Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Qupperneq 14
FÓTBOLTI 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.11. 2017 Þ etta var meiri þolraun en hjá strák- unum; það var dýpra á heimild- unum og ég átti ekki eins mikið í mínum fórum sjálfur. Ég þurfti að fara út á akurinn og vera þolin- móður. Þar átti við hið fornkveðna: Leitið og þér munuð finna!“ Þetta segir Sigmundur Ó. Steinarsson rit- höfundur um bók sína Stelpurnar okkar – saga knattspyrnu kvenna á Íslandi frá 1914, sem senn kemur út á vegum Knattspyrnu- sambands Íslands. Áður hefur hann ritað sögu Íslandsmóts karla í tveimur bindum og sögu karlalandsliðsins fyrir KSÍ. Þetta á ekki síst við um myndefnið en víða var grafið og Sigmundur unni sér ekki hvíldar fyrr en hann hafði fundið myndir af öllum Ís- landsmeisturum kvenna frá því fyrsta mótið fór fram árið 1972. „Raunar þurfti ég að breyta bókinni og stækka hana úr 352 síðum í 512 á lokasprettinum vegna mynda og upplýs- inga sem komu fram. Sem var auðvitað mjög ánægjulegt,“ segir Sigmundur en eins og fyrri bækurnar er þessi ríkulega myndskreytt, auk þess sem kort og töflur eru á sínum stað. Óhætt er að fullyrða að Sigmundur hafi bjargað menningarverðmætum með grúski sínu vegna ritunar téðra bóka; á það bæði við um konur og karla. Að því mun íslensk knatt- spyrna búa um ókomna tíð. Hann er KSÍ þakklátur fyrir að hafa hvatt til verksins og nefnir Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formann KSÍ, sérstaklega í því sambandi. Án áhuga hans á því að varðveita sögu knattspyrnu á Ís- landi væri þetta verk ekki að koma út. Sigmundur segir bókina fjalla um allt er við- kemur kvennaknattspyrnu á Íslandi; Íslands- mót, landsliðið, bikarkeppni, meistarakeppni KSÍ, deildabikar, markahæstu leikmenn, þjálfara, leikmenn erlendis, erlenda leikmenn á Íslandi og þátttöku í Evrópukeppni. Þá er sagt frá fyrsta alþjóðlega mótinu 1957 í Berlín og alþjóðlegum mótum á Ítalíu, Mexíkó, Taív- an, Japan og Kína. Þá eru öll úrslit á Norð- urlandamóti frá byrjun, EM, HM og ÓL. „Þetta er allur pakkinn. Biblía kvennaknatt- spyrnunnar!“ segir höfundurinn. Fyrsta félagið stofnað 1914 Sögu kvennaknattspyrnu á Íslandi má rekja aftur til ársins 1914 þegar stúlkur á Ísafirði stofnuðu Fótboltafélagið Hvöt. Ástæðan var sú að einungis piltar gátu orðið félagar í Fót- boltafélagi Ísafjarðar, sem var stofnað 1912 – og félagar gátu þeir einir orðið sem náð höfðu 17 ára aldri. „Stúlkurnar á Ísafirði létu ekki stöðva sig – þær voru ákveðnar að elta bolta og skemmta sér. Þær voru óhræddar við að skora stráka á hólm og léku ófáa leiki við þá. Úrslit voru ekki færð sérstaklega til bókar, þannig að ekki fylgir sögunni hver úrslit einstakra leikja urðu, en sögur segja að stúlkurnar hafi oft veitt strákunum harða keppni á vellinum í hátt í þrjú ár,“ segir í bókinni en þjálfari liðsins var Einar Oddur Kristjánsson gullsmiður sem jafnan er kallaður „faðir knattspyrnunnar“ á Ísafirði. Flestar stúlkur á Ísafirði gengu til liðs við félagið og æfðu þær á knattspyrnuvellinum á Hrossataðsvöllum á Eyrartúni en miðstöð fé- laganna var á Tangstúni og Riistúni – sem var við hliðina. Á túnunum eru nú Grunnskólinn og Sundhöllin á Ísafirði. Þess má geta til gamans að lítill sparkvöllur með gervigrasi sem KSÍ kom upp er á horni Skólagötu og Grundargötu, þar sem Tangstúnið var. Þar stíga ungar ís- firskar stúlkur nú sín fyrstu spor – á sama stað og stúlkurnar léku fyrst knattspyrnu á Íslandi 1914 – fyrir 103 árum! Skemmtiatriði í Tívolí Ekki fer frekari sögum af kvennaknattspyrnu á Íslandi fyrr en árið 1949 að hún var meðal „skemmtiatriða“ á fjáröflun Ármanns, KR og ÍR í Tívolí í Vatnsmýrinni. Hermt er að áhorf- endur hafi skemmt sér vel og árið eftir var gjörningurinn endurtekinn. Verslunarmanna- félag Reykjavíkur bauð svo upp á knattspyrnu kvenna í Tívolí um verslunarmannahelgina sama ár. Þá kepptu afgreiðslustúlkur og skrif- stofustúlkur. Árið 1951 tóku stúlkur úr íþróttafélögunum í Reykjavík þátt í knattspyrnuleik 17. júní á Melavellinum. Í Vísi mátti lesa: „Leikið var af mikilli gamansemi og vöktu tilburðir þeirra, Stelpurnar okkar fagna marki í fræknum sigri á Þýskalandi ytra í síðasta mánuði. Ljósmynd/A2 Peter Hartenfelser „Þetta er engin kvennaíþrótt!“ Bókin Stelpurnar okkar – saga knattspyrnu kvenna á Íslandi frá 1914 eftir Sigmund Ó. Steinarsson kemur út um miðjan desem- ber. Þar er merkileg saga rakin en í eina tíð þótti knattspyrna ekki nægilega „kvenleg“ íþrótt, svo sem merkja má af fyrirsögninni hér að ofan en téð orð voru höfð eftir konu árið 1970. Í dag fylgja þúsundir stuðningsmanna stelpunum okkar á stórmót. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, höfundur bókarinnar, segir framtíð kvennaknattspyrnu á Íslandi bjarta. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.