Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
SVARTUR FÖSTUDAGUR
15% afsláttur af öllum vörum í dag
Laugavegi 61, Kringlunni og Smáralind
Boðið verður upp á léttar veitingar í
verslun okkar á Laugavegi 61
Opið til:
kl. 21:00 - Laugavegi 61
kl. 19:00 - Kringlan / Smáralind
WWW.JONOGOSKAR.IS SÍMI: 552-4910
Ellen Ragnarsdóttir
ellen@mbl.is
„Húsið sem við búum í var byggt í
kringum 1900 og er mjög fallegt.
Upprunalega var það skóli, en það er
í gotneskum endurreisnarstíl. Seinna
meir, eða í kringum seinni heims-
styrjöldina, var því breytt í spítala og
var svo loks breytt í íbúðir. Þetta er
mjög áhugaverð bygging með
skemmtilega fortíð,“ segir Katrín
Lilja þegar hún er beðin að lýsa
heimkynnum sínum.
„Stíllinn á heimilinu er blanda af
bæði mínimalískum munum, fal-
legum gamaldags húsgögnum og
munum sem gefa heimilinu hlýju og
karakter. Við eigum mikið af kertum
og plöntum og finnst gott að halda
heimilinu huggulegu og heimilis-
legu.“
Katrín og kærastinn hennar
starfa bæði sem ljósmyndarar, en
meðleigjandi þeirra er stílisti. Þrátt
fyrir það er ekki yfirdrifið magn ljós-
mynda upp um alla veggi.
„Furðulegt en satt þá er ekki
mikið um ljósmyndir á veggjunum.
Við sem búum hér vinnum þó öll í
ljósmynda- og listabransanum, svo að
það er nokkuð um myndir hér og þar
frá okkur sjálfum,“ segir Katrín
Lilja, en skyldi hún eiga sér einhvern
eftirlætis-skrautmun?
„Ég held rosalega mikið upp á
Cobra kertastjakana mína frá Georg
Jensen. Ég á líka HK kertastjakana
frá honum, fallega skál og fleira. Allt í
sama silfraða stílnum. Annars söfn-
um við Rory, kærastinn minn, mun-
um sem við höfum með okkur heim
frá útlöndum. Þá kaupum við yfirleitt
gamla bolla, plaköt eða kertastjaka á
flóamörkuðum,“ segir Katrín Lilja,
og bætir við að svefnherbergið þeirra
sé eftirlætis staðurinn hennar á heim-
ilinu.
„Gluggarnir eru mjög háir og
fallegir en þeir snúa beint að rúminu.
Það er dásamlegt að vakna á morgn-
anna, draga gluggatjöldin frá, sjá
trén, fuglana og himininn fyrir utan á
meðan maður drekkur kaffi uppi í
rúmi.“
Katrín Lilja segir að talsverður
munur sé á íslenskum heimilum og
þeim sem finna má í London, þá sér í
lagi stærðin.
„Íbúðir hér úti eru langoftast
ansi litlar og því notar fólk hvern
krók og kima. Það er ekki óalgengt að
stofur séu nýttar sem svefnherbergi,
og því eru heimilin hér úti gjarnan án
stofu. Allavega á heimilum ungs fólks
sem er í námi eða að hefja ferilinn
sinn,“ segir Katrín Lilja, en hvað ger-
ir hús að heimili að hennar mati?
„Það er voða persónubundið
held ég, en það sem mér finnst gera
hús að heimili eru góð ilmkerti, hlý-
leiki og ekta íslenskt ullarteppi.“
Notalegt hjá
íslenskum ljós-
myndara í London
Ljósmyndarinn Katrín Lilja Ólafsdóttir hefur verið búsett í
London síðastliðin fimm ár. Hún hefur komið sér vel fyrir í
borginni og býr í fallegri íbúð í Camberwall-hverfinu ásamt
kærasta sínum og vinkonu þeirra.
Heimilislegt Katrín hefur komið sér vel fyrir. Góss Skötuhjúin safna gömlum munum.
Uppáhalds Katrín Lilja heldur mik-
ið upp á Cobra-stjakana sína.
Samansafn Munirnir eru úr ýmsum áttum.
Ljósmynd/Katrín Lilja
Notalegt Svefnherbergið er eftirlætis staður Katrínar Lilju.
Birta Gluggarnir í íbúðinni eru fallegir.