Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Blaðsíða 39
26.11. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Samræða verður í Listasafni Íslands á sunnudag kl. 14 um stórt verkefni danska listamannsins Asgers Jorn sem kynnt er þar á sýningu. Stein- grímur Eyfjörð, Unnar Örn Jónas- son og Jón Proppé taka þátt. Goddur – Guðmundur Oddur Magnússon prófessor veitir á sunnudag kl. 14 leið- sögn á vegum Náttúruminjasafns Íslands á sýningunni Sjónarhorn – ferðalag um ís- lenskan myndheim sem er í Safna- húsinu við Hverfisgötu. Yean Fee Quay, sýningarstjóri við Listasafn Reykjavíkur, verður á sunnudag kl. 14 með leiðsögn um sýninguna Stór-Ísland. Á henni eru verk erlendra listamanna sem búa og starfa hér á landi. Edda Halldórsdóttir verður á sunnudag kl. 14 með leiðsögn í Ás- mundarsafni þar sem skoðuð verða verk eftir Ásmund Sveins- son myndhöggvara sem innblásin voru af verkum eftir Carl Milles. Sætabrauðsdrengirnir Bergþór Pálsson, Gissur Páll Gissurarson, Hlöðver Sigurðsson, Viðar Gunn- arsson og Halldór Smárason píanó- leikari skemmta í Hveragerðis- kirkju á sunnudag kl. 17. Ný sýning, Í hlutarins eðli –skissa að íslenskri sam-tímalistasögu [1.0], verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag. Að sögn Ólafar K. Sigurðardóttur safnstjóra er sýn- ingin hluti nokkurs konar skissu- vinnu Listasafns Reykjavíkur að ís- lenskri samtímalistasögu. Hugmyndin er að safnið haldi áfram að velja verk úr safneigninni og setja í samhengi einskonar tilraunar til að skrifa listasöguna jafnóðum. Sýnd eru verk eftir listamennina Doddu Maggý, Elínu Hansdóttur, Finnboga Pétursson, Gabríelu Frið- riksdóttur, Guðný Rósu Ingimars- dóttur, Hörpu Árnadóttur, Hildi- gunni Birgisdóttur, Hrein Frið- finnsson, Huldu Stefánsdóttur, Ívar Valgarðsson, Jóhann Eyfells, Magn- ús Árnason, Tuma Magnússon og Styrmi Örn Guðmundsson. Þau nýjustu í safneigninni „Fyrir okkur vakir að veita aðgang að safneignini okkar sem jafnt og þétt byggist upp. Og draga fram úr henni einstaka þætti íslenskrar samtímalistasögu,“ segir Ólöf. „Fyrir þessa sýningu völdum við saman verk sem við greinum í ákveðna umfjöllun um efnisheiminn; hvernig myndlistarmenn skoða efn- isheiminn og vinna með eiginleika, eðli, merkingu og gildi efnisins. Dæmigert fyrir þessa skoðun er verk Hreins Friðfinnssonar, Com- position, þar sem eðli efnanna í verkinu myndar ákveðna spennu í því en skýrir um leið eðli hnattar- ins.“ Hún nefnir einnig verk Hörpu Árnadóttur, þar sem „eðli hlutarins er eðli málverksins og þeirra efna sem hún vinnur með á fleti þess – striginn og þau efni sem Harpa ber á hann vinna verkið og eru þátttak- endur í því að móta upplifun manna af verkinu,“ og verk Finnboga Pét- urssonar þar sem hljóð er gert sýni- legt með bylgjum sem berast um efni. Hún segir að meðal annars séu á sýningunni verk sem safnið eign- aðist fyrir viku, myndband og ljós- myndir eftir Doddu Maggý, og fá þau gott pláss. efi@mbl.is Verk eftir Hrein Friðfinnsson: Composition, 2016. Eðli efnanna í verkinu „myndar ákveðna spennu í því en skýrir um leið eðli hnattarins“. Listasafn Reykjavíkur Efnisheimurinn í myndlistinni Á sýningu í Listasafni Reykjavíkur er brugðið upp fyrstu skissu sýningarstjóra þess að íslenskri samtímalistasögu og sjónum beint að efnisheimi. Dodda Maggý: Étude op. 88, no 7, 2017. Nýjasta verkið í safninu. Berg Contemporary Verk Finnboga Péturssonar, Stand- bylgjur, 2016. Hljóð gert sýnilegt. Berg Contemporary MÆLT MEÐ Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Ný kynslóð málningarefna SUPERMATT Almött þekjandi viðarvörn HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R o o

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.