Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 Einföld og snjöll hönnun Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Tvöfaldur, ryðfrír 7.500 kr. Sápuskammtari Þrefaldur, ryðfrír 9.900 kr. Sápuskammtari Spegill 14 cm, 10 x stækkun 13.500 kr. Tobba Marinós tobba@mbl.is Fyrir 2 350-450 g þorskhnakkar hveiti 1 tsk. grillkrydd/aromat 2 msk., karríduft, meira ef vill 1,5 tsk. chilliduft 80 g blaðlaukur 150 g græn epli, hýðislaus í ten- ingum 150 ml hvítvín – sjóða niður um 1/3 50 g parmesan-ostur 300 ml, rjómi salt og svartur pipar eftir smekk parmesan-ostur eftir smekk til þykk- ingar smjör til steikingar Borið fram með kartöflusmælki, rucola, lime og parmesan osti stráð yfir til skreytingar. Þorskhnakki er skorinn í 4-5 bita og velt upp úr hveiti (gott að hafa einhvers konar grillkrydd eða bara aromat úti í hveitinu). Best er að nota stóra pönnu, ca 30 cm, og steikja fiskinn þar til hann er fallega brúnn. Kryddið er sett á þá hlið þorsks- ins sem snýr upp, svo blaðlauknum bætt út í, því næst er sett hvítvín og það soðið niður um 1/3 – Þá er sósunni bætt út í pönnuna, epli skorin í teninga (létt steikt, ekki brúnuð), parmesan-ostur rifinn gróft og rjómi (venjulegur) settur út í, (má bæta meiri parmesan-osti og karríi við eftir smekk þar til sósan er þykk og falleg). – Þá eru kartöflur (sem búið er að sjóða) settar til hliðar á pönnuna 1 lúka rucola og/eða spínat í miðja pönnuna og lime sneiðar ofan á fiskbit- ana. Svo er hægt að reka smiðs- höggið á pönnuna með því að strá rifnum parmesan-osti yfir Þarna eruð þið komin með bragðmikinn og ljúffengan fiskrétt á pönnu. Gott er að drekka kalt hvítvín með þessum rétti. Fiskipanna með eplum, parmesan og rjóma Sælgæti Hvern hefði grunað að epli væru svona frábær í fiskrétti? Við höfum ósjaldan messað um fiskiást okkar á Mess- anum sem er vinsælt veit- ingahús í Lækjargötu og úti á Granda. Með einstakri lagni náðum við að blikka Snorra Sigfinnsson, mat- reiðslumann staðarins, sem deildi með okkur einni af sín- um unaðslegu uppskriftum. Ef einhver elskar kartöflumús þá er það Ameríkaninn og þessi uppskrift skorar hátt þarlendis og því ekki við öðru að búast en að Íslendingurinn verði jafn hrifinn. Það er stórvinur Matarvefsins, rapparinn 2 Chainz, sem deilir þessari uppskrift með lesendum Morgunblaðsins. 2 Chainz er rappari, þriggja barna faðir og nokkuð lunkinn í eldhúsinu eins og sjá má. Þetta er uppskrift að kartöflumús með hvítlauk sem hann er sérlega hrifinn af. Upp- skriftiner skotheld að öllu leyti og ef þið viljið slá í gegn í næsta matarboði þá mætið þið að sjálfsögðu með kartöflumús að hætti 2 Chainz. Silkimjúk hvítlauks kartöflumús 500-700 g úr hágæða kartöflum. Helmingurinn flysjaður. 30 g ósaltað smjör 250 ml rjómi 3 msk. maukaður hvítlaukur 3 msk. sýrður rjómi söxuð steinselja sjávarsalt og svartur pipar Aðferð: 1. Ef þú ert með mikið skart á fingrunum skaltu fjarlægja það og leggja var- lega til hliðar. 2. Skerið kartöflurnar í ferninga og setjið smjörið saman við. 3. Setjið kartöflurnar í pott með köldu vatni sem búið er að salta. Látið suðuna koma upp. 4. Sjóðið kartöflurnar af ákefð þar til hægt er að stinga gafflinum í gegnum þær. 5. Meðan kartöflurnar eru að sjóða skal blanda saman rjómanum, hvítlauk, salti og pipar í lítinn gullpott. Bætið smjöri saman við og látið suðuna koma upp. 6. Sigtið kartöflurnar í gullsigti og setjið svo í gullskál. 7.Þegar því er lokið skaltu spila lagið „Feds Watching“ og fagna hvað lífið gengur vel. 8. Þegar þú ert búin/n að fagna skaltu setja sýrða rjómann og slatta af stein- selju út á kartöflurnar. Síðan skaltu hella rjómablöndunni hægt yfir og hræra vel þannig að kartöflurnar maukist vel. 9. Kryddið til með salti og pipar. 10. Berið fram í gullskál og skreytið með afganginum af steinseljunni. Mikill matmaður Rapparinn 2 Chainz elskar góðan mat. Skotheld kartöflumús að hætti 2 Chainz Gull sem glóir 2Chainz er á því að maturinn bragðist betur sé hann borinn fram í gulli en við látum það ekki slá okkur út af laginu þótt við séum hjartanlega sammála honum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.