Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 78

Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 78
78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 Gripið verður niður á nokkrum stöð- um í bókinni. Þegar hér er komið sögu starfar Gunnar sem verkamað- ur hjá frönskum verktökum við lagningu Búrfellslínu. Ég var ekki búinn að vera lengi með Frökkunum þegar Guðmundur jaki hringdi aftur og sagði: „Heyrðu, mig vantar trúnaðarmann í Dags- brún og þú ert upplagður í það; sá eini sem getur talað frönskuna.“ Ekki fór ég að segja nei við þennan gamla fjölskylduvin og tók þetta því án málalenginga að mér. Grunlaus um út í hvað ég væri að fara. Þetta var hroðaleg útgerð hjá Frökkunum, bílarnir bremsu- lausir og allt í steik, þannig að ég gerði fljótlega „stræk“ eftir að ég var orðinn trúnaðarmaður. Og það oftar en einu sinni. Jafnvel í tvo til þrjá daga í senn. Landsvirkjun tapaði sér enda bráðlá á því að afhenda rafmagn í Straumsvík. Þetta vakti mikla at- hygli og við lentum meðal annars á forsíðu Tímans, einhverjir gaurar. Ég var harður á mínu enda stefndi í mikil vandamál við framkvæmdina. Frakkarnir leigðu húsnæði undir skrifstofu á Bergstaðastrætinu og þangað fór ég um vorið. „Þeir vilja tala við okkur og þú verður að koma að austan, Gunnar minn. Ég get þetta ekki einn,“ sagði Guðmundur af sinni alkunnu hægð. Þegar við komum þarna inn var eins og yfir- verkfræðingurinn hefði séð sjálfan andskotann. Hann bauðst strax til að borga mér laun út verkið en ég yrði ekki meira á staðnum. Það þótti mér kostaboð og vildi endilega taka því. Af því varð þó ekki, því Guð- mundur jaki hnippti í mig og sagði: „Er ekki rétt að þú farir aðeins fram, Gunnar minn?“ Og ég gerði það. Meðan ég var frammi var samið upp á nýtt og það endaði á því að ég fékk heimild til að setja ofan í við frönsku verkstjórana og leggja þeim línurnar ef einhver vandamál kæmu upp. Sem ég og gerði en það var samt mun sjaldnar en áður. Og það var svo merkilegt að ég varð annað- hvort næstseinasti eða seinasti mað- urinn til að fara þegar verkinu var lokið. Þetta var mikil lífsreynsla. Þarna var ég sumsé kominn í trúnaðarmannaráð Dagsbrúnar og þegar kosið var til Alþingis studdi ég auðvitað Guðmund J. Guðmundsson. Ég var ekki að kjósa kommana, heldur hann persónulega. Svo það sé alveg á hreinu. Það tókst mikil vin- átta með okkur Guðmundi gegnum þessa orrahríð sem var á köflum mjög erfið. Guðmundi hafði til dæm- is verið boðið út til Frakklands til að kynna sér hvernig staðið væri að svona verki og lá eftir það undir ámæli innan verkalýðsforystunnar fyrir að hafa þegið mútur. Það var vitaskuld af og frá. Menn voru alltaf að reyna að koma höggi á Guðmund og margt skelfilegt um hann sagt. Allt ómaklegt. Einar Oddur Leiðir okkar Einars Odds lágu víðar saman en í pólitík. Eftir snjó- flóðið á Flateyri kom ég vestur til að byggja varnargarða og gleymi ekki þeirri reynslu meðan ég lifi. Þetta var nokkrum mánuðum eftir flóðið, og samfélagið ennþá í algjöru sjokki. Það var bókstaflega erfitt að ná sam- bandi við fólk, það gekk bara um í leiðslu. Ég var sjálfur meira og minna á staðnum frá maí og fram í nóvember 1997. Einar Oddur greiddi götu okkar, leyfði okkur að vera inni í vinnubúðum sem hann átti og maður var reglulega í kaffi og mat hjá honum og eiginkonu hans, Sigrúnu Gerðu Gísladóttur. Við keyrðum á vöktum og ég var með mjög gott lið. Verkið var erfitt í miklum bratta en sóttist samt ágæt- lega og við lukum við það að mestu síðla árs 1997, fyrir utan smávægi- legan frágang árið eftir. Þessi sam- vera gerði okkur Einar Odd ennþá nánari. Þess má til gamans geta að tíu kíló af mér lágu eftir í brattanum eftir sumarið. Sumarið 2007 hafði ég ekki heyrt í Einari Oddi í svolítinn tíma og ákvað að slá á þráðinn til hans vestur á laugardegi, þar sem við Vigdís vor- um stödd í sumarbústað austur í Grímsnesi. Það var svarað og ég heyrði sagt halló en síðan bara klikk. Það var enginn á hinum enda lín- unnar en ég heyrði samt í fólki á bak við. Einar Oddur var þá í fjallgöngu og hafði hnigið niður í þann mun sem hann náði símanum. Brynhildur dóttir hans var næst á undan honum og kom aðvífandi, eins Sigrún Gerða. Þess utan voru læknir og að ég held hjúkrunarfræðingar með í göngunni og allt var reynt til að hnoða Einar Odd og bjarga honum. Án árangurs. Hann varð ekki nema 64 ára gamall. Stóð uppi í hárinu á Davíð Davíð hafði mikinn aga á þing- flokknum og leið engin undanhlaup. Því kynntist ég best þegar fjölmiðla- frumvarpið umdeilda kom fram árið 2004. Eins og frægt er gerði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lögin afturræk. Þetta var um sumar, í júní, og Davíð kallaði þingflokkinn þegar í stað saman til fundar. „Við verðum að koma með nýtt frumvarp og keyra það í gegn. Ekkert kjaft- æði!