Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 30

Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 Dönsk hönnun SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Árlegur jólamarkaður Þórshafnar- búa var haldinn nýverið í Íþrótta- miðstöðinni Verinu. Hefur sá við- burður fest sig í sessi og almenn ánægja íbúa verið með hann. Óvænt uppákoma var á markaðn- um í þetta sinn þegar beðið var um uppboð á lopapeysu til styrktar Björgunarsveitinni Hafliða. Tilefnið var að eldri maður hafði slasast inni í heiði í síðastliðnum mánuði og naut þá aðstoðar Björg- unarsveitarinnar. Systkini mannsins höfðu að sögn prjónað umrædda lopapeysu og komið var með hana á markaðinn í því augnamiði að and- virði hennar styrkti björgunarsveit- ina. Kynnir jólamarkaðarins brást við af alkunnri röggsemi og hóf upp- boðið þegar í stað og bauð fyrstur manna í peysuna dágóða upphæð. Viðbrögð gesta á markaðnum létu ekki á sér standa og að lokum hreppti Kvenfélagið Hvöt á Þórs- höfn lopapeysuna góðu með boði upp á 65.000 krónur. Peysan verði í bílnum Kvenfélagskonurnar hafa alltaf stutt björgunarsveitina dyggilega og brugðust ekki heldur í þetta skipti því þegar peysan var orðin þeirra eign, þá gáfu þær björgunar- sveitinni peysuna og sögðu að hún væri best geymd í bíl sveitarinnar til afnota fyrir björgunarsveitar- menn í störfum sínum. Varaformaður björgunarsveitar- innar Hafliða, Þórarinn J. Þórisson, tók við gjöfinni og fékk í kaupbæti koss frá formanni og gjaldkera Kvenfélagsins, þeim Hrafngerði Elíasdóttur og Heiðrúnu Óladóttur. Þetta skemmtilega uppbrot á jólamarkaðnum vakti lukku við- staddra og dró síst úr kaupgleðinni. Á markaðnum var ýmislegt á boðstólum en nálægt 20 söluaðilar voru þar með varning, bæði heima- fólk og aðkomnir og hægt að fá þar allt mögulegt, matvæli, skartgripi, fatnað, raftæki auk margs annars. Margir nýttu þarna tækifærið og keyptu jólagjafirnar á þægilegan hátt í heimabyggð. Auk þess var lif- andi tónlist þennan dag og myndar- legt kaffihús á vegum foreldrafélags grunnskólans. Að þessu sinni var ekki keppni um ljúffengustu smá- kökurnar heldur var svokölluð ný- sköpunarkeppni í gulrótarafurðum en framleiðendur Akurselsgulrót- anna eru nú á Þórshöfn. Góðmeti af ýmsu tagi úr gulrótum barst í keppnina svo bragðlaukar dóm- nefndar höfðu ærið verkefni en velja átti þrjá rétti úr þeim sem bárust. Jólamarkaðsnefndin saman- stendur af ungu fólki á Þórshöfn sem á hverju ári hefur veg og vanda af undirbúningi þessa viðburðar sem heppnaðist afar vel, nú sem fyrr. Barist hart um lopapeysu á uppboði  Líf og fjör á árlegum jólamarkaði á Þórshöfn  Andvirði lopapeysu rann til björgunarsveitarinnar Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Jólamarkaður Þórarinn J. Þórisson frá Björgunarsveitinni Hafliða tók við lopapeysunni og fékk í kaupbæti remb- ingskoss frá formanni og gjaldkera Kvenfélagsins Hvatar, þeim Hrafngerði Elíasdóttur og Heiðrúnu Óladóttur. Björgunarsveitin fékk einnig andvirði peysunnar af uppboðinu, 65 þúsund krónur. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við höfum fengið ágætan hóp til liðs við okkur, þannig að þetta þarf ekk- ert endilega að verða leiðinlegt,“ sagði söngvarinn Óskar Pétursson frá Álftagerði í Skagafirði, léttur í lund, þegar Morgunblaðið sló á þráð- inn til hans í vikunni. Hann var þá í miðju verki við að gera upp ryðgaðan Land Rover en auk söngsins dundar Óskar sér við bílviðgerðir og endur- smíði gamalla ökutækja á verkstæði sínu á Akureyri. Byrjað er að selja miða á stór- tónleika með Óskari og nokkrum val- inkunnum tónlistarmönnum í Eld- borgarsal Hörpu 6. maí á næsta ári. Með honum verða bræður hans frá Álftagerði; Sigfús, Pétur og Gísli, Diddú, Helgi Björns, Örn Árna og Karl Olgeirsson sem leiðir einvalalið hljóðfæraleikara. Jafnan hefur verið mikil eftirspurn eftir söngskemmtun með Óskari og félögum og stutt er síðan haldnir voru tvennir tónleikar í Hörpu með Álftagerðisbræðrum. Tónleikahöldurum þótti því rétt að vera tímanlega á ferðinni. „Þetta eru nú allt kunnugleg and- lit, nema að við höfum ekki áður feng- ið Helga Björns til liðs við okkur. Hann á ekkert mjög langt eftir í sjö- tugt,“ segir Óskar og hlær. „Tónleikahöldurum fannst rétt að hafa kaupstaðarhestamann með, reiðmann vindanna. Helgi heldur líka enn í kynþokkann.“ Óskar segir æfingar ekki farnar af stað fyrir tónleikana en óhætt sé að lofa fjölbreyttu og skemmtilegu laga- vali. Af nægu sé að taka eftir langan feril og því verði stiklað á stóru. Skemmtun með tónleikaívafi „Það er lagt upp með að þetta verði söngskemmtun, með tónleikaívafi. Við höfum ekki verið þekktir fyrir það, bræður, að taka hlutina mjög al- varlega. Við viljum halda okkur við léttleikann, það er miklu skemmti- legra. Ég ætla ekki að fara að taka upp á því að gamals aldri að taka mig alvarlega,“ segir Óskar, sem verður 64 ára í lok þessa árs. „Ætli þetta verði ekki eins með mig og Paul McCartney, þegar maður verður 64 þá fari eitthvað að gerast.“ Um 30 ár eru liðin síðan Álftagerð- isbræður sungu fyrst saman opin- berlega, við útför föður þeirra, Pét- urs Sigfússonar, í Víðimýrarkirkju 3. október 1987. Enn lengra er síðan þeir fóru að syngja hver í sínu horni og sumir þeirra saman í Karlakórn- um Heimi og fleiri kórum. Um 45 ár eru síðan Óskar kom fyrst fram sem einsöngvari. Ánægðir með góða gesti Einar Ólafur Speight og Smári Hrólfsson hjá Dægurflugunni standa fyrir tónleikahaldinu, líkt og áður þegar Álftagerðisbræður eru annars vegar í Hörpu. Segja þeir Óskar og þá bræður njóta mikilla vinsælda, gaman verði að sjá þá koma fram nú þegar rúm 30 ár eru liðin síðan þeir sungu fyrst saman opinberlega. Þeir séu sérdeilis ánægðir með að fá alla þessa góðu gesti til liðs við Óskar í Hörpu. „Álftagerðisbræður þarf vart að kynna fyrir fólki. Þeir eru lang- vinsælasta „boy-band“ landsins og hafa notið fádæma vinsælda síðustu áratugina, ekki bara fyrir fagran söng heldur líka gleði og einstakan þokka sem af þeim ber hvar sem þeir koma,“ segir Einar Ólafur. „Diddú er og hefur verið um árabil ein skærasta stjarna okkar Íslend- inga, bæði í óperu- og dægurlaga- söng, og því vart um annað að ræða en að fá hana til að syngja með Ósk- ari. Raddir þeirra eiga einstaklega vel saman á báðum þessum sviðum. Helgi Björns hefur heldur betur lagt sitt af mörkum til íslenskrar tónlist- ar. Nú á síðustu árum hefur hann getið sér einkar gott orð fyrir að flytja lög Hauks Morthens og halda á lífi perlum dægurtónlistarinnar. Örn Árnason hefur verið hvað frægastur fyrir gamanleik sinn en eins og allir vita þá er hann ekki síðri söngvari. Hann og Óskar skipa saman dúett sem hefur gengið undir nafninu „Yf- irliðsbræður“. Ekki er gott að segja hvaðan það nafn er komið en líklegast er það af reynslu þeirra við að skemmta hinu kyninu sem ósjaldan fellur í yfirlið við að sjá og heyra þessa gulldrengi saman,“ segir Einar Ólafur. „Viljum halda okkur við léttleikann“  Óskar Pétursson frá Álftagerði með stórtónleika í Hörpu í vor  Syngur með bræðrum sínum, Diddú, Helga Björns og Erni Árnasyni  Óskar á 45 ára söngafmæli og bræðurnir 30 ár saman Morgunblaðið/Eggert Álftagerðisbræður Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir á sviðinu í Eldborg í Hörpu á síðasta ári. Karl Olgeirsson Sigrún Hjálmtýs- dóttir, Diddú Helgi Björnsson Örn Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.