Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
SVIPMYND
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Móðir Roberts litla trúði því að hann
væri heilagt barn. Hún taldi að
presturinn hennar hefði fært henni
þau skilaboð frá Guði að sonur henn-
ar yrði mikill leiðtogi þegar fram
liðu stundir.
Robert litli var feiminn og einför-
ull piltur. Hann undi sér við að lesa
bækur dægrin löng þegar hin börnin
léku sér. Draumur móður hans um
að hann yrði virtur leiðtogi rættist
að nokkru leyti síðar á ævinni. Hann
var um hríð vonarstjarna margra
Afríkumanna eftir að hafa leitt þjóð
sína til frelsis og átt stóran þátt í því
að leysa hana undan kúgun hvíta
minnihlutans í heimalandi sínu, Sim-
babve. Draumurinn varð síðar að
martröð fyrir þjóð hans.
Mömmustrákurinn Mugabe
Robert Gabriel Mugabe fæddist
21. febrúar 1924 nálægt trúboðsstöð
jesúíta í Kutuma í Simbabve, sem
hét þá Suður-Ródesía og var ný-
lenda Breta. Faðir hans, Gabríel,
var smiður, ættaður norðan úr
grannríkinu Malaví, en móðir hans,
Bona, var komin af shóna-fólki sem
er stærsti þjóðernishópur Simbabve.
Þau eignuðust sex börn og Robert
Mugabe var þriðji elstur. Tveir eldri
bræður hans dóu ungir.
Straumhvörf urðu í lífi Roberts
litla þegar elsti bróðir hans dó. Faðir
hans yfirgaf þá fjölskylduna og fór
til næststærstu borgar landsins,
Bulawayo, þar sem hann fékk vinnu
við smíðar. Hann kvæntist þar ann-
arri konu og eignaðist með henni
þrjú börn. Þessi „svik“ heimilisföð-
urins voru reiðarslag fyrir móður
Roberts litla. Hún brotnaði niður og
megnaði ekki að ala upp börnin fjög-
ur án hjálpar. Robert var elstur
þeirra og þótt hann væri aðeins tíu
ára að aldri kom það í hlut hans að
hlaupa í skarðið fyrir föður sinn og
elsta bróðurinn. Þar með var hann
sviptur æskunni og bláköld alvara
lífsins tók við.
Elsti bróðir Roberts Mugabe þótti
mjög efnilegt barn og var auga-
steinn móður sinnar. Eftir að hann
dó tók hún að dekra við Robert sem
hún taldi að Guð hefði valið til að
verða stórmenni.
Bona var rammkaþólsk kona og
ætlaði sér að verða nunna þegar hún
kom til Kutuma á unglingsaldri.
Hún féll hins vegar fyrir Gabríel,
varð ófrísk og skírði barnið í höfuðið
á öðrum erkiengli, Míkael. Hún
hafði beðið til Guðs að elsti sonurinn
yrði prestur en þegar hann dó batt
hún vonir sínar við Robert litla.
Ábyrgðin sem hann taldi sig bera á
velferð móður sinnar lagðist þungt á
þennan feimna og viðkvæma pilt
sem taldi sig verða að uppfylla vænt-
ingarnar sem hún gerði til hans.
Þegar hún tók að fara með hann í
messur varð hann næstum eins trú-
rækinn og hún.
Robert litli dáði móður sína en var
reiður út í föður sinn sem sinnti ekk-
ert fjölskyldunni, að sögn Donato
Mugabe (1926-2007), bróður Rob-
erts. Hann gat ekki fyrirgefið föður
sínum svikin og þjáningarnar sem
hann olli fjölskyldunni.
Robert fann huggun í lestri bóka.
Hann var mjög alvörugefið og ein-
rænt barn, ólíkt bróður sínum og
tveimur systrum þeirra sem voru
yngri. „Hann var þannig gerður að
hann hafði engan áhuga á að eiga
marga vini,“ sagði Donato Mugabe.
„Bækurnar voru einu vinir hans …
Ég gat hlaupið hratt en Robert ekki:
hann var latur, var bara alltaf að
lesa.“
Hann var einnig ólíkur systkinum
sínum að því leyti að hann naut þess
að vera í skólanum. Þau bjuggu ná-
lægt skóla sem jesúítar stofnuðu
fyrir drengi á aldrinum 12 til 18 ára.
Robert gat farið þangað hvenær sem
hann vildi og skólastjórinn, írski
presturinn Jerome O‘Hea, fékk mik-
ið álit á þessum bókhneigða pilti.
