Morgunblaðið - 22.02.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 22.02.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ríkisskattstjóri (RSK) vinnur nú að opnun skattframtals einstaklinga. Reiknað er með að opnað verði fyrir framtalsskil hinn 1. mars nk. og framtalsfrestur standi til 13. mars. Á árinu 2018 er stefnt að því að ljúka álagningu einstaklinga mánuði fyrr en áður hefur verið, að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkis- skattstjóra. Er gert ráð fyrir því að álagningunni verði lokið 31. maí nk. Verður það í annað sinn á þremur árum sem álagningunni er flýtt. Áratugum saman, eða frá því fyrir 1940 og fram til 2015, var álagningu lokið í júlílok. Með breytingunum sem stefnt er að á þessu ári hefur álagningartími einstaklinga verið færður fram um tvo mánuði. Álagningu árin 2016 og 2017 lauk 30. júní. Samhliða þessu er gert ráð fyrir að frestur til að kæra niðurstöðu álagningar verði lengdur í þrjá mánuði. Er það einnig önnur lenging á kærufresti vegna álagningar. Hentugra fyrir flesta Að sögn Skúla Eggerts bað fjár- málaráðherra RSK að skoða hvort unnt væri að færa álagninguna framar og í ár hafa verið gerðar talsverðar breytingar við álagning- arvinnsluna sem gera RSK kleift að ljúka verkinu mánuði fyrr. „Fyrirfram- gert framtal fyrir mjög marga við- skiptavini okkar auðveldar þessa vinnslu. Þetta er mun hentugra fyrir flesta að fá niðurstöður svona snemma,“ segir Skúlu Egg- ert. Hjá embætti Ríkisskattstjóra er nú verið að safna saman upplýsing- um frá launagreiðendum, fjármála- fyrirtækjum og ýmsum opinberum stofnunum til að færa inn á skatt- framtölin vegna tekjuársins 2017. Jafnframt hefur verið að unnið að því að greiðslur til bótaþega Trygg- ingastofnunar komi réttar inn á framtölin. Langflestir framteljendur geta lokið við framtalsgerð með því að opna framtalið, lesa vel yfir allar upplýsingar og staðfesta síðan. Hef- ur sú einfalda framtalsgerð sem tek- in var upp 2010 auðveldað mjög mörgum það umstang sem áður fylgdi því að telja fram til skatts, segir Skúli Eggert. Sem fyrr segir mun framtalsfrest- ur standa til 13. mars. Að sögn Skúla Eggerts verður unnt að fá lengri frest til að ljúka skilum en þá þarf viðkomandi framteljandi að hafa sótt um lengri skilafrest á skattur.is. Þeir sem hafa falið endurskoðend- um eða bókurum framtalsgerðina hafa rýmri frest. Slíkir fagaðilar hafa frest fram í apríl til að ljúka framtalsgerð. Skattskrár birtar í lok maí  Opnað verður fyrir framtalsskil einstaklinga 1. mars  Álagningu lýkur mánuði fyrr en síðustu ár  295.789 einstaklingar telja fram að þessu sinni  Flestir þurfa bara að lesa yfir og staðfesta svo Skúli Eggert Þórðarson Fjölgun milli ára » Framteljendur eru nú orðnir 295.789 einstaklingar en voru í fyrra 286.788. » Fjölgunin er því 9.001 fram- teljandi. Talsverður hluti þeirra er útlendingar sem flust hafa til landsins. og látið formönnum allra verka- lýðsfélaganna innan ASÍ það eftir að komast að niðurstöðu um við- brögðin því samkvæmt samningi ASÍ og SA hefur átta manna samninganefnd ASÍ þessa form- legu heimild til að segja samn- ingum upp ef forsendurnar eru brostnar. Ákveði formannafundurinn að segja samningum upp tekur upp- sögn þá þegar gildi en að öðrum kosti gilda allir almennir kjara- samningar SA og ASÍ til 31. des- ember. Verði samningum sagt upp kemur ekki til 3% almennrar launahækkunar 1. maí og ekki verður af 7% hækkun lægstu launa í 300 þúsund kr. á mánuði eins og gildandi samningar kveða á um. annarra kjarasamninga á árinu rúmist innan launastefnunnar. Í yfirlýsingu ASÍ í gær segir: „Það er mat ASÍ, að óbreyttu, að forsendur um að launastefna kjara- samninganna hafi verið stefnu- markandi hafi ekki gengið eftir. Því er heimild til uppsagnar þeirra fyrir lok febrúar enn í gildi. Vegna þessarar stöðu hefur mið- stjórn ASÍ ákveðið að boða til for- mannafundar aðildarfélaga ASÍ miðvikudaginn 28. febrúar þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um viðbrögð verkalýðshreyf- ingarinnar.