónir,
Mannverk ehf. bauð 369 miljónir,
Kaflar ehf. buðu 240 milljónir og
Spennt ehf. 65 milljónir. Hæsta boðið
var nokkuð yfir áætlun borgarinnar,
sem var 550 milljónir.
Fram kemur í auglýsingu að á lóð-
inni Hallgerðargata 1 verði heimilt að
byggja allt að 82 íbúðir, um 6.800 fer-
metrar auk 6.150 fermetra kjallara-
rými með bílageymslum. Reykjavík-
urborg hyggst kaupa 20 íbúðir á
lóðinni fyrir Félagsbústaði. Þá mun
sá verktaki sem hreppir verkið
byggja 650 fermetra ungbarnaskóla
fyrir borgina. Hluti lóðarinnar verður
nýttur fyrir skólann.
Á svokallaðri Strætólóð á Kirkju-
sandi er áformað að byggja 300 íbúðir
af öllum stærðum og gerðum á 9 lóð-
um. Heildarstærð húsnæðis ofanjarð-
ar verður um 79.000 fermetrar. Nið-
urrifi atvinnuhúsnæðis á svæðinu er
lokið.
Bjargi íbúðafélagi, sem er húsnæð-
issjálfseignarstofnun ASÍ og BSRB,
hefur áður verið úthlutað byggingar-
réttt á við Hallgerðargötu en þar er
gert ráð fyrir 63 íbúðum. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hanna
Kirkjusandur Atvinnuhúsnæði sem var á reitnum var rifið í sumar.
Bauð 676 milljónir
í lóð á Kirkjusandi