„Mamma sagði okkur að O‘Hea
hefði sagt henni að Robert yrði
mikilvægur maður, leiðtogi,“ sagði
Donato. „Mamma trúði því að
presturinn hefði komið með þessi
skilaboð frá Guði; hún tók þetta
mjög alvarlega … Hún leit á hann
sem heilagt barn og vildi að hann
yrði prestur.“
Móðir Roberts Mugabe hneigðist
til þunglyndis áður en hún missti
eiginmanninn og frumburð sinn, ef
marka má fyrrverandi kennara í
heimabæ hans. Hann segir O‘Hea
alltaf hafa fylgst með henni og börn-
um hennar vegna þess að hann hafi
vitað af þunglyndi hennar.
O‘Hea taldi að Robert litli væri
óvenjulegum gáfum gæddur, fylgd-
ist grannt með námi hans og sá til
þess að hann yrði færður upp um
bekk um leið og hann þótti tilbúinn
til þess. Robert var því alltaf yngri
og smærri vexti en bekkjarbræður
hans. Það ýtti undir vanmáttar-
kennd hans á sama tíma og móðir
hans og O‘Hea sáðu fræjum sjálfs-
dýrkunar.
Robert lagði sig í framkróka við
að þóknast móður sinni í öllu og
standa sig vel til að fá hrós frá
O‘Hea. Skólabræður og systkin hans
öfunduðu hann þegar honum var
hyglað og gerðu oft grín að honum,
kölluðu hann mömmustrák og rag-
geit.
Dálætið sem móðir Roberts hafði
á honum var afbrigðilegt að mati
George Kahari, ættingja hans,
skólabróður og fyrrverandi prófess-
ors í félagsfræði. Kahari telur að
móðir Roberts Mugabe hafi stuðlað
að ósveigjanleikanum sem einkenndi
framgöngu hans síðar á ævinni.
„Þegar hann hefur tekið afstöðu
verður henni ekki hnikað. Robert ól
til að mynda með sér sjúklegt hatur
á föður sínum og það breyttist aldr-
ei,“ segir Kahari. Hann telur að með
því að setja Robert á of háan stall
hafi móðir hans óviljandi orðið þess
valdandi að hann varð utanveltu
meðal jafnaldra sinna. Hún hafi
þannig ýtt undir „hræðilega van-
metakennd sem hann felur á bak við
mælsku sína enn þann dag í dag“.
Stríðni jafnaldranna virðist aðeins
hafa hert Robert í þeim ásetningi að
skara fram úr í náminu. Hann ein-
setti sér að sýna þeim sem stríddu
honum að hann væri þeim æðri og
yrði að lokum kóngur í ríki sínu.
Fékk sjö háskólagráður
Robert Mugabe hóf kennslustörf í
barnaskóla til að framfleyta fjöl-
skyldunni þegar hann var sautján
ára. Hann fór frá heimabænum árið
1945, 21 árs að aldri, staðráðinn í því
að afla sér eins mikillar háskóla-
menntunar og mögulegt væri. Eftir
að hafa kennt í skólum í heimaland-
inu fékk hann styrk til náms í Fort
Hare-háskóla í Suður-Afríku þar
sem hann fékk fyrstu háskólagráð-
urnar, í sagnfræði og enskum bók-
menntum. Hann útskrifaðist þaðan
árið 1951 og hélt hann náminu áfram
í Simbabve og Tansaníu. Mugabe
fékk alls sjö háskólagráður, flestar
þeirra í fjarnámi á vegum Suður-
Afríkuháskóla (Unisa, stærsta há-
skóla Afríku) og Lundúnaháskóla.
Mugabe var boðið í starfsnám fyr-
ir kennara í Gana eftir að landið fékk
sjálfstæði árið 1957. Þar kynntist
hann stóru ástinni í lífi sínu –
kennslukonunni Sally Hayfron – og
þau áttust árið 1961.
Mugabe-hjónin voru mjög náin og
talið er að Sally hafi verið eini vinur
hans í raun. Hún dáði eiginmann
sinn og segja má að hún hafi gengið
honum í móðurstað – tekið við þeirri
köllun móðurinnar að hefja hann til
skýjanna. Hún lést árið 1992.
Álitinn þjóðhetja
Mugabe sneri aftur til heima-
landsins árið 1960 og haslaði sér þá
völl í stjórnmálunum. Hann gekk til
liðs við þjóðfrelsishreyfinguna
ZAPU sem var undir forystu verka-
lýðsleiðtogans Joshua Nkomo. Sú
hreyfing klofnaði og Mugabe gekk í
klofningshreyfinguna ZANU árið
1963. Hann var handtekinn árið eftir
ásamt fleiri forystumönnum hreyf-
inganna tveggja. Næstu tíu árin var
honum haldið í fangelsi.
