Morgunblaðið - 24.11.2017, Page 67

Morgunblaðið - 24.11.2017, Page 67
MINNINGAR 67 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 ✝ KristbjörgMaría Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 4. febr- úar 1931. Hún lést 15. nóvember 2017 á Hjúkrunarheim- ilinu Eiri. Foreldrar henn- ar voru Jón Svein- björnsson vélstjóri og Ágústa Magnús- dóttir saumakona. Bræður hennar eru Sveinbjörn, látinn, Magnús, látinn, og Helgi Þór. Hún giftist Ármanni Kristjánsdóttur. 3) Óskar, kvæntur Báru Elíasdóttur. Þeirra börn eru Arna, Ármann og Gunnar Kristinn. Arna á Sig- urð Vopna, Báru Rán og Hugin með Viggó M. Sigurðssyni. Kristbjörg ólst upp í Skerja- firði og á Laugavegi 159. Hún lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskólanum og tók kennarapróf frá Kennaraskól- anum. Hún lærði einnig list- meðferðarfræði í Englandi. Hún kenndi myndmennt lengi í Álfta- mýrarskóla. Kristbjörg kenndi börnum á Barnaspítala Hrings- ins í rúm tuttugu ár, allt þar til hún lét af störfum vegna aldurs árið 1999. Síðustu árin bjó hún á Hjúkrunarheimilinu Eiri. Útför hennar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag. 24. nóvember 2017, klukkan 13. Óskarssyni 1953, þau skildu. Hún giftist Stefáni Þor- móðssyni 1978, hann lést 1999. Börn Krist- bjargar og Ár- manns eru 1) Jón Agnar 2) Gunnar Skúli, kvæntur Helgu Þórðar- dóttur. Þeirra börn eru Magnús Ingi, Þórður Skúli, Kristbjörg María og Guðlaug Anna. Þórður Skúli á Vigdísi Kötlu með Selmu B. Fyrir rúmri viku ákvað hún amma mín, amma í Mosó, að nú væri hennar tími kominn til að kveðja. Tímamót sem þessi eru þó miklu frekar ástæða til að rifja upp góðar minningar held- ur en að syrgja, og ætla ég að gera það hér. Amma í Mosó var líklega hálfgerður hippi þegar ég komst til vits þó að ég hafi ekki áttað mig á því fyrr en löngu síðar. Hún og Stebbi áttu stórt tréhús í Mosfellsbæ sem var al- gjör ævintýraveröld fyrir okkur barnabörnin. Í garðinum rækt- uðu þau gulrætur, grænkál og brokkólí og í stóra gróðurhúss- bragganum var alltaf hægt að ná sér í heimaræktuð vínber og tómata. Þetta var hluti af hug- sjón hennar fyrir heilsunni og náttúrunni, en í þeim málum var hún langt á undan sinni samtíð. Í bílskúrnum, sem ég held reyndar að hafi aldrei ver- ið notaður sem slíkur, átti amma vinnustofu þar sem hún kenndi okkur að mála á postulín á milli þess sem hún hélt mynd- listarnámskeið fyrir vinkonur sínar. Á litla blettinum í garð- inum sem ekki var notaður und- ir einhvers konar rækt hjálp- uðumst við svo við að byggja lítinn rauðan kofa, hlaðinn torfi á hliðunum. Þar var ekkert lítið gaman að leika sér, sérstaklega þar sem einn glugginn var opn- anlegur sem okkur þótti mikið sport. Maður gat alltaf treyst á það að þegar amma og Stebbi náðu í okkur á gamla Subaru- inum sínum að sá dagur yrði ævintýri ólíkt öllum öðrum. Amma sá að miklu leyti um allt listrænt uppeldi okkar krakkanna í Langagerðinu. Í dag spilar Gunnar á trompet eins og atvinnumaður og hefur áhuginn aldrei verið sterkari, af því hefði líklega aldrei orðið hefði amma ekki birst með lít- inn trompet í dyrunum einn daginn. Við Arna nutum góðs af píanóinu sem hún gaf heimilinu, fyrst lærði hún á það í nokkur ár og svo tók ég, litli bróðir við. Postulínið sem við máluðum hjá þér verður alltaf í miklu uppá- haldi, það minnir okkur líka á fallegu dagana í Mosó. Hvíldu í friði, elsku amma, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Ármann. Komið er að því að kveðja góða vinkonu. Kristbjörgu kynntist ég fyrir ca. 38 árum eða þegar við bjuggum í sömu götunni í