Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 2. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  45. tölublað  106. árgangur  SKRÁÐI FLÓTT- ANN FRÁ EYJUM 1973 ÁRALÖNG ÁTÖK UM ARION BANKA TÍUNDA BREIÐ- SKÍFAN KEMUR ÚT Á MORGUN VIÐSKIPTAMOGGINN GUS GUS 86-87INGIBERGUR ÓSKARSSON 16 MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUROG KODDAR HEILSURÚM ALLARSTÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 Allt var á floti víðast hvar í gær þegar kröftug lægð renndi sér yfir landið með tilheyrandi roki og rigningu. Samgöngur röskuðust, svo sem þegar ökumenn sem uggðu ekki að sér óku út í polla og krapasvelgi. Það gerðist meðal annars í efri byggðum Kópavogs, þar sem björgunarsveitarmenn leystu hvers manns vanda. Morgunblaðið/Eggert Úti að ýta í elg og krapa í Kópavogi Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Guðjón Skarphéðinsson, einn fimm- menninganna sem fengu endurupp- töku mála sinna fyrir Hæstarétti eftir að hafa verið dæmdir fyrir sléttum 38 árum í Guðmundar- og Geirfinnsmál- inu, hafði reiknað með því að Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkis- saksóknari myndi krefjast sýknu, eins og tilkynnt var í gærdag. Guðjón segir að í raun hafi sýkna sín og hinna fjögurra blasað við, allt frá því að dómar í málinu féllu. Fyrst í héraðsdómi hinn 19. desember árið 1977 og svo í Hæstarétti hinn 22. febr- úar 1980 – fyrir sléttum 38 árum. Hin- ir fjórir sem nú er farið fram á að verði sýknaðir af öllum sökum til viðbótar við Guðjón eru Sævar Marinó Ciesielski, Tryggvi Rúnar Leifsson, Kristján Viðar Viðarsson og Albert Klahn Skaftason. „Í báðum þessum dómum eru í rauninni ekki framfærðar neinar sannanir fyrir að nokkur skapaður hlutur hafi gerst,“ segir Guðjón í sam- tali við Morgunblaðið. Hann segist þó ekki fullviss um að Hæstiréttur muni snúa við fyrri dómum sínum, þrátt fyr- ir að settur ríkissaksóknari fari nú fram á sýknu. Fá ef nokkur fordæmi séu fyrir því. „Hann hefur þá smugu að viður- kenna ekki einhvern punkt í þessu ferli, endurupptökunefndirnar eða einhvern annað stað í ferlinu. Þó að saksóknari leggi til sýknu, þá er það ekki alveg búið, tel ég.“ Hann segir að búið sé að „nudda við“ málið í rúm 20 ár og að margir hafi lagt þar sitt fram við að koma mál- inu á þann stað sem það er á í dag. „Þannig hefur þetta nú potast,“ segir Guðjón, sem segir þó að málinu sem slíku ljúki ekki, þrátt fyrir að sýknu- dómur falli. „Þessir menn hurfu engu að síður, er það ekki,“ spyr Guðjón og vísar þar til þeirra Guðmundar og Geirfinns Einarssona, sem hurfu báðir sporlaust árið 1974. Síðan byrjað var að berjast fyrir endurupptöku málsins um miðjan tí- unda áratuginn segir Guðjón að ekki hafi liðið ár án þess að einhver hreyf- ing hafi verið á hans lífi vegna málsins, sem alltaf hefur vakið mikla athygli fjölmiðla og almennings. Allar götur frá því árið 1996, þegar hann fluttist aftur til landsins frá Danmörku, hafi verið einhver umfjöllun um málið. „Ég hef ekki beðist undan því neitt sérstaklega. Ég hef ævinlega svarað öllu og sýnt mig í mynd og gert allar kúnstir. Enda hef ég ekkert að fela í þessum efnum.“ Sýkna hafi blasað við allt frá 1977  Einn dæmdra í Guðmundar- og Geirfinnsmáli segist ekki viss um að Hæstiréttur snúi fyrri dómi MSýknudómur rétti hlut … »28 Á fyrstu þremur árum yfirstand- andi kjörtímabils hefur Reykjavík- urborg skipað 351 starfshóp innan stjórnkerf- isins. Á þetta bendir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þannig hafi að meðaltali verið skipaður starfshópur þriðja hvern dag kjör- tímabilsins. Bendir hann á til sam- anburðar að í fyrra hafi 322 íbúðir verið byggðar í Reykjavík og að verktakar séu farnir að leita í önnur sveitarfélög vegna frestana og svör- unarleysis af hálfu borgarinnar. Í greininni er einnig vakin athygli á því að hinn 12. febrúar síðastliðinn hafi verið gefin út drög að erind- isbréfi nýs starfshóps um miðlæga stefnumótun borgarinnar. Í bréfinu segir að hlutverk starfshópsins sé að „vinna að umbótum og samræmdri framkvæmd í stefnumótun og stefnuframkvæmd, einkum í mið- lægri stjórnsýslu og miðlægri stefnumótun. Að fá bætta yfirsýn yf- ir þær miðlægu stefnur og stefnu- markandi skjöl sem eru fyrir hendi og tengingu við undirstefnur og áætlanir málaflokka.“ »47 Skipa starfs- hóp þriðja hvern dag  Borgin hefur skipað 351 hóp á þremur árum Eyþór Arnalds  Tilkynnt var um 895 innbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Árið 2016 var fjöldi innbrota 849 og hafði ekki verið minni síðan 2009 þegar tilkynnt var um 2.883 innbrot til lögreglunnar. Vísbendingar eru um að inn- brotum sé að fjölga á ný. Frá ára- mótum hefur lögreglan fengið 145 tilkynningar en fyrstu tvo mánuði síðasta árs voru innbrotin 143 en hafa ber í huga að enn eru nokkrir dagar eftir af febrúar. Þannig hafa 20 innbrot verið tilkynnt í Grafar- vogi frá áramótum, voru 58 allt árið í fyrra. Svipaðar tölur ná yfir Hafn- arfjörð, Garðabæ og Hlíðar. Rannveig Þórisdóttir, deild- arstjóri hjá lögreglunni, segir þró- unina síðustu ár vissulega áhuga- verða. Hún sýni fyrst og fremst að tíðni innbrota fylgi jafnan efnahags- ástandinu hverju sinni og eftirspurn eftir varningi. »10 Stefnir í fjölgun inn- brota á þessu ári  Embætti ríkisskattstjóra stefnir að því að ljúka álagningu einstaklinga mánuði fyrr en áður hefur verið eða 31. maí nk. Verður það í annað sinn á þremur árum sem álagningunni er flýtt. Reiknað er með að opnað verði fyrir framtalsskil hinn 1. mars nk. og framtalsfrestur standi til 13. mars. Með breytingunum sem stefnt er að á þessu ári hefur álagningartími einstaklinga verið færður fram um tvo mánuði. Samhliða þessu er gert ráð fyrir að frestur til að kæra niður- stöðu álagningar verði lengdur í þrjá mánuði. »6 Framtalsskilum flýtt um mánuð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.