Í fangelsinu nam Mugabe lög-
fræði og lauk tveimur af háskóla-
gráðunum sjö í fjarnámi. Hann
sýndi einnig leiðtogahæfileika í
fangelsinu, stappaði stálinu í félaga
sína og hjálpaði þeim að nota tímann
til að mennta sig í stað þess að eyða
honum til einskis.
Mugabe var kjörinn leiðtogi
flokks síns, ZANU, árið 1974. Eftir
meira en tíu ára fangelsisvist var
hann leystur úr haldi í desember það
ár ásamt öðrum forystumönnum
flokksins. Árið eftir fór hann til
grannríkisins Mósambík til að taka
þátt í stríðinu gegn stjórn hvíta
minnihlutans í heimalandi sínu.
Flokkur hans og ZAPU, undir for-
ystu Nkomo, tóku höndum saman og
börðust með vopnum frá Sovétríkj-
unum, Kína, Norður-Kóreu, Kúbu
og Víetnam.
Þegar stríðinu lauk árið 1979 litu
margir Afríkumenn á Mugabe sem
þjóðhetju. Flokkur hans, ZANU,
sigraði í þingkosningum árið 1980 og
Mugabe varð þá forsætisráðherra. Í
kosningunum naut flokkur Roberts
Mugabe einkum stuðnings shóna-
manna í norðanverðu landinu. And-
stæðingar hans í ZAPU nutu hins
vegar fylgis ndebele-manna í sunn-
an- og vestanverðu Simbabve.
Þegar Mugabe komst til valda lof-
aði hann að stuðla að sáttum milli
blökkumanna og hvíta minnihlutans
annars vegar og milli flokka blökku-
manna hins vegar. Hann var þó aldr-
ei lýðræðissinni og vildi koma á al-
ræði eins flokks, líkt og vinur hans
Julius Nyerere gerði í Tansaníu eftir
að landið fékk sjálfstæði árið 1961.
Mugabe vildi að sættirnar byggð-
ust á því að hann yrði sjálfur alráður
í landinu. Þeir sem lögðust gegn því
voru álitnir föðurlandssvikarar.
Leiðtogi ZAPU, Nkomo, fékk sæti
í ríkisstjórninni en honum var vikið
úr henni árið 1982. Mugabe sakaði
ndebele-menn um að hafa lagt á ráð-
in um að steypa honum af stóli. Mu-
gabe og bandamenn hans í hernum
notuðu þetta meinta valdaráns-
samsæri sem átyllu til að berja á
ndebele-mönnum í Matabelelandi (í
suðvestur- og vesturhluta Sim-
babve). Talið er að hersveitir Mu-
gabe hafi orðið 10.000 til 20.000
manns að bana á árunum 1982 til
1985, að sögn Réttlætis- og friðar-
nefndar kaþólsku kirkjunnar í Sim-
babve. Hersveitirnar voru einnig
sakaðar um að hafa nauðgað konum
og reynt að svelta íbúa Matabele-
lands til undirgefni.
Leiðtogar flokkanna tveggja
undirrituðu friðarsamning árið 1987
og ZAPU var innlimaður í stjórnar-
flokkinn sem fékk nafnið ZANU-PF.
Sama ár varð Mugabe forseti Sim-
babve og völd embættisins voru auk-
in. Hann var endurkjörinn á árunum
1990, 1996, 2002, 2008 og 2013. Mu-
gabe og bandamenn hans beittu öll-
um brögðum á þessum tíma til að
halda völdunum; ógnunum, ofbeldi,
atkvæðakaupum og kosningasvik-
um.
„Annar sonur Guðs“
Margt bendir til þess að Mugabe
hafi borið hagsmuni þjóðarinnar fyr-
ir brjósti í byrjun. Þrá hans eftir að-
dáun bar hann hins vegar ofurliði og
hann hætti að gera greinarmun á
eigin hagsmunum og þjóðarhag.
Hann leit á sig sem þjóðhetju, gerði
lítið úr hlut annarra í frelsisbaráttu
blökkumanna í Simbvabve og þegar
sótt var að honum sakaði hann and-
stæðinga sína um landráð. Dýrkunin
á leiðtoganum gekk svo langt að
andstaða við hann var einnig álitin
óvirðing við sjálfan Guð.
