Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 SVIPMYND Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Móðir Roberts litla trúði því að hann væri heilagt barn. Hún taldi að presturinn hennar hefði fært henni þau skilaboð frá Guði að sonur henn- ar yrði mikill leiðtogi þegar fram liðu stundir. Robert litli var feiminn og einför- ull piltur. Hann undi sér við að lesa bækur dægrin löng þegar hin börnin léku sér. Draumur móður hans um að hann yrði virtur leiðtogi rættist að nokkru leyti síðar á ævinni. Hann var um hríð vonarstjarna margra Afríkumanna eftir að hafa leitt þjóð sína til frelsis og átt stóran þátt í því að leysa hana undan kúgun hvíta minnihlutans í heimalandi sínu, Sim- babve. Draumurinn varð síðar að martröð fyrir þjóð hans. Mömmustrákurinn Mugabe Robert Gabriel Mugabe fæddist 21. febrúar 1924 nálægt trúboðsstöð jesúíta í Kutuma í Simbabve, sem hét þá Suður-Ródesía og var ný- lenda Breta. Faðir hans, Gabríel, var smiður, ættaður norðan úr grannríkinu Malaví, en móðir hans, Bona, var komin af shóna-fólki sem er stærsti þjóðernishópur Simbabve. Þau eignuðust sex börn og Robert Mugabe var þriðji elstur. Tveir eldri bræður hans dóu ungir. Straumhvörf urðu í lífi Roberts litla þegar elsti bróðir hans dó. Faðir hans yfirgaf þá fjölskylduna og fór til næststærstu borgar landsins, Bulawayo, þar sem hann fékk vinnu við smíðar. Hann kvæntist þar ann- arri konu og eignaðist með henni þrjú börn. Þessi „svik“ heimilisföð- urins voru reiðarslag fyrir móður Roberts litla. Hún brotnaði niður og megnaði ekki að ala upp börnin fjög- ur án hjálpar. Robert var elstur þeirra og þótt hann væri aðeins tíu ára að aldri kom það í hlut hans að hlaupa í skarðið fyrir föður sinn og elsta bróðurinn. Þar með var hann sviptur æskunni og bláköld alvara lífsins tók við. Elsti bróðir Roberts Mugabe þótti mjög efnilegt barn og var auga- steinn móður sinnar. Eftir að hann dó tók hún að dekra við Robert sem hún taldi að Guð hefði valið til að verða stórmenni. Bona var rammkaþólsk kona og ætlaði sér að verða nunna þegar hún kom til Kutuma á unglingsaldri. Hún féll hins vegar fyrir Gabríel, varð ófrísk og skírði barnið í höfuðið á öðrum erkiengli, Míkael. Hún hafði beðið til Guðs að elsti sonurinn yrði prestur en þegar hann dó batt hún vonir sínar við Robert litla. Ábyrgðin sem hann taldi sig bera á velferð móður sinnar lagðist þungt á þennan feimna og viðkvæma pilt sem taldi sig verða að uppfylla vænt- ingarnar sem hún gerði til hans. Þegar hún tók að fara með hann í messur varð hann næstum eins trú- rækinn og hún. Robert litli dáði móður sína en var reiður út í föður sinn sem sinnti ekk- ert fjölskyldunni, að sögn Donato Mugabe (1926-2007), bróður Rob- erts. Hann gat ekki fyrirgefið föður sínum svikin og þjáningarnar sem hann olli fjölskyldunni. Robert fann huggun í lestri bóka. Hann var mjög alvörugefið og ein- rænt barn, ólíkt bróður sínum og tveimur systrum þeirra sem voru yngri. „Hann var þannig gerður að hann hafði engan áhuga á að eiga marga vini,“ sagði Donato Mugabe. „Bækurnar voru einu vinir hans … Ég gat hlaupið hratt en Robert ekki: hann var latur, var bara alltaf að lesa.