“ sagði Davíð sem var býsna langt frá því að vera skemmt yfir gjörningi forsetans. „Já og amen,“ sagði þingflokkurinn. Eins og alltaf. Nema ég. Ég kvaddi mér hljóðs og benti honum vinsamlega á að hann væri ekki í neinum tengslum við fólkið í landinu. Lögin væru sann- arlega kórrétt og nauðsynleg en eigi að síður væri það algjört „harakiri“ að fara strax í þessa vegferð. Við yrðum að bíða í eitt ár og vinna okk- ar vinnu betur, ekki síst varðandi kynningarhliðina. Davíð brjálaðist gjörsamlega og veittist að mér með þvílíkum skömmum og óþverra að ég hef aldrei heyrt annað eins. Ég leyfði honum að klára en svaraði síð- an fullum hálsi. Efnislega var það á þá leið að hann vildi kannski hafa þetta eins og í Þýskalandi en að ég væri í þessum flokki til að tjá skoð- anir mínar, hvort sem mönnum fyndist þær réttar eða rangar. Rétt eins og hann. Ég væri í pólitík til að láta gott af mér leiða, bæði fyrir flokkinn minn og landið. Klykkti svo út með þessum orðum: „Ég hef ekk- ert að gera í þessum flokki ef ég þarf að búa við þessa skoðanakúgun!“ Davíð varð rauður sem karfi og sleit fundi í fússi. Um nóttina var hann síðan fluttur á spítala þar sem hann greindist með krabbamein. Þá fékk ég móral. Davíð var greinilega ekki í jafnvægi. Við Davíð rifumst stundum en aldrei eins og þarna. Þann tíma sem ég sat á Alþingi reyndi enginn annar í þingflokknum að standa uppi í hárinu á honum nema þá helst Einar Oddur; menn voru mígandi hræddir um að missa af einhverjum póstum. Foringjaholl- ustan var algjör. Andlegt og líkamlegt ofbeldi Brynhildur eldri dóttir Gunnars lærði stjórnmálafræði í Háskóla Ís- lands og á þeim tíma kynntist hún fyrrverandi eiginmanni sínum, Guð- jóni Guðmundssyni, og þau stofnuðu saman auglýsingastofu sem varð til þess að Brynhildur hætti námi. Reksturinn gekk ágætlega enda eru þau bæði fær á sínu sviði. Þau eign- uðust þrjár dætur, Vigdísi, Valdísi og Sóldísi. Við Vigdís áttuðum okkur snemma á því að ekki var allt með felldu í sambandi Brynhildar og Guðjóns. Hún fór að loka meira og meira á okkur og við óttuðumst að hún væri beitt bæði andlegu og lík- amlegu ofbeldi. Við reyndum að ganga á hana en hún ýtti okkur bara lengra og lengra frá sér. Virtist al- veg heilaþvegin. Guðjón gengur ekki heill til skógar andlega og það var skelfilegt að horfa upp á þetta án þess að fá rönd við reist. Svona gekk þetta árum saman og stundum heyrðum við ekki mán- uðum saman, jafnvel árum saman, í dóttur okkur. Guðjón sá til þess að hún sleit öll tengsl við okkur og vini sína. Það má vel orða það svo að hann hafi haldið henni og dætrunum í stofufangelsi. Þetta var mjög erfitt, sérstaklega fyrir Vigdísi. Mæður taka svona lagað alltaf meira inn á sig. Til allrar hamingju náði Brynhild- ur að safna styrk og slíta sig frá eig- inmanni sínum, buguð á sál og lík- ama. Það var fyrir um tveimur árum. Það var mikil heift í skilnaðinum, þurfti til dæmis að leita til skipta- stjóra, en núna er þetta um garð gengið. Sem betur fer. Það hefur tekið Brynhildi tíma að ná sér eftir þessa erfiðu lífsreynslu en hún er öll að koma til. Maður er aftur farinn að kannast við þessa stelpu sem er mjög glaðlynd að upp- lagi. Eftir á að hyggja skilur hún ekki hvernig hún gat látið bjóða sér svona framkomu en kerfisbundið niðurbrot verður þess valdandi að ólíklegasta fólk getur lent í slíkum aðstæðum. Maðurinn bak við röddina Í ævisögu Gunnars Birgissonar, sem Orri Páll Ormarsson hefur skrifað, kemur fram að Gunnar ólst upp við lítil efni og var hálf- gerður einstæðingur. Fljótlega kom í ljós að hann er hamhleypa til verka, hann braust til mennta og þegar hann fann fjölina sína sem verkfræðingur og síðar stjórnmálamaður var fátt sem gat stöðvað hann. Kostaboð Gunnar, Guðmundur J. Guðmundsson og Þórarinn V. Þórarinsson stóðu í ströngu við gerð þjóðarsáttarsamninganna. Samherjar Gunnar Birgisson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á fundi í Valhöll 2008.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.