Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 62
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hulda Bjarnadóttir
hulda@mbl.is
Guðrún Árný er þriggja barna móðir
sem segist nú vilja fara að koma sér
meira á framfæri á tónlístarveitunum
og vinna markvisst í að markaðssetja
sig. Hún segist hafa verið mikið í
einkasamkvæmum og nóg að gera
þar, en á móti sé hún ekki mjög áber-
andi opinberlega. Hún vill breyta því.
„Ég hef alltaf viljað fjölskyldulífið og
þessi huggulegheit og viljað gera
þetta með. En núna finn ég að ég er
komin með löngun til að demba mér
meira í þetta. Og ég er að fara að
kanna það hvernig ég kem öllum þess-
um lögum sem ég hef sungið yfir árin
til dæmis inn á Spotify,“ segir Guðrún
sem starfar sem tónlistarkennari við
Hvaleyrarskóla en þegar hún kemur
fram er það helst í einhvers konar at-
höfnum. „Ég hef undanfarin ár verið
mikið í athöfnum; skírnum, brúð-
kaupum, jarðarförum og það er líka
vegna þess að ég er píanóleikari og
spila á orgel líka. Þannig að ég er oft
ráðin sem organisti, söngvari og und-
irleikari,“ segir Guðrún.
Fernir tónleikar í desember
Guðrún heldur nú í desember
ferna jólatónleika. Hún mun koma
fram í Glerárkirkju á Akureyri,
Stykkishólmskirkju, Lindakirkju í
Kópavogi og Víðistaðakirkju í Hafn-
arfirði. Á öllum tónleikunum mun
hún taka á móti góðum gestum
ásamt því að koma fram með gesta-
kórum af stöðunum en hún mun sjálf
sjá um undirleikinn. „Ég söng með
Stykkishólmskórnum í athöfn núna í
október. Mér fannst þau svo æðisleg
og spurði þau því hvort þau vildu
vera með,“ segir Guðrún og bætir við
að þau hafi tekið vel í það og þetta
verði virðisauki fyrir báða aðila.
Þannig hafi hugmyndin um að vinna
með kórum af þeim svæðum sem hún
heimsækir kviknað. Hún segir enga
tvenna tónleika verða eins með þessu
fyrirkomulagi. Og þegar talið berst
að kynningarmálunum í kringum
hverja tónleika hlær hún og bætir við
„það verður aldrei tómt“, og vísar til
þess að allavega muni aðstandendur
kórmeðlima mæta! Það er mikil
vinna að halda svona tónleika. „Mað-
ur vill vera búinn að festa kerfið,
taka kirkjurnar frá, hitta fólkið, æfa,
gera lagalistana, útsetja þetta og
keyra út plaköt og sækja í prent,“
segir Guðrún en þetta er auðvitað
allt til viðbótar við vinnu alla virka
daga og fjölskyldulífið. „Maður á að
vinna til að lifa, ekki lifa til að vinna,“
bætir Guðrún við og bendir þannig á
að maður verði líka að muna að njóta
gæðastunda inn á milli atsins. Miða-
sala á tónleikana er hafin á tix.is.
Fernir tónleikar í desember
Söngkonan Guðrún Árný mun skapa hugljúfa jóla-
stemningu á fernum tónleikum í desember. Hún er
löngu komin í jólaskap enda þegar tónlistarmaður
ákveður að halda tónleika í kringum jól þá hefst
lagaval og undirbúningur strax um sumarið.
Törn Guðrún Árný heldur
ferna tónleika í desember.
62
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
Black Friday!
af öllum yfirhöfnum
föstudag og laugardag
30% afsláttur
Laugavegi 77, 101 Reykjavík | Sími 551 3033 Flottir
í fötum