Morgunblaðið - 13.12.2017, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. D E S E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 293. tölublað 105. árgangur
Fáðu
gjafirnar
sendar heim
á elko.is
Stúfur kemur í kvöld
11
jolamjolk.is
dagar
til jóla
HRAFNHILDUR
KEPPIR Í SINNI
EINU GREIN Í DAG
KVÖLDLOKKUR Á JÓLAFÖSTU
FINNUR NÝJAR
LEIÐIR FYRIR
FJÖRUGA KRAKKA
BLÁSARAKVINTETT REYKJAVÍKUR 30 HLÍN MAGNÚSDÓTTIR 12ÍÞRÓTTIR 4
Baráttan gegn spillingu á Íslandi
hefur skilað árangri en þörf er á
meira gagnsæi í upplýsingum um
fjármál þingmanna. Kemur þetta
fram í skýrslu ríkjahóps gegn spill-
ingu (GRECO), sem Evrópuráðið
birtir í dag.
Fram kemur í skýrslunni að
stjórnvöld á Íslandi hafi fram-
kvæmt sumt af því sem ríkjahóp-
urinn lagði til í skýrslum á síðasta
ári til að draga úr hættu á spillingu
meðal alþingismanna, dómara og
saksóknara. Því er sérstaklega
fagnað að Alþingi hefur sett alþing-
ismönnum siðareglur. Ekki þykir
það þó nægjanlegt og eru stjórn-
völd landsins hvött til að koma á
meira gagnsæi og auka virkni og
trúverðugleika í sambandi við fjár-
hagsupplýsingar sem þingmenn
veita.
Telja of langt gengið
Þar er sérstaklega átt við fjár-
hagsupplýsingar maka alþingis-
manna og barna á framfæri þeirra
en um það hefur forysta Alþingis
haft efasemdir og talið of langt
gengið með kröfu um það.
Ríkjahópurinn telur einnig að
framfarir hafi orðið hjá dómurum
og saksóknurum. Þó er fundið að
því hvernig valið er í félagsdóm og
hvatt til endurskoðunar á því fyrir-
komulagi. Þá er talið rétt að athuga
nánar hvernig fyrirbyggja má
hagsmunaárekstra.
Í heildina hafa stjórnvöld á Ís-
landi tekið fullt tillit til fimm af tíu
ráðleggingum ríkjahóps GRECO.
Óskað er eftir frekari upplýsingum
um þau atriði sem standa út af svo
hægt sé að meta þau á næsta ári og
því þarnæsta. helgi@mbl.is
Árangur í baráttunni
Ríkjahópur Evrópuráðsins gegn spillingu vill auka
gagnsæi með ítarlegri fjárhagsupplýsingum þingmanna
Aukinn kaupmátt má glöggt sjá í jólaversl-
uninni í ár, hún er bæði meiri en undanfarin
ár auk þess sem dýrari hlutir seljast betur en
oft áður. Í Kringlunni hefur verið rúmlega 4%
aukning í aðsókn fyrstu tíu dagana í desem-
ber. Jólaverslunin virðist líka hafa færst
framar núna, m.a. með tilkomu tilboða á
Svörtum föstudegi sem að sögn markaðs-
stjóra Smáralindar kom mun sterkari inn
þetta árið en undanfarin ár. Í miðborginni
hefur gott en kalt veður hjálpað til við jóla-
verslunina. » 6
Morgunblaðið/Hari
Góð jólaverslun og dýrari hlutir seljast betur
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Samtök atvinnulífsins telja að í
árslok 2016 hafi skort a.m.k. tvö
þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæð-
inu, að því er fram kemur í nýrri
greiningu frá efnahagssviði Sam-
taka atvinnulífsins
„Við sjáum ekki betur en að
framboðsskorturinn muni fara vax-
andi á næstu þremur árum ef mið-
að er við talningu Samtaka iðn-
aðarins og áætlaða íbúðaþörf á
næstu árum,“ segir Ásdís Krist-
jánsdóttir, forstöðumaður efna-
hagssviðs samtakanna.
Að mati samtakanna er húsnæð-
isvandinn fyrst og fremst fram-
boðsskortur. „Það þarf því að grípa
til einhverra ráða strax til að auka
framboð íbúða til að unnt sé að
mæta væntri íbúðaþörf. Að öðrum
kosti mun skortur á framboði ein-
faldlega áfram ýta undir frekari
hækkun íbúðaverðs að öðru
óbreyttu,“ segir hún.
Að hennar sögn er þétting
byggðar tímafrek vinna og fyrstu
vísbendingar séu komnar fram um
að það gangi hægar að koma nýju
framboði á markaðinn. Hún segir
að æskilegt sé að þétta byggð á
höfuðborgarsvæðinu enda vand-
fundin dreifðari byggð en þá þurfi
um leið að fjölga lóðum innan borg-
armarka til að tryggja nægt fram-
boð.
Vantar tvö þúsund íbúðir
Samtök atvinnulífsins segja að íbúðaskortur í höfuðborginni muni fara vaxandi á
næstu þremur árum Fjölga þarf lóðum, annars ýtir skortur undir verðhækkanir
MLóðaskortur fer vaxandi »16
Hagnaður af rekstri RÚV mun að
óbreyttu ekki duga til að greiða
niður allar skuldir félagsins.
RÚV skuldaði um 5,9 milljarða
um mitt þetta ár. Til samanburðar
var tap á fyrri hluta ársins upp á
44,3 milljónir króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur RÚV að undanförnu
að jafnaði aðeins greitt vexti af
milljarða skuld við Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins. Til að greiða
niður lánið þurfi RÚV annaðhvort
að fá 150-200 milljónir í viðbótar-
fjármagn á ári, eða að lengja í lán-
inu. RÚV hefur staðið í samninga-
viðræðum við LSR í rúmt ár.
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri segir skuldir RÚV trúnaðar-
mál. Það sé enn mat stjórnar RÚV
að skuldsetning sé mikil. »14
Morgunblaðið/Eggert
RÚV Útvarpsstjóri segir félagið enn vera
mjög skuldsett eftir aðhaldsaðgerðir.
RÚV hefur frestað
afborgunum af láni
Hafmeyjan eft-
ir Nínu Sæ-
mundsson féll af
stalli sínum í
Reykjavíkur-
tjörn í óveðrinu
sem gekk yfir í
byrjun nóvember
síðastliðins.
„Hún hefur
bara stungið sér
til sunds í óveðr-
inu,“ segir Sigurður Trausti
Traustason, deildarstjóri hjá Lista-
safni Reykjavíkur. Hafmeyjan verð-
ur kirfilega fest þegar hún verður
hífð upp að nýju. Það verður gert
þegar veður leyfir. »4
Hafmeyjan hvílir á
botni Tjarnarinnar
Hafmeyjan Áður
en hún stakk sér.