Árbænum. Ég var þá aðeins átta ára og byrjuðu kynni okkar á því að ég aðstoð- aði Kristbjörgu og Stefán við að fara út að labba með hundana þeirra. Í bílskúrnum kenndi Kristbjörg fólki að mála á postulín og hún leyfði mér oft að setjast með sér að mála á allskonar hluti. Þessir hlutir fylgja mér en í dag. Við áttum góðar spjallstundir í bílskúrn- um og urðum fínar vinkonur þrátt fyrir mikinn aldursmun. Við brölluðum ýmislegt saman og fórum meðal annars til Par- ísar, en hana hafði dreymt um að ferðast þangað. Á þessum tíma var hún farin að eiga erfitt með gang og var því ákveðið að drífa í ferðinni. Ætlunin var að fara með fararstjóra en þegar komið var til Parísar var engin farastjórn þessa helgi. Krist- björg vissi hvað hún vildi sjá og við skipulögðum ferðina og fór- um með strætó út um alla París. Þetta var mjög skemmtileg ferð. Við sáum mikið, fórum á listasöfn og sátum líka á kaffi- húsum og drukkum í okkur borgina. Þegar Kristbjörg fór að eldast fórum við í bíltúra eða sátum bara heima og fengum okkur kaffi. Um leið og ég þakka Krist- björgu samfylgdina í gegnum árin votta ég fjölskyldunni allri mína innilegustu samúð. Hanna Berglind. Manngæska, háttvísi og hóg- værð voru einkennandi í fari Kristbjargar Maríu mágkonu minnar eða Böggu eins og hún var alltaf kölluð. Bagga var yfirveguð í fasi og lét ekkert slá sig út af laginu. Ekki var hún þó skaplaus, var sjaldan svarafátt og oft einstak- lega orðheppin. Ef henni fannst einhver vera að taka rangar ákvarðanir varðandi mikilvæga hluti sagði hún jafnan álit sitt með festu. Hún tók próf frá Myndlista- og handíðaskólanum og síðan kennarapróf. Bagga starfaði sem myndlistarkennari í Álfta- mýrarskóla um tveggja áratuga skeið. Síðar kenndi hún börnum sem lágu inni á barnadeild Landspítalans myndmennt og fór með þeim yfir heimanámið. Ég kynntist Böggu þegar hún var komin yfir fimmtugt, en ég var tæpum tuttugu og fimm árum yngri. Þrátt fyrir aldursmuninn urðum við fljót- lega góðar vinkonur. Hún og Stebbi, seinni maður hennar, tóku mér opnum örmum frá byrjun. Þau fluttu í lítið timburhús með stórum garði í Mosfells- bænum um 1984, það byggði hún með hjálp fjölskyldunnar. Það var gestkvæmt í litla vina- lega húsinu, heimilið var lát- laust en mjög hlýlegt. Þar var margt spjallað og barst talið oft að málefnum eins og lífi eftir dauðann, en þau hjónin deildu áhuga á andlegum málum. Fjöl- skylda mín bjó í sömu götu og börnin okkar fóru iðulega til þeirra þegar þau sáu að einhver var heima og fengu oft hress- ingu eða vínber í munninn. Þau hjónin kölluðu oft í okkur í kaffi. Þá bauð Stebbi upp á sín- ar víðfrægu heilsupönnukökur sem voru bornar fram með rab- arbarasultu og þeyttum rjóma. Bagga var kennari af guðs náð. Það var hennar líf og yndi að hafa börn í kringum sig og stússa í kringum þau. Hún hafði líka gott lag á að fá þau til að vinna og lempa þau til ef þau voru óstýrilát. Hún naut sín í kennslunni og hafði mikinn drif- kraft. Þegar „venjulegt“ fólk var alveg búið eftir vinnudaginn virtist hún enn full orku og hélt m.a. námskeið í postulínsmálun í bílskúrnum heima hjá sér nokkur kvöld í viku. Fjölskyld- an naut líka góðs af og voru margir ungir sem eldri orðnir nokkuð lunknir með pensilinn. Á sumrin tók garðræktin við. Þau hjónin hugsuðu vel um heilsuna og voru samstillt í ræktun á matjurtum í garðinum til eigin nota. Einnig ræktuðu þau vínber, tómata og blóm í stóra gróð- urhúsinu. Í garðinum mátti sjá breiður af spergilkáli, svo mikið að maður skildi ekki hvernig hægt væri að borða allt þetta magn. En þau nýttu allt græn- metið, snöggsuðu það og settu í litlu frystikistuna sína. Bagga var einstök manneskja og ég er þakklát fyrir að hafa kynnst henni og fengið að njóta góðvildar hennar og hjálpsemi. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Sólveig. Kristbjörg María Jónsdóttir ✝ GuðmundurÁrmann Egg- ertsson fæddist 11. desember 1965. Hann lést 13. nóvember 2017 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Guðmundur Ár- mann var sonur hjónanna Ásdísar Skúladóttur, f. 1936, d. 1982, og Eggerts Guð- mundssonar, f. 1931. Systkini Guðmundar Ármanns eru: 1) Óli Már, f. 1962, maki: Eydís 1965. Börn: Freyja, f. 1998, og Fjóla, f. 2004. Guðmundur Ármann kvænt- ist árið 2007 Sif Jónsdóttur nuddara, f. 20. desember 1964, d. 1. janúar 2015. Börn þeirra eru Arnar Jón, f. 2001, og Katrín Ósk, f. 2006. Guðmundur Ármann ólst upp í Kópavogi og gekk í Digranes- og Víghólaskóla. Eftir grunnskóla lá leiðin í Iðn- skólann í Reykjavík þar sem hann útskrifaðist sem stál- smiður, eða ketil- og plötu- smiður eins og það hét þá. Síðar lauk hann námi í stál- virkjagerð og lauk einnig námi í tækniteiknun. Hann vann við stálsmíði mestallan sinn starfs- feril. Útför Guðmundar Ármanns fer fram frá Garðakirkju í dag, 24. nóvember 2017, klukkan 13. Dögg Sigurðar- dóttir, f. 1975. Börn: Ása Októvía, f. 2010, og Þórunn Una, f. 2013. Fyrir átti Óli Már Önnu Margréti, f. 1988. 2) Vignir, f. 1963, maki LiljaBjörk Kristjánsdóttir, f. 1967. Börn: Krist- ján Páll, f. 1989, Ásdís Huld, f. 1993, og Heiðrún Arna, f. 2002. Fyrir átti Vignir Hrefnu Rún, f. 1984. 3) Birna, f. 1969, maki Rúnar Hrafn Ingimarsson, f. Elsku pabbi. Þegar ég byrja að hugsa um þig fyllist hugur minn af tærum minningum. Pottþétt bestu minn- ingarnar okkar saman eru um milljón samtals en ef ég byrja að hugsa meira um þig held ég að það sé miklu stærri tala, kannski milljón skrilljón og apaskrilljón. Þú varst yndislegur pabbi, bróð- ir, sonur, tengdasonur, eiginmað- ur, frændi og vinur. Þú varst all- gjör snyrtipinni og þú varst elskaður af öllum. Ég sagði á hverjum degi við þig: „Ég elska þig af öllu hjarta og farðu var- lega.“ Þín dóttir, Katrín Ósk. Nú er komið að kveðjustund. Elskulegi bróðir minn, Gummi, var fjórum árum eldri en ég, fæddur í desember eins og ég. Það eru margar góðar æsku- minningar með Gumma, öll sam- eiginlegu afmælin sem við héld- um, fyrst sem börn og svo síðar partí þegar við vorum orðin eldri. Við vorum fjögur systkinin og ólumst upp í litlu húsi í Suður- hlíðum Kópavogs, sem var hálf- gerð sveit í þá daga. Okkur fannst paradís að vera þar. Síðar fluttum við í Stórahjallann en þar byggðu foreldrar okkar hús. Heima var oft glatt á hjalla, mikill gestagangur hjá okkur krökkunum og að auki dvaldi oft hjá okkur móðurfólkið frá Aust- fjörðum. Þegar Gummi var 16 ára lést móðir okkar úr krabbameini eftir stutt veikindi, það var mikill missir. Það var gott að hafa Gumma á heimilinu, alltaf svo bóngóður, samviskusamur og duglegur. Árið 2004 var hann svo hepp- inn að kynnast henni Sif. Sif átti þá lítinn dreng, Arnar Jón, sem Gummi gekk í föðurstað. Árið 2006 eignuðust þau Katrínu Ósk og hvað ég var ánægð að sjá þau daginn sem hún fæddist. Þá sat Gummi með hana í fanginu og brosti út að eyrum. Gummi og Sif áttu vel saman, bæði svo yfir- veguð og róleg og bjuggu börnum sínum yndislegt heimili í Ár- bænum. Árið 2007 greindist Sif með krabbamein og aftur í lok árs 2012. Stuttu eftir þá greiningu, greindist ég sjálf með krabba- mein og þá var ómetanlegur styrkurinn sem Sif veitti mér. Minn mesti kvíði var að tilkynna dætrum mínum og fjölskyldu veikindi mín. Hún tók í hendurnar á mér, horfði í augun á mér og sagði: „Birna þetta er ekkert mál, börn eru ótrúleg. Þetta á allt eftir að ganga vel.