“ Hann var einnig ólíkur systkinum sínum að því leyti að hann naut þess að vera í skólanum. Þau bjuggu ná- lægt skóla sem jesúítar stofnuðu fyrir drengi á aldrinum 12 til 18 ára. Robert gat farið þangað hvenær sem hann vildi og skólastjórinn, írski presturinn Jerome O‘Hea, fékk mik- ið álit á þessum bókhneigða pilti. „Mamma sagði okkur að O‘Hea hefði sagt henni að Robert yrði mikilvægur maður, leiðtogi,“ sagði Donato. „Mamma trúði því að presturinn hefði komið með þessi skilaboð frá Guði; hún tók þetta mjög alvarlega … Hún leit á hann sem heilagt barn og vildi að hann yrði prestur.“ Móðir Roberts Mugabe hneigðist til þunglyndis áður en hún missti eiginmanninn og frumburð sinn, ef marka má fyrrverandi kennara í heimabæ hans. Hann segir O‘Hea alltaf hafa fylgst með henni og börn- um hennar vegna þess að hann hafi vitað af þunglyndi hennar. O‘Hea taldi að Robert litli væri óvenjulegum gáfum gæddur, fylgd- ist grannt með námi hans og sá til þess að hann yrði færður upp um bekk um leið og hann þótti tilbúinn til þess. Robert var því alltaf yngri og smærri vexti en bekkjarbræður hans. Það ýtti undir vanmáttar- kennd hans á sama tíma og móðir hans og O‘Hea sáðu fræjum sjálfs- dýrkunar. Robert lagði sig í framkróka við að þóknast móður sinni í öllu og standa sig vel til að fá hrós frá O‘Hea. Skólabræður og systkin hans öfunduðu hann þegar honum var hyglað og gerðu oft grín að honum, kölluðu hann mömmustrák og rag- geit. Dálætið sem móðir Roberts hafði á honum var afbrigðilegt að mati George Kahari, ættingja hans, skólabróður og fyrrverandi prófess- ors í félagsfræði. Kahari telur að móðir Roberts Mugabe hafi stuðlað að ósveigjanleikanum sem einkenndi framgöngu hans síðar á ævinni. „Þegar hann hefur tekið afstöðu verður henni ekki hnikað. Robert ól til að mynda með sér sjúklegt hatur á föður sínum og það breyttist aldr- ei,“ segir Kahari. Hann telur að með því að setja Robert á of háan stall hafi móðir hans óviljandi orðið þess valdandi að hann varð utanveltu meðal jafnaldra sinna. Hún hafi þannig ýtt undir „hræðilega van- metakennd sem hann felur á bak við mælsku sína enn þann dag í dag“. Stríðni jafnaldranna virðist aðeins hafa hert Robert í þeim ásetningi að skara fram úr í náminu. Hann ein- setti sér að sýna þeim sem stríddu honum að hann væri þeim æðri og yrði að lokum kóngur í ríki sínu. Fékk sjö háskólagráður Robert Mugabe hóf kennslustörf í barnaskóla til að framfleyta fjöl- skyldunni þegar hann var sautján ára. Hann fór frá heimabænum árið 1945, 21 árs að aldri, staðráðinn í því að afla sér eins mikillar háskóla- menntunar og mögulegt væri. Eftir að hafa kennt í skólum í heimaland- inu fékk hann styrk til náms í Fort Hare-háskóla í Suður-Afríku þar sem hann fékk fyrstu háskólagráð- urnar, í sagnfræði og enskum bók- menntum. Hann útskrifaðist þaðan árið 1951 og hélt hann náminu áfram í Simbabve og Tansaníu. Mugabe fékk alls sjö háskólagráður, flestar þeirra í fjarnámi á vegum Suður- Afríkuháskóla (Unisa, stærsta há- skóla Afríku) og Lundúnaháskóla. Mugabe var boðið í starfsnám fyr- ir kennara í Gana eftir að landið fékk sjálfstæði árið 1957. Þar kynntist hann stóru ástinni í lífi sínu – kennslukonunni Sally Hayfron – og þau áttust árið 1961. Mugabe-hjónin voru mjög náin og talið er að Sally hafi verið eini vinur hans í raun. Hún dáði eiginmann sinn og segja má að hún hafi gengið honum í móðurstað – tekið við þeirri köllun móðurinnar að hefja hann til skýjanna. Hún lést árið 1992. Álitinn þjóðhetja Mugabe sneri aftur til heima- landsins árið 1960 og haslaði sér þá völl í stjórnmálunum. Hann gekk til liðs við þjóðfrelsishreyfinguna ZAPU sem var undir forystu verka- lýðsleiðtogans Joshua Nkomo. Sú hreyfing klofnaði og Mugabe gekk í klofningshreyfinguna ZANU árið 1963. Hann var handtekinn árið eftir ásamt fleiri forystumönnum hreyf- inganna tveggja. Næstu tíu árin var honum haldið í fangelsi. Í fangelsinu nam Mugabe lög- fræði og lauk tveimur af háskóla- gráðunum sjö í fjarnámi. Hann sýndi einnig leiðtogahæfileika í fangelsinu, stappaði stálinu í félaga sína og hjálpaði þeim að nota tímann til að mennta sig í stað þess að eyða honum til einskis. Mugabe var kjörinn leiðtogi flokks síns, ZANU, árið 1974. Eftir meira en tíu ára fangelsisvist var hann leystur úr haldi í desember það ár ásamt öðrum forystumönnum flokksins. Árið eftir fór hann til grannríkisins Mósambík til að taka þátt í stríðinu gegn stjórn hvíta minnihlutans í heimalandi sínu. Flokkur hans og ZAPU, undir for- ystu Nkomo, tóku höndum saman og börðust með vopnum frá Sovétríkj- unum, Kína, Norður-Kóreu, Kúbu og Víetnam. Þegar stríðinu lauk árið 1979 litu margir Afríkumenn á Mugabe sem þjóðhetju. Flokkur hans, ZANU, sigraði í þingkosningum árið 1980 og Mugabe varð þá forsætisráðherra. Í kosningunum naut flokkur Roberts Mugabe einkum stuðnings shóna- manna í norðanverðu landinu. And- stæðingar hans í ZAPU nutu hins vegar fylgis ndebele-manna í sunn- an- og vestanverðu Simbabve. Þegar Mugabe komst til valda lof- aði hann að stuðla að sáttum milli blökkumanna og hvíta minnihlutans annars vegar og milli flokka blökku- manna hins vegar. Hann var þó aldr- ei lýðræðissinni og vildi koma á al- ræði eins flokks, líkt og vinur hans Julius Nyerere gerði í Tansaníu eftir að landið fékk sjálfstæði árið 1961. Mugabe vildi að sættirnar byggð- ust á því að hann yrði sjálfur alráður í landinu. Þeir sem lögðust gegn því voru álitnir föðurlandssvikarar. Leiðtogi ZAPU, Nkomo, fékk sæti í ríkisstjórninni en honum var vikið úr henni árið 1982. Mugabe sakaði ndebele-menn um að hafa lagt á ráð- in um að steypa honum af stóli. Mu- gabe og bandamenn hans í hernum notuðu þetta meinta valdaráns- samsæri sem átyllu til að berja á ndebele-mönnum í Matabelelandi (í suðvestur- og vesturhluta Sim- babve). Talið er að hersveitir Mu- gabe hafi orðið 10.000 til 20.000 manns að bana á árunum 1982 til 1985, að sögn Réttlætis- og friðar- nefndar kaþólsku kirkjunnar í Sim- babve. Hersveitirnar voru einnig sakaðar um að hafa nauðgað konum og reynt að svelta íbúa Matabele- lands til undirgefni. Leiðtogar flokkanna tveggja undirrituðu friðarsamning árið 1987 og ZAPU var innlimaður í stjórnar- flokkinn sem fékk nafnið ZANU-PF. Sama ár varð Mugabe forseti Sim- babve og völd embættisins voru auk- in. Hann var endurkjörinn á árunum 1990, 1996, 2002, 2008 og 2013. Mu- gabe og bandamenn hans beittu öll- um brögðum á þessum tíma til að halda völdunum; ógnunum, ofbeldi, atkvæðakaupum og kosningasvik- um. „Annar sonur Guðs“ Margt bendir til þess að Mugabe hafi borið hagsmuni þjóðarinnar fyr- ir brjósti í byrjun. Þrá hans eftir að- dáun bar hann hins vegar ofurliði og hann hætti að gera greinarmun á eigin hagsmunum og þjóðarhag. Hann leit á sig sem þjóðhetju, gerði lítið úr hlut annarra í frelsisbaráttu blökkumanna í Simbvabve og þegar sótt var að honum sakaði hann and- stæðinga sína um landráð. Dýrkunin á leiðtoganum gekk svo langt að andstaða við hann var einnig álitin óvirðing við sjálfan Guð. Ein af skýringunum á því að Mu- gabe hélt völdunum svo lengi er sú að stuðningsmenn hans litu á hann sem guðdómlegan frelsara blökku- manna í Simbabve og jafnvel allri Afríku. Aðdáendur Mugabe skír- skotuðu meðal annars til hefðbund- innar andatrúar shóna-manna og drógu upp þá mynd af leiðtoganum að hann væri arftaki konunga sem þáðu vald sitt frá öndum forfeðr- anna. Til að mynda færðu ættbálka- höfðingjar honum oft gjafir sem áð- ur voru ætlaðar konungum shóna-manna. Hann fékk einnig mikið af því valdi sem höfðingjarnir höfðu haft í samfélagi shóna-manna, meðal annars vald til að úthluta jarð- næði. Mugabe var einnig spyrtur við Guð kristinna manna. Stuðnings- menn hans líktu honum meðal ann- ars við Móse sem leiddi gyðinga út úr Egyptalandi. Hann var sagður vera „nýr Móses“, „messías“, „annar sonur Guðs“ og „gjöf frá Guði“ sem hafi valið hann til að frelsa blökku- menn undan kúgun nýlenduherr- anna. Ummæli fyrrverandi biskups í Harare, Nolberts Kunonga, lýsa vel afstöðu margra kristinna Simbabve- manna til Mugabe fyrstu valdaár hans: „Sem kirkjunnar menn lítum við hann öðrum augum. Að áliti okk- ar er hann spámaður Guðs eins og Móses, sendur til að frelsa Sim- babvemenn frá viðjum hungurs. Guð ól hann upp til að endurheimta land okkar og útdeila því til Simbabve- manna. Við köllum það lýðræði mag- ans.“ Dýrkunin á Mugabe sem guð- legum frelsara var í hámarki fyrstu valdaárin þegar yfirlýsingar hans um sættir og fyrirgefningu þóttu endurspegla boðskap Krists. Hún minnkaði hins vegar eftir árið 1991 þegar harðnaði á dalnum en virðist hafa aukist aftur eftir að jarðir voru teknar af hvítum bændum eftir síð- ustu aldamót til að útdeila þeim til blökkumanna. Líklegt er að Mugabe hafi ákveðið að láta til skarar skríða gegn hvítu bændunum til að endur- heimta fyrri ímynd sína sem frelsari blökkumanna. „Aðeins Guð getur komið mér frá völdum“ Mugabe ýtti undir dýrkunina. Hann leit svo á að hann hefði fengið vald sitt frá Guði, frekar en frá þjóð- inni í kosningum, eins og fram kom í ummælum hans eftir að hann og flokkur hans biðu ósigur fyrir stjórnarandstöðuflokknum Lýð- ræðishreyfingunni (MDC) í þing- kosningum og fyrri umferð forseta- kosninga árið 2008: „Aðeins Guð getur komið mér frá völdum – ekki MDC, ekki Bretar. Við látum það aldrei viðgangast að atburður eins og kosningar hnekki sjálfstæði okk- ar, aðeins með pennastriki á kjör- seðil, hnekki fullveldi okkar og öllu því sem við börðumst fyrir og öllu því sem félagar okkar fórnuðu lífi sínu fyrir. Það var Guð sem kom mér í þessa stöðu, ekki Bretarnir. Þannig að það er aðeins Guð sem getur komið mér frá.“ Dýrkaður sem „gjöf frá Guði“  Robert Mugabe þótti einrænt en efnilegt barn  Móðir hans leit á hann sem heilagan son  Var seinna álitinn þjóðhetja  Stuðningsmenn hans litu á hann sem guðdómlegan frelsara blökkumanna AFP Sjálfsdýrkandi Robert Mugabe ávarpar stuðningsmenn sína á útifundi sem haldinn var í Harare 8. nóvember. Ganaði út í marxisma » Dvöl Roberts Mugabe í Gana á árunum 1958 til 1960 hafði mikil áhrif á hann. » Gana var þá undir stjórn sjálfstæðishetjunnar Kwame Nkrumah, sem var þá álitinn helsta vonarstjarna Afríku en kom á alræði eins flokks, gerði sjálfan sig að forseta til lífs- tíðar og einangraði landið efnahagslega. » Svo fór að lokum að herfor- ingjar steyptu Nkrumah af stóli árið 1966 þegar efna- hagur landsins hafði hrunið. » Stefna Nkrumah hafði mikil áhrif á Mugabe, sem kvaðst hafa meðtekið meginboðskap marxismans í Gana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.