Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 89

Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 Wonder Kvikmynd byggð á metsölubók R.J. Palacios, Wonder eða Undur. Hún segir af ungum dreng sem þjáist af sjaldgæfum litningagalla sem hefur afmyndað andlit hans og þarf hann að þola fordóma og útskúfun vegna þessa, m.a. í skólanum. Leikstjóri er Stephen Chbosky og með aðal- hlutverk fara Jacob Tremblay, Julia Roberts og Owen Wilson. Metacritic: 68/100 Coco Teiknimynd sem fjallar um tónelsk- an, mexíkóskan dreng, Miguel, sem þráir að verða tónlistarmaður líkt og Ernesto de la Cruz sem á að hafa verið stórkostlegasti gítarleikari og söngvari Mexíkó á sínum tíma. Fjölskylda Miguels lítur hins vegar á tónlist sem bölvun á ættinni. Leikstjórar eru Adrian Molina og Lee Unkrich. Metacritic: 80/100 Bíófrumsýningar Undur og tónlistardraumar Úr Undri Kvikmyndin er byggð á samnefndri metsölubók. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Jane Telephonda heldur útgáfutónleika vegna nýút- kominnar fyrstu breiðskífu sinnar, Boson of Love, í Tjarnarbíói í kvöld kl. 21 en platan kom út á stafrænu formi fyrir sléttri viku. Hljómsveit- in var í upphafi dúett skipaður hjónunum Ívari Páli Jónssyni og Ásdísi Rósu Þórðardóttur, stofnaður árið 2015 en ári síð- ar bættust sjö karlar í hópinn, þeir Albert Þorbergsson, Brynjar Páll Björnsson, Grétar Már Ólafsson, Hans Júlíus Þórðarson, Hólmsteinn Ingi Halldórsson, Pétur Þór Sig- urðsson og Rafn Jóhannesson. Bo- son of Love, eða Bóseind ástarinn- ar, er gefin út af bandaríska úgáfu- fyrirtækinu Mother West og á plötunni kemst laga- og textahöf- undur hennar, Ívar Páll, að þeirri niðurstöðu að kærleikurinn sé til- gangur lífsins. 19 börn samanlagt „Jane Fonda er auðvitað stofnun í vestrænni menningu og skemmti- leg leikkona og þetta var einhvers konar orðaleikur í kringum nafnið á henni,“ svarar Ívar Páll þegar hann er spurður út í nafn hljóm- sveitarinnar. En hvernig hljómsveit er Jane Telephonda? „Ef ég á að reyna að lýsa tónlistinni þá er þetta poppskotið indírokk með vís- an í indí-tónlist síðustu 30 ára en með áhrifum frá allri poppsögunni. Ég var á sínum tíma mjög mikill Bítla-maður og hélt mikið upp á McCartney. Það eru alls konar áhrif í þessu.“ Þau hjónin gáfu fyrst út tvö lög og myndbönd í nafni Jane Tele- phonda og segir Ívar að hann hafi viljað gera meira og því fengið æskufélaga sína til liðs við þau hjón svo úr varð níu manna hljómsveit. „Samanlagt held ég að við eigum ein 19 börn þannig að það er meira en að segja það að fá allt þetta fólk á æfingar einu sinni í viku,“ segir hann. – Þið neydduð Friðrik Þór Frið- riksson, kvikmyndaleikstjóra og -framleiðanda, til að taka þátt í einu myndbandanna ykkar, við lag- ið „Transmuted Saltness“, ekki satt? „Konseptið var að hann sæti á bekk að lesa Fiskifréttir í róleg- heitum. Þá komum við hjónin að og erum að taka upp tónlistar- myndband. Við setjumst við hliðina á honum og förum að trufla hann. Honum líkar þetta ekki, hann stendur upp ætlar að ganga í burtu og þá eltum við hann og myndavél- in með. Það hefst mikill eltinga- leikur sem endar með því að við komum fyrir horn og þar er Frið- rik með byssu og skýtur okkur og drepur og í ljós kemur að hann er leigumorðingi,“ útskýrir Ívar Páll og bætir svo við að Friðrik Þór sé góður vinur hans og því hafi legið beint við að fá hann til að leika í myndbandinu. „Hann er stórkost- legur fyrir framan myndavélina en ekki síðri en fyrir aftan hana,“ seg- ir Ívar Páll sposkur. Hvernig varð Higgs-sviðið til? – Lögin á plötunni fjalla ekki öll um ástina, þrátt fyrir plötutitilinn? „Nei en kærleikurinn er samt rauður þráður og í þessum textum er ég að velta fyrir mér tilgangi lífsins og af hverju við erum hérna. Pælingin á bak við titilinn á plöt- unni er að við manneskjurnar erum alltaf að leita að ástæðunni fyrir veru okkar hérna, hvernig þetta kom allt saman til og hvernig heim- urinn varð til. Við erum að gera vísindalegar tilraunir eins og í stóra sterkeindahraðlinum í Sviss. Þar erum við að skjóta saman ein- hverjum rafeindum og finna ein- hverja Higgs-bóseind. Það er auð- vitað mjög mikil uppgötvun og þá vitum við að til er eitthvert orku- svið, Higgs-svið, sem gefur öllum hlutum massa. En hvað segir það okkur þegar allt kemur til alls? Hvernig varð Higgs-sviðið til? Þetta er endalaus þekkingarleit og við komumst kannski ekkert nær grundvallarsannleikanum,“ segir Ívar Páll. Aftur á móti getum við mann- fólkið vitað að það sem gefur lífinu gildi sé kærleikurinn og sam- hygðin. „Þannig að þótt við kom- umst ekki að neinum vísinda- eða trúarlegum sannleika þá vitum við það og eigum að helga líf okkar kærleikanum. Þannig kemur þetta nafn, Boson of Love.“ – Þú talar eins og prestur … „Já, já, ég er æðstiprestur í þessum níu manna söfnuði,“ segir Ívar Páll kíminn og er í kjölfarið spurður hvort hann sé að mýkjast með árunum. „Maður er alltaf upp- fullur af einhverjum pælingum og auðvitað þegar maður kemst á miðjan aldur – ég er nú 43 ára – fer maður að leiða hugann að þess- um grundvallarsannleik og tilgangi lífsins. Maður eignast börn og áttar sig á því að maður er ekki upphaf og endir alls heldur hlekkur í mjög langri keðju og fyllist auðmýkt og áttar sig vonandi betur á tilgangi lífsins og tilverunnar.“ Leðurklæddur einhyrningur Einn lagatitla plötunnar er öðr- um forvitnilegri, „Leather Uni- corn“ eða „Leðureinhyrningur“. Ív- ar Páll er beðinn um að segja lesendum í stuttu máli um hvað texti lagsins fjallar. „Það er saga um sveinbarn sem fæðist með hnúð á enninu. Sirkusstjóri hneppir hann í þrældóm, heldur honum föngnum og sýnir hann sem leðureinhyrn- inginn, klæðir hann upp í eitthvert leðurdress. Það er svo sem ekki meiri saga í því lagi,“ segir Ívar Páll og af raddblænum mætti halda að hann sæti fyrir svörum í þjón- ustuveri ríkisskattstjóra. – Textinn er varla byggður á persónulegri reynslu þinni … „Nei, þetta er bara eitthvað sem vellur upp úr manni þegar maður er að glamra á gítarinn.“ – Þú færð ekki svona hugmyndir í vinnunni á daginn? „Nei, það er lítið um leður- klædda einhyrninga hérna í Lands- virkjun,“ segir Ívar Páll sem sinnir á daginn starfi sérfræðings á sam- skiptasviði Landsvirkjunar en rokkar og poppar á kvöldin. Fjölmenn Jane Telephonda var upphaflega dúett hjónanna Ívars Páls Jónssonar og Ásdísar Rósu Þórðardóttur en svo bættust við sjö karlar. Hér sést hljómsveitin fyrir framan Alþingishúsið, hjónin grímulaus fyrir miðju. Æðstiprestur í níu manna söfnuði  Jane Telephonda fagnar útgáfu plötunnar Boson of Love SÝND KL. 3.30SÝND KL. 3.30SÝND KL. 3.30 SÝND KL. 5.50, 8, 10.15 SÝND KL. 5.30 SÝND KL. 10.25 Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 5.30, 8, 10.20 Jóla öfin í ár? N gHERRA Ð FRÁ: 900,- gj Collection arc-tic Retro ÚRI Fyrir DÖMUR o VER 29. Nature ICQC 2018-20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.