“ Kvíðinn hvarf og ég gat á auðveldan hátt látið fólkið mitt vita. Elsku Sif lést rúmum tveimur árum síðar, blessuð sé minning hennar. Þegar Gummi hringdi í mig í fyrrasumar og sagði mér að hann væri með krabbamein, féllust mér hendur. Var hægt að trúa því? Hann gekk í gegnum erfiðar meðferðir en nú í byrjun nóvem- ber var okkur tjáð að hann ætti ekki langt eftir. Við Katrín Ósk sátum hjá Gumma eftir þessar fréttir, þá var grátið en á sama tíma sagði hún svo fallega við pabba sinn: „Það er alla vega eitt gott sem kemur út úr þessu, það er að þú færð að hitta mömmu.“ Fjórum dögum síðar kvaddi hann. Eftir sitjum við öll og syrgjum. Manni finnst óréttlætið vera al- gert. Ósk Gumma og barnanna var að þau fengju að búa hjá mér og minni fjölskyldu. Mér þótti afar vænt um þá bón. Fjölskyldan hef- ur stækkað mikið á rúmri viku. Við Rúnar eigum tvær dömur og nú hafa þau systkinin bæst við. Þeim fylgdu einnig tvær kisur og hamstur. Já, fjölskyldan stækk- aði á einni viku úr því að vera fjögur yfir í það að vera níu, með dýrum talið. Nú segi ég eins og Sif sagði við mig: „Börn eru ótrú- leg, þetta á allt eftir að ganga vel.“ Blessuð sé minning míns yndislega bróður Gumma, hún lifir í hjörtum okkar sem eftir lifum. Birna. Stillt vakir ljósið í stjakans hvítu hönd, milt og rótt fer sól yfir myrkvuð lönd. Ei með orðaflaumi mun eyðast heimsins nauð. Kyrrt og rótt í jörðu vex korn í brauð. (Jón úr Vör) Einhver undarleg hending réði því að þetta ljóð Jóns úr Vör varð á vegi mínum fyrir fáeinum dögum og varla er hægt að finna eftirmæli sem betur hæfa um hann Gumma frænda minn. Hann Gummi var stilltur og hóg- vær, orðfár og orðvar, mildur og bjartur. Yfir honum var kyrrð og ró. Gummi þóttist ekki eiga heimtingu á neinu, líf hans var ekki eftirsókn eftir vindi. Og lífið hefði með sanni mátt vera örlát- ara á daga sína honum til handa. Þá daga hefði hann sest í stofu- hornið að morgni með kaffiboll- ann og fylgst með þegar birti yfir Bláfjöllunum. Þá daga hefði hann haldið áfram að gefa börnunum sínum allt og sig allan. Börnin hans og hennar elsku- legu Sifjar hafa nú misst báða foreldra sína á tæplega þremur árum. Það er nöturlegra en orð fá lýst. Nú næðir um hug þeirra og hjarta en þau munu ávallt eiga í brjósti sér þá mildi og hlýju sem Gummi og Sif gáfu þeim ómælt af. „Milt og rótt fer sól yfir myrkvuð lönd.“ Ég bið þess að minninganna sól verði Arnari Jóni og Katrínu Ósk leiðarljós á lífsins vegi. Ég bið þess líka að styrk hönd leiði þá ástvini alla sem syrgja með þeim og veita þeim nú skjól. Gumma frænda fylgi ég úr hlaði og kveð með ritningarversi sem honum er ætlað: Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. (Matt. 5.8.) Oddný Halldórsdóttir. Guðmundur Ár- mann Eggertsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HULDA SIGURLÁSDÓTTIR, Goðheimum 9, Reykjavík, áður Vallarbraut 8, Hvolsvelli, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 31. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug. Margrét Einarsdóttir Helgi Kristófersson Árni Einarsson Aðalheiður Einarsdóttir Björgvin Sigurðsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ARNAR ÞORLEIFSSONAR frá Húsey. Laufey Ólafsdóttir, börn, tengdabörn og afabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 lín- ur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hve- nær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.