“ Athygli vekur að ASÍ-forystan hefur með boðun formannafundar- ins útvíkkað umboðið til að ákveða hvort samningum verður sagt upp Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Óvissan fer vaxandi um hvort gild- andi kjarasamningar á almenna vinnumarkaðinum halda gildi sínu til ársloka eða verður sagt upp í næstu viku. Miðstjórn ASÍ birti yf- irlýsingu að loknum fundi í gær um að það væri mat ASÍ að for- sendur kjarasamninga, sem koma til endurskoðunar fyrir lok þessa mánaðar, væru brostnar. Jafnframt var ákveðið að boða til formanna- fundar allra aðildarfélaga ASÍ næstkomandi miðvikudag þar sem hin endanlega ákvörðun verður væntanlega tekin undir mikilli tímapressu, því þann sama dag kl. 16 rennur út frestur til að ákveða hvort samningum verður sagt upp eða ekki. Svonefnd forsendunefnd ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefur þó ekki enn lokið mati sínu á því hvort samningsforsendurnar séu brostnar en Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í gær að nú lægi a.m.k. fyrir sú afstaða Alþýðu- sambandsins að það teldi að for- sendurnar væru brostnar. Verði það niðurstaðan þarf að leita við- bragða bæði hjá viðsemjendum í SA og stjórnvöldum. Sameiginleg forsendunefnd ASÍ og SA komst að þeirri niðurstöðu fyrir ári að þá væri ein af þremur forsendum samninganna þegar brostin, sem heimili uppsögn samn- inga, en ASÍ og SA ákváðu þá að fresta uppsagnarheimildinni um eitt ár og sjá til hvort niðurstaða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvísýnt Ráðast mun innan viku hvort samningum verður sagt upp. Formenn 50 aðildarfélaga ASÍ koma þá saman. Forsendur brostnar, óvissa fram á ögurstund  Formannafundur taki ákvörðun fyrir kl. 16 hinn 28. febr. Ekki liggur fyrir hvort víðtækur stuðningur er við það meðal forystumanna landssambanda og félaga innan ASÍ að segja samningum upp eða láta þá renna sitt skeið og hefja undirbúning að endurnýjun samninga í haust. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir mjög fáa hafa lýst af- stöðu sinni til þess hvað eigi að gera. Menn vilji sjá hvað stjórnvöld og atvinnurekendur vilja gera í tengslum við endurskoðun samninga og ekki sé óeðlilegt að menn vilji hafa allt uppi á borðinu áður en ákvörðun sé tekin. Gylfi hefur lagt til að ákvarðanir á boðuðum formannafundi ASÍ í næstu viku verði teknar með blandaðri atkvæða- greiðslu. Þá byggist vægi atkvæða bæði á fjölda formanna og stærð aðild- arfélaganna til að tryggja að bæði meirihluti félaganna og meirihluti fé- lagsmanna standi að baki ákvörðunum sem teknar eru. Fáir hafa lýst afstöðu sinni LEGGUR TIL BLANDAÐA KOSNINGU Á FORMANNAFUNDI Gylfi Arnbjörnsson „Þetta mál er gríðarlega mikilvægt og mikilvægara nú en oft áður. Við sjáum að þessi mál hafa verið að hreyfast í ranga átt víða í heiminum. Það er verið að ræða um endurnýjun í kjarnorkubúrum í Bandaríkjunum og víðar,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG. Kolbeinn er fyrsti flutningsmaður frumvarps á Alþingi um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Frumvarpið er nú lagt fram í fjórtánda sinn sem er fáheyrt. Frumvarp þessa efnis var fyrst lagt fram á Alþingi árið 1987 en hafði áð- ur verið til umræðu sem tillaga til þingsályktunar. Flutningsmenn voru þingmenn Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Kvennalista. Steingrímur J. Sigfússon var einn flutningsmanna og átti málið eftir að fylgja honum til 2015. Kolbeinn segir að þrátt fyrir lang- an aðdraganda hafi málið þokast í rétta átt á undanförnum árum. „Ekki má gleyma því að í sam- þykktri þjóðaröryggisstefnu Íslands er ákvæði um friðlýsingu fyrir kjarn- orkuvopnun. Við erum með þessi ákvæði inni, í raun vantar ekkert nema að setja þetta í lög.“ Kolbeinn kveðst aðspurður ekki vita hvort þetta sé lífseigasta þing- mál sögunnar. „Menn lögðu nú fram mörg frum- vörp um sjálfstæði landsins á sínum tíma. Góð mál hafa oft verið lengi að velkjast um í kerfinu.“ hdm@mbl.is Lagt fram í fjórtánda sinn  Frumvarp um friðlýsingu Íslands fyr- ir kjarnorkuvopnum lagt fyrir Alþingi Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 244.400 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Portofino&CinqueTerre Hér er á ferðinni spennandi gönguferð um tvær af fallegustu gönguleiðunum við Miðjarðarhafið, Portofino skagann og Cinque Terre ströndina. Náttúrufegurðin er ólýsanleg. Brattir klettar og höfðar, þaktir ilmandi og litríkum miðjarðarhafsgróðri sem speglar sig í túrkisbláum sjónum. Göngurnar eru við allra hæfi. 23. - 30. júní Fararstjóri: Jóhanna Marín Jónsdóttir AUKA BROTTFÖR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.