Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Qupperneq 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.11.2017, Qupperneq 33
bót. Benda má á að þessa mánuðina standa yfir endurbætur á hótelinu og því veglegur afsláttur af gistingu fram í maí vegna hávaðaröskunar. Þeim sem vilja enga truflun er bent á að betra er að gista á hótelinu eftir þann tíma. Amanemu Resort, Shima, Japan Þótt ferðalagið sé langt er hvíldin þess virði. Amanemu-hvíldarhótelið er óviðjafnanlegt og hefur unnið til verðlauna svo sem fyrir að vera „mesta dekurhótelið“. Þetta fyrsta flokks spa-hótel stendur í japönskum skógi með nátt- úrulegum heitum lindum og arki- tektúrinn sendir eins konar hvíldar- skilaboð til gestanna, þar sem nátt- úruleg efni, í stíl við náttúruna í kring, eru í fyrirrúmi. Amanemu er í Ise-Shima-þjóðgarðinum á suðvest- urhluta eyjunnar Honshu. Útsýni er yfir friðsælan Ago-flóann. Amanemu er næst Ngoya Chubu-flugvellinum (NGO) en lestir ganga frá Nagoya, Kyoto og Osaka á Kashikojima- lestarstöðina í Shima. La Clairière, Frakkland Fátt er meiri friðargjafi en grænn skógur. Dvalarstaðurinn La Clair- ière stendur á skógi vaxinni hlíð á hinu mikilfenglega franska náttúru- svæði Vosges du Nord, sem er frið- lýst. Húsakynni hótelsins eru unnin úr náttúruefnum og auk þess að bjóða upp á spa, heilsusamlegan matseðil og lífræn frönsk vín frá svæðinu í kring er mikið lagt upp úr slökun í skóginum, göngum og hug- leiðslu undir grænum trjákrónunum. Einnig eru hinar mörg þúsund ára kínversku orkuæfingar qi-gong kenndar á staðnum. Ef einhver vill hreint loft og mikið gott súrefni í frí- inu er þetta rétti staðurinn. Miðstöð heimsfriðar og heilsu, Holy Isle, North Ayrshire, Skot- landi Þessi möguleiki kann að hljóma spes en gestir láta afar vel af dvölinni þrátt fyrir að ekki sé um lúxus á borð við spa-hótel og nuddmeðferðir að ræða. Á afskekktri skoskri eyju, Holy Isle, er hægt að komast í sam- band við sinn innri búddista. Eyjan liggur utan við vesturströnd Skot- lands en gestir njóta alls kyns ókeyp- is hugleiðslunámskeiða meðan á dvöl þeirra stendur og matur og gisting eru mjög ódýr. Eina skilyrðið er að gestir fari eftir nokkrum reglum. Þeir mega til dæmis ekki ljúga, ekki nota vímuefni né skaðandi kynlíf. Gestir ráða því alfarið sjálfir hvernig þeir eyða dögunum; hvort þeir nýta sér dagskrá sem er í boði eða dvelja í kyrrð. Til að kynna sér þennan möguleika er gott að skoða vel síð- una holyisle.org. Amanemu Resort-hótelið er sérlega smekklega innréttað. Tré Vusges du Nord gefa ferðalöngum ársskammt af góðu lofti. GettyImages/Thinkstock Ótal hugleiðslunámskeið eru í boði á Holy Isle en gestir þurfa þó ekki að taka þátt í þeim frekar en þeir vilja. Útsýni af skosku heimsfriðareyjunni sem býður gesti velkomna í friðsæla dvöl ef þeir beygja sig undir nokkrar reglur. Það jafnast fátt á við að horfa á græn tré í spa-meðferð eins og á La Clairière-hótelinu. Ise-Shima-þjóðgarðurinn í Japan er einn allsherjar friðarstaður. GettyImages/Thinkstock 26.11. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Þýska merkið Greiff framleiðir hágæða fatnað með áherslur á nútíma hönnun, þægindi og fjölbreytt vöruúrval. Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. STARFSMANNAFATNAÐUR FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.