Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Blaðsíða 32
Tilgangur ferðalaga er í grunn-inn sá sami. Hvort sem viðætlum að liggja á strönd, skoða borgir, menningarminjar eða keyra út um allt og sjá allt er hug- myndin yfirleitt að ná einhverri af- slöppun. Það er hins vegar ekki víst að okkur verði að ósk okkar og það hendir að við komum þreyttari úr frí- inu en við vorum áður en lagt var af stað. Til að koma í veg fyrir þetta má kynna sér vel hvaða áfangastaðir hafa það orð á sér að bjóða upp á góða slökun. Ótal ferðatímarit og -vefsíður hafa tekið saman lista yfir staði sem bjóða gestum sínum upp á bestu slökunina. Sunnudagsblað Morgunblaðsins tók saman á lista þá staði sem oft eru nefndir. Lake Placid Lodge, New York Ef þig langar að vera hálfpartinn á Dirty Dancing-sveitahóteli, þurfa að skilja símann og tölvuna þína eftir í móttökunni, fá æðislegan morgun- mat upp á herbergi og slaka á í nátt- úrunni er Lake Placid Lodge rétta hvíldarsetrið. Þú getur alveg fengið símann þinn og tölvuna, þú þarft bara að nota það niðri í móttökunni eða borðsalnum. Dvalarstaðurinn er í uppsveitum New York og her- bergin eins og úr rómantísku veiði- kofaævintýri, með þykkum skinnum og hlýlegum húsgögnum. Einnig er hægt að fá sérkofa við vatnið. Alls staðar er hægt að setjast við arineld, meira að segja úti með rauðvínsglas í hendi. Galo Resort, Madeira Suðausturströnd portúgölsku eyj- arinnar Madeira er ein af þeim fal- legri. Á þessum hluta eyjarinnar snýst allt um afslöppun, mat og hug- leiðslu og hótelið Galo Resort í litla þorpinu Caniço de Baixo þykir afar góður dvalarstaður og á góðu verði. Þar er mikið lagt upp úr að bjóða gestum upp á indverskt ayurveda- nudd, jóga og hugleiðslu sem passar vel við afslappaðan lífsstíl eyjar- skeggja. Þá er þónokkuð í boði af matreiðslunámskeiðum í kring fyrir ferðamenn, sem er skemmtileg við- ljósmynd/lakeplacid.com Lake Placid-hótelið er eins og lúxusveiðisetur. Afslappaðir áfangastaðir Margir ferðalangar þrá ekkert nema hvíld og ró. Sumir áfangastaðir eru betri til þess en aðrir. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Það er hálfóraunverulegt umhverfið á hvíldarhótelinu Lake Placid Lodge. Allt snýst um indverskt nudd og meðferðir á Caniço de Baixo-hótelinu á Madeira. Og óneitanlega minnir það á kvikmyndir eins og Dirty Dancing. FERÐALÖG Ágætt er að taka með sér iPod eða önnur tæki ensímann til að njóta tónlistar í fríinu. Þannig næst betriafslöppun því maður freistast ekki til að kíkja á netið og tölvupóstinn um leið og rétta lagið er valið. Rétta tónlistin 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.11. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.