Morgunblaðið - 24.11.2017, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
Ellen Ragnarsdóttir
ellen@mbl.is
„Seinna fór ég að taka myndir af vin-
um mínum og varð alveg heilluð af
ljósmyndun. Eftir að ég byrjaði að
mynda fór boltinn að rúlla, ég fór að
vinna í allskonar verkefnum og hef
ekki stoppað síðan,“ segir Katrín
sem hefur mikið til fengist við tísku-
ljósmyndun. Undanfarið hefur hún
þó einbeitt sér að heimildamynda-
og ferðaljósmyndun.
„Ég vil taka fyrir heillandi við-
fangsefni á fjarlægum stöðum og
segja allskonar sögur út frá því. Ný-
lega vann ég verkefni fyrir tímarit
hér í Vancouver, en þau sendu mig
til Great Bear skógarins til þess að
mynda og skrifa litla grein. Ég lærði
að lifa á landinu, fór í þyrluferð upp á
jökul og hitti kanadískan frum-
byggja af Kwakwaka’wakw-
ættbálkinum sem fræddi mig um
sögu Kanada. Sú ferð var alveg ein-
stök og ég áttaði mig á því að það er
eitthvað sem mig langar að vinna
meira við í framtíðinni,“ segir Katrín
og bætir við að fjölbreytnin sé ein-
mitt það skemmtilegasta við vinnuna
hennar.
„Öll verkefni sem ég tek að mér
eru öðruvísi, þannig að engir tveir
dagar eru eins. Maður er ávallt að
vinna með nýju fólki á nýjum stöð-
um. Ég á líka mjög erfitt með að
vera kyrr á sama stað of lengi, þann-
ig að vinnan mín hentar mér mjög
vel.“
Þegar Katrín er spurð hvert
hún sæki sér innblástur nefnir hún
afa sinn, Kristján Björnsson. Þá seg-
ir hún einnig að ferðalög og nýjar
upplifanir víkki sjóndeildarhringinn.
„Fólkið sem er næst mér er það
mikilvægasta í lífinu. Afi minn,
Kristján Björnsson, er alltaf eitt-
hvað að bralla og hann hættir aldrei
að veita mér innblástur. Ég reyni
líka að ferðast eins mikið og ég get,
að upplifa nýja menningu og um-
hverfi gerir mann vitrari og um-
hyggjusamari gagnvart öðru fólki,“
segir Katrín, sem sjálf flutti til Kan-
ada fyrir nokkrum árum.
„Ég flutti til Vancouver því að
ég sá fleiri tækifæri í ljósmyndun
þar heldur en hér heima. Ég hitti
líka manninn minn á Íslandi fyrir
fimm árum, og ég ákvað að flytja út
til að vera með honum eftir að hafa
verið í fjarsambandi í nokkurn tíma.
Það var svolítil áhætta að flytja til
nýs lands, en það heppnaðist og ég
er búin að vera hér í fjögur ár.“
Katrín segir að tískubransinn í
Vancouver sé afar frábrugðinn þeim
íslenska og að hún sæki jafnan inn-
blástur að heiman.
„Tískubransinn í Vancouver er
allt öðruvísi en á Íslandi. Hann er
ekki eins skapandi og allir klæða sig
frekar eins. Íslensk hönnun stendur
svo mikið út úr og hönnuðir hugsa út
fyrir rammann, en það sést á götum
Reykjavíkur. Ég kem heim til að fá
minn tískuinnblástur,“ bætir Katrín
við. Þegar hún er beðin um að rifja
upp eftirminnilegasta verkefnið
stendur ekki á svörum, enda úr
mörgu að velja.
„Í sumar sendi tímaritið Vice
Kanada mig til Tókýó þar sem ég var
í þrjár vikur til að taka myndir af
japönskum atvinnuglímuköppum,
eða það sem kallast „pro wrestling“
á ensku. Það var rosalega gaman að
sjá þetta fólk keppa, þó að ofbeldið
hafi verið rosalega mikið. Ég tók
einnig myndir af keppni sem kallast
„Death Match“ þar sem menn ráðast
hver á hver annan með löngum ljósa-
perum, skærum og alls kyns vopn-
um. Þeim blæddi mikið og allt bakið
á einum kappanum var þakið örum
eftir glímuna. Maður fékk alveg
rosalega adrenalín „kikk“ við að taka
myndir af þessu. Ég lenti líka tvisvar
í því að kvenkyns glímukappar hopp-
uðu á mig þegar ég var að skjóta ná-
lægt hringnum, en það var reyndar
alveg óvart,“ segir Katrín.
„Önnur eftirminnileg taka var
þegar ég myndaði Finn Wolfhard
fyrir Montecristo Magazine, en hann
er einn þeirra sem leika í þáttaröð-
inni Stranger Things. Við vorum að
skjóta á drungalegu móteli í Austur-
Vancouver og ég hafði aðeins 40
mínútur til að gera heilan tískuþátt
með honum. Það lukkaðist ekkert
smá vel, þótt ég hafi verið rosalega
stressuð. Svo gerði ég heimildamynd
um afa minn fyrir tveimur árum, það
var alveg æðislegt að getað fest sögu
hans og orð á filmu,“ segir Katrín,
sem hefur komið víða við. Hún á sér
þó að sjálfsögðu draumaverkefni,
eins og gengur og gerist.
„Mig langar alveg rosalega mik-
ið að taka myndir af hönnuðum og
húsum þeirra fyrir Apartamento
Magazine. Fólkið sem það tekur fyr-
ir er svo áhugavert og einstakt og
það heillar mig rosalega mikið. Svo
væri líka gaman að koma heim og
vinna eitthvað skemmtilegt verkefni
í kringum íslenska hönnun, ég hef
ekki gert það í frekar langan tíma.“
Eins og áður sagði hefur Katrín
verið búsett í Kanada undanfarin ár,
en þó hún kunni vel við sig fær hún
af og til heimþrá.
„Ég er alltaf með smá heimþrá
og draumurinn er að geta eytt sumr-
unum á Íslandi og verið restina af
árinu í Kanada. Veturnir hérna eru
svo mildir og það fer rosalega sjald-
an niður fyrir frostmark, þannig að
það er erfitt að koma heim þegar
maður er búinn að venjast því. Að
geta ræktað sitt eigið grænmeti
næstum allan ársins hring er líka
frekar mikill lúxus,“ segir Katrín.
Áhugasamir geta fylgst með
ævintýrum Katrínar á heimasíðu
hennar www.katrinbraga.com, auk
þess sem hún heldur úti Facebook-
síðu undir sama nafni.
Eftirminnilegast að mynda
japanska glímukappa
Áhugi Katrínar Bragadóttur á ljósmyndun kviknaði á unglingsárunum eftir að hafa smellt
nokkrum myndum af vinkonu sinni, fyrirsætunni Brynju Jónbjarnadóttur. Upp frá því varð
ekki aftur snúið og hefur hún varla lagt myndavélina frá sér síðan.
Ljósmynd/Katrín Braga
Ljósmynd/Katrín Braga
Stranger Things Í sumar myndaði Katrín
unga leikarann Finn Wolfhard.
Ljósmynd/Katrín Braga
Fjölbreytni Engir tveir dagar eru eins í vinnunni hjá Katrínu.
Pier-Alexandre Gagné
Starfsframi Katrín Braga starfar sem ljós-
myndari í Kanada og víðar.
Ljósmynd/Katrín Braga
Upphafið Ljósmyndaferillinn hófst þegar
Katrín myndaði Brynju Jónbjarnadóttur.
Tíska Katrín
hefur unnið fyrir
mörg tímarit.
27. nóvember er netmánudagur!
ALLT LÆKKAR
Stærsta netútsala ársins nálgast!
www.heimkaup.is | Smáratorgi 3 | 201 Kóp. | S: 550-2700