Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Blaðsíða 2
Hvað er að frétta? Allt gott að frétta hér. Ég er að kenna tónlist í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ og á fullu líka með Kolrössu. Við vorum að vekja skessuna upp af værum draumi og endurútgefa fyrstu breiðskífu okkar Drápu á vínyl og disk til að halda upp á 25 ára afmæli hljómsveitarinnar. Svo er ég líka byrjuð aftur að læra í tón- listarskóla með dóttur minni í Suzuki, á blokkflautu sem er brjálað stuð. Hvernig fyrirbæri var Kolrassa krókríðandi? Hún var eiginlega mögnuð þó svo ég segi sjálf frá. Það var einhver femínískur frumkraftur sem braust þarna út í þessari hljómsveit. Tónlistin var í raun mjög frumleg í sinni einlægni. Þetta er einhverskonar rokk-þjóðlaga- pönk-indí með nokkrum góðum öskrum. Hverjar hafa verið bestu stundirnar með bandinu? Það eru svo margar góðar stundir að það er erfitt að velja. Við ólumst svolítið upp í þessari hljómsveit þar sem við byrjuðum svo ungar að spila. Við ferðuðust um allan heim, hittum alls- konar skemmtilegt fólk og skemmtum okkur ærlega en ég held að bestu stundirnar hafi verið þegar við vorum að skapa eitthvað saman í æfingarhúsnæðinu, semja og fíflast. Hvernig tilfinning er að gefa aftur út Drápu? Hún er svolítið skrítin en skemmtileg líka. Það er búið að vera mjög gaman að heimsækja þennan heim aftur sem leynist í þessari plötu og skoða lögin aftur. Þetta er eins og dagbók fjögurra 16 ára stelpna í Keflavík árið 1992 og einskonar tímavél inn í þann hugarheim þeg- ar maður fer að hlusta. Hverju ertu stoltust af varðandi feril Kolrössu? Að við gerðum það sem við vildum og létum engan stoppa okkur. Við bjuggum til helling af tónlist sem ég er mjög stolt af og fengum tæki- færi til að ferðast um heiminn, spila og gefa út plötur. Eftirlætisjólalagið? Mitt uppáhaldsjólalag er auðvitað Last Christmas með George heitnum Michael. Það verður ljúfsárt að heyra það í ár en það er samt alltaf best! Morgunblaðið/Eggert ELÍZA GEIRSDÓTTIR NEWMAN SITUR FYRIR SVÖRUM Eins og dagbók 16 ára stelpna í Keflavík Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.11. 2017 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Fyrir barneignir er ómögulegt að gera sér í hugarlund hvað bíður manns.Ábyrgð sem er ólík allri annarri ábyrgð sem við áður höfum haft á okkarherðum. Gleði sem er ólík þeirri sem við höfum upplifað áður. Og öðruvísi verkefni en við héldum að fylgdu því að eignast barn. (Til dæmis sagði mér eng- inn áður en ég varð mamma að stór hluti af mínum tíma myndi fara í að leita að týndum flíkum í skólastofum og íþróttahúsum! Það var verkefni sem ég vissi ekki að biði mín í lífinu … en tek auðvitað við með brosi á vör). Við getum undirbúið okkur fyrir það að ala upp börn að einhverju leyti en sí- fellt bætast við nýjar áskoranir þegar á hólminn er komið, stórar og smáar. Flest- ar skemmtilegar en aðrar erfiðari, eins og gengur. Börnin eru ofarlega í huga núna þegar jólin nálgast. Spennan sem fylgir því að setja skóinn út í glugga, skreyta heimilið og baka piparkökur magnast með hverj- um deginum. Sú spenna er jákvæð og henni fylgir bara kitl í maga hjá börn- um og eftirvænting eftir einhverju skemmtilegu. En spennan sem magn- ast hjá okkur fullorðna fólkinu er gjarnan í formi áhyggna og kaupæðis. Þrátt fyrir að hafa ekki verið móðir nema í níu ár hefur eitthvað síast inn. Mig langar að deila nokkrum atriðum um það hvernig við getum dregið úr vondu jólaspennunni og hleypt þessari góðu kitlandi spennu að. Númer eitt: Þótt börn telji sig vanta ýmislegt þá er það almennt mjög slæm hugmynd að taka þau með í búðir. Þau þreytast snemma á röltinu og fyrr eða síð- ar kemur þreytan fram sem pirringur, sem er þá gjarnan tekinn út á foreldrum og eða gestum og gangandi. Eitt það besta sem við getum gefið börnunum fyrir jólin er að sleppa þeim við að fara með í búðarferðir. Númer tvö: Það er engin mýta að einfalt er best. Róleg kvöldstund yfir spili og kakóbolla getur gert meira fyrir börnin en stórkostlegar jólaskemmtanir, jafnvel þótt þær séu ætlaðar börnum. Númer þrjú: Á aðventunni er samveran sérstaklega mikilvæg, því börn skynja spennuna sem gjarnan leggst yfir samfélagið í desember. Við fullorðna fólkið þurfum ekki að mæta á allar jólaskemmtanir eða reyna að hlaða viðburðum í dagatalið með tilheyrandi þörf fyrir pössun hér og þar. Verum frekar meira heima og hjálpum börnunum að ná að slaka á í jólaösinni frekar en að auka á spennuna. Látum aðventuna snúast um smæstu þjóðfélagsþegnana, ekki um okk- ur stóra fólkið. Thinkstock Bugað barn í búðarkerru Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Eitt það besta sem viðgetum gefið börn-unum fyrir jólin er aðsleppa þeim við að fara með í búðarferðir. Ólafía Einarsdóttir Driving home for Christmas. SPURNING DAGSINS Hvað er besta jólalagið? Guðfinnur Skæringsson Jólasveinar ganga um gólf. Morgunblaðið/Ásdís Birna Ósk Kristinsdóttir Þau eru svo mörg en ég myndi segja All I want for Christmas is you. S. Davíð Þór Guðmundsson Santa Claus is coming to town en af íslenskum finnst mér Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Golli Kolrassa krókríðandi, skipuð upprunalegum meðlimum flytur fyrstu plötu sína, Drápu, á Húrra um helgina, laugardagskvöldið 25. nóvember en 25 ár eru síðan hún kom fyrst út. 27. nóv- ember verður Drápa svo endurútgefin á vínyl og geisladisk en hún hefur verið ófáanleg í áraraðir. Smekkleysa dreifir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.