Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 26

Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 Ullarnærföt í útivistina Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Brúarsport, Borgarnesi Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Efnalaug Dóru, Hornafirði 100% Merino ull Góð og hlý heilsársföt Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Okkur hefur tekist að ná hag- kvæmni í rekstri hjúkrunarheim- ilanna sem við höfum tekið að okkur. Sum þeirra voru áður rekin með miklum halla,“ sagði Hálfdan Henrysson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs. Það rekur m.a. Hrafnistuheimilin. „Við njótum hag- kvæmni stærðarinnar. Innkaup eru sameiginleg og eins yfirstjórnin. Við erum með einn forstjóra, forstöðu- mann fyrir hverju heimili og frábært starfsfólk sem er algjörlega í sér- flokki.“ Hálfdan tók við formennsku Sjó- mannadagsráðs af Guðmundi Hall- varðssyni 11. maí í vor. Þá hafði Hálfdan setið í stjórninni frá haust- inu 1993 og einnig ritstýrt Sjó- mannadagsblaðinu um tíma. Þess má geta að faðir Hálfdans, Henry Hálfdansson, var fyrsti formaður Sjómannadagsráðs og gegndi emb- ættinu frá 1937 til 1961. Hann hafði m.a. forgöngu um stofnun sjómannadagsins sem nú er lögskip- aður frídagur sjómanna. Sjómanna- dagurinn var fyrst haldinn hátíðleg- ur 1938 við mjög góðar undirtektir. Í framhaldinu fór Sjómannadagsráð að huga að högum aldraðra sjó- manna. Aldraðir sjómenn í vanda „Þá var gengið hús úr húsi að rukka félagsgjöld og þannig komust menn að því að ástandið hjá mörgum öldruðum sjómönnum var mjög erf- itt,“ sagði Hálfdan. Stefnuskrár- nefnd lagði til að byggt yrði dvalar- heimili fyrir aldraða sjómenn og Hrafnista var reist. Rekstur Hrafnistuheimilanna hef- ur um árabil verið helsta verkefni Sjómannadagsráðs. Það á hjúkr- unar- og dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Gerðir hafa verið samningar við Kópavog um rekstur hjúkrunarheimilis í Boðaþingi, Garðabæ um rekstur Ísafoldar og Reykjanesbæ um Nes- velli og Hlévang. Auk þess rekur dótturfélag Sjómannadagsráðs, Naustavör ehf., þjónustu- og örygg- isíbúðir fyrir 60 ára og eldri í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Fyrstu árin kom ríkið ekki að greiðslu daggjalda og þá var Hrafn- ista fyrst og fremst opin sjómönn- um. Síðar kom ríkið að rekstrinum og í dag ræður færni- og heilsumats- nefnd því hverjir fá varanlega bú- setu á hjúkrunar- og dvalarheim- ilum Hrafnistu sem annarra. Stærsta verkefnið til þessa Tekin var skóflustunga í fyrradag að 21 þúsund fermetra öldrunarsetri við Sléttuveg í Reykjavík. Þar verð- ur reist hjúkrunarheimili fyrir 99 íbúa, 1.500 fermetra þjónustu- miðstöð og 14 þúsund fermetra fjöl- býlishús með 140 leiguíbúðum. Öldr- unarsetrið í Fossvogi er stærsta einstaka verkefnið sem Sjómanna- dagsráð hefur ráðist í á 80 árum. Ríkið og Reykjavíkurborg reisa og eiga hjúkrunarheimilið en Hrafnista mun sjá um reksturinn. Hjúkrunar- heimilið á að taka til starfa árið 2019, þjónustumiðstöðin skömmu síðar og þá íbúðirnar. Reiknað er með að jarðvegsvinna hefjist í byrjun des- ember. Byggingarframkvæmdir verða boðnar út fljótlega. „Það eru ellefu ár síðan við feng- um lóðina og við höfum beðið eftir að geta hafið framkvæmdir. Þetta er langur tími hjá þeim sem bíða eftir að komast á hjúkrunarheimili,“ sagði Hálfdan. Sjómannadagsráð mun eiga og reka þjónustumiðstöð- ina en Reykjavíkurborg leigja stór- an hluta hennar fyrir félagsstarf o.fl. Áætlað er að fjárfesting Sjómanna- dagsráðs í öldrunarsetrinu verði um fimm milljarðar auk þess sem tæpir þrír milljarðar fara í hjúkrunar- heimilið, samtals um átta milljarðar. Happdrætti DAS hefur gegnt lyk- ilhlutverki við fjármögnun fram- kvæmda Sjómannadagsráðs og við- halds eigna. Happdrættið hefur lagt fram rúma sex milljarða króna til þess frá upphafi. Auk þess hefur fé komið úr sjóðum Sjómannadagsráðs sem m.a. hefur tekjur af útleigu Laugarásbíós. Mjög umfangsmikill rekstur Rekstur Sjómannadagsráðs og dótturfyrirtækja þess er mjög um- fangsmikill. Um 1.200 manns eru á launaskrá en fastir starfsmenn eru um 800. Framkvæmdir við lagfær- ingar Hrafnistu í Hafnarfirði að inn- an eru að hefjast en húsið er 40 ára gamalt. Þakið var endurnýjað í sum- ar. Búið er að lagfæra Hrafnistu í Reykjavík að innan. „Við höfum fengið leyfi til að hefja byggingu íbúða á lóð Hrafnistu í Hafnarfirði sem við reiknum með að verði leiguíbúðir,“ sagði Hálfdan. Hann sagði að íbúðirnar gætu mögu- lega orðið allt að 100 talsins. „Við sóttum um leyfi til að reisa þar hjúkrunarheimili, en fengum það ekki.“ Hrafnista rekur hjúkrunarheimili í Boðaþingi en Kópavogskaupstaður á húsnæðið. Þar er pláss fyrir 44. Leyfi er til að stækka húsnæðið um 46 rými. „Okkur finnst Kópavogur hafa dregið lappirnar í að hefja fram- kvæmdir við stækkunina,“ sagði Hálfdan. „Þessi rekstrareining hef- ur verið mjög óhagstæð og rekin með tapi allt frá upphafi. Það lendir á okkur. Við rekum þetta ekki lengi með tapi.“ Hann sagði að stækkun um 25 rými myndi mæta mikilli þörf fyrir hjúkrunarrými og um leið gera eininguna í Boðaþingi rekstrarhæfa. Á góðu stími fyrir sjómenn í 80 ár  Sjómannadagsráð er umfangsmikið í rekstri hjúkrunar- og dvalarheimila  Sex heimili í fimm sveitarfélögum  1.200 manns á launaskrá  Risastór framkvæmd hafin á 80 ára afmælinu Sléttuvegur í Fossvogi Framkvæmdir eru að hefjast við 21.000 fermetra öldrunarsetur. Þar verður hjúkr- unarheimili fyrir 99 manns, þjónustubygging og 140 leiguíbúðir fyrir aldraða á vegum Hrafnistu. Stéttarfélög sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði stofnuðu Sjó- mannadags- ráð 25. nóv- ember 1937, fyrir 80 árum, til að standa fyrir árlegum sjómannadegi. Henry Hálf- dansson var fyrsti formaður. 1938 Sjómannadagurinn fyrst haldinn 6. júní. 1939 Ákveðið að Sjómanna- dagsráð beitti sér fyrir bygg- ingu dvalarheimilis fyrir aldr- aða sjómenn (DAS). 1954 Happdrætti DAS stofnað. Það hefur verið mikilvægasti bakhjarl byggingarfram- kvæmda Sjómannadagsráðs auk veglegra gjafa frá velunn- urum. 1956 Hafinn rekstur kvik- myndahúss í Laugarási. 1957 Hrafnista í Laugarási tek- in í notkun á sjómannadeginum 2. júní. 1960 Laugarásbíó, nýtt kvik- myndahús við hlið Hrafnistu, tekið í notkun til að afla fjár til framkvæmda og styrkja sjó- menn til dvalar á Hrafnistu. 1964 Sjómannadagsráð keypti jörðina Hraunkot, nú Hraun- borgir, í Grímsnesi þar sem nú er mikil frístundabyggð. 1977 Hrafnista í Hafnarfirði tók til starfa á sjómannadag. 1987 Lög sett um sjómanna- daginn sem almennan frídag sjómanna og fánadag. 2002 Hrafnista tekur við hjúkrunarheimilum í Víðinesi og á Vífilsstöðum. 2004 60 rýma hjúkrunarálma í Reykjavík og 64 leiguíbúðir í Hafnarfirði teknar í notkun. 2007 24 leiguíbúðir í Reykja- vík teknar í notkun. 2010 Hrafnista í Kópavogi tek- ur til starfa. 2014 Hrafnista tekur við rekstri á nýju hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ. 18 leiguíbúðir í Reykjavík. 2017 Hrafnista tekur við rekstri hjúkrunarheimilis í Garðabæ. Framkvæmdir hefjast við Sléttuveg í Reykjavík. Sjómanna- dagsráð 80 ÁRA AFMÆLI Henry Hálfdansson Morgunblaðið/RAX Sjómannadagsráð Hálfdan Henrysson, stjórnarformaður, var lengi í stjórn áður en hann tók við stjórnarformennskunni í Sjómannadagsráði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.