Ein af skýringunum á því að Mu-
gabe hélt völdunum svo lengi er sú
að stuðningsmenn hans litu á hann
sem guðdómlegan frelsara blökku-
manna í Simbabve og jafnvel allri
Afríku. Aðdáendur Mugabe skír-
skotuðu meðal annars til hefðbund-
innar andatrúar shóna-manna og
drógu upp þá mynd af leiðtoganum
að hann væri arftaki konunga sem
þáðu vald sitt frá öndum forfeðr-
anna. Til að mynda færðu ættbálka-
höfðingjar honum oft gjafir sem áð-
ur voru ætlaðar konungum
shóna-manna. Hann fékk einnig
mikið af því valdi sem höfðingjarnir
höfðu haft í samfélagi shóna-manna,
meðal annars vald til að úthluta jarð-
næði.
Mugabe var einnig spyrtur við
Guð kristinna manna. Stuðnings-
menn hans líktu honum meðal ann-
ars við Móse sem leiddi gyðinga út
úr Egyptalandi. Hann var sagður
vera „nýr Móses“, „messías“, „annar
sonur Guðs“ og „gjöf frá Guði“ sem
hafi valið hann til að frelsa blökku-
menn undan kúgun nýlenduherr-
anna.
Ummæli fyrrverandi biskups í
Harare, Nolberts Kunonga, lýsa vel
afstöðu margra kristinna Simbabve-
manna til Mugabe fyrstu valdaár
hans: „Sem kirkjunnar menn lítum
við hann öðrum augum. Að áliti okk-
ar er hann spámaður Guðs eins og
Móses, sendur til að frelsa Sim-
babvemenn frá viðjum hungurs. Guð
ól hann upp til að endurheimta land
okkar og útdeila því til Simbabve-
manna. Við köllum það lýðræði mag-
ans.“
Dýrkunin á Mugabe sem guð-
legum frelsara var í hámarki fyrstu
valdaárin þegar yfirlýsingar hans
um sættir og fyrirgefningu þóttu
endurspegla boðskap Krists. Hún
minnkaði hins vegar eftir árið 1991
þegar harðnaði á dalnum en virðist
hafa aukist aftur eftir að jarðir voru
teknar af hvítum bændum eftir síð-
ustu aldamót til að útdeila þeim til
blökkumanna. Líklegt er að Mugabe
hafi ákveðið að láta til skarar skríða
gegn hvítu bændunum til að endur-
heimta fyrri ímynd sína sem frelsari
blökkumanna.
„Aðeins Guð getur komið
mér frá völdum“
Mugabe ýtti undir dýrkunina.
Hann leit svo á að hann hefði fengið
vald sitt frá Guði, frekar en frá þjóð-
inni í kosningum, eins og fram kom í
ummælum hans eftir að hann og
flokkur hans biðu ósigur fyrir
stjórnarandstöðuflokknum Lýð-
ræðishreyfingunni (MDC) í þing-
kosningum og fyrri umferð forseta-
kosninga árið 2008: „Aðeins Guð
getur komið mér frá völdum – ekki
MDC, ekki Bretar. Við látum það
aldrei viðgangast að atburður eins
og kosningar hnekki sjálfstæði okk-
ar, aðeins með pennastriki á kjör-
seðil, hnekki fullveldi okkar og öllu
því sem við börðumst fyrir og öllu
því sem félagar okkar fórnuðu lífi
sínu fyrir. Það var Guð sem kom mér
í þessa stöðu, ekki Bretarnir. Þannig
að það er aðeins Guð sem getur
komið mér frá.“
Dýrkaður sem „gjöf frá Guði“
Robert Mugabe þótti einrænt en efnilegt barn Móðir hans leit á hann sem heilagan son Var
seinna álitinn þjóðhetja Stuðningsmenn hans litu á hann sem guðdómlegan frelsara blökkumanna
AFP
Sjálfsdýrkandi Robert Mugabe ávarpar stuðningsmenn sína á útifundi sem haldinn var í Harare 8. nóvember.
Ganaði út í marxisma
» Dvöl Roberts Mugabe í Gana
á árunum 1958 til 1960 hafði
mikil áhrif á hann.
» Gana var þá undir stjórn
sjálfstæðishetjunnar Kwame
Nkrumah, sem var þá álitinn
helsta vonarstjarna Afríku en
kom á alræði eins flokks, gerði
sjálfan sig að forseta til lífs-
tíðar og einangraði landið
efnahagslega.
» Svo fór að lokum að herfor-
ingjar steyptu Nkrumah af
stóli árið 1966 þegar efna-
hagur landsins hafði hrunið.
» Stefna Nkrumah hafði mikil
áhrif á Mugabe, sem kvaðst
hafa meðtekið meginboðskap
marxismans í Gana.