Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
SÍÐUSTU
SÆTIN
Allt að
15.000kr.
afsláttur á mann
PÁSKASÓL
GRAN CANARIA
25. mars í 9 nætur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ekki urðu neinar teljandi skemmdir
eða að fólk sakaði í óveðurshvelli sem
gekk yfir landið í
gær. Á sunnan-
verðu landinu var
hvasst af suðri og
mikil úrkoma af
völdum lægðar
sem fór á mikilli
siglingu yfir land-
ið. Á götum á höf-
uðborgarsvæðinu
var vatnsagi og
krapaelgur og þeg-
ar ökumenn
brunuðu á bílum sínum út í stöðuvötn-
in gusaðist vatnið yfir.
Samgöngur úr skorðum
Starfsmenn umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar og annarra sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu voru
önnum kafnir í gær við að hreinsa frá
niðurföllum og þannig tókst að leysa
málin. Í Hafnarfirði flæddi vatn inn í
íþróttahús FH í Kaplakrika og bíla-
kjallara fjölbýlishúss við Skógarveg í
Fossvogi í Reykjavík. Mætti svo
áfram telja. Öllum leiðum frá höfuð-
borgarsvæðinu út á land var lokað
meðan veðrið gekk yfir. Þá varð
nokkur röskun á flugsamgöngum – og
vélar sem fara áttu árla dags til Evr-
ópu voru flestar nokkrum klukku-
stundum of seinar. Þá fór innanlands-
flug úr skorðum.
Hvassviðrinu sunnanlands slotaði
fljótt en það færði sig síðan norður yf-
ir landið. Um hádegi fór vindstyrkur
á Reykjum í Hrútafirði í 33 m/s og
raunar í 50 m/s samkvæmt óopinber-
um mælum þar.
„Þetta var rosalegur hvellur sem
gekk þó yfir á engri stund. Stóð
kannski í hálftíma,“ segir Karl Örv-
arsson, forstöðumaður Skólabúðanna
á Reykjum. „Þessa vikuna eru hjá
okkur um það bil 100 krakkar úr
Brekkuskóla á Akureyri og Setbergs-
skóla í Hafnarfirði og fyrir börnin er
auðvitað talsverð reynsla að kynnast
svona veðráttu. Sumum finnst þetta
spennandi en önnur verða smeyk – og
þá bara gildir að róa mannskapinn og
fara hinn gullna meðalveg í frásögn-
um. Við komum öllum skaranum fyrir
skólahúsinu og það væsti ekki um
nokkurn mann. Við sem búum að
staðaldri hér í Hrútafirði kippum okk-
ur annars ekki upp við þetta, enda
svona veðri vön.“
Fyrir utan hvassviðri var annars
ágætt veður fyrir norðan, hlýtt og
mikinn snjó á landinu tók upp í gær.
Eru flestir vegir auðir og greiðfærir,
eins og sést á vef Vegagerðarinnar.
Síðasti hvellurinn er eftir
Í gildi er gul viðvörun fyrir norðan-
og austanvert landið og á Austfjörð-
um er viðbúið að vaxi í ám og lækjum
á svæðinu og hætta er á skriðuföllum,
svo sem í Þvottár- og Hvalnesskrið-
um.
Á morgun, föstudag, það er frá
miðjum degi og fram á laugardag, er
spáð hvassviðri eða stormi víðast hvar
á landinu jafnhliða þíðu svo snjór tek-
ur enn frekar upp. „Þetta verður síð-
asti lægðahvellurinn sem við sjáum í
spám sem fyrir liggja, það er óhætt að
segja að allur febrúar hafi verið skak-
viðrasamur. En núna má gera ráð fyr-
ir skárri tíð,“ segir Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur. Hann
spáir hæglátu veðri í mars og að þá
verði sólríkt og þurrt. Komi þar til að
hátt upp í heiðhvolfinu séu kulda-
svæðin að missa styrk og fletjast út.
Rosalegur hvellur gekk fljótt yfir
Febrúarlægðin olli usla með úrkomu og hvassviðri Vegum lokað og flug fór úr skorðum Börn í
skólabúðum í Hrútafirði urðu sum hver smeyk Einn hvellur er eftir enn en síðan kemur skárri tíð
Morgunblaðið/Eggert
Dælt Mikið vatn rann inn í kjallara fjölbýlishúss við Skógarveg í Fossvogi.
Karl B.
Örvarsson
Nýr morgunþáttur hefur göngu sína
1. mars næstkomandi á K100. Mun
hann bera heitið „Ísland vaknar“ og
mun hann fylgja hlustendum inn í
virka daga vikunnar milli 6.45 og
9.00. Umsjónarmenn þáttarins eru
þau Logi Bergmann Eiðsson, Frið-
rika Hjördís Geirsdóttir og Rúnar
Freyr Gíslason.
Logi Bergmann segist spenntur
fyrir því að takast á við þetta verk-
efni en að hann kvíði því nokkuð að
þurfa að vakna svo snemma á
morgnana.
„Ég hef ekki vaknað svona
snemma á morgnana nema til þess
að fara í flug,“ segir hann og bætir
léttur við að það muni taka hann
tíma að ná upp starfsþreki. „Það er
svo langt síðan maður mætti til
vinnu síðast.“ Hann segir að lagt sé
upp með kraftmikinn og lifandi þátt
þar sem málefni líðandi stundar
verði tekin fyrir.
„En útgangspunkturinn er auðvit-
að alltaf sá að maður verður að vera
léttur.“ Hægt verður að hlusta á
þáttinn í útvarpi, horfa á hann í sjón-
varpi Símans á rás 9 og á vefsíðunni
k100.is. »64
Nýr morgunþáttur á K100
Logi, Rikka og
Rúnar Freyr við
hljóðnemann
Ljósmynd/Gassi
Ísland vaknar Rikka, Logi Bergmann og Rúnar Freyr munu vakna með
landsmönnum frá 1. mars næstkomandi. Þau hlakka til að hefja störf.
Þrátt fyrir beljandann í veðrinu í gær voru er-
lendu ferðamennirnir áfram um að komast í
skemmtireisur og skoðunarferðir. Perlan í
Öskjuhlíð með sýningum sínum er vinsæll
áfangastaður og eftir heimsókn þangað er hald-
ið áfram, enda er margt að sjá og skoða í Reykja-
vík, eða ef lengra er haldið. Mikilvægt er þó að
vera við öllu búinn og mynda eina skipulagða
röð, áður en rútan rennir í hlað.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðamennirnir standa í einni röð í Öskjuhlíðinni
Héraðsdómur hefur dæmt tvo karl-
menn, Örn Björnsson og Kristján
Ólason, í 14 og 15 mánaða fangelsi
fyrir meiriháttar brot á skattalög-
um upp á samtals tæplega 100
milljónir króna. Brotin tengjast
rekstri einkahlutafélagsins Endur-
bætur, en reksturinn sem um ræðir
virðist reglulega hafa verið færður
yfir á nýja kennitölu á síðustu ár-
um. Voru þeir Kristján og Örn báð-
ir framkvæmdastjórar félagsins og
prókúruhafar hvor á sínu tíma-
bilinu.
Fram kemur í dómi héraðsdóms
að þegar Endurbætur ehf. hafi orð-
ið gjaldþrota hafi það runnið inn í
nýtt félag, Viðhald og viðgerðir
ehf., en Reykjavíkurborg hefur átt
í viðskiptum við það síðarnefnda. Á
síðasta ári tók borgin tveimur til-
boðum félagsins í verk, annars veg-
ar í áhorfendastúku við leikvöll
Þróttar í Laugardal og hins vegar
gluggaskipti í Klettaskóla.
solrun@mbl.is
Dæmdir fyrir
100 milljóna
skattsvik