Morgunblaðið - 13.12.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2017
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Sorpkvarnir
í vaska
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Dönsk hönnun
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
Innan þingflokks Pírata hefurlengi kraumað ósætti sem oftast
tekst þó að halda undir yfirborði
gagnsæisins sem flokkurinn boðar.
Og þegar upp úr sýður segja flokks-
menn yfirleitt að
allt sé í himnalagi
þrátt fyrir ágrein-
ing og afsagnir.
Skemmst er aðminnast þess
þegar Ásta Guðrún
Helgadóttir, þáver-
andi þingmaður Pírata, sagði í vor
af sér þingflokksformennsku vegna
ágreinings um stjórnarhætti. Á
sama tíma sagði Björn Leví Gunn-
arsson sig úr stjórn þingflokksins,
„í góðu“, en viðurkenndi þó að
þingmenn hefðu verið „ósammála“.
Fyrr á þingferlinum höfðu Pírat-ar einnig glímt við innan-
flokksátök og gekk það svo langt að
þingflokkurinn kallaði til vinnu-
staðasálfræðing til að bera klæði á
vopnin.
Nú hefur þingflokksformað-urinn Þórhildur Sunna Æv-
arsdóttir upplýst að verið sé að
ræða um að taka upp embætti for-
manns, en hingað til hafa Píratar
látið sér nægja ígildi formanns,
enda hafa þeir viljað „flatan strúkt-
úr“ en ekki valdapíramída og hafa
hafnað formannsembættinu.
En nú eru þeir búnir að finnaþað út að besta leiðin til að
auka valddreifingu sé að taka upp
embætti formanns, og þá sennilega
leggja niður embætti ígildis for-
manns.
Þetta er auðvitað ígildi útskýr-ingar, en hver ætli raunveru-
lega ástæðan sé fyrir öllum þessum
innanflokksátökum? Væri ekki rétt
að flokkur gagnsæisins upplýsti um
það?
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Samfelld
forystukrísa
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.12., kl. 18.00
Reykjavík 1 súld
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri -1 alskýjað
Nuuk -3 snjókoma
Þórshöfn 4 skýjað
Ósló -4 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 skúrir
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki 1 snjókoma
Lúxemborg 1 léttskýjað
Brussel 1 þoka
Dublin 5 rigning
Glasgow 2 skýjað
London 1 léttskýjað
París 3 skýjað
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg 1 skýjað
Berlín 3 rigning
Vín 6 alskýjað
Moskva 0 snjókoma
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 8 léttskýjað
Barcelona 10 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 15 þoka
Aþena 13 heiðskírt
Winnipeg -9 snjókoma
Montreal -9 snjókoma
New York 8 rigning
Chicago -7 snjókoma
Orlando 19 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:14 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 11:58 14:57
SIGLUFJÖRÐUR 11:43 14:38
DJÚPIVOGUR 10:52 14:52
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Endurnýjað flugskýli fyrir P-8A
Poseidon-kafbátaleitarflugvélar
Bandaríkjahers verður að líkindum
tilbúið haustið 2020. „Nú er verið að
skilgreina verkefnið og unnið að
gerð verklýsinga og útboðsgagna.
Það er enn ekki ljóst hvenær verður
auglýst, en stefnt er að því að það
verði í vor og framkvæmdir hefjist
næsta haust,“ segir Jón B. Guðna-
son, framkvæmdastjóri Landhelg-
isgæslu Íslands á Keflavíkur-
flugvelli, sem hefur umsjón með
verkinu og rekur skýlið. Hann segir
að með fyrirvara megi áætla að
verktíminn verði tvö ár.
Koma í stað eldri véla
Poseidon-vélarnar koma í staðinn
fyrir P-3 Orion-kafabátaleitarvélar
hersins og eru mun fullkomnari.
Þær eru jafnframt rúmfrekari og
þess vegna þarf að breyta flugskýli
NATO á Keflavíkurflugvelli, sem er
rúmlega 12 þúsund fermetrar að
stærð. Varið verður a.m.k. tveimur
milljörðum króna í hönnun og fram-
kvæmdir sem felast í breytingum á
lofti og dyrum á vesturhlið flugskýl-
isins. Endurbæta þarf rafkerfið og
eldvarnarkerfið. Þá þarf að styrkja
gólfið og reisa þvottastöð fyrir Pos-
eidon-vélarnar suðvestan við flug-
skýlið. Ennfremur verður ráðist í
framkvæmdir á flughlaðinu og við-
haldsverkefni í og við flugskýlið.
Stóraukin viðvera á Íslandi
Fé til framkvæmdanna kemur frá
Pentagon, bandaríska varnarmála-
ráðuneytinu. Sótt var um 2,7 millj-
arða en heimild hefur fengist fyrir
1.950 milljónum króna.
Kafbátum á sveimi við Ísland hef-
ur fjölgað mikið á síðustu árum. Eft-
irlit með þeim hefur aukist samfara
því og hefur viðdvöl kafbátaleitar-
flugvéla Atlantshafsbandalagsins og
bandaríska hersins á Íslandi aukist á
síðustu árum. Það sem af er ári hafa
vélarnar verið 122 daga að störfum
hér á landi en árið 2014 voru þær 21
dag. Árið 2016 voru dagarnir alls 77
talsins.
P-3 Orion-flugvélarnar voru fyrst
teknar í notkun árið 1962, P-8
Poseidon-vélarnar eru mun yngri að
gerð og búnaði og voru upphaflega
teknar í gagnið 2013. Þær eru upp-
færð útgáfa af Boeing 737-800ERX-
farþegaþotunni.
Kafbátaleit Ráðist verður í endurbætur á flugskýli NATO á Keflavíkur-
flugvelli svo það rúmi nýjustu gerð kafbátaleitarvélar Bandaríkjahers.
Endurbætt flug-
skýli í notkun 2020
Pentagon kostar framkvæmdirnar
Allt